Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 27.10.2005, Qupperneq 22

Sveitarstjórnarmál - 27.10.2005, Qupperneq 22
Vestmannaeyjabær Fleiri ferðamenn til Eyja Sagan, hraunið og nálægðin við náttúruöflin eru hvatning fyrir ferðaþjónustu Vestmannaeyinga, sem ætla sér að nýta þessa kosti. Kirkjugarðurirm í Vestmannaeyjum hreinsaður síðsumars 1973. Nú er verið að grafa Suðurgötuna upp. I fyrra var hafist handa við nýtt verkefni í ferðamálum í Vestmannaeyjum sem þegar hefur vakið mikla athygli bæði hér á landi og erlendis og á án efa eftir að draga að ferðafólk þegar verkinu fer að miða fram. Þetta verkefni er nefnt „Pompai norðurs- ins" en þar er um að ræða uppgröft einn- ar götu, Suðurgötu, sem fór undir ösku og hraun í eldgosinu 1973. Til þessa verk- efnis hefur bæjarfélagið m.a. fengið styrk frá Ferðamálaráði og nú þegar er búið að grafa niður á fyrsta húsið, sem kom ótrú- lega heillegt undan farginu 33 árum eftir að það lagðist yfir. „Áformað er að Ijúka uppgreftrinum á næstu sex árum og á þá að vera búið að grafa tíu hús úr hrauninu. Ákveðin kaflaskipti urðu í söguVest- mannaeyja við eldgosið og raunar ótrú- legt að öll byggð skyldi ekki leggjast af um lengri framtíð. Um tvö þúsund manns misstu heimili sín svo að segja á einni nóttu og á fjórða hundrað húsa fóru undir hraun á nokkrum dögum. Þegar búið verður að grafa götuna upp í heild sinni mun saga þessara atburða koma í Ijós með ákaflega skýr- um hætti og ætti að hafa mikið aðdrátt- arafl fyrir ferðafólk," segir Kristín Jó- hannsdóttir sem fer fyrir verkefninu. Surtseyjarstofa til Vestmanna- eyja En það er fleira sem jarðsagan hefur fært Vestmannaeyingum. Skammt frá Fleima- ey er yngsta eyja heimsbyggðarinnar sem sögur fara af. Það er Surtsey sem varð til í eldgosi undan Vestmanna- eyjum 1963. Nú er unnið að því að fá Surtseyjarstofu flutta til Vestmannaeyja, sem getur opnað Vestmannaeyingum nýja möguleika í fræðslu- og ferðamálum. Surtsey hefur verið eftirlæti vísindamanna víða um heim og nú banka aðrir uppá til að fá að heimsækja eyjuna. Þetta var m.a. rætt á sérstakri ráðstefnu sem haldin var á ís- landi í haust, en þar komu saman Surts- eyjarnefndin ásamt umhverfisráðherra og vísindamönnum. Samgöngumálin hamla Samgöngumálin hafa hamlað ferðaþjón- ustunni fram til þessa en að mati Andrés- ar Sigurvinssonar, framkvæmdastjóra fræðslu- og menningarsviðs Vestmanna- eyjabæjar, felst framtíðarlausnin í nýju hraðskreiðara skipi, sem siglir a.m.k. þrjár ferðir á sólarhring. Tvær ferðir Herjólfs á dag verða eftir áramót og nýtast fyrst og fremst heimamönnum. „Þessi ákvörðun var löngu tímabær breyting á samgöngum Vestmannaeyinga. Flugsamgöngur frá Reykjavík eru í ólestri og því er þörf á að lyfta grettistaki í þeim efnum. Til þess að ferðamannastaðurinn Vestmannaeyjar eigi raunhæfa möguleika til að keppa við aðra ferðamannastaði landsins, þarf reglulegar ferðir í stærri vélum," segir Andrés og bætir við að svo komi jarðgöngin vonandi í fyllingu tímans. Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum er að líkindum elsta og einnig þekktasta bæjar- hátíð hér á landi. Hér er verið að skjóta upp flugeldum að loknum brekku- söng. 22 Q tölvumiðlun H-Laun SFS

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.