Morgunblaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 2011
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
HÖRKU
SPENNUMYND
ÍSLENSKT
TAL
-THE HOLLYWOOD
REPORTER
HHHH
GIRLWITHTHEDRAGONTATTOO Sýnd kl. 6:45 - 10
MISSION IMPOSSIBLE 4 Sýnd kl. 7 - 10
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 Sýnd kl. 2 (700kr.) - 4 - 6
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN 3D Sýnd kl. 2 (950kr.) - 4
BLITZ Sýnd kl. 10:30
RUM DIARY Sýnd kl. 8
ARTÚRBJARGARJÓLUNUM 3D Sýnd kl. 2 (950kr.) - 4
TOM CRUISE, SIMON PEGG,
PAULA PATTON OG JEREMY RENNER
Í BESTU HASARMYND ÁRSINS!
ÍSLENSKT
TAL
ÍSLENSKT
TAL
88/100
-CHICAGO SUN TIMESH.S.S. - MBL
HHH
HHH
AK. DV
- MAGNÚS MICHELSEN,
BÍÓFILMAN.IS
HHHH
- RAGNAR JÓNASSON,
KVIKMYNDIR.COM
HHHH
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Gleðileg jól
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 5.45 - 8 - 9 16
MI – GHOST PROTOCOL LÚXUS KL. 2 - 5 - 8 - 10.50 16
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 1 (TILBOÐ) - 3 - 5.50 - 8 L
MI – GHOST PROTOCOL KL. 5 - 8 - 10.50 16
STÍGVÉLAÐIKÖTTURINN 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 3.20 L
ARTÚR 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 3.20 - 5.50 L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 2D KL. 1 (TILBOÐ) - 3.20 L
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 10.10 7
H.S.S., MBL.H.V.A., FBL.
TOM CRUISE, SIMON PEGG, PAULA PATTON OG
JEREMY RENNER Í BESTU HASARMYND ÁRSINS!
FORSÝNING
GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 3.30 (TILBOÐ) - 6.45 - 8 - 10 16
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 4 (TILBOÐ) - 6 - 8 L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D KL. 3.40 (TILBOÐ) - 5.50 L
SHERLOCK HOLMES (FORSÝNING) KL. 10 12
TINNI KL. 3.30 (TILBOÐ) - 5.40 - 8 - 10.20 7
GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 8 - 10.50 16
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 4 - 6 L
ELÍAS KL. 4 - 6 12
MIDNIGHT IN PARIS KL. 8 - 10 L
Leikarinn Taylor Lautner er ekki
kominn út úr skápnum, eins og
haldið hefur verið fram víða í net-
miðlum síðustu daga. Ástæða orð-
rómsins er sú að falskri forsíðu
tímaritsins People var dreift á net-
inu en á henni var ljósmynd af leik-
aranum og hann sagður hafa komið
út úr skápnum, þ.e. greint frá því
að hann væri samkynhneigður.
Talsmaður People segir að um
gabb hafi verið að ræða sem rekja
megi til færslu á samskiptavefnum
Twitter. Þaðan fór myndin um net-
ið eins og eldur í sinu. Ekki fylgir
sögunni hver ber ábyrgð á þessu
gríni á kostnað Lautners.
Reuters
Gabb Lautner kom ekki út úr
skápnum um jólin.
Fölsk for-
síða People
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Já, hvað get ég sagt þér ekki?“
segir leikstjóri áramótaskaupsins
2011, Gunnar B. Guðmundsson,
hlæjandi þegar blaðamaður segist
vilja ræða við hann um skaupið.
Það er nefnilega
föst vinnuregla
þeirra sem að
skaupinu koma
að ræða það ekki
efnislega áður en
að sýningu kem-
ur, leynd skal
hvíla yfir því
fram að frumsýn-
ingu, annað er
hreint og klárt
brot á lögum um áramótaskaup.
Skaupið er það þriðja sem Gunnar
leikstýrir en handritshöfundar, auk
hans, eru þau Anna Svava Knúts-
dóttir, Sævar Sigurgeirsson,
Hjálmar Hjálmarsson, Örn Úlfar
Sævarsson og Baldvin Z.
– Var þetta grínvænt ár, 2011?
„Já, ég held það,“ svarar Gunnar.
Í fyrra, líkt og í ár, hafi honum í
upphafi handritsskrifa þótt lítið
hafa gerst á árinu og svitnað nokk-
uð yfir því. Við nánari athugun hafi
þó verið af nógu að taka.
– Hvernig vinnið þið svona hand-
rit? Rennið þið yfir netmiðla, skoðið
fréttir á árinu eða flettið dag-
blöðum, til dæmis?
„Já, netmiðla og skoðum blogg-
ara sem eru duglegir að blogga um
hverja einustu frétt eða það sem
stendur upp úr, alls kyns þætti þar
sem farið er yfir atburði vikunnar
og blöðin,“ telur Gunnar upp. Þá
séu sumir handritshöfundanna stál-
minnugir, muni alla helstu atburði
ársins og séu með skaupsskrifin í
blóðinu. „Hópurinn er samsettur
þannig að það eru tveir eða þrír
sem eru ekkert inni í fréttum,“ seg-
ir Gunnar kíminn. Þeir hafi aftur á
móti afar gott nef fyrir gríni og sjái
spaugilegu hliðarnar á viðburðum,
mönnum og málefnum. Það sé því
ekki nauðsynlegt skrifunum að
vera vel að sér um stjórnmál eða
fréttir og handritshöfundar hafi
allir reynslu af því að skrifa gaman-
efni, sumir áramótaskaup.
Ólíkt öðru sjónvarpsefni
– Þú ert orðinn býsna sjóaður
núna í gerð áramótaskaupa og
bjóst áður yfir reynslu af því að
gera myndefni í gamansömum dúr;
auglýsingar, stuttmyndir og kvik-
myndir. Það var hins vegar nýtt
fyrir þér að gera skaup, langan
gamanþátt sem er ansi hraður og
með ótalmörgum innslögum …
„Þetta prógramm er í rauninni
öðruvísi en annað sem maður kem-
ur nálægt. Í fyrsta lagi fær það
gríðarlegt áhorf, hraðinn er mikill
og handritið vill skila sér síðast, til
að vera „up to date“, með því nýj-
asta. En tökur þurfa að komast í
gang sem allra fyrst svo hægt sé að
klára það,“ segir Gunnar. Tökum í
ár hafi lokið í enda nóvember og
einum tökudegi svo bætt við í des-
ember.
– Er skaupið tilbúið?
„Við erum bara að klára það, í
þessum töluðum orðum.“
Spurður hvort nefna megi leik-
arana sem koma fram í skaupinu í
ár segir Gunnar að nokkrum nöfn-
um verði að halda leyndum en hann
megi þó nefna þá leikara sem leikið
hafi áður í áramótaskaupi. „Við er-
um með Gunnar Helgason, Stefán
Jónsson, Víking Kristjánsson, Sig-
rúnu Eddu Björnsdóttur, Stein Ár-
mann Magnússon, Þorstein Bach-
mann … það eru mjög margir
leikarar í því,“ segir Gunnar, leik-
arar og leikkonur skipti tugum og
með statistum hundruðum.
– Nú er gerð krafa um að allt sé
fyndið frá upphafi til enda og allir
virðast hafa skoðun á skaupinu. Er
það stressandi?
„Nei, svolítið í fyrra en fyrsta ár-
ið var það ekki þannig,“ svarar
Gunnar, sallarólegur þótt hann
verði með heila þjóð á bakinu á
gamlárskvöld.
Skaupið hefst kl. 22.30.
Miklar kröfur, mikill hraði
Skop Frá tökum á áramótaskaupinu 2011, virðist sem heimskunn íslensk tónlistarkona sé tekin gríntökum.
Leikstjórinn Gunnar B. Guðmunds-
son stýrir sínu þriðja áramótaskaupi
Gunnar B.
Guðmundsson