Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 27.10.2005, Page 32

Sveitarstjórnarmál - 27.10.2005, Page 32
Lýðheilsustöð og sveitarfélögin Vinna að útbreiðslu geðheilsuverkefna Innihald geðorðanna er forsenda fyrir því að ákveðið hefur verið að ráðast í útgáfu þeirra með þess- um hætti. LýÖheilsustöð er að kynna tvö verkefni á geðsviði. Annað þeirra er um Geðorðin tfu, sem dreift verður til almennings á næstunni en hitt varðar geðrækt fyrir börn og kallast „Vinir Zippýjar," sem dregið er af ensku heiti þess „Zippy's Friends". Gerðir hafa verið sérstakir segulplattar með Geðorðun- um tíu, sem ætlaðir eru á ísskápa og aðra hluti á heimilum landsmanna. Lýðheilsu- stöð og sveitarfélögin í landinu munu dreifa plöttunum til almennings fyrir jólin, en búið er að framleiða 110 þúsund platta eða álíka marga og heimilin í landinu. Guðrún Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Lýðheilsustöð og verkefnisstjóri Geðræktar, segir að í lok september hafi verið búið að panta um helming þessara platta, sem nefndir hafa verið jólagjöf Lýðheilsustöðvar og sveitarfélaganna til heimilanna í land- inu. Sést sjaldnast utan á fólki Talið berst að geðrækt sem Guðrún segir dregið af enska hugtak- inu „mental health promotion," sem þýði í raun allt sem gert er til þess að hlúa að geðheilsu fólks. Sjaldnast beri fólk vanda af geðrænum toga utan á sér. Það sjáist ekki utan á líkamanum þótt eitthvað ami að sálinni. Með ýmsum upplýsingum og aðgerðum megi þó nálgast þennan vanda og hjálpa fólki til að takast á við hann. „Geðrækt er bara einn þáttur alhliða eflingar heilsu fólks, sem snýst um að beina sjónum að heilbrigði og því hvernig megi styrkja eigin heilsu og annarra. Með geðræktarhugtakinu er sér- staklega verið að leggja áherslu á hversu geðheilsan er mikilvæg- ur þáttur í almennu heilsufari. Við verðum að vera minnug þess að það er engin heilsa án geðheilsu og forsenda hennar er fyrst og fremst sú að fólk viti vel um andlega líðan sína og þá þætti sem geta haft áhrif á hana." Til allra heimila En hver eru Geðorðin tíu? Fela þau sérstakan boðskap í sér eða eru þau leiðbeiningar um hvernig við eigum að hegða okkur? „Geðorðin eru tíu setningar sem hver um sig á að minna okkur á hvernig við getum eflt geðheilsuna á auðveldan hátt. Þetta eru eins konar daglegar áminningar, byggðar á eiginleikum sem tald- ir eru einkennandi fyrir þá sem búa við velgengni í lífinu. Þeir sem tileinka sér að lifa í samræmi við boð- skap geðorðanna eru líklegri til þess að búa við hamingju og velferð í lífi sínu en aðrir," segir Guðrún. Hún segir að innihald geð- orðanna sé forsenda fyrir því að ákveðið hafi verið að ráðast í útgáfu þeirra með þessum hætti og fá sveitarfélögin í landinu í lið með Lýðheilsustöð til þess að koma þeim á framfæri við landsmenn. Auk þess sem geðorðaplöttunum verður dreift til heimila í landinu, þá birtast geð- orðin í auglýsingum, m.a. á 74 strætisvögn- um á höfuðborgarsvæðinu. Þá hefur Morg- unblaðið birt pistla og greinar á laugardög- um þar sem einstaklingar úr íslensku samfé- lagi hafa tekið eitt geðorð fyrir og fjalla um innihald þess frá eigin sjónarhorni. Hlutir sem kalla fram góðar minningar í tengslum við útgáfu Geðorðanna tíu stendur Lýðheilsustöð fyrir útgáfu á því sem kallað er Geðræktarkassinn. Höfundur hans er Elín Ebba Ás- mundsdóttir iðjuþjálfi. Guðrún segir það verkefni bæði ætlað börnum og fullorðnum. „Þetta verkefni byggir á hlutum sem varðveita góðar og persónulegar minningar fólks. Elín Ebba hefur sagt frá því hvernig hugmyndin að geðræktarkassanum varð til. Hún kvaðst hafa heyrt af heimili þar sem heimilisfaðirinn féll frá fyrir aldur fram og eiginkonan stóð ein eftir með mörg börn. Við þennan atburð hafi heimilið leyst upp og fjölskyldan tvístrast þótt ekki væri nema um tíma. Þegar fyrirsjáanlegt var að svo myndi fara, hafi konan útbúið lítinn kassa handa hverju barni og sett í hann hluti sem héldu minningunni um fjölskylduna lifandi og þar með voninni um að sameinast aftur, sem varð. í framhaldi af þessari frásögn hafi Elín Ebba farið að velta því fyrir sér hvort þessi hugmynd væri ekki nýtanleg enn þann dag í dag og þannig varð geðræktarkassinn til. Mér finnst hugmynd Elínar Ebbu um að hafa geðræktarkassa á hverju heimili mjög góð. Hver og einn getur útbúið sinn eigin kassa eða fjölskyldukassa og sett í hann hluti sem vekja upp góðar hugsanir og minningar. Fólk getur síðan leitað í kassann, skoðað innihald hans og rifjað upp þá atburði eða minningar sem hlut- irnir í honum kalla fram. Þetta getur verið góð lausn eftir erfiðan dag, eða þegar ótti, kvíði, leiði eða einmanaleiki sækir að fólki." Guðrún Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri hjá Lýð- heilsustöð. „Hver og einn getur útbúið sér sinn eigin kassa eða fjölskyldukassa og sett í hann hluti sem vekja upp góðar hugsanir og minningar." 32 TOLVUMIÐLUN H-Laun SFS

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.