Sveitarstjórnarmál - 27.10.2005, Qupperneq 9
Fólk er orðið þreytt á að kjósa
„Sá lærdómur sem hægt er að draga af niðurstöðum sameiningarkosninganna er sá að fóik sé orðið
þreytt á að kjósa um málið. Kosningaþátttakan hlýtur að valda vonbrigðum og einnig má draga þá
ályktun af niðurstöðunum að þeir sem ákafastir eru í andstöðu við breytingar eða hafa vantrú á verk-
efninu mæta á kjörstað á meðan hinir sem eru e.t.v. hlutlausir eða jákvæðir greiða ekki atkvæði,"
segir Valgarður Hilmarsson, forseti bæjarstjórnar Blönduósbæjar.
Valgarður segir niðurstöður kosninganna
vissulega vonbrigði vegna þess um hversu
stórt byggðamál sé að ræða fyrir lands-
byggðina í heild. Því sé ekki að neita að
ýmis Ijón séu í veginum og þar vegi ótti
fólks við að sameina litlu dreifbýlissveit-
arfélögin þéttbýlissveitarfélögum nokkuð
þungt. „Við urðum vör við þetta sjónar-
mið hér í Húnavatnssýslu og það háði
okkur einnig nokkuð að um tvo þéttbýlis-
staði er að ræða á því svæði sem kosn-
ingin náði til. Ég get ímyndað mér þann
vanda sem Eyfirðingar stóðu frammi fyrir
með einn stóran kaupstað og nokkra þétt-
býlisstaði, auk dreifbýlisbyggðanna. Ég
var reyndar hissa á að lagt skyldi upp
með tillögu um að sameina allt Eyjafjarð-
arsvæðið í einni lotu svo ólíkt sem það er
innbyrðis, þótt ég sé fullkomlega sam-
mála því að framtíð Eyjafjarðar liggi í
einu sameinuðu sveitarfélagi. Hvað Aust-
ur-Húnvetninga varðar þá hygg ég að
betra hefði verið að kjósa um sameiningu
alls svæðisins í einu, ekki kjósa fyrst um
sameiningu hreppanna í framsveitunum
eins og gert var. Ég veit auðvitað ekki
hvað komið hefði út úr slíkri kosningu en
í mínum huga er engin spurning um þörf-
ina á að sameina alla austursýsluna í eitt
sveitarfélag."
Valgarður segir menn geta rætt um
lýðræði í þessu efni en sér finnist of lítið
hafa farið fyrir umræðu um það samfélag
sem við lifum í og þróun þess í aðdrag-
anda sameiningarkosninganna. „Þjóðfé-
lagið hefur breyst mikið á umliðnum
árum og krafan um stærri og öflugri sveit-
arfélög er einungis eðlilegur hluti af þeirri
þróun. Á sama tíma og byggðirnar úti um
land eru að veikjast vex krafan um marg-
víslega þjónustu sveitarfélaganna og jafn-
vel einnig að þau styðji við atvinnulíf
þegar það á í vök að verjast. Ég fæ ekki
séð hvernig á að vinna til frambúðar að
þessum mál-
efnum í öll-
um þessum
fámennu
sveitarfélög-
um."
Valgarður
segir Ijóst að
ekki megi
láta standa
við svo búið
og að það
verði að taka
þetta mikil-
væga
byggðamál upp að nýju. Hann kveðst
gera sér grein fyrir að það verði tæpast
gert fyrr en eftir komandi sveitarstjórnar-
kosningar og síðan þingkosningar, en að
sínu mati verði að vera búið að endur-
skipuleggja sveitarfélögin fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar 2010.
Valgarður Hilmarsson, forseti
bæjarstjórnar Blönduósbæjar.
Fullviss um að menn halda áfram
að ræða saman
Fólk var ekki tilbúið í svo stóra sameiningu, segir Jakob Björnsson.
„Úrslitin sýna vissulega að fólk var ekki
tilbúið að samþykkja svo víötækar breyt-
ingar sem fólust í sameiningartillögun-
um," segir Jakob Björnsson, formaður
bæjarráðs Akureyrarkaupstaðar. Hann
segir erfitt að segja til um hvort tillögur
um smærri sameiningar hefðu frekar verið
samþykktar. Svo megi vel vera en þessar
tillögur hafi verið byggðar á hugmyndum
sem hafi komið fram í samtölum við
sveitarstjórnarmenn víðs vegar um landið.
„Ef til vill hefur kynningarstarfið og
þau formerki sem tillögurnar voru kynntar
undir ekki höfðað nægilega til hins al-
menna borgara sem gjarnan lítur til þess
sem næst honum er, frekar en röksemdir
sem settar eru fram með fremur almennu
orðalagi. Hvað Eyjafjörð varðar þá hafði
félaganna. Við höfum orðið vör við
ákveðinn núning þarna á milli sem tekur
lengri tíma að eyða. Fólki finnst þessi mál
flókin og víða eru þau viðkvæm eins og
sést af niðurstöðum þessara kosninga."
Jakob kveðst þó ekki óttast að samein-
ingar sveitarfélaga muni stöðvast. „Ef við
horfum til þess sem gerðist eftir samein-
ingarkosningarnar 1993 og þeirrar miklu
fækkunar sveitarfélaga sem átt hefur sér
stað síðan þá er ég viss um að þetta ferli
heldur áfram. Menn ákváðu að láta reyna
á svo umfangsmiklar breytingar nú og
niðurstaðan er sú sem menn þekkja. Ég er
þess fullviss að menn halda áfram að
ræða saman og leita leiða til þess að efla
sveitarfélögin með sameiningu."
ég alltaf vissar efasemdir um að samein-
ing alls svæðisins næðist í einu skrefi og
voru þær efasemdir einfaldlega byggðar á
samtölum við
fólk. Sveitar-
félögin á
Eyjafjarðar-
svæðinu eru
einnig mjög
ólík að stærð
og gerð.
Stærð Akur-
eyrarkaup-
staðar virðist
valda ákveð-
inni tortryggni
á meðal íbúa jakob Björnsson, formaður bæj-
minni sveitar- arráðs Akureyrarkaupstaðar.
Traust í 20 ár
TOLVUMIÐLUN Jgf 1985-2005
9