Sveitarstjórnarmál - 27.10.2005, Side 28
Viðtal mánaðarins
Sveitarfélögin verða sjálf að gæta
hagsmuna sinna
Árni Þór Sigurðsson segir að ef sveitarfélögin gæti ekki hagsmuna sinna gagnvart Evrópusambandinu
og Evrópska efnahagssvæðinu þá geri aðrir það ekki.
„Sveitarstjórnarstigið getur haft áhrif á
Evrópulöggjöfina með ýmsum hætti og
þá einkum í gegnum tengsl og samstarf
við þá starfsmenn framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins sem eru að vinna
að undirbúningi löggjafar. Þessi tengsl
geta verið í gegnum Evrópuþingið, Hér-
aðanefnd Evrópusambandsins og Efna-
hags- og félagsmálanefndina. Einnig í
gegnum samstarf við aðra fulltrúa sveit-
arfélaganna, samtök sveitarfélaga og
borga auk fulltrúa í fastanefndum ESB
og í ráðherraráðinu. Ég tel heldur eng-
um blöðum um það að fletta að óform-
legar leiðir geti komið að gagni við
hagsmunagæslu einstakra sveitarfélaga-
sambanda, borga og svæða. Það byggir
að verulegu leyti á að mynda og hag-
nýta sér víðtækt tengslanet við lykilaðila
í Brussel," segir Árni Þór Sigurðsson,
borgarfulItrúi í Reykjavík, en hann hefur
lagt til að Samband íslenskra sveitarfé-
laga opni sérstaka skrifstofu í Brussel og
leiti eftir samstarfi við Reykjavíkurborg
og Byggðastofnun um reksturinn, með
þeim möguleika að fleiri geti komið að
starfsemi hennar síðar.
Árni Þór starfaði um sex mánaða
skeið, frá janúar til júní á þessu ári, í
Brussel á vegum Sambands íslenskra
sveitarfélaga, Reykjavíkurborgar, utanrík-
isráðuneytisins og félagsmálaráðuneytis-
ins. Auk þessara aðila var verkefnið
einnig styrkt af Jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga. Verkefni Árna Þórs var m.a. að
kynna sér hvernig sveitarfélög í Evrópu
standa að því að koma málefnum sínum
á framfæri við Evrópusambandið og
hvernig samningurinn um Evrópska efna-
hagssvæðið getur nýst sveitarfélögunum.
Vægi staðbundinna stjórnvalda
að aukast
Utanríkisráðherra skipaði nefnd árið 2003
til að huga að framtíðartilhögun á sam-
starfi ríkis og sveitarfélaga um málefni
hins evrópska efnahagssvæðis og var
Ámi Þór Sigurðsson.
henni sérstaklega ætlað að huga að mál-
efnum sveitarstjórnarstigsins. Ein af tillög-
um nefndarinnar var að senda mann
tímabundið til starfa í Brussel, til að
kynna sér erindrekstur sveitarfélaganna,
og var það aðdragandinn að starfi Árna
Þórs þar. í inngangi hans í skýrslu um
starfið í Brussel kemur fram að vægi stað-
bundinna stjórnvalda hafi sífellt verið að
aukast innan Evrópusambandsins og þar
af leiðandi einnig mikilvægi þess að þau
sinni hagsmunagæslu sinni vel og skipu-
lega. Hann bendir á að sambærileg þróun
hafi átt sér stað utan Evrópusambandsins,
t.d. bæði á íslandi og í Noregi, með flutn-
ingi verkefna frá ríki til sveitarfélaga, enda
þótt ekki sé um langa eða umfangsmikla
reynslu að ræða í því efni.
Sveitarfélögin verða sjálf að
gæta hagsmuna sinna
í skýrslu Árna Þórs segir m.a. að hags-
munir sveitarfélaga séu margs konar en
sannleikurinn hins vegar sá að það muni
enginn gæta hagsmuna þeirra ef þau
gera það ekki sjálf. Sú staðreynd sé orð-
in sveitarstjórnarmönnum mun Ijósari
nú en áður var, ekki síst vegna reynsl-
unnar hingað til. Árni Þór segir að nýjar
reglur og tilskipanir sem ísland hefur
þurft að innleiða á grundvelli EES-samn-
ingsins hafi komið mörgum sveitar-
stjórnarmönnum í opna skjöldu. Sveitar-
félögin og Samband íslenskra sveitarfé-
laga hafi verið óundirbúin, jafnvel þó
meirihluti allra ESB-gerða, sem inn-
leiddar hafa verið í íslenskan rétt, komi
til kasta sveitarfélaganna að framkvæma
og kosta.
Gríðarlegir hagsmunir í húfi
„Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í
húfi fyrir okkur í þessu efni. Við erum
að taka hingað heim lög og reglur frá
Evrópusambandinu og stór hluti af þeim
varðar sveitarfélögin með beinum hætti.
Við getum áætlað að um 2/3 hlutar allr-
ar löggjafar og reglna, sem koma frá Evr-
ópusambandinu, lendi á sveitarfélögun-
um að framkvæma og kosta. Þess vegna
eiga sveitarfélögin svo mikilla hagsmuna
að gæta í þessu samhengi og ekkert síður
en ríkisvaldið. Af þessari ástæðu skiptir
einnig miklu máli fyrir sveitarfélögin að
vel sé fylgst með hvað er að gerast á þess-
um vettvangi á hverjum tíma og að sveit-
arstjórnarstigið geti haft áhrif á þá þróun.
Við getum sjálf komið sjónarmiðum okkar
á framfæri og jafnvel haft áhrif á einstakar
reglugerðir þar sem hagsmunir Islands eru
með öðrum hætti en annarra þjóða og
e.t.v. fengið undanþágur eða lengri aðlög-
unartíma til að uppfylla skilyrði sem geta
verið sveitarfélögunum þung f skauti."
Árni Þór nefnir reglugerðir um fráveitu-
málin sérstaklega í þessu sambandi, sem
kostað hafa sveitarfélögin milljarða króna
en hefði hugsanlega mátt leysa á ódýrari
hátt hér á landi en inni í miðri Evrópu
vegna þess að landið er umlukið úthafi.
28
^ TÖLVUMIÐLUN H-LaUfl $F5