Morgunblaðið - 28.11.2011, Síða 4

Morgunblaðið - 28.11.2011, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2011 Skógarhlíð 18 sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. • Jólaferð 20 des. í 14 nætur frá kr. 173.500 með „öllu inniföldu“ Tenerife Frá kr. 173.500 Villa Adeje Beach *** með „öllu inniföldu“ Netverð á mann m.v. tvo fullorðna og 2 börn, 2 – 11 ára, í íbúð á Villa Adeje Beach með allt innifalið. Netverð á mann m.v. tvo fullorðna 229.600 í búð með allt innifalið. Ót rú leg t s ér til bo ð! H H H H H Heimsferðir bjóða frábært tilboð á allra síðustu sætunum til Tenerife þann 20. desember. Í boði er sértilboð á Villa Adeje Beach íbúðahótelinu með öllu inniföldu. Athugið að mjög takmörkuð gisting er í boði! Reykjanesbær er með til athugunar að selja 15% hlut í HS- Veitum og mun bærinn halda meirihluta í fé- laginu eða 51%, samkvæmt fjárhags- áætlun bæjarins 2012. Söluverð er áætlað en ekki er búið að verð- leggja hlutabréf- in. Áætlað er að bréfin verði seld á fyrstu mán- uðum ársins. „Við stefnum á að eiga meirihluta í HS Veitum hf. Við höfum því tök á því að selja 15% og halda meirihluta.Við höfum verið að skoða ákveðna samvinnu við Orku- veituna um sölu á eignarhlut í HS Veitum hf. Orkuveitan hefur sýnt áhuga á því að selja 15% hlut sinn í félaginu,“ segir Árni Sigfússon bæj- arstjóri Reykjanesbæjar. Árni segir að lífeyrissjóðir séu líklegastir kaup- endur á allt að 30% hlut í HS veitum. „Við teljum skynsamlegra að selja 15% hlut okkar til þess að greiða skuldir miðað við þær kröfur um skuldahlutfall sem settar eru á sveit- arfélög. Við höfum fengið greiddan arð af þessum eignum okkar en það er ekki rétta aðferðin eins og lögin gera ráð fyrir í dag,“ segir Árni. Reykjanesbær hefur einnig und- irritað yfirlýsingu um kaup Magma á skuldabréfi í eigu bæjarins en reiknað er með að með sölu skulda- bréfsins muni talsvert af skuldum bæjarins verða niðurgreitt og þar á meðal skuldir bæjarins við Depfa- bankann. Á árinu 2012 munu því skuldir bæjarsjóðs hafa minnkað um 14%, eða um 3,5 milljarða og skuldir samstæðu um 6% eða 2,5 milljarða frá fyrra ári. mep@mbl.is Reykjanesbær ætlar að selja 15% í HS Veitum  Reykjanesbær greiðir niður skuldir samkvæmt fjárhagsáætlun 2012 Fjárhagsáætlun 2012 » Bæjarsjóður mun lækka skuldir sínar um 14% frá árinu 2011. » Samstæðan mun lækka skuldir sínar um 6% frá árinu 2011. » Reykjanesbær mun halda meirihluta eða 51% hlut í HS- Veitum þrátt fyrir sölu á 15% hlut í félaginu. Árni Sigfússon Ásmundur Friðriksson segir að flugrútan sé eina leiðin á Suðurnesjum sem standi undir kostnaði. Með því að taka hana út úr kerfinu muni slag- krafturinn fara úr því og þjónustan við íbúana hrynja. Enginn fáist til að aka til smærri staðanna. Telur hann víst að brottförum til og frá Suðurnesjum muni fækka úr 105 á viku í 76. „Það að taka flugrútuna út úr okkar kerfi er eins og að taka Hlemmur-Breiðholt út úr Strætókerfinu í Reykjavík. Þá væri verið að einkavæða hagnaðinn og ríkisvæða tapið. Ég hélt að Íslend- ingar væru búnir að fá yfir sig nóg af því, að minnsta kosti er ég búinn að fá nóg af slíku,“ segir Ásmundur. Slagkrafturinn fer úr kerfinu HVERFI FLUGRÚTAN HRYNUR ÞJÓNUSTA VIÐ ÍBÚA Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Isavia leggst gegn lagabreytingum sem treysta eiga grundvöll samn- inga Vegagerðarinnar við sveitar- félög um almenningssamgöngur. Félagið segir að fullt frelsi eigi að vera í flutningi fólks með rútum til og frá flugstöðinni á Keflavíkurflug- velli en segir einnig koma til álita að félagið sjálft annist þessa flutninga. Sveitarfélögin á Suðurnesjum tóku við sérleyfi til fólksflutninga á Suðurnesjum fyrir tveimur árum, með samningi við ríkisvaldið, og samþættu flutninga til og frá flug- stöð og Reykjanesbæ við strætó- kerfið í sveitarfélögunum. Samning- ar við rútufyrirtækin sem önnuðust flutningana samkvæmt eldra útboði hafa verið endurnýjaðir en til hefur staðið að bjóða leiðirnar út að nýju. Togast á um feita bitann Ásmundur Friðriksson, bæjar- stjóri í Garði, segir að þetta fyrir- komulag hafi reynst vel. Með því að samtengja áætlanir hafi verið hægt að bæta þjónustu við íbúa í sveit- arfélögunum og starfsmenn flug- stöðvarinnar, ekki síst seint á kvöld- in og snemma á morgnana. Bætt kerfi hefur stóraukið notkun á almenningsvögnum á Suður- nesjum. Flugstöð Leifs Eiríkssonar er feitasti bitinn í þessu kerfi. Rútufyrirtæki hóf á síðasta ári samkeppni á þeirri leið og fékk aðstöðu í flug- stöðinni eftir nokkurt þref. Viðræður hafa verið um hlið- stæða samninga við fleiri sveitar- félög eða samtök sveitarfélaga en Vegagerðin og innanríkisráðuneytið töldu að styrkja þyrfti heimildir lag- anna áður en gengið yrði frá samn- ingum, ekki síst til að tryggja að forsendur útboða héldu. Verði frumvarpið að lögum verður samið við eitt rútufyrirtæki um flutninga til og frá flugstöðinni, eins og á öðr- um leiðum. Frumvarpið er nú til meðferðar á Alþingi. Innanríkisráðherra óskaði eftir því, þegar hann mælti fyrir frumvarpinu, að frumvarpið yrði af- greitt sem allra fyrst svo hægt yrði að ljúka samningsgerð með tilheyr- andi úrbótum á almenningssam- göngum á milli sveitarfélaga. Leggjast gegn samningum Ýmsir hagsmunaaðilar og samtök þeirra leggjast gegn breytingunum, meðal annars rútufyrirtæki og Samtök atvinnulífsins. Isavia, sem rekur Flugstöð Leifs Eiríkssonar, telur að hagsmunir félagsins og flugvallarnotenda fari ekki saman við hagsmuni sveitarfélaga. Í um- sögn félagsins til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis er bent á tvo möguleika. Annars vegar að frelsi ríki í þessum flutningum og hins vegar geti komið til álita að fé- lagið sjálft sjái um flutningana, eins og tíðkist á mörgum flugvöllum í ná- grannalöndunum. Morgunblaðið/Golli Strætó Sveitarfélög úti á landi vilja taka við almenningssamgöngum á milli sveitarfélaga, eins og þekkist á höfuð- borgarsvæðinu og nágrenni. Isavia vill algjört frelsi eða að félagið sjái sjálft um flutninga til og frá flugvellinum. Isavia býðst til að taka yfir flugrútuna  Deilt um samninga um einkaleyfi til fólksflutninga Ásmundur Friðriksson Börkur Gunnarsson Sigurður Bogi Sævarsson Mjög hörð gagnrýni kom fram um helgina á Jón Bjarnason ráðherra vegna vinnubragða hans hvað varðar nefnd sem hann skipaði um sjávarút- vegsmál sem svo virðist sem sam- starfsráðherrar hans hafi ekki vitað af fyrr en Jón kom með tillögur nefndarinnar inn á ríkisstjórnarfund síðastliðinn þriðjudag. Í framhaldinu var skipuð ráðherranefnd með þeim Guðbjarti Hannessyni velferðarráð- herra og Katrínu Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra sem átti að finna sáttaleið í málinu. Daginn eftir birti Jón Bjarnason til- lögur nefndar sinnar á vefsíðu ráðu- neytisins og lagð- ist það illa í forsætisráð- herrann, Jóhönnu Sigurðardóttur. Hún kom fram í hádegisfréttum RÚV í gær og sagði vinnubrögð ráðherrans „óboðleg.“ Á henni mátti skilja að hún liti á tillögurnar sem drög að frumvarpi og fullyrti að þetta yrði aldrei stjórnarfrumvarp enda ekki unnið í samráði við neinn í ríkis- stjórninni. Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, lét einnig hafa eftir sér að vinnu- brögð og staða Jóns Bjarnasonar ráðherra væru vond. „Það er sitt- hvað í tillögum starfshóps ráð- herrans nýtilegt en annað alls ekki. Við þurfum hins vegar að fá skýr- ingar ráðherrans á þessu máli og því hvernig það hefur verið unnið,“ sagði Björn Valur í samtali við mbl.is. Ennfremur sagði hann: „Menn geta ekki farið fram úr sjálfum sér eða tekið sér vald umfram umboð þingflokks síns, eins og nú hefur gerst. Því hlýtur ráðherrastóll Jóns Bjarnasonar að vera farinn að rugga.“ Jón Bjarnason ráðherra segir í yf- irlýsingu sem hann sendi frá sér síð- degis í gær að: „þess misskilnings gæti að um sé að ræða fullbúið stjórnarfrumvarp eða tillögur sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðherra. Um er að ræða vinnuskjöl sem geta orðið umræðugrundvöllur. Sú ákvörðun að kynna þær almenningi var kynnt í minnisblaði sem lagt var fyrir ríkisstjórn og er í anda opinnar stjórnsýslu og þess gagnsæis sem mælt er fyrir um í yfirlýstri stefnu ríkisstjórnarinnar.“ Hörð gagnrýni á Jón Bjarnason  Forsætisráðherra lýsti megnri óánægju og sagði vinnubrögðin óboðleg  Jón segir vinnuskjölin sem lögð voru fram vera góðan umræðugrundvöll  Formaður þingflokks VG segir ráðherrastólinn rugga Jóhanna Sigurðardóttir Jón Bjarnason Björn Valur Gíslason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.