Sveitarstjórnarmál - 27.10.2005, Síða 26
Velferð frá vöggu til grafar
Höfum lykilhlutverki að gegna
Hér er um grundvallarmál að ræða og
snertir alla þætti samfélagsins og alla þá
þjónustu sem hið opinbera veitir, hvort
sem um ræðir skólastarf, rekstur sam-
gangna eða heilbrigðisþjónustu. Ef upp-
bygging félagsauðs er ekki studd mark-
visst þá er hætt við því að límið sem
tengir saman fjölbreytt samfélag okkar
hætti að virka sem skyldi með neikvæð-
um afleiðingum. Þessi hugmyndafræði
um mikilvægi félagsauðsins er einn af
grunnþáttum þjónustumiðstöðva sem nú
eru að verða til í Reykjavík og óhætt að
fullyrða að ekki verði uppbygging al-
mannaþjónustu rædd öðruvísi en að taka
mið af þeim þætti sem snýr að félags-
auðnum. Sér í lagi þegar talað er í sí-
auknum mæli um þátttakendur í stað
þiggjanda þjónustunnar. Við sem störfum
á þverfaglegum vettvangi þjónustumið-
stöðvanna sjáum mikilvægi þess að
tengja saman ólík verkefni sveitarfélag-
anna og spinna úr þeirri nálgun enn
sterkara samfélagsnetverk. Þannig höfum
við lykilhlutverki að gegna í þessu sam-
hengi og eigum að skoða hvernig við get-
um unnið enn markvissar f því að auka
þann félagsauð sem við búum svo ríku-
lega að og nýta betur þau sóknarfæri sem
búa í samfélaginu. Eigum við kannski að
ræða þetta betur næst þegar við hittumst í
heita pottinum?
Öflugri þjónusta við íbúana
Árni Magnússon félagsmálaráðherra segir að nú sé lagt til að hafist verði handa við flutning málefna
fatlaðra, heilsugæslu, heimahjúkrun, öldrunarþjónustu og minni sjúkrahúsa til sveitarfélaganna auk
svæðismiðlunar og atvinnuráðgjafar.
Árni Magnússon félagamálaráðherra flutti
erindi á málþingi Sambandsins um vel-
ferð frá vöggu til grafar undir yfirskriftinni
„Staða íslenska velferðarsamfélagsins -
framtíðarsýn." í erindinu kom m.a. fram
að markmiðið sé að þessir sex málaflokk-
ar verði alfarið á hendi sveitarstjórnar-
stigsins í framtíðinni.
Að þjónustan sé viðunandi
Árni sagði að umræða um þjónustuna sé
opnari og fjölbreyttari og að faghópar
væru að sinna henni. Áhrif hagsmunasam-
taka verði sífellt meiri og faglegri. Umræð-
an snúist ekki lengur um hin aðskildu við-
fangsefni ráðuneytanna eða hvort þjónust-
an sé veitt af ríki eða sveitarfélögum, held-
ur fyrst og fremst um það hvort þjónustan
sé viðunandi. Neytandinn þarfnist hennar
hver sem ynni hana af hendi.
Eitt velferðarráðuneyti
Árni sagði að öflug sveitarfélög geti veitt
þessa alhliða velferðarþjónustu og rekið
saman heilsugæslu og félagsþjónustu
undir merkjum velferðar og samþætt þar
með þjónustu við leik- og grunnskóla. Við
þetta megi bæta barnaverndinni, sem
reyndar sé mun sérhæfðara viðfangsefni.
Hann kvaðst í þessu sambandi vilja und-
irstrika það sjónarmið að þjóðin stæði
betur að vígi með eitt velferðarráðuneyti
innan stjórnarráðsins og að nú sé hafin
endurskoðun á skipulagi þess og verka-
skiptingu á milli ráðuneyta af hálfu ríkis-
stjórnarinnar.
Árni Magnússon félagsmálarádherra.
Að efla sveitarstjórnarstigið
og dreifa valdi
Árni rakti nokkuð þá vinnu sem unnin
hefur verið til að kanna möguleika á
flutningi þjónustustofnana frá ríkinu til
sveitarfélaganna en sagði síðan: „Verkefn-
isstjórn um eflingu sveitarstjórnarstigsins,
sem ég skipaði í árslok 2003, óskaði eftir
álitsgerð um mat á kostum þess og ann-
mörkum að flytja ákveðin verkefni frá ríki
til sveitarfélaga. Þessi verkefni voru: Mál-
efni fatlaðra, heilsugæsla, minni sjúkra-
hús, málefni aldraðra, umboð Tryggingar-
stofnunar ríkisins og vinnumiðlun og ráð-
gjöf. Óskað var eftir margþættu mati sem
fólst m.a. f því að kanna hver yrðu áhrif á
skiptingu opinberra útgjalda milli ríkis og
sveitarfélaga, hvort málaflokkarnir myndu
falla að núverandi verkefnum sveitarfélag-
anna og hvernig mætti koma fyrir heild-
stæðri félagsþjónustu á einum stað til
hægðarauka fyrir neytendur. Einnig var
óskað eftir könnun á því hvort verkefnin
væru til þess fallin að uppfylla þau mark-
mið sem verkefnisstjórnin hafði sett sér."
Sjálfsforræði byggðarlaga
verði eflt
Árni taldi þessi markmið síðan upp en
þau eru: Að treysta og efla sveitarstjórnar-
stigið með aukinni valddreifingu hins op-
inbera, að sveitarfélögin annistflesta nær-
þjónustu við íbúa, að sveitarfélögin ráð-
stafi auknum hlut í opinberum útgjöldum
og fái til þess eðlilegan hluta tekna hins
opinbera, að sveitarfélögin myndi heil-
stæð atvinnu- og þjónustusvæði og að
sjálfsforræði byggðalaga verði eflt."
Öflugri nærþjónusta við íbúa
í máli Árna kom fram að niðurstöður
þessarar úttektar væru þær að innan allra
málaflokkanna sex, sem kannaðir hafi
verið, komi vel til greina að flytja verkefni
til sveitarfélaganna. Það gæti bæði aukið
skilvirkni og bætt þjónustu við almenn-
ing. í framhaldinu hafi verkefnisstjórnin
lagt fram tillögur um verkefnaflutning frá
ríki til sveitarfélaga en einnig verkefna-
flutning frá sveitarfélögum til ríkis. Hann
sagði allar tillögurnar miða að því að gera
verkaskiptingu hins opinbera skýrari, auk
þess sem tillögur um verkefnaflutning til
sveitarfélaga miði að þvf að efla nærþjón-
ustu við íbúa þeirra.
26
^ tölvumiðlun H-Laun ISFS