Morgunblaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2012
Sudoku
Frumstig
2 7 5 1
7 4 2 8 6
8 3
3 8 7 5 1
4 1 6 2
4 3
8
1
5 3
1
7 4
5 7 1 2
4 3 5 7
2 5 8 3
7 6
3
5 6 8 4 7
8 1 6
8 2
4 9
9 4 7
1 5
9 8 5
5 3 7 2
2 9 6
2 7 8
7 4 1
5 8 9 7 6 4 2 1 3
4 1 3 9 5 2 8 6 7
7 2 6 1 8 3 5 9 4
3 6 7 8 2 9 1 4 5
2 9 8 5 4 1 7 3 6
1 5 4 3 7 6 9 8 2
6 4 5 2 9 8 3 7 1
9 3 2 6 1 7 4 5 8
8 7 1 4 3 5 6 2 9
3 5 4 8 2 1 9 7 6
1 9 8 7 3 6 4 2 5
6 7 2 4 5 9 1 8 3
2 4 6 3 7 8 5 1 9
5 1 3 9 4 2 8 6 7
7 8 9 1 6 5 3 4 2
4 6 7 5 1 3 2 9 8
8 3 1 2 9 7 6 5 4
9 2 5 6 8 4 7 3 1
3 9 8 5 1 6 7 4 2
2 7 6 3 4 9 8 1 5
5 1 4 2 8 7 3 9 6
9 5 7 8 3 1 6 2 4
4 8 2 9 6 5 1 3 7
1 6 3 7 2 4 5 8 9
6 2 1 4 7 8 9 5 3
7 3 5 1 9 2 4 6 8
8 4 9 6 5 3 2 7 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 11. janúar,
11. dagur ársins 2012
Orð dagsins: En snúið yður nú til
mín, segir Drottinn, af öllu hjarta,
með föstum, gráti og kveini. (Jl. 2, 12.)
Silvia Baumann er í vanda stödd.Baumann er þýsk ekkja, af
svissnesku bergi brotin, og nú liggur
hún í dái á sjúkrahúsi í London og á
skammt eftir ólifað. Baumann er
vellauðug og mun skilja eftir sig
tæpar fjórar milljónir punda. Hún
hefur falið lækni sínum, Simon Hug-
hes, að finna fyrirmyndarborgara í
Evrópu til að nota þessa peninga í
mannúðarskyni til að hjálpa þeim,
sem minna mega sín í álfunni. Svo
virðist sem leit að þessum fyrir-
myndarborgara standi nú yfir og viti
menn, góðvini Víkverja hefur verið
boðið að fá þetta fé til ráðstöfunar.
Tilkynning um þetta barst vini Vík-
verja í tölvupósti. Þar stendur
reyndar að Baumann sé „in a state
of comma“, en læknirinn Hughes
hlýtur einfaldlega að hafa verið í
slíku uppnámi þegar hann skrifaði
bréfið að þessi villa hefur slæðst inn.
Vinur Víkverja þarf nú aðeins að
senda uplýsingar um sjálfan sig, þar
á meðal heimilisfang, síma- og fax-
númer og starf. Að því loknu mun
læknirinn hafa samband við hann og
útskýra fyrir honum í hverju hlut-
verk hans mun felast.
x x x
Víkverja finnst sérdeilis ánægju-legt að orðspor vinar hans hafi
spurst með þeim hætti út í heim að
hann eigi þess kost að fá fjórar millj-
ónir punda til ráðstöfunar. Það er
ekki lítið fé eða 766 milljónir ís-
lenskra króna. Víkverja fannst ekki
grunsamlegt að í efnisreit tölvu-
póstsins stóð Gleðilegt nýtt ár. Hon-
um finnst heldur ekki tortryggilegt
að í bréfinu skuli vera ellefu villur í
tíu línum að þeirri villu meðtalinni,
sem áður var nefnd. Eða ætti hann
kannski að staldra aðeins við? Er
kannski fremur ólíklegt að vinur
Víkverja verði fyrir valinu þegar á
að ráðstafa auðæfum vellríkrar
þýskrar ekkju? Getur verið að ekki
sé meira að marka þetta en þegar
annar vinur Víkverja vann milljónir í
kanadísku lotteríi eða þegar þriðji
vinurinn fékk bréf um að son Mo-
butu Sese Seko vantaði aðstoð til að
losa um stórfé og sá aldrei krónu.
Það skyldi þó aldrei …
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 klækjótta, 8 hylja,
9 sjúkdómur, 10 skip, 11
landræma, 13 skára breitt,
15 tæla, 18 hrísla, 21 guð, 22
veisla, 23 eyddur, 24
kvennabósi.
Lóðrétt | 2 diskagrind, 3
jarði, 4 ekki framkvæmt, 5
sveiflufjöldi, 6 baldin, 7
kunna, 12 hjóm, 14 málmur,
15 útlima, 16 ökumaður, 17
átökunum, 18 botnfall, 19 í
vafa, 20 skylda.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 heift, 4 gúlpa, 7 aular, 8 liðug, 9 fyl, 11 læra, 13 þrír, 14
karpa, 15 hana, 17 Krít, 20 æða, 22 kotið, 23 getum, 24 arinn, 25
auðið.
Lóðrétt: 1 hrafl, 2 illar, 3 torf, 4 gull, 5 líður, 6 angur, 10 yfrið,
12 aka, 13 þak, 15 hokra, 16 nötri, 18 ritað, 19 tómið, 20 æðin, 21
agða.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Tanndráttur Berkowitz.
Norður
♠G32
♥Á
♦ÁKD97
♣ÁKD2
Vestur Austur
♠7 ♠K1086
♥D8765 ♥G1093
♦108653 ♦G
♣109 ♣8654
Suður
♠ÁD954
♥K42
♦42
♣G73
Suður spilar 6♠.
Það rann fljótlega upp fyrir David
Berkowitz að sex grönd er besti samn-
ingurinn – skotheld slemma, hvernig
sem spaðinn liggur. En nú var ekki
rétti tíminn til að sífra yfir sögnum.
Útspilið var ♣10 og verkefni Berkowitz
var að vinna sem best úr tromplitnum.
Hann tók á ♣Á, spilaði spaða á ás-
inn, svo litlu á gosann. Aldrei er hægt
að ráða við ♠K108x í vestur, en ef aust-
ur reyndist eiga feitan fjórlit ætti þessi
íferð að duga ágætlega. Berkowitz
bjóst við að austur myndi drepa ♠G, en
austur kom á óvart með því að dúkka
þrjóskulega. Ef sagnhafi heldur strax
áfram með trompið, drepur austur og
spilar ♦G. Þá er blindur læstur inni og
sagnhafi þarf að giska á réttu leiðina
heim. Berkowitz kom sér undan hitt-
ingi með því að leggja niður rauðu ás-
ana áður en hann spilaði trompi.
11. janúar 1897
Leikfélag Reykjavíkur var
stofnað. Fyrsta sýningin var
þó ekki fyrr en í lok ársins.
11. janúar 1918
Bjarndýr gengu á land í fyrsta
sinn þennan frostavetur. Það
var í Núpasveit, austan Öx-
arfjarðar. Næstu daga gengu
ísbirnir á land á Melrakka-
sléttu, í Skagafirði, á Skaga-
strönd, á Langanesi og í Mjóa-
firði.
11. janúar 1944
Togarinn Max Pemberton frá
Reykjavík fórst undan Snæ-
fellsnesi með allri áhöfn, 29
manns.
11. janúar 1990
Fjörutíu skip fengu 28.400
lestir af loðnu djúpt úti fyrir
Austfjörðum. Þetta var mesta
veiði á einum sólarhring.
Eldra met var tíu ára gamalt.
11. janúar 1993
Dýpsta lægð sem sögur fara af
á Norður-Atlantshafi, 910-920
millibör, fór norður með Aust-
urlandi. Röskun varð á sam-
göngum en litlar skemmdir
urðu. Þó brotnuðu 50 rúður í
hóteli í Öræfum.
11. janúar 2007
Menntamálaráðherra og rekt-
or Háskóla Íslands undirrit-
uðu fimm ára samning um
kennslu og rannsóknir. Fjár-
veitingar ríkisins til rann-
sókna áttu að þrefaldast á
samningstímanum. „Tímamót
í íslenskri skólasögu,“ sagði á
forsíðu Fréttablaðsins.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Við hjónin erum stödd í París og verðum þar í
nokkra daga, meðal annars í tilefni af afmælinu
mínu en við eigum líka 40 ára brúðkaupsafmæli
sama dag,“ segir dr. Ágúst Einarsson prófessor
sem er sextugur í dag. „Hér erum við að þræða
söfn og skoða málverk og fleira, það er nóg að sjá í
París. Það er alltaf jafn nýtt í hvert skipti og hér
er núna gott gönguveður, um 10 stiga hiti.
Þetta eru ánægjuleg tímamót og gaman að upp-
lifa þau. Ég hef annars lítið gert af því að halda af-
mælisveislur, gerði það samt þegar ég varð fer-
tugur með svona hefðbundinni veislu. En öll
fjölskyldan hittist núna á nýársdag, mér finnst alltaf best að halda
upp á svona hátíðisdaga með minni fjölskyldu.“ Eiginkona Ágústs er
Kolbrún Ingólfsdóttir lífeindafræðingur, þau eiga þrjá syni og tvö
barnabörn.
Ágúst er hagfræðingur að mennt, hann rak á sínum tíma útgerð-
arfyrirtæki í Reykjavík, var alþingismaður og síðar rektor Háskólans
á Bifröst. Foreldrar hans voru þau Einar Sigurðsson, útgerðarmaður
í Vestmannaeyjum, og eiginkona hans, Svava Ágústsdóttir. Þau eign-
uðust 11 börn og eru átta á lífi. kjon@mbl.is
Ágúst Einarsson er 60 ára í dag
Brúðkaupsafmæli sama dag
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
11. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.22 1,1 10.37 3,3 16.54 1,1 23.06 3,1 11.05 16.07
Ísafjörður 0.12 1,6 6.20 0,6 12.31 1,7 18.58 0,6 11.40 15.42
Siglufjörður 2.55 1,0 8.50 0,4 15.17 1,0 21.14 0,3 11.24 15.23
Djúpivogur 1.29 0,5 7.31 1,6 13.54 0,5 20.02 1,6 10.42 15.29
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Samræður við vini og vinnufélaga eru
nauðsynlegar þessa stundina. Einhvern tím-
ann í dag leyfir þú ástvinum að finnast þeir
merkilegasta fólk í heimi.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú átt gott samtal við einhvern sem þér
þykir mjög vænt um. Misskilningur getur
margan hlutinn skemmt.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þótt þig langi að hafa hönd í bagga
með öðrum, þá eru þeirra mál stundum utan
og ofan við þitt færi. Tilfinningarnar eiga það
til að hlaupa með þig í gönur.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Sýndu samstarfsmönnum þínum
skilning þegar vinnuáætlanir þeirra falla ekki
alveg saman við þínar. Reyndu að fara í stutt
ferðalag eða verslunarleiðangur.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Sýndu foreldrum og fjölskyldu-
meðlimum þolinmæði í dag. Þú ættir að gera
áætlanir um að næra, hressa og blása nýju
lífi í sjálfan þig.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þér liði miklu betur ef þú hreyfðir þig
meira. Svarið gæti legið í breyttum lífsstíl og
nýju áhugamáli. Fylgdu hlutunum eftir.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ástin er ekki flókin. Erfitt samtal sem þú
kvíðir mun reynast þér auðvelt. En ástæðu-
laust er að prófa þau á hverjum degi.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Atburðarásin verður ekki alveg
eins og þú hafði hugsað sér, en það er þér al-
gerlega fyrir bestu. Einhver gæti gefið þér
gjöf eða gert þér greiða.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nú verður ekki lengur undan því
vikist að setja sér áætlun til framtíðarinnar.
Vertu raunsær í vali verkefna.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Gefðu þér tíma til að huga að því
hvernig þú getur bætt samskipti þín við for-
eldra þína eða aðra í fjölskyldunni.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Best er að skipuleggja hlutina um
morguninn, en óvæntar uppákomur og hvat-
vísi gera kvöldið skemmtilegt. Farðu rétt í
málin því vinslit eru ástæðulaus.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er bráðnauðsynlegt að lesa vel
allt smáa letrið á þeim skjölum sem þú skrif-
ar undir. Ræddu við fjölskylduna um hvernig
þú getur komið ár þinni fyrir borð.
Stjörnuspá
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d3 Rc6 4. g3 g6 5.
Bg2 Bg7 6. 0-0 Rge7 7. He1 0-0 8. Rbd2
b5 9. e5 Dc7 10. De2 Ba6 11. Re4 Rxe5
12. Rxe5 Dxe5 13. Bf4 Dxb2 14. Rxc5
Da3 15. Rxd7 Hac8 16. Be5 Hfd8 17.
Rf6+ Kh8 18. Rg4 Rc6.
Staðan kom upp í 1. deild fyrri hluta
Íslandsmóts skákfélaga sem fór fram í
Rimaskóla sl. haust. Andri Áss Grét-
arsson (2.317) hafði hvítt gegn Stefáni
Arnalds (2.005). 19. Bxc6! Hxc6 20.
Df3! Hxc2 21. Bxg7+ og svartur gafst
upp enda fátt til varna. Kornax-mótið,
Skákþing Reykjavíkur 2012, er nýhafið
í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur
og lýkur því föstudaginn 27. janúar
næstkomandi. Nánari upplýsingar um
mótið er að finna á skak.is.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.