Morgunblaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 2011 Sagt hefur verið frá því í frétt-um að simpansinn Cheetah sé látinn í Flórída, áttræður að aldri.    Cheetah varmótleikari Johnnys Weissmull- ers í Tarzanmynd- unum.    Weissmuller,sem ungur vann til gull- verðlauna í sundi á Ólympíu- leikum, er hins vegar látinn fyrir allmörgum árum.    Eftirlifandi aðdáendur þeirrabeggja eru fyrir löngu hætt- ir að fara í þrjúbíó.    En það kom þeim þægilega áóvart að Cheetah skyldi hafa elst og enst svona vel.    Annar simpansi, Bonzo, vannþað sér til frægðar, auk ann- ars, að leika í kvikmynd á móti Ronald Reagan, fyrrverandi for- seta Bandaríkjanna.    Eitt sinn reyndu fréttamenn aðnota tækifærið til að gera lítið úr kvikmyndaferli forsetans. Þeir spurðu hann á blaðamanna- fundi hvort hans helsti mótleikari hefði ekki verið simpansi.    Ronald Reagan ljómaði þegarhann heyrði spurninguna og svaraði: „Jú, og ég lærði mjög mikið af honum. En ég hef heyrt haft eftir apanum að hann geti ekki sagt að það hafi verið gagn- kvæmt.“    Alls konar stórgáfaðir apakett-ir nær og fjær skildu aldrei hvers vegna Reagan náði svona langt. Cheetah Frægir apar STAKSTEINAR Veður víða um heim 28.12., kl. 18.00 Reykjavík -1 snjókoma Bolungarvík -3 léttskýjað Akureyri -6 léttskýjað Kirkjubæjarkl. -3 skýjað Vestmannaeyjar 2 alskýjað Nuuk -10 snjóél Þórshöfn 0 snjókoma Ósló 3 skúrir Kaupmannahöfn 6 alskýjað Stokkhólmur 2 alskýjað Helsinki -1 heiðskírt Lúxemborg 1 súld Brussel 5 skýjað Dublin 6 léttskýjað Glasgow 6 skýjað London 8 léttskýjað París 5 skýjað Amsterdam 7 skýjað Hamborg 7 súld Berlín 6 heiðskírt Vín 3 alskýjað Moskva 0 skýjað Algarve 17 heiðskírt Madríd 12 heiðskírt Barcelona 13 heiðskírt Mallorca 15 léttskýjað Róm 10 léttskýjað Aþena 8 skýjað Winnipeg -8 skýjað Montreal -3 snjókoma New York 6 alskýjað Chicago -3 skýjað Orlando 12 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 29. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:22 15:38 ÍSAFJÖRÐUR 12:07 15:03 SIGLUFJÖRÐUR 11:52 14:44 DJÚPIVOGUR 11:01 14:58 Guðrún Sóley Gestsdóttir gudrunsoley@mbl.is Á meðan flestir fagna áramótum heima í nálægð við snakkskálina arka aðrir upp á fjöll og taka á móti nýju ári fjarri mannabyggð- um. Ferðafélagið Útivist hefur um árabil boðið upp á svokallaðar ára- mótaferðir fyrir göngugarpa og árið í ár er engin undantekning. Að sögn Skúla H. Skúlasonar hjá Útivist njóta ferðirnar mikilla vin- sælda og fjöldi þátttakenda er á bilinu 20-30 ár hvert. Lagt er af stað á föstudegi og gist tvær nætur í skálum félagsins í Goðalandi í Þórsmörk. Ferðirnar eru á lágu erfiðleikastigi og henta því flestum, hvort sem um er að ræða fólk í mikilli þjálfun eða ekki. Skúla segir ferðirnar vinsæl- astar meðal fólks á miðjum aldri með uppkomin börn þó það sé ekki algilt. Þátttakendur sæki í friðsældina sem þarna ríkir auk þess sem náttúrufegurðin hefur einnig mikið aðdráttarafl, enda vart hægt að hugsa sér fallegra umhverfi til að fagna tímamótum sem þessum. Etið og drukkið í skjóli fjalla Þátttakendur skilja hvorki flug- elda né kampavín eftir heima því sú venja hefur í mörgum tilfellum skapast að skála og skjóta upp rakettum á miðnætti. Göngufólk kemur með sínar eigin veitingar og hvergi er gefið eftir í hátíðar- matseldinni þó aðstaðan krefjist vandasamari eldamennsku en í eldhúsinu heima. Áramóta- ferðirnar eru þó ekki einu ferðirnar sem eru farnar af sérstöku tilefni því Útivist býður einn- ig upp á þorra- blóts- og þrett- ándaferðir sem hafa einnig notið vinsælda síðustu ár. Íslenskir fjallaleiðsögumenn bjóða upp á ferðir fyrir einkahópa og verður farið með einn slíkan í Landmannalaugar um áramótin. Að sögn Guðrúnar Jóhannsdóttur starfsmanns Fjallaleiðsögumanna eru dagsferðir um öræfin vinsæl- astar á þessum tíma árs. Erlendir ferðamenn sækja einn- ig í ævintýralega upplifun af þessu tagi, að gista í skála langt frá ys og þys borgarinnar og njóta öðru- vísi upplifunar í íslenskri náttúru. Þar á meðal eru jöklagöngur með leiðsögumönnum er þær ferðir hafa notið vaxandi hylli síðustu ár. Þá er gengið á jökul í upphafi dags og norðurljósin gjarnan skoðuð um kvöldið, enda ljósin áberandi á þessum árstíma. Áramótum fagnað í óbyggðum  Hópur fólks reimar á sig gönguskóna á gamlárskvöld og heldur á fjöll  Einstök upplifun að taka á móti nýju ári í faðmi náttúrunnar Álfakirkja Á milli 20-30 manns fara á vegum Útivistar í Þórsmörk og taka á móti nýju ári í faðmi náttúrunnar. Að sögn Skúla H. Skúlasonar hjá ferðafélaginu Útivist sækja nátt- úrunnendur í vaxandi mæli í ferðir á vegum félagsins yfir hátíðirnar. Bæði er um að ræða virka félaga Útivistar og gesti sem hafa gert það að vana sínum að fara á fjöll á þessum tíma árs, bæði til að flýja skarkala borg- arinnar og að taka á móti nýju ári í fallegu umhverfi. Mestmegnis eru það Íslendingar þó svo að æ fleiri erlendir ferðamenn nýti sér þennan möguleika. Guðrún Jóhannsdóttir hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum segir félagið bjóða upp á ferðir fyrir einkaaðila og muni fara með einn slíkan hóp í Landmannalaugar þetta árið. Jöklaferðir með norðurljósaskoðun eru vinsælustu ferðirnar á þessum árs- tíma að sögn Guðrúnar, enda ný reynsla fyrir flesta ferðamenn. Viljinn til að prófa eitthvað nýtt SÍFELLT FLEIRI SÆKJA Á FÁFARNAR SLÓÐIR YFIR HÁTÍÐIRNAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.