Morgunblaðið - 28.11.2011, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2011
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Lítið lát hefur verið á brottflutningi
frá landinu það sem af er árinu.
Þannig fluttu 850 einstaklingar frá
landinu umfram aðflutta í júlí-sept-
ember. Afar takmarkaðar upplýs-
ingar eru til um bakgrunn þeirra
sem yfirgefa landið og fara til starfa í
öðrum löndum. Hagstofan hefur
ekki upplýsingar um menntun
þeirra.
Þekkt er að mikill fjöldi iðnaðar-
manna, fólk með reynslu úr bygging-
ariðnaði og tæknimenntað fólk hefur
ráðið sig til starfa erlendis frá því að
kreppan reið yfir, vegna verkefna-
skorts, sérstaklega á öðrum Norð-
urlöndum og seinustu misseri hefur
fjöldi starfsfólks í heilbrigðisþjón-
ustunni ráðið sig þar til vinnu.
Karl Sigurðsson, sviðsstjóri á
Vinnumálastofnun, hefur aflað upp-
lýsinga um menntun þeirra sem voru
á atvinnuleysisskrá en fluttu úr landi
í fyrra (sjá töflu). Þær tölur segja þó
ekki alla söguna, því talið er víst að
meirihluti þeirra sem flytja úr landi
hafi ekki verið atvinnulaus.
Upplýsingar um þá sem voru
skráðir af atvinnuleysisskrá leiða í
ljós að hlutfall iðnaðarmanna sem
fluttu úr landi er nokkru hærra en
sem nemur hlutfalli þeirra á skrá yf-
ir atvinnulausa og hið sama gildir um
fólk sem hefur lokið stúdentsprófi.
Samtök atvinnulífsins hafa einnig
reynt að leggja mat á svonefndan
„spekileka“ þ.e. í hve miklum mæli
fólk með sérmenntun og sérþekk-
ingu flytur úr landi. Skv. upplýsing-
um sem SA fékk Hagstofuna til að
taka saman voru brottfluttir íslensk-
ir ríkisborgarar umfram aðflutta
4.100 frá 2008 til 30. júní sl. Þeir
skiptust nokkurn veginn í jafn stóra
hópa eftir því hvort um var að ræða
einstaklinga með háskólamenntun,
starfs- og framhaldsmenntun eða án
framhaldsmenntunar. Benda þessar
tölur til að 1.500 manns með starfs-
og framhaldsmenntun hafi flutt
brott umfram aðflutta og 1.200 með
háskólamenntun á þessum tíma. SA
benda þó á að hafa verði fyrirvara á
þessum tölum þar sem Hagstofan
hefur ekki tæmandi upplýsingar og
beri eingöngu að líta á þær sem vís-
bendingu um menntun brottfluttra.
Tölur um búferlaflutninga segja
heldur ekki alla söguna því færst
hefur í vöxt að fólk í ýmsum starfs-
greinum fari til vinnu á Norðurlönd-
unum í stuttan tíma í senn, jafnvel í
nokkrar vikur eða mánuði og þurfi
því ekki að tilkynna búsetuskipti.
Þetta hefur t.a.m. verið algengt í
heilbrigðisgeiranum.
Ekki eru tiltækar upplýsingar um
í hve miklum mæli læknar ráða sig til
starfa í öðrum löndum í stuttan tíma
í senn en skv. upplýsingum Sólveigar
Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra
Læknafélags Íslands, er þó ljóst að
þar er um nokkuð stóran hóp sér-
fræðinga að ræða. Læknaskortur er
í nágrannalöndunum og því hefur
verið auðvelt fyrir lækna að finna
sér starf annars staðar, að sögn
hennar. LÍ hefur fengið upplýsingar
frá Noregi, Svíþjóð og Danmörku
um skráð lækningaleyfi sem ís-
lenskir læknar hafa fengið í þessum
löndum. Þær gefa vísbendingu um
þróunina þó ekki sé þar með sagt að
allir hafi nýtt sér leyfin til starfa.
Útgefnum lækningaleyfum til ís-
lenskra lækna fjölgaði verulega á
allra seinustu árum og fengu alls
227 læknar lækningaleyfi í þessum
þremur löndum á árunum 2008-
2010. Flestir í Svíþjóð eða 136, 70 í
Noregi og 21 í Danmörku.
Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar
og fleiri starfsstéttir í heilbrigðis-
þjónustunni hafa líka fengið staðfest
starfsleyfi í þessum löndum. Þannig
voru skráð 70 hjúkrunarleyfi hjúkr-
unarfræðinga í Noregi í fyrra og 37
á árinu 2009 eða samtals 107.
Viðmælendur sem fylgjast vel
með búferlaflutningum eru ekki á
einu máli um hvort rétt sé að tala
um brottflutning fólks umfram að-
flutta í efnahagskreppunni sem
fólksflótta. Á málþingi fyrir
skömmu fór Karl Sigurðsson yfir
þróunina yfir lengra tímabil og
bendir á að búferlaflutningar Ís-
lendinga hafi alltaf verið töluverðir.
Að meðaltali síðustu 50 ár hurfu
tæplega 500 af landi brott árlega
umfram aðflutta en á seinustu
þremur árum hafa um það bil 1.500
flutt brott af landinu umfram að-
flutta. Flestum ber saman um að því
lengur sem doðinn í atvinnulífinu
vari minnki líkurnar á að fólkið sem
flutti snúi til baka.
Brottflutningar Íslendinga
Heimild: Vinnumálastofnun og Hagstofa Ísland
Hvaðan koma og hvert fara?
5.000
4.500
4.000
3.500
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
5.000
4.500
4.000
3.500
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
Aðfluttir Brottfluttir
2008 2009 2010 2008 2009 2010
Danmörk Noregur Svíþjóð Bandaríkin Bretland Annað
Flutningar Íslendinga til og frá Noregi
1.600
1.400
1.200
1.000
800
600
400
200
0
2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010
Aðfluttir Brottfluttir
Hverjir fara til útlanda
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Afskráðir 2010 vegna brottflutnings
Grunn-
skóli
Starfst.
framh. Iðnnám
Stúdents-
próf
Háskóla-
nám
Brottfl. af skrá Atvinnul. alls Þjóðin
Atgervisflótti til nágrannalanda
Stór hluti brottfluttra með framhalds- og háskólamenntun 227 læknar fengu lækningaleyfi í Sví-
þjóð, Noregi og Danmörku 2008-2010 Yfir 100 hjúkrunarfræðingar með skráð leyfi í Noregi ’09-’10
Morgunblaðið/Golli
Á brott Vísbendingar eru um að frá upphafi kreppunnar og fram á mitt
þetta ár hafi um 1.200 fleiri háskólamenntaðir flutt frá landinu en til þess.
Straumur
til Skandinavíu
» Skv. tölum norsku Hagstof-
unnar um ríkisfang íbúa á
Norðurlöndunum voru rúm-
lega 20 þúsund Íslendingar
búsettir á öðrum Norður-
löndum en Íslandi í janúar á
þessu ári.
» Þar af voru tæplega 9 þús-
und í Danmörku, 6.400 í Nor-
egi og 4.360 í Svíþjóð.
» Börn eru um fjórðungur
þeirra Íslendinga sem hafa yf-
irgefið landið umfram aðflutta
á árunum eftir að efnahags-
hrunið reið yfir.
» Nettóbrottflutningur há-
skólamanna nam 0,2% á fyrri
hluta þessa árs, þ.e. fækkun
háskólamanna vegna flutn-
inga samsvarar einum af
hverjum 500 að sögn Sam-
taka atvinnulífsins.
Starfandi læknum hefur fækkað um-
talsvert hér á landi. Læknafélag Ís-
lands hefur tekið saman upplýsingar
um fjölda lækna sem flutt hafa til
annarra landa og þá sem hafa flutt
heim á sama tímabili í kjölfar efna-
hagshrunsins.
Á ellefu mánaða tímabili, frá maí
árið 2009 til mars árið 2010 fluttu 48
læknar frá Íslandi. Þetta jafngildir
því að 4,4 læknar hafi flutt af landi
brott í hverjum mánuði.
Á tímabilinu frá mars í fyrra til
maí á þessu ári flutti 81 læknir frá
landinu. Á þessum 15 mánaða tíma-
bili fluttu því að jafnaði 5,4 læknar af
landi brott í hverjum mánuði. Fram
kemur í tölum læknafélagsins að á
öllu tímabilinu, þ.e. frá maí árið 2009
til maí árið 2011 hafa 18 læknar sem
eru eldri en 45 ára flutt af landi
brott.
Sé litið nánar á þróunina kemur í
ljós að á 9 mánaða tímabili í fyrra
(mars-nóvember) fluttu 56 læknar af
landi brott en 15 læknar fluttu til Ís-
lands á sama tíma. Flestir fluttu til
Svíþjóðar eða 40 læknar.
Brottflutningurinn hefur haldið
áfram á þessu ári Á fyrstu fimm
mánuðum yfirstandandi árs fluttu 25
læknar af landi brott, flestir eða 16
læknar, fluttu til Svíþjóðar en á sama
tímaskeiði fluttu sjö læknar til Ís-
lands.
Margir læknar sækja sérfræði-
menntun sína til Svíþjóðar og má
ráða af tölum sem læknafélagið hef-
ur tekið saman að langflestir þeirra
sem fluttu til Svíþjóðar á þessum
tímum voru á aldrinum 30 til 34 ára.
Um 5 læknar fluttu á
brott í hverjum mánuði
Hátt í 60 læknar til Svíþjóðar frá mars 2010 til maí í ár
Morgunblaðið/Eggert
Til Norðurlanda Fjöldi heilbrigðis-
starfsfólks sem sótti um heimild til að
starfa í Noregi sjöfaldaðist á 2 árum.
Hátíðarkörfur
Ostabúðarinnar
eftir þínu höfði
OSTABÚÐIN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG
Við erum byrjuð að taka á móti pöntunum
í síma 562 2772 og á ostabudin.is
Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00
Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00