Morgunblaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 1
ÆVINTÝRAÞRÁIN
TOGAÐI ÞÁ TIL
GRÆNLANDS
VILL FRIÐ
Á JÖRÐU OG
HOLLT NAMMI
AFSÖKUNAR-
BEIÐNIN
KLÚÐRAÐIST
FINNUR.IS OG VIÐSKIPTI KLÚÐUR ÁRSINS 36HÆTTULEGT STARF 10
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Geta slökkviliðs höfuðborgarsvæð-
isins (SHS) til að takast á við
stóráföll skerðist ef skilið verður á
milli slökkvistarfs og sjúkraflutn-
inga. Þetta segir Jón Viðar Matt-
híasson, slökkviliðsstjóri höfuð-
borgarsvæðisins, en slökkviliðið
hefur hingað til annast sjúkra-
flutninga samhliða slökkviliðsstörf-
um og samnýtt mannafla sinn til
þess.
Samningur ríkisins við SHS um
sjúkraflutninga rennur út nú um
áramót og samingaviðræður hafa
engu skilað enn sem komið er. Að
sögn Jóns Viðars tekur stjórn
SHS líklega fyrir nýtt tilboð rík-
isins í næstu viku en hann bendir á
að hingað til hafi um 300 milljónir
króna á ári borið á milli samnings-
aðila.
Einingar unnið vel saman
Jón Viðar óttast hugsanleg áhrif
þess ef skilið verði á milli starf-
seminnar þannig að slökkviliðið
sjái ekki lengur um sjúkraflutn-
ingana ef samningar takast ekki.
„Þetta er ógurlega sveiflukennd
starfsemi og þess vegna er sam-
reksturinn á sjúkraflutningum og
slökkviliðsstarfi mikilvægur. Þú
tekur þá úr slökkviarminum yfir í
sjúkraflutninga þegar álagið er
þar og svo öfugt. Aðskilnaður
skaðar báða armana,“ segir Jón
Viðar.
MViðbragð verður lakara »6
Aðskilnaður skaðar
Björgunargeta sögð skerðast sé skilið á milli sjúkraflutninga og slökkvistarfs
Stjórn SHS tekur fyrir nýtt tilboð ríkisins um sjúkraflutninga í næstu viku
Sjúkraflutningar
» Skv. lögum er slökkviliðs-
starf á ábyrgð sveitarfélaga en
sjúkraflutningar hafa heyrt
undir ríkið frá árinu 1991.
» Síðan þá hefur SHS séð um
sjúkraflutninga á höfuðborg-
arsvæðinu samkvæmt samn-
ingi við ríkið.
Um 100 nemendur úr listdansdeild Skautafélags Reykjavíkur stigu kraft-
mikil skautaspor á spegilsléttum og gljáfægðum ís í gærkvöldi þegar sett
var upp Snædrottningin, sem af mörgum er talið fegursta sköpunarverk
ævintýraskáldsins H.C. Andersens. Þar segir frá Snædrottningunni, sem
tekur dreng nokkurn til fanga í íshöll sína, en miskunnar sig síðan yfir
hann. Dansararnir voru á ýmsum aldri, frá fimm ára og fram yfir tvítugt,
og meðal þeirra eru nemendur úr meistaraflokki sem hafa keppt á stór-
mótum víða erlendis.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ævintýri á hálum ís
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Hjón með börn drógu úr útgjöldum
heimilisins að meðaltali um tæplega
1,9 milljónir á ári á árunum 2008 til
2010. Þetta er samdráttur upp á
22,4%. Einstæðir foreldrar, sem
eru með minni heildartekjur en
hjón, drógu úr útgjöldum sínum um
tæplega 1,5 milljónir eða um 26,9%.
Þetta kemur fram í nýrri rannsókn
Hagstofu Íslands á útgjöldum
heimilanna.
Rannsóknin er lögð til grundvall-
ar við útreikning á verðbólgu. Áður
voru gerðar breytingar á þriggja
ára fresti, en Guðrún Jónsdóttir,
deildarstjóri vísitöludeildar Hag-
stofunnar, segir að svo miklar
breytingar hafi orðið á útgjöldum
heimilanna eftir hrun að ákveðið
hafi verið að gera árlega breytingar
á neyslugrunni Hagstofunnar.
Frá 2008 til síðustu áramóta
drógu heimilin í landinu saman út-
gjöld um 17%. Mestur er sam-
dráttur í útgjöldum vegna kaupa á
húsgögnum, heimilisbúnaði o.þ.h.,
eða 45%. Útgjöld til ferða og flutn-
inga drógust saman um tæpan
þriðjung og til tómstunda og menn-
ingar um 28%. Heimilin verja nú
hærra hlutfalli útgjaldanna í mat
og húsnæði en áður.
Síðustu ár hefur meðalstærð
heimila stöðugt minnkað, en þessi
þróun hefur snúist við eftir hrun.
Meðalheimilið hefur stækkað úr
2,37 einstaklingum í 2,41. Um 25%
heimila eru í leiguhúsnæði. »16
Drógu úr útgjöldum um 1,9 milljónir kr. á ári
Fjórðungur heimila leigir húsnæði
Fleiri búa nú á hverju heimili
Útgjöld eftir árum og bakgrunnsþáttum 2008–2010
Upphæðir eru í þúsundum króna og á verðlagi ársins 2010 2008 2010
9.000
8.000
7.000
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
Allir
hópar
Einhleypir Hjón/samb.
án barna
Hjón/samb.
m. börn
Einstæðir
foreldrar
Önnur
heimilisg.
5.
89
9
4
.9
0
5
3.
38
1
2.
90
2
6.
56
4
5.
4
0
4
8.
35
0
6.
4
78
5.
30
4
3.
88
0
7.
58
5
6.
4
99
-16,9%
-14,2%
-17,7%
-22,4%
-26,9%
-14,3%Breyting 2008-2010
Þar sem neyðarvistun á með-
ferðarstöðinni Stuðlum er oft mjög
umsetin er á stundum látið á það
reyna að vista ungmenni, sem á
þurfa að halda, á unglingaheimilinu
í Hraunbergi í Reykjavík. Með því
er börnum og unglingum með ólík-
an vanda blandað saman og getur
það valdið erfiðleikum.
Forstöðumaður Hraunbergs, sem
er skammtímaheimili fyrir ung-
linga, segir staðreyndina þá, að
töluvert hafi verið um erfið tilvik
undanfarið, þar sem álagið á kerf-
inu hefur verið slíkt að taka hefur
þurft á móti ungmennum sem ættu
frekar heima í neyðarvist á Stuðl-
um. »4
Blanda börnum með
ólíkan vanda saman
Á milli tutt-
ugu og þrjátíu
manns munu
taka á móti nýju
ári fjarri
mannabyggðum
með ferðafélag-
inu Útivist um
þessi áramót.
Um er að ræða
tveggja nátta
áramótaferð í Þórsmörk en þó svo
sótt sé í friðsældina er hvorki flug-
eldar né kampavín skilið eftir í
þéttbýlinu. »8
Flugeldum skotið
upp í óbyggðunum
Áramót í Þórsmörk.
Í fyrsta sinn
frá árinu 2002 er
bók eftir annan
höfund en Arn-
ald Indriðason
efst á sölulista í
árslok. Mest
selda bók ársins
er Brakið, skáld-
saga Yrsu Sig-
urðardóttur. Í
öðru sæti varð
Einvígið eftir Arnald og Gamlinginn
sem skreið út um gluggann eftir
sænska rithöfundinn Jonas Jonas-
son er í þriðja sæti. Listinn nær þó
aðeins til 24. desember. »33
Arnaldur lét sætið
eftir langa setu
Yrsa
Sigurðardóttir
Stofnað 1913 305. tölublað 99. árgangur
F I M M T U D A G U R 2 9. D E S E M B E R 2 0 1 1