Morgunblaðið - 29.12.2011, Page 11
Grænlendinga er langt fyrir neðan
öryggisvitund okkar Íslendinga.
Við þurftum að vera harðir á því
að öryggismálin séu í lagi, enda
grannt fylgst með okkur. Við höf-
um verið heppnir að ekki hefur
orðið stórslys, einungis smávægileg
óhöpp, en það er líka góðum for-
vörnum að þakka,“ sagði Ingvi.
Haraldur þurfti þó að takast á við
mannslát fyrstu nóttina sína í
starfi þegar starfsmaður fékk
heilablóðfall og hjartastopp út frá
því. Þeir Ingvi dvelja í vinnubúðum
ásamt öðru starfsfólki og fara til
vinnu á hverjum morgni í þyrlu
sem lendir á þyrlupalli í 740 metra
hæð. Þar býr starfsfólkið sig í við-
eigandi öryggisbúnað og leggur í
þverhnípt einstigi niður í 600
metra hæð þar sem námuopið er.
Verið er að undirbúa námuna fyrir
blý- og sinkvinnslu, sem stefnt er á
að hefja árið 2013. Búið er að gera
250 km göng.
Það sem gerir starfsfólki erf-
iðast fyrir er að ekki er kláfur á
milli námuops og þyrlupalls, en
hann er í smíðum. Það er því
þrautin þyngri að koma slösuðum
manni í börum úr námu og upp að
þyrlupalli. „Við þurfum að fara um
sama þverhnípta einstigið og til og
frá vinnu nema nú með börur. Þar
sem aðeins einn sjúkraflutninga-
maður er á vakt í senn þurfum við
að stóla á aðra starfsmenn í nám-
unni til aðstoðar.“
Missti næstum af eigin
brúðkaupi
Haraldur fór upphaflega til
starfs við gullnámu í Nalunaq á
Suður-Grænlandi en þegar björg-
unar- og sjúkraflutningamenn
vantaði til starfa í blý- og sink-
námu sem unnið er við að koma í
gagnið, færði hann sig um set og
gerðist „Health and safety mana-
ger“ sem Haraldur segir öryggis-
stjóra og sjúkraflutningamann á ís-
lensku. „Auðvitað var ekki stokkið
á starfið, þetta þurfti að ræða við
fjölskylduna,“ sagði Haraldur sem
er giftur þriggja barna faðir með
ung börn. Ingvi er einnig giftur og
þriggja barna faðir. Þeir Ingvi
dvelja sex vikur á Grænlandi í
senn og þrjár vikur heima á Ís-
landi og starfið telst því vart fjöl-
skylduvænt, en þeir eiga auðvelt
með að sjá kostina. „Við erum
heima þrjár vikur í senn og það er
góður kostur. Í raun er þetta ekk-
ert öðruvísi en að vera sjómaður,“
sagði Ingvi. Gallarnir eru helst
þeir, auk fjarveru frá fjölskyld-
unni, að erfitt er að stóla á sam-
göngur til og frá Grænlandi vegna
rysjótts veðurfars. Vegna þessa
missti Haraldur næstum af eigin
brúðkaupi. „Ég gifti mig á Ljósa-
nótt í byrjun september og pantaði
flug fimm dögum áður. Ég taldi
það vera nægan fyrirvara en það
skall á mikil þoka svo ekki var
flogið. Mér tókst að lenda kvöldið
fyrir giftingu,“ sagði Haraldur,
sem getur brosað að atvikinu í dag.
Ingvi bætir um betur og sagðist
eitt sinn hafa tafist í 16 daga. Þá
er eins gott að framundan sé ekki
ein af stóru stundunum í lífinu.
„Þeir eru nú nokkuð sveigjanlegir
við okkur þarna úti og við getum
eitthvað stokkið inn hvor fyrir ann-
an, þar sem við vinnum einungis
saman í nokkra daga í senn.“
Fyrirtækið sem þeir vinna hjá
heitir Angel Mining og náman
gengur undir nafninu Black angel
eða Svarti engillinn.
Vilja sjá námuna
taka til starfa
Þó að bæði Haraldur og Ingvi
hafi enga stefnu tekið með vinn-
una, aðra en þá að sinna henni af
alúð meðan þeir starfa fyrir Angel
Mining, langar þá báða að sjá
námuvinnsluna fara í gang, sem
áætlað er að verði árið 2013 með
550 menn starfandi. En viðlíka
vinnuumhverfi og þeir starfa í er
langt frá því að vera auðvelt og því
oft og tíðum óráðið hversu menn
endast lengi við slíkar aðstæður.
Ingva leist t.d. ekki á blikuna þeg-
ar svæðið varð sambandslaust í
þrjár vikur í sumar og eina sam-
skiptatækið sem virkaði var um
borð í þyrlunni. En hvernig skyldu
þeir annars stytta sér stundir á
milli vakta?
„Það er lífsnauðsynlegt að
eiga flakkara og fjölda bíómynda
og sjónvarpsþátta til að horfa á í
frístundum. Þá notum við heima-
tilbúin æfingatæki sem Haraldur
bjó til úr steinum og köðlum til að
halda okkur í góðu formi. Þá daga
sem við erum saman notum við vel
til æfinga, förum yfir öryggisatriði
og fræðin. Annars erum við alltaf á
vakt 24/7,“ sögðu ævintýragjörnu
vinirnir að lokum.
Ljósmynd/frá viðmælendum
Þarfasti þjónninn Þyrla er eini fararskjótinn sem hægt er að stóla á til og frá fjallinu þar sem náman Svarti engillinn er.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 2011
Nám sjúkraflutningamanna
stunduðu Haraldur og Ingvi í
Sjúkraflutningaskólanum á Akur-
eyri. Starfsemi hans fellur undir
velferðarráðuneytið.
Til að komast að í námi sjúkra-
flutningamanna skal umsækjandi
hafa lokið 60 eininga námi í fram-
haldsskóla og hafa innan við
tveggja ára gamalt skírteini í
skyndihjálp, að lágmarki átta
kennslustundir.
Námið er byggt á viðurkenndum
bandarískum EMT-staðli (Emerg-
ency Medical Technician) og inni-
heldur bæði bóklega og verklega
kennslu.
Markmið námsins er m.a. að
nemendur verði færir um að
tryggja öryggi á vettvangi og meta
ástand sjúklings. Þeir þurfa einnig
að geta meðhöndlað og flutt sjúk-
ling(a) á viðeigandi hátt. Heimild:
www.ems.is.
Nám sjúkraflutningamanna
BÆÐI BÓKLEGT OG VERKLEGT