Morgunblaðið - 24.11.2011, Qupperneq 29
eru líklega enn betri en hefð-
bundins Golfs þar sem hann er
lægri og er með sportfjöðrun.
Hann svínliggur á vegi og þrátt
fyrir hve lágur hann er rakst
hann aldrei niður þó að rösklega
væri farið yfir hraðahindranir.
Dísilvélin, 1,6 lítra er ágætlega
snörp nema í fyrsta gírnum, sem
að áliti greinarhöfundar er alltof
langur sem lýsir sér í kraftleysi.
Þegar komið er í annan og
þriðja gír og vélin látin snúast
aðeins kemur gott tog vélarinnar
í ljós og þá má hraða bílnum
snögglega. Ef aka á þó eins og til
er ætlast við smíði bílsins er þó
skipt upp örar og ávallt haldið
lágum snúningi sem þessi tog-
mikla dísilvél þolir og þá eyðir
bíllinn ótrúlega litlu. Það væri
t.d. hæglega hægt að komast til
Akureyrar á þessum bíl á 13-14
lítrum af dísilolíu og hringveginn
á innan við 50 lítrum og þá er
tankfyllin ekki búin.
Hagkvæmni nýrra dísilsvéla
Magnað er til þess að vita að
bílar með nýjustu og hagkvæm-
ustu dísilvélum séu jafnokar í
eyðslu dýrari bílum sem notast
við Hybrid-tækni (tvinnbílar).
Það þýðir aðeins eitt, ennþá
ódýrara að aka ódýrt!
Ef finna á einhvern ókost við
að aka þessum hagkvæma bíl er
það hversu hátt hann er gíraður.
En þá er um tvennt að velja. Láta
hann snúast rösklega og fá með
því fram mikið tog en í leið meiri
eyðslu, eða sætta sig við minni
snerpu, skipta örar og ná ótrú-
legum eyðslutölum. Hvoru
tveggja er gott og fer bara eftir
skapinu hverju sinni.
Nú sem áður er Golf mjög
eigulegur bíll, einkar vel smíð-
aður og með þessari útfærslu
hans er hann að auki alger spari-
grís og ekki dýr til kaups. Svo
fær hann líka frítt í stæði, enda
CO2 mengun hans aðeins 99 g/
km. Vegna lítillar mengunar fell-
ur hann í afar lágan tollflokk og
því er þessi bíll ódýrari en venju-
legur Golf þrátt fyrir að í honum
sé meiri staðalbúnaður.
finnurorri@gmail.com
Vél bílsins er hönnuð af miklu hugviti og tækniþekkingu.
Gerlegt væri að komast úr bænum til Akureyrar á þessum
bíl á 13-14 lítrum af dísilolíu.
Morgunblaðið/RAX
Innrétting bílsins er látlaus en með mikið notagildi, fögur en ekki fram-
úrstefnuleg. Hún ber vitni um vandaða smíði sem einkennir Golf.
Morgunblaðið/RAX
Volkswagen Golf er snotur bíll að utan og nokkuð látlaus. Hefur í raun lít-
ið breyst frá fimmtu kynslóðinni sem fyrst kom á markað árið 2003.
Láta hann snúast rösklega
og fá með því fram mikið
tog en um leið meiri
eyðslu, eða sætta sig við
minni snerpu, skipta örar
og ná ótrúlegum eyðslu-
tölum. Hvort tveggja er
gott og fer bara eftir skap-
inu hverju sinni.
24. nóvember 2011 finnur.is 29