Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 27.10.2005, Page 30

Sveitarstjórnarmál - 27.10.2005, Page 30
Hópur íslenskra sveitarstjórnarmanna á kynningarfundi hjá EFTA. ist einstökum sveitarfélögum eða stærri einingum. Norrænu sveitarfélagasam- böndin eru öll með sínar starfsstöðvar á sama stað og deila aðstöðu þótt þau reki hvert sína starfsemi. Þau hafa lýst vilja á því að íslendingar komi með sína starfs- stöð inn í það samfélag og okkur stendur það til boða. Ég tel það alveg tvímæla- laust gott fyrir okkur að komast þar inn vegna þess að þar liggur fyrir mikil þekk- ing á þessum málum og einnig margvís- leg tengsl við hagsmunaaðila innan Evr- ópusambandsins, EFTA og fleiri aðila. Sum ríkjanna eru innan Evrópusambands- ins og fá þannig margvfslegar upplýsingar sem gætu nýst okkur með ýmsu móti. Norsku starfsmennirnir hafa sagt mér að þeir hafi mikið gagn af þessu sambýli vegna þeirra upplýsinga sem þeir fá í gegnum samskipti sín við Dani, Svía og Finna, sem eru innan Evrópusambands- ins. Þar að auki held ég að fyrir starfsemi eins og ég er að leggja til að við förum út í, þá sé mikilvægt að við séum ekki ein- angraðir heldur í samhengi og samstarfi við aðra. Það eykur flæði upplýsinga og gerir starfið skilvirkara þegar menn deila vinnusvæði og aðstöðu með þessum hætti. Því held ég að það geti orðið ár- angursríkt að skipuleggja þetta með þeim hætti sem ég er að leggja til. Ég held að ef við færum að senda einn mann til Brussel og setja hann inn á einhvern einn kontór þá yrði aðeins um peningasóun að ræða." Erfitt að meta kostnaðarhliðina Þegar kemur að kostnaðinum segir Árni Þór að alltaf verði erfitt að leggja slíkt mat á starfsemi sem þessa. „Þarna er nokkuð örugglega um 20 til 30 milljón króna kostnað að ræða á ári, miðað við fulla starfsemi eins og ég legg til. Það er um- taisverð fjárhæð og því eðlilegt að Sam- band íslenskra sveitarfélaga og aðrir sem að þessu myndu koma velti því nokkuð fyrir sér. Einnig er hægt að hugsa sér að byrja í smærri skrefum. En ég held að besta sönnun þess að svona starfsemi skili árangri sé að félagar okkar frá öðrum sveitarfélagasamböndum og einnig þeim sem ekki eru innan Evrópusambandsins eins og þau norsku hafa verið með starf- semi þarna á annan áratug." Árni Þór seg- ir að ef þetta starf geti leitt til þess að ís- lendingar, sveitarfélögin á íslandi, fái til- hliðranir eða eftirgjöf í reglugerðum vegna sérstakra aðstæðna í landinu, þá geti það sparað þeim verulega fjármuni. Þar gæti verið um slfkar upphæðir að ræða að kostnaðurinn við skrifstofu í Brussel verði smámunir. Um það sé auð- vitað ekki gott að segja fyrirfram vegna þess að slíkt ráðist fyrst og fremst af ein- stökum málum. Hann segir að hitt sé þó ekki síður mikilvægt að styrkja tengslin við aðra aðila sem gæta hagsmuna sveit- arfélaga, læra af þeim og miðla þekkingu og reynslu hingað heim. „En hvað sem öllu líður þá er það eng- in spurning í mínum huga að við eigum að sinna þessum málum og það er tví- mælalaust betra að byrja smátt en sitja með hendur í skauti og aðhafast ekkert. Þetta er sameiginlegt hagsmunamál allra sveitarfélaga í landinu," segir Árni Þór Sigurðsson. Fræðsiumál Skólamálanefnd tekur til starfa Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur ákveðið að koma á fót sérstakri skólamálanefnd. Þessi ákvörðun var tek- in í framhaldi af ályktunum frá grunn- skólaþingi sem stjórn sambandsins gekkst fyrir í mars mánuði árið 2004. Á grunnskólaþinginu komu fram hug- myndir um að Samband íslenskra sveit- arfélaga yrði virkara í stefnumótun í grunnskólamálum og annaðist samræm- ingu milli sveitarfélaga í skólamálum. Fræðslumálin eru í heild sinni einhver þýðingarmestu mál sem sveitarfélögin annast, auk þess að nýta hvað hæst hlut- fall af útgjöldum þeirra. Af þeim ástæð- um er talið mikilvægt að sambandið fylgist með og hafi áhrif á breytingar og þróun þessa málaflokks þar sem hags- munir sveitarfélaganna eru hafðir að leiðarljósi. Skólamálanefndin á að vera stjórn og skrifstofu sambandsins til ráð- gjafar um fræðslumál, en undir þá starf- semi heyrir, starf leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og framhaldsskóla. I skólamálanefndinni eru Gerður G. Óskarsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs Reykjavíkurborgar, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ og Gunnar Gísla- son, deildarstjóri skóladeildar Akureyrar- kaupstaðar. Þá hefur Svandís Ingimund- ardóttir verið ráðin þróunar- og skóla- fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga og mun starf hennar m.a. felast í því að vera tengiliður á milli skólaskrifstofa sveitarfélaganna og sambandsins, með áherslu á upplýsingagjöf og miðlun í þessum málaflokki. 30 ^ tölvumiðlun H-Laun $FS

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.