Morgunblaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 27
24. nóvember 2011 finnur.is 27 Mazda 5: Lélegir demparar Spurt: Mig langar að vita hvort þú þekkir til lélegra upp- runalegra afturdempara Mözdu 5. Í mínum Mazda 5 hafa aft- urdempararnir verið til vand- ræða nánast frá upphafi; – byrj- ar með leka, jafnvel eftir 35 þús. km og eyðileggjast skömmu seinna. Aðrir eigendur sem ég hef haft samband við hafa sömu sögu að segja. Í mínum bíl entist fyrsta settið 50 þús. km. Verðið á dempurunum í umboðinu og vinnan nemur upphæðum sem þola vart dagsljós þrátt fyrir að lesa megi í fjölmiðlum að skatt- greiðendur hafi tekið á sig um 4.000 milljónir af skuldum Brimborgar. Svar: Mér kæmi ekki á óvart þótt það hefði farið framhjá „sér- fræðingum“ umboðsins að þetta telst bótaskyldur galli hjá Mazda í Bandaríkjunum, Kanada og víð- ar (gúgglaðu eftirfarandi tengil: Mazda5 SuspensionIssues [Arc- hive] – RedFlagDeals.com For- ums). Mér kæmi ekki á óvart þótt svarið frá umboðinu væri stöðluð klausa á borð við að „demparar séu undanþegnir ábyrgð“ á sama hátt og bremsu- klossar, púströr og fleira. Hins vegar hafa klárir bílvirkjar með reynslu breytt þessum búnaði (í Mazda 5, Subaru Forester og fleirum) með því að setja hefð- bundna dempara ásamt stinnari gormum að aftan í stað þessara með ónýtu sjálfvirku hleðslustill- ingunni. Prófaðu að tala við Bif- reiðaverkstæði Reykjavíkur um málið. Nissan X-Trail: Miðstöðvarviðnám Spurt: Ég á nokkurra ára gamlan Nissan X-Trail-jeppling. Fyrir skömmu hætti miðstöðin að blása. Á verkstæði var mér sagt að líklega væri viðnám sem stýrði hraða blásarans ónýtt, en þetta er lítið stykki á stærð við kexköku. Í umboðinu kostaði þessi varahlutur 38 þúsund kr. (sem ég á ekki til). Er einhver önnur ódýrari leið til að laga miðstöðina? Svar: Já – það vill svo til. Þetta við- nám er með einfaldari stykkjum í rafeindabúnaði sem raf- eindavirkjar (útvarpsvirkjar) eru alla daga að fást við. Sennileg er bilunin ekki merkilegri en að bræðivar (öryggi) á prentrás- arplötunni hefur brunnið. Farðu með stykkið í Nesradíó í Síðu- múla og talaðu við Guðmund (þú getur skoðað allt það flottasta í bíltækjum á meðan hann kippir þessu í lag – fyrir lítilræði). „Heitari“ og „kaldari“ kerti Spurt: Hverju breytti það fyrir minn Subaru Legacy, sem ekið er daglega styttri vegalengd til og frá vinnu (oft í lest), að skipta yfir í kerti með aðra hitatölu en þá sem gefin er upp fyrir vélina? Svar:Mismunandi hönnun skauts/nagla ræður því hve auð- veldlega kerti brennir af sér sóti. Sú hitatala, sem bílaframleið- andi velur, er málamiðlun sem hentar flestum aðstæðum. Því eru kerti iðulega of köld fyrir okkar aðstæður t.d. hér á höf- uðborgarsvæðinu þar sem mörgum bílum er ekið stuttar vegalengdir kvölds og morgna, jafnvel lestargang; vélin nær sjaldan fullum vinnsluhita né snúningi yfir 3.000 sn/mín. Með því að velja heitari kerti við þessar aðstæður, t.d. einu núm- eri heitari en upp er gefið í vöru- lista – geta þau hreinsað sig betur, neistinn verður sterkari og eyðslan minnkar. Flestir kertaframleiðendur nota hækk- andi númer fyrir hitatöluna nema NGK – þar er heitara kerti með lægri tölu en kalt kerti. Leó M. Jónsson svarar spurningum um bílamál Lög um réttmæta viðskipta- hætti geta sparað mikil útgjöld Morgunblaðið/Ómar Afturdemparar Mözdu 5 geta bilað, eins og bréfritari segir hér frá. Kæmi ekki á óvart, segir í svari Leós þó svar- ið frá umboðinu væri að demparar séu undanþegnir ábyrgð á sama hátt og bremsuklossar, púströr og fleira. Leó M. Jónsson véltæknifræðingur leoemm@simnet.is (Ath. Bréf geta verið stytt. Eldri spurn- ingar og ítarlegri svör eru birt á www.leoemm.com) Sum bílaumboð skilyrða verksmiðjuábyrgð við teg- und sjálfskiptivökva og brjóta þannig gegn gildandi lögum um réttmæta við- skiptahætti (BER-reglu- gerðin). Einungis má krefj- ast þess að vökvinn uppfylli ákveðinn alþjóðlegan gæða- staðal. Valvoline (Poulsen) framleiðir sérhæfðan glussa fyrir alla bíla og vinnuvélar. Notkun hans hefur engin áhrif á ábyrgðarskilmála en þú getur sparað þér 40-50 þús. kr. Stimpill frá sér- hæfðri sjálfskiptingarþjón- ustu í þjónustubók er full- gildur, svo sem frá Skiptingu ehf., Bifreiðastill- ingu ehf., Jeppasmiðjunni ehf. og fleirum. Ábending Hagkvæmari kaup á sjálf- skiptivökva Teikningar af nýrri kynslóð Volvo XC90 hafa komið fram í dags- ljósið í tengslum við bílasýn- inguna í Los Angeles. Samkvæmt þeim tekur framendi bílsins tals- verðum breytingum. Í raun er um alveg nýjan fram- enda að ræða, að sögn tímarits- ins Car and Driver, sem varð fyrst til að birta myndirnar. Útlit bílsins er sagt verða mjög í líkingu við það sem á myndunum má sjá, en um er að ræða bíl sem líklega kemur ekki á markað fyrr en 2013 eða 2014. Volvo XC90-sportjeppinn hefur verið framleiddur frá árinu 2002 og þykir tími kominn á þó ekki væri nema netta andlitslyftingu á þessum vel heppnaða bíl. Í tillög- unum að útliti hans má sjá áhrif frá ýmsum öðrum nýlegum mód- elum frá Volvo. Og er ekki annað að sjá í þeim en að ný trjóna XC90 sé í raun sami framendi og þegar hefur séð dagsins ljós á Volvo Universe-hugmyndabíln- um. Það út af fyrir sig hefur orðið til að gefa vangaveltum byr undir vængi að hér sé um að ræða framtíðarframenda Volvo- fjölskyldunnar. Boðað er að næsta kynslóð Volvo XC90 verði búin fjögurra strokka vélum. agas@mbl.is Nýr framendi á Volvo frumsýndur Nýr framendi Volvo XC90 gæti orðið einkenni næstu bílgerða Volvo. Algjör nýjung - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is STZ mtdekk.is 28”-33” Söluaðili: Hljóðlát og endingargóð Smiðjuvegur 50 (rauð gata) 200 Kópavogur pustehf@gmail.com www.pustkerfi.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.