Sveitarstjórnarmál - 27.10.2005, Blaðsíða 20
Vestmannaeyjabær
Kúnstin er að lifa lífinu lifandi
í Vestmannaeyjum geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi hvað íþróttir, æskulýðs- og tómstundastörf
varðar, bara að bera sig eftir því - krafturinn hefur alltaf einkennt Eyjamenn að sögn Andrésar Sigur-
vinssonar, framkvæmdastjóra fræðslu- og menningarsviðs Vestmannaeyjabæjar.
Hann segir þetta vera skemmtilegt og
krefjandi starf, og það hafi vissulega verið
mikil vinna að setja sig inn í hlutina, en
samstarfsfólk hans í Ráðhúsinu og aðrir
hafi verið honum einkar hjálplegt. Sá sem
svo mælir er Andrés Sigurvinsson, fram-
kvæmdastjóri fræðslu- og menningarsviðs
Vestmannaeyjabæjar. Andrés verður lík-
lega seint flokkaður sem dæmigerður
embættismaður, enda fengist við flest
annað um ævina. Hann hefur þó mikla
og víðtæka reynslu af stjórnunarstöfum.
Var lengi í stjórn Félags leikstjóra á ís-
landi og formaður um tíma og hann átti
þátt í að gera goslokahátíðina íVest-
mannaeyjum að því sem hún er í dag.
Þar skipti, að hans sögn, andlitslyftingin á
Skvísusundinu sköpum. Aðspurður kveðst
hann hafa ánægju af að vinna fyrir bæjar-
félagið og finnst oddvitar bæjarstjórnar,
Arnar Sigurmundsson og Lúðvík Bergvins-
son, og bæjarfulltrúarnir almennt sýna
það í verki að þeir taki starf sitt alvarlega.
Ábyrgir og framsýnir stjórnmálamenn sem
eru að leggja línur til framtíðar bæjarfé-
laginu til heilla. „Nei, ég er að sjálfsögðu
ekki alltaf sammála, en ég er í vinnu hjá
bæjarfélaginu, vinn fyrir bæjarfélagið og
það voru aðrir en ég kjörnir til að fara
með ákvörðunarvaldið. Ég og samstarfs-
fólk mitt á sviðinu reynum að gera okkar
besta, við vinnum mjög náið saman,
skiptumst á skoðunum og reynum að
styðja við bakið hvert á öðru."
„Hún rís úr sumarsænum"
Andrés er fullur eldmóðs og sannfæringar
og segir að reynsla hans af kennslu og
leiklistarstörfum til margra ára gagnist sér
ágætlega. „Það er líka kostur í þessari
stöðu að sjá málin með auga gestsins. Ég
er að koma heim aftur eftir rúmlega 30
ára fjarveru, en hér ólst ég upp og hér
liggja rætur mínar. í Vestmannaeyjum
finnst mér gott að vera."
Hefur þessi kraftur alltaf einkermt Eyja-
menn? „Mín kynslóð ólst upp við að fara
snemma að vinna og komst því fljótlega í
kynni við slagkraft atvinnulífsins. Við
fengum snemma á tilfinninguna að það
Andrés Sigurvinsson, framkvæmdastjóri fræöslu-
og menningarsviðs Vestmannaeyjabæjar.
skipti sköpum að allir legðust á eitt við að
bjarga verðmætum og gera vegVest-
mannaeyja sem mestan. Okkur var inn-
rætt að leggja okkur fram hvort sem var í
vinnunni niður í fiskvinnslustöðvunum, í
leikfélaginu, íþróttunum, sjómennsku eða
öðru; að við Eyjamenn ættum að standa
saman á hverju sem dyndi. Með fullri
virðingu fyrir öðrum þá tel ég okkurVest-
mannaeyinga vera í meistaraflokki hvað
þetta varðar. Nei; þetta er enginn þjóð-
rembingur, við höfum sýnt það í gegnum
tíðina að við höfum verið frumkvöðlar á
margan hátt þegar fastalandið dró lapp-
irnar."
Menn takast á - eðlilega
„Erum við gagnrýnir, förum við með
ófriði? Nei; en menn takast eðlilega á um
hlutina, það getur orðið allhvasst á stund-
um. Við sem höfum alist hér upp höfum
vanist því að menn svöruðu fyrir sig, létu
ekki eiga hjá sér, segðu skoðun sína um-
búðalaust og fylgdu henni eftir. Okkur
bræðrum var eins og öðrum uppálagt að
vera heiðarlegir, líta fyrst í eigin barm
áður en við færum að dæma aðra. Samfé-
lögin geta verið svo sorglega ókristilega
sjálfmiðuð í deginum í dag. Ég verð að
segja að leikhúsið, kennslan og störf mín
í meðferðarbransanum hafa kennt mér
ótrúlega margt, sem hefur nýst mér vel í
þessu starfi mínu. Sjómennsku og sveitar-
störf stundaði ég einnig.
Jú; þetta er öðruvísi leikhús, en mann-
eskjan og mannlegt eðli er viðfangsefnið
sem fyrr og í fyrirrúmi. Ég á heldur ekki
von á að verða ellidauður í þessu starfi,
þó mér líki það vel. í svona starfi eiga
menn helst ekki að daga uppi. Það er nú
þannig að það sem þú lærðir í gær er
orðið úrelt á morgun og menn verða að
halda sér við, komast upp úr hjólförunum
séu þau orðin óþarflega djúp. í dag geta
allir sem hafa nennu, nýtt sér sí- og end-
urmenntun, hún stendur flestum til boðar.
Kúnstin er að lifa lífinu lifandi og það
erum við Eyjamenn þekktir fyrir."
Hef frábært samstarfsfólk
Það brostu margir í kampinn þegar And-
rés Sigurvinsson var orðinn yfirmaður
íþróttamála bæjarins, en önduðu léttar
eftir að Ólöf A. Elíasdóttir, íþrótta- og
æskulýðsfuIItrúi, kom að sviðinu. Hana
þekkja allir, reynslu hennar og dugnað
við uppbyggingu á íþrótta og æskulýðs-
starfi. Hann segist
vera svo heppinn
að hafa geysilega
gott og vinnusamt
samstarfsfólk á
sviðinu, þær Ernu
Jóhannesdóttur,
fræðslufulltrúa og
kennsluráðgjafa,
þrautreyndan skólamann, Ólöfu A. Elías-
dóttur, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, Krist-
ínu Jóhannesdóttur, ferða-, markaðs- og
menningarfulltrúa, menntuð í fræðunum
og landsþekktur dugnaðarforkur, Guð-
rúnu H. Bjarnadóttur leikskólafulItrúa,
Vestmannaeyingar eiga glæsilegt íþróttahús með
þremur löglegum sölum, frábæra innisundlaug og
nú er verið að bæta útivistarsvæði og aðstöðu
fyrir börnin.
20
6 tölvumiðlunI H-Laun SFS