Morgunblaðið - 29.12.2011, Page 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 2011
✝ Björn Sölvi varfæddur 26.1.
1949. Hann lést
22.12. 2011.
Foreldrar hans
Sigurjón Davíðsson
f. 14.9. 1921, d. 11.6.
1996 og Guðlaug
Jóna Aðalbjört Ein-
arsdóttir f. 21.9.
1926. Björn átti þrjá
bræður er létust all-
ir á ungbarnsaldri,
kjörbróðir Björns er Björgvin Sig-
urjónsson, f. 26.7. 1947 giftur Sæ-
dísi Magnúsdóttur, f. 17.7. 1951.
Björn ólst upp í Kópavogi og bjó
þar lengst af. Björn eignaðist eina
dóttur, Margréti f. 24.11. 1973,
móðir hennar er Sólveig Sig-
urjónsdóttir f. 5.2. 1941. Margrét
er gift Guðmundi Hallgrímssyni f.
20.2. 1973, dætur þeirra eru Her-
dís Mjöll f. 8.12. 1997, Sólveig Að-
albjört f. 10.2. 2000 og Rannveig
Lovísa f. 13.3. 2006. Björn tók
landspróf frá Gagnfræðaskóla
Kópavogs, stundaði nám við
blaðamennsku í Gautaborg, Sví-
þjóð og vann hjá
tímaritinu Vikunni
um tíma. Hann lauk
einnig prófi úr
Bankamannaskól-
anum og vann um
skeið í Bún-
aðarbanka Íslands.
Á sínum yngri árum
stundaði Björn
skáklistina af kappi.
Hann varð þrisvar
sinnum Skákmeist-
ari Kópavogs og Reykjavík-
urmeistari varð hann 1968 og
tefldi í landsliðsflokki í kjölfarið.
Hann keppti einnig í bréfskák,
m.a. á Ólympíumóti og á heims-
móti 1990 þar sem hann sigraði.
Björn varð alþjóðlegur FIDE-
meistari árið 1996 og skákmeist-
ari Sjálfsbjargar 2000. Meirihluta
ævi sinnar glímdi Björn Sölvi við
andleg og líkamleg veikindi er
mörkuðu spor í hans líf.
Útför Björns Sölva fer fram frá
Digraneskirkju í dag, fimmtudag-
inn 29. desember 2011, og hefst
athöfnin kl. 11.
Kæri pabbi, nú er kveðjustund-
in runnin upp.
Ég vil minnast góðu stundanna,
t.d. þegar þú reyndir ötullega að
kveikja skákáhuga minn með því
að gefa mér taflborð og taka eina
og eina skák þegar við hittumst.
Það tókst ekki en þú varst sann-
færður um að stelpur ættu að
leggja skákina fyrir sig rétt eins
og strákarnir.
Tónlistaráhugi var einnig til
staðar, þú fórst með mig á klass-
íska tónleika og varst síðan dug-
legur að færa mér ýmsar klass-
ískar plötur. Ég var mótækilegri á
tónlistarsviðinu og hefi ég notið
þessa.
Þú hafðir oft á tíðum mikinn
metnað fyrir mína hönd og gladd-
ist mjög þegar vel gekk hjá mér
við nám og störf. Þú varst himin-
lifandi þegar ég útskrifaðist úr
Háskóla Íslands. Stoltur faðir
varstu og afi; þú fylgdist vel með
dætrum okkar Guðmundar eins
og þú hafðir tækifæri til. Um-
hyggja og væntumþykja þín til
mín, Mumma og afastelpnanna
var klárlega til staðar og kom
fram í ýmsum myndum.
Andleg og líkamleg veikindi
settu svip sinn á líf þitt. Þú barðist
oft hetjulega og stóðst þig mjög
vel í baráttunni. Ég er þakklát fyr-
ir góðar stundir með þér en vildi
sannarlega hafa átt þær fleiri. Við
í fjölskyldunni erum þakklát fyrir
að við gátum átt góða jólastund
með þér heima hjá ömmu, einung-
is 5 dögum fyrir andlát þitt. Bless-
uð sé minning þín.
Kveðja,
Margrét.
Björn Sölvi
Sigurjónsson
aldur fram eða 1994 eftir erfið
veikindi. Stjáni og Inga eins og
þau voru gjarnan kölluð meðal
vina og kunningja eignuðust þrjú
börn, Helenu sem er búsett í
Kópavogi, Sigfús sem býr á Þórs-
höfn og Tryggva, en hann lést
ungur að árum úr hvítblæði, að-
eins nítján ára gamall. Sonar-
missirinn varð þeim hjónum
þungt áfall. Fyrstu búskaparár
sín bjuggu þau í mismunandi
íbúðum á Þórshöfn. Þau ákváðu
síðan að byggja sitt eigið ein-
býlishús og árið 1975 fluttu þau
inn á Hálsvegi 5. Inga var for-
kunnardugleg kona og annáluð
fyrirmyndarhúsmóðir. Heimilið
bar vott um góðan smekk og var
snyrtimennskan í hávegum höfð.
Eins og áður sagði stundaði
Stjáni sjómennsku lengst af sinn
starfsaldur, á ýmsum bátum frá
Þórshöfn, m.a. á Geir Þ.H. 150 og
síðustu árin sem vélstjóri áður en
hann fór í land. Stjáni umgekkst
vélar með sérstakri virðingu og
allt lék í höndum hans, ef ein-
hverju þurfti að dytta að eða eitt-
hvað að lagfæra. Umgengnin í
vélarrúmi var til fyrirmyndar og
ekkert var látið drabbast niður á
þeim bátnum, fyrirhyggjan var í
fyrirrúmi. Þau voru engan veginn
búin að jafna sig af sonarmiss-
inum þegar Inga greindist með
krabbamein í höfði. Þetta voru
miklar byrðar sem lagðar voru á
Stjána og hans góðu fjölskyldu.
Eftir lát Ingu bjó Stjáni áfram á
Þórshöfn, en hætti á sjónum upp
úr því og fór að vinna í landi.
Kristján var liðtækur harmon-
ikkuleikari. Hann lék oft opinber-
lega og eins fyrir sjálfan sig og í
góðra vina hópi. Hann var léttur
og skemmtilegur félagi þegar sá
var gállinn á honum.
Snemma á síðasta ári fór að
bera á veikindum hjá Stjána og
kom þá í ljós að hann hafði fengið
krabbamein í lunga og síðan
meinvarp í höfuð. Síðan leiddi eitt
af öðru og heilsa hans fór dvín-
andi uns hann lést á Þórshöfn
hinn 21. desember sl. eftir
skammvin veikindi.
Kristján eignaðist góða vin-
konu og síðan sambýliskonu frá
Rússlandi, Natalíu Kravtchouk,
sem ætíð var til staðar ef á bját-
aði. Hún flutti til Akureyrar fyrir
nokkrum árum en ávallt var gott
samband þeirra á milli og var hún
honum stoð og stytta, ekki hvað
síst þessa síðustu mánuði. Þegar
horft er til baka er ekki hægt að
segja að lífið sé alltaf sanngjarnt
og sumar fjölskyldur þurfa að
kljást við erfiðari raunir og sjúk-
dóma en góðu hófi gegnir. Ég og
fjölskylda mín vottum Helenu,
Sigfúsi og fjölskyldum þeirra, svo
og Natalíu og öðrum ástvinum,
okkar innilegustu samúð.
Ólafur Friðriksson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA MARÍA ÞÓRHALLSDÓTTIR,
til heimilis á Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður til heimilis á Akureyri,
lést á Hrafnistu mánudaginn 26. desember.
Ásta Ottesen, Páll H. Jónsson,
Gunnlaug Ottesen, Friðrik Diego,
Þórhallur Ottesen, Elín Margrét Jóhannsdóttir,
Kristín Ottesen, Sigmundur Ásgeirsson,
Vilhelm Ottesen,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og sonur,
HAFSTEINN BIRGIR SIGURÐSSON
frá Vetleifsholti,
lést á Dvalarheimilinu Lundi mánudaginn
26. desember.
Útförin fer fram frá Oddakirkju laugardaginn
7. janúar kl. 13.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á minningarsjóð Dvalarheimilis Lundar.
Erlingur Örn Hafsteinsson, Ingibjörg A. Gestsdóttir,
Guðrún Jónsdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HERDÍS HINRIKSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni föstudaginn
23. desember.
Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 4. janúar kl. 15.00.
Anna Sigríður Einarsdóttir, Pétur Pétursson,
Þórunn Ágústa Einarsdóttir, Hjörtur Ingþórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
GEORG GUÐLAUGSSON,
Hraunvangi 7,
áður Selvogsgötu 22,
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, laugardaginn
24. desember.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 30. desember
kl. 13.00.
Árni S. Georgsson, Ásdís Matthíasdóttir,
Baldur P. Georgsson, Åse Marit Vesterdal,
Guðlaugur Georgsson, Lovísa Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝ Jón Jósteinssonfæddist á Bolla-
stöðum í Hraun-
gerðishreppi 5. júlí
1919. Hann lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Eir 18. desem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Ingibjörg Ein-
arsdóttir, hús-
freyja, f. 1. sept.
1891 í Borgarholti í Stokkseyr-
arhreppi, Árn. d. 13. júní 1975,
og Jósteinn Kristjánsson kaup-
maður, f. 7. júní 1887 á Bolla-
stöðum í Hraungerðishreppi,
Árn. d. 30. jan. 1964. Þau bjuggu
í Hausthúsum á Stokkseyri og
síðar í Reykjavík. Jón var næst-
elstur sjö systkina. 1) Guðrún, f.
9. apríl 1918, d. 17. maí 2005. 2)
Kristján Georg, f. 16. júní 1921,
Sveinn Agnar, f. 8. sept. 1942, d.
8. maí 1943. 2) Karen, f. 15. maí
1944. 3) Sveinn, f. 2. júní 1945. 4)
Sólmundur, f. 11. des. 1951. 5)
Guðni, f. 8. jan. 1957. Drífa
Björk, f. 24. júní 1958. Barna-,
barnabarna- og barnabarna-
barnabörn eru orðin yfir 60. Jón
ólst upp á Stokkseyri til 9 ára
aldurs. Eftir það fór hann í vist
til Aldísar Bjarnadóttur, f. 20.
júní 1883, d. 29. ágúst 1968, og
Sólmundar Einarssonar, f. 15.
nóv. 1884, d. 23. nóv. 1951. Hann
fluttist með þeim til Reykjavíkur
14 ára. Lengst af starfaði Jón
sem vélamaður hjá Reykjavík-
urborg en var annars viðloðandi
sveitastörf. Sem ungur maður
vann hann við girðingavinnu á
hálendinu. Eftir sextugt dvaldi
hann og vann í tæp 20 ár hjá
dóttur sinni á Ormsstöðum í
Grímsnesi.
Jón verður jarðsunginn frá
Laugarneskirkju í dag, fimmtu-
daginn 29. desember 2011, og
hefst athöfnin kl. 11.
d. 4. nóv. 1994. 3)
Einar Kristinn, f. 4.
des. 1923. 4) Björg-
vin, f. 26. ágúst
1925, d. 18. des.
2008. 5) Gunnar
Kristinn, f. 21. nóv.
1927, d. 11. jan.
2002. 6) Kristín, f.
21. des. 1932. Jón
kvæntist 31. októ-
ber 1943 Sigrúnu
Sveinsdóttur, f. 25.
jan. 1920 í Reykjavík, hún lést
16. janúar 2004. Foreldrar henn-
ar voru Kristín Sigurðardóttir
húsmóðir, f. 21. júlí 1898 í Viðey,
d. 8. sept. 1979, og Sveinn Jóns-
son mótoristi, síðan áhaldavörð-
ur Reykjavíkurborgar, f. 13. júní
1889 í Norðurkoti, Miðnes-
hreppi, Gull., d. 12. mars 1966.
Sigrún og Jón bjuggu alla tíð í
Reykjavík. Börn þeirra eru: 1)
Nú er hann horfinn á braut,
hann Jón afi sem við elskuðum
mjög mikið. Það er því mikill
söknuður í okkar hjörtum. Afi
var mjög vanafastur og alltaf
hægt að treysta á hann. Til dæm-
is var hann alltaf vaknaður fyrst-
ur á morgnana þegar við gistum
hjá honum þegar við vorum
yngri. Þá bauð hann glaðlega
góðan daginn og tók til fyrir okk-
ur morgunmat. Og það brást ekki
að hann stæði við gluggann og
veifaði þegar við fórum.
Það var alltaf gaman að heim-
sækja afa og sjá hvað hann var
montinn af okkur. Ef einhver
gekk framhjá þegar við vorum í
heimsókn hjá honum á Eir, þá lét
hann viðkomandi alltaf vita að við
værum barnabörnin hans. Eins
var það með okkur að við vorum
montnar af því að eiga hann sem
afa og munum alltaf geyma minn-
ingarnar um hann í hjörtum okk-
ar.
Okkur langar að enda þetta á
vísu sem Unnur Halldórsdóttir
samdi um afa okkar og lýsir hon-
um svo vel:
Einn er Jón og annar Jón
og einhver Jón er prestur.
Ég ábyrgist að okkar Jón
er allra Jóna bestur.
Sandra Dögg, Arna Ýr
og Ragna Brá Guðnadætur.
Við andlát bróður okkar Jóns
hrannast óviðráðanlega upp
minningar frá löngu liðinni tíð.
Æskuheimili okkar var á Stokks-
eyri. Við vorum sjö systkinin og
þannig bjuggu níu manns í litlu
herbergi sem kölluð var baðstofa.
Örlítið eldhús, svo var líka hlóða-
eldhús. Ekki voru alltaf allir
heima í einu. Eldri systkinin voru
snemma farin að leita að stopulli
vinnu, en oft var þarna þröng á
þingi. Níu ára gamall fór Jón í
sveit sem snúningadrengur, en
það var algengt á þessum tíma.
Bærinn hét Arnarhóll í Gaul-
verjabæjarhreppi. Eitthvað hef-
ur Jón kynnt sig vel því hjónin
sem þarna bjuggu lögðu mikla
áherslu á að hafa hann áfram hjá
sér. Það var ekki sársaukalaus
ákvörðun, sérstaklega fyrir móð-
ur okkar. Samt varð það úr að
Jón yrði áfram hjá þeim ágætu
hjónum Aldísi Bjarnadóttur og
Sólmundi Einarssyni. Annað
okkar sem þetta skrifar var á
Arnarhóli tvö sumur og á þaðan
góðar minningar. Nú hefði mátt
ætla að Jón yrði bitur að fara frá
foreldrum sínum og systkinum.
En það fór allt á besta veg og
hann hafði alltaf gott samband
við foreldra sína og okkur systk-
inin og betri bróður var ekki
hægt að eiga.
Jón og kona hans Sigrún
Sveinsdóttir bjuggu lengi á Kára-
stíg 11 í Reykjavík. Þaðan eigum
við systkinin góðar minningar.
Við vorum alltaf velkomin, gist-
um þar og borðuðum. Jón bróðir
okkar var vel gerður öðlingsmað-
ur. Jón og Stella en það var Sig-
rún kona hans oftast kölluð eiga
stóran hóp afkomenda. Drífa
dóttir Jóns sýndi pabba sínum
einstaka hjálp og umönnun und-
anfarin ár.
Við sendum börnum Jóns og
fjölskyldum innilegar samúðar-
kveðjur. Bróður okkar kveðjum
við með þakklæti og söknuði og
biðjum honum Guðs blessunar.
Kristín Jósteinsdóttir,
Einar Jósteinsson.
Jón frændi var einn þeirra sem
höfðu sannkallað aðdráttarafl og
glaðværar raddir Jóns og Stellu
konunnar hans koma líklega
aldrei til með að líða mér úr
minni. Þau voru fjölskylduvinir
og alltaf kátt á bænum þegar þau
komu í heimsókn. Jón var bróð-
ursonur Gísla afa á Vindási og
með þeim var ævilöng vinátta.
Vinátta sem leið ekki undir lok
þegar afi dó árið 1973. Sú vinátta
hefur haldist í fjölskyldunni og
fluttist til dæmis með mömmu frá
Vindási að Fosshólum.
Þegar ég fór fyrst að starfa í
Reykjavík fyrir um aldarfjórð-
ungi fékk ég inni hjá Jóni og
Stellu á Kleppsveginum. Stella
vann þá á sambýli fyrir fatlaða.
Það er eftirminnilegt fyrir mig
hve skjólstæðingar hennar löðuð-
ust að henni. Þannig var með alla
sem kynntust Jóni og Stellu
hvort sem það voru menn eða
málleysingjar.
Fyrir allt sem Jón frændi og
hans fjölskylda hefur verið mér
og minni fjölskyldu er hér þakkað
af heilum hug.
Þessi orð enda ég á lítilli vísu
sem talin var eiga vel við Jón
frænda:
Enn er Jón og annar Jón
og einhver Jón er prestur.
Ég ábyrgist að okkar Jón
er allra Jóna bestur.
(Höfundur ókunnur.)
Jón Þórðarson.
Líkt og afi minn heitinn er ég
ekki maður margra orða. Samt
sem áður langar mig að segja hér
nokkur orð um hann. Afi var 92
ára þegar hann fór og hef ég ver-
ið svo lánsamur að fá að vera með
honum tæplega þriðjung af ævi
hans. Hann hefur sagt mér sögur
frá fyrri hluta ævi sinnar. Meðal
annars upplifun hans á leigubíla-
akstri í seinni heimsstyrjöldinni,
hvernig var að flytja í borgina
sem ungur maður úr sveit, frá al-
varlegum veikindum í fjölskyld-
unni þegar hann var barn og
hvernig það var að vera sendur í
fóstur til ókunnugs fólks.
Mig langar ekki að fara mörg-
um orðum um annars góða ævi
þessa gamla manns heldur ætla
ég að segja frá því sem hann
kenndi mér síðustu daga lífs síns.
Ég var svo heppinn að fá að
kveðja hann og eiga með honum
eina af síðustu nóttunum í lífi
hans. Mikil ró var yfir honum
þessa nótt þrátt fyrir að hann
gæti lítið matast, tjáð sig eða
hreyft. Við faðir minn sátum hvor
sínum megin við rúm hans og
megnið af nóttinni hélt hann í
hönd föður míns. Hann reyni
öðru hvoru að tala við okkur en
það eina sem við skildum var eitt
sinn þegar við gáfum honum
vatnssopa, þá sagði hann: „Hvað,
bara blávatn“ og það hlakkaði í
honum. Þá fann ég svo vel að
hann var sáttur og við vorum
ekki staddir á tímamótum sorgar
heldur gleði. Þegar hann tók svo í
hönd mína upplifði ég að hann
væri hamingjusamur með líf sitt
og dauða. Hann var búinn að vera
í þessu ástandi í nokkra daga og
skiptust ástvinir á að vera með
honum. Er hægt að biðja um
meira en að fá að deyja 92 ára
gamall umkringdur fólki sem hef-
ur elskað mann í tugi ára!
Afi minn var hrifinn af ljóðum
og síðastliðin ár hef ég verið að
setja saman orð. Þegar hann tók í
hönd mína og muldraði eitthvað
var líkt og ég skildi hann og þá
varð til þetta ljóð, Kveðjustund:
Með hönd þína í hönd ég vil segja við
þig
Um niðdimma nótt ljósið nálgast
mig
Á hafi lífsins er hamingju eyja
Ekki myndi ég harma það ef fengi ég
þar að deyja
Afi minn kenni mér tvennt á
dánarbeðinum. Það fyrra er að
maður þarf ekki að vera hræddur
við dauðann heldur að vera glað-
ur yfir því að fara á næsta stað.
Annað, kannski mikilvægara, er
að leggja rækt við fólkið sitt og
njóta hverrar stundar með því.
Maður veit aldrei hversu langan
tíma maður fær til þess.
Ég vil þakka afa mínum fyrir
þær stundir sem ég hef átt með
honum og fyrir allt það sem hann
hefur kennt mér í gegnum tíðina.
Takk, afi.
Bjarki Sól.
Jón Jósteinsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, "Senda inn minningargrein",
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar