Morgunblaðið - 28.11.2011, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2011
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Miðvikudaginn 30. nóvember kl. 8.30 - 10.30 á Hilton Reykjavík Nordica. Að framsögum
loknum fara fram pallborðsumræður. Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans,
stýrir fundi. Skráning á landsbankinn.is.
Hvað er framundan?
Fundur í tilefni útgáfu ársrits Hagfræðideildar Landsbankans
Dr. Daníel Svavarsson
forstöðumaður Hagfræðideildar
Landsbankans kynnir nýja þjóð-
hagsspá til næstu þriggja ára.
Freyr Hermannsson
forstöðumaður erlendra viðskipta
á Alþjóðasviði Seðlabankans fjallar
um gjaldeyrishöftin og áform Seðla-
bankans um afnám þeirra.
Dr. Sigurður B. Stefánsson
sjóðstjóri hjá Eignastýringu Lands-
bankans fjallar um eignastýringu
í ljósi gjaldeyrishafta og óróa á
erlendum mörkuðum.
Skuldir hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu í lok árs 2010 skv. Eurostat.
DANMÖRK
44%
ÍSLAND
93%
LÚXEMBORG
19%
ÍTALÍA
118%
GRIKKLAND
145%
ÍR
L
A
N
D
95%
ÞÝ
SK
A
L
A
N
D
83%
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Vesturbæjarskóla vantar sárlega
húsnæði og pláss til kennslu og nú
stendur til að þrjár færanlegar
stofur verði settar á skólalóðina,
sem er lítil fyrir.
Kjartan Magnússon og Marta
Guðjónsdóttir, borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokks, hafa lagt fram
tillögu til skóla- og frístundaráðs
um að skoða þann möguleika að
setja þessar færanlegu stofur ann-
ars staðar, t.d. á Byko-reitinn eða á
göturými Vesturvallagötu og þá
myndi aðeins ein færanleg stofa
þurfa að vera á skólalóðinni sjálfri.
„Ég vil skoða aðra kosti áður en
börnin missa leiksvæði undir fær-
anlegar skólastofur,“ segir Kjartan.
Skoðað til hlítar
Eva Einarsdóttir, borgarfulltrúi
Besta flokksins, segir að taka þurfi
tillit til gatnaskipulagsins. „Ég veit
bara sem víst að borgin er búin að
vera að kanna virkilega til hlítar
hvernig sé hægt að leysa húsnæðis-
og lóðarvanda Vesturbæjarskóla.
Tillaga Kjartans verður vænt-
anlega skoðuð á næsta fundi og þá
kannað hvort deiliskipulag bjóði
upp á þær breytingar,“ segir Eva.
mep@mbl.is
Vesturbæjarskóli í vandræðum
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Þröngt Óvinsælar stofur á skólalóð.
Talsmaður Huangs Nubos á Íslandi,
Halldór Jóhannsson, segir Nubo ekki
íhuga neinar aðrar fjárfestingar hér á
landi nema að frumkvæði frá íslensk-
um stjórnvöldum.
,,Hann er nátt-
úrlega búinn að
reyna sitt og mót-
tökurnar eru þess-
ar þannig að hann
ætlar sér ekki að
sækja þetta neitt
frekar og bíður
þess í stað eftir
viðbrögðum.“
Eins og þekkt
er orðið ætlaði
Nubo að kaupa stærstan hluta jarð-
arinnar Grímstaðir á Fjöllum; byggja
hótel bæði í Reykjavík og á Gríms-
stöðum, en fékk ekki leyfi stjórnvalda.
,,Hann lagði upp með það strax í
upphafi að fara út í þessar fram-
kvæmdir og beið í þrjá mánuði eftir
svörum. Svo fær hann neikvæð svör
og þá allt í einu koma einhver viðbrögð
um að nú skuli ræða við hann, en þetta
er svolítið seint í rassinn gripið,“ sagði
Halldór og bætti því við að þetta væru
mikil vonbrigði.
Hörð gagnrýni úr héraði
Ljóst er að fleiri eru vonsviknir.
Stjórn Samfylkingarfélagsins í Þing-
eyjarsýslu sendi frá sér ályktun þar
sem félagið harmar þessa ákvörðun
innanríkisráðherra um að veita Huang
Nubo ekki undanþágu frá lögum til að
kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum.
Þá lýsti stjórnin furðu sinni á því að
ráðherrann hefði ekki talið það ómaks-
ins virði að ræða við Nubo um fyrir-
ætlanir hans um uppbyggingu ferða-
þjónustu á Norðausturlandi.
,,Stjórnin lýsir ógleði sinni yfir því
að atvinnuuppbygging í Þingeyjar-
sýslu skuli vera orðin fórnarpeð í
valdatafli Vinstri grænna og beinir því
til forystu Samfylkingarinnar að kalla
nú þegar saman flokksstjórnarfund.
Þar gefist flokksmönnum tækifæri til
að viðra skoðanir sínar og taka afstöðu
til áframhaldandi stjórnarsamstarfs
flokksins og VG,“ segir í ályktuninni.
Huang
hættur við
að fjárfesta
Huang Nubo
Samfylkingarmenn í
Þingeyjarsýslu ósáttir
Erlendur ferða-
maður sem ósk-
aði aðstoðar
vegna slyss
skömmu fyrir
fjögur í gær
komst í hendur
sjúkraflutninga-
manna um
klukkan sjö í
gærkvöldi. Ekki lá þá ljóst fyrir
hverjir áverkar hans voru en hann
fann til í baki og fæti og þótti rétt-
ara að flytja hann með gát.
Björgunarsveitarmenn frá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg fluttu
manninn Reykjadalinn niður að
bílastæðinu rétt utan við Hvera-
gerði. Fjölda björgunarmanna
þurfti til verkefnisins en auk sveita
af Suðurlandi aðstoðuðu sveitir af
höfuðborgarsvæðinu við flutning-
inn sem tók alls hátt í þrjár klukku-
stundir en gekk samt vel.
Björgunarstarfið
tók um þrjá tíma