Morgunblaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 23
Addi, ég mun um ókomna tíð muna þig og þann tíma sem við fengum saman í þessu jarðneska lífi. Lífið mun halda áfram og ég mun halda áfram að hlæja að allri vitleysunni lengi lengi og trúðu mér, sögur af þér og verk- stæði afa sem allt lagaði munu lifa Ég trúi því einnig að við eig- um eftir að hittast seinna, far vel í bili. Kveðja, þinn vinur og tengda- sonur, Guðmundur Hannesson. Elsku besti afi, ég er enn að velta fyrir mér af hverju þú varst tekinn svona snemma frá okkur. Heiðar Kató fékk þá skýringu að Guð vantaði svo mikið góðan vinnumann, hann trúði því en var ekki tilbúinn að leyfa þér að fara um ókomna tíð. Ég reyndi að út- skýra allt eins vel og ég gat, eins og þú baðst mig um að gera allt- af. Þú sagðir að hann væri svo skýr að það ætti að útskýra allt fyrir honum, öðruvísi myndi hann ekki læra. Hann sagði að þú myndir lifa í hjörtum okkar eins og Múfasa, við vorum sam- mála um það. Það sem einkenndi þig var húmor, þrjóska og væntumþykja gagnvart öðrum. Meðan ég sit hér og hugsa hvað ég eigi að skrifa, hellast minningarnar yfir mig og það er svo erfitt að velja úr, því mig langar að segja frá öllu. Fyrstu minningarnar eru í Vaglaskógi þar sem ég nánast ólst upp hjá þér og ömmu og þegar við fórum saman á skauta í gamla daga. Okkar fyrsta bíó- ferð saman var Lion King, sællar minningar, þú sagðir að ég hefði verið svo hrædd og meira að segja farið að gráta. Öll skiptin sem þú sast yfir mér uppi á sjúkrahúsi þegar ég var veik og varst búinn að fletta upp á ein- hverju forvitnilegu fyrir mig að skoða þegar ég vaknaði. Það sem stendur upp úr er þegar ég kom með Bröndu heim og bað þig og ömmu að geyma hana meðan ég fyndi henni heim- ili sem ég gerði aldrei því ég var búin að ákveða að þú myndir taka hana að þér. Við áttum hana í sameiningu og þér fannst hún vera mesti karakter sem þú hafðir séð í ketti, svo flott. Þið voruð bæði ótrúlega þrjósk og borðuðuð bæði bara rjómaís. Okkar samkomulag var að ég passaði hana þegar þið fóruð í skóginn og til Kanarí en þar leið þér vel. Þegar Branda veiktist og þú þurftir að láta svæfa hana var það það erfiðasta sem þú gerðir það ár og baðst mig að koma ekki með fleiri dýr í þeirri meiningu að þú gætir ekki kvatt þau svona. Þú varst einn mesti dýravinur sem ég þekkti. Þú hefur alltaf verið sá maður í lífi mínu sem hefur verið til staðar fyrir mig, bæði til að spjalla við og þegar eitthvað bjátaði á hjá mér varstu alltaf til staðar. Þau eru ófá skiptin sem ég hef hringt og bíllinn var bil- aður. Eitt skiptið þegar kúpling- in fór í bílnum í Skógarlundinum og þú komst hlaupandi og keyrð- ir bílinn heim í fyrsta gír alla leiðina. Þú varst einfaldlega bestur og þinn kaldhæðni húmor undir- strikaði það. Það hafa verið forrréttindi að hafa átt þig sem afa, þú varst með þeim betri og að því mun ég búa alla ævi. Ég mun halda fal- legu minningunum mínum lif- andi um þig og segja Heiðari Kató og Kristu Lind eins oft og ég get allt um þig. Frasarnir þín- ir munu lifa, ég hlæ alltaf jafn mikið þegar ég hugsa um þá. Ég held að það hafi verið húmorinn sem hélt þér gangandi í gegnum þessi veikindi, hann var aldrei langt undan. Ég lofa að gæta ömmu vel, ég veit að þú elskaðir hana svo mik- ið. Ég trúi að þessi bröndótta hafi tekið á móti þér ásamt þeim blesótta og að þér liðið vel að sjá þau og fleiri. Elsku afi, ég kveð þig með miklum söknuði og ást. Þín Arna Ýr. Elsku afi. Þú ert fyrsta flokks afi sem gerir allt sem hann getur til að hjálpa öðrum. Ég á mjög margar og góðar minningar um þig sem ég gæti aldrei gleymt, því stund- irnar með þér voru himneskar því elska ég þig og sakna þín mjög og mun aldrei gleyma þér vegna alls í fari þínu; ég nefni húmorinn þinn og kennsluna sem þú veittir mér og ég mun sakna þín mikið og ég er glaður og þakklátur fyrir allar góðu stund- irnar og minningar sem ég mun geyma í hjarta mínu. Þú ert minn góði og hjarthlýi afi og ég mun ætíð elska þig og muna. Ég mun halda áfram að passa ömmu. Minn elsku besti afi! Þú ert sá besti, á því leikur enginn vafi. Þú átt ábyggilega eftir að lesa fyrir mig ljóð og hjá þér mun ég alltaf vera góður. Út um allt vil ég hendur þínar leiða. Einn daginn fæ ég kannski að fara með þér að veiða. En hvað sem þú gerir og hvar sem þú ert að þá hefur þú mitt litla hjarta snert. Því þú ert svo góður og þú ert svo klár hjá þér mun ég ekki fella nein tár. Því heima hjá afa er alltaf gaman að vera því þar get ég látið mikið á mér bera. En afi minn kæri, ég vil að þú vitir nú minn allra besti afi, það ert þú! Aron Ernir Guðmundsson. Elsku afi minn. Þetta hefur verið það erfiðasta sem ég hef á ævi minni gert, það var að kveðja þig. Ég leit alltaf svo mikið upp til þín og það var svo gott að vera hjá þér og eign- ast allar þessar góðu minningar sem við áttum. Þú kvaddir okkur alltof snemma en ég veit að þér líður betur og ert á góðum stað. Ég er svo þakklátur fyrir allt sem þú hefur kennt mér, við gát- um aldeilis eytt tímunum saman að horfa á bíómyndir og bara set- ið og spjallað um lífið og til- veruna, við vorum álíka þrjóskir og stóðum alltaf fyrir okkar, kannski er það bara nafnið og ég gæti ekki verið stoltari þegar ég fæ að heyra: „Þú ert alveg eins og afi þinn, Arnór!“ Þegar maður fór með þér í einhver verkefni að laga eitthvað þá var það aðeins gert á einn hátt og það var á þinn hátt og engan annan. Það var líka svo notalegt að hafa þig á neðri hæðinni í Reykjasíðunni, að geta rölt niður til þín og eytt tímunum saman hjá þér. Ég veit líka að þú vakir yfir okkur og passar. Ég vil þakka þér enn og aftur fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, kennt mér og fyrir allan þinn stuðning í gegnum líf mitt. Þú ert algjör hetja í mínum aug- um. Hér ég kveð þig, afi minn, og kærleikann allan þakka. Því árin mín, og árin þín, áfram runnu í einum pakka. Þú gafst mér trú og traust, það tíðum hef ég fundið. Þú varst bæði blíður og hraustur, brosmildur og öllum bundinn. Og árin ljúf, þau liðu fljótt, já líkast sem í draumi. En nú var slökkt, komin nótt, og bið nú sett á drauminn. Nú árin líða, nú brestur þrek, nú ég skoða hvert ég ek. En allt mitt traust, og líka trú, það veistu að áttir þú. Því legg ég nú líf mitt og önd, ljúfur minn, í þína hönd. Því sáttur þá ég sofna hér, þú munt vaka yfir mér. Þinn nafni, vinur og afastrák- ur, Arnór Ísak Guðmundsson. Elsku Addi. Þá er komið að kveðjustund. Þegar ég sest niður til að skrifa nokkur kveðjuorð til þín og þakka þér fyrir allar góðu stund- irnar sem við áttum saman fall- ast mér hendur. Það er svo margt sem ég vildi segja og þakka þér fyrir. Allar húsbíla- ferðirnar okkar í gegnum árin, bæði hér heima og erlendis og nú síðast árin okkar með hjólhýsin. Þessar stundir gleymast ekki. Það er sárt til þess að hugsa að þú skulir vera farinn frá okkur alltof snemma, en eitt er víst að þessari ferð ráðum við ekki. Bar- átta þín við illvígan sjúkdóm var þér erfið en þú tókst því með æðruleysi og kvartaðir ekki, heldur skyldir þú horfa keikur fram á veginn. Elsku Didda, missir þinn er mikill en dætur þínar, tengda- synir og barnabörn standa eins og klettur við hlið þér og megi þau hafa þökk fyrir. Elsku Addi, með þessum fá- tæklegu orðum viljum við Óli þakka þér samfylgdina í gegnum árin og biðjum góðan Guð að geyma þig og vernda uns leiðir okkar liggja saman á ný. Að lokum viljum við senda þér, Didda mín, Helgu, Hafdísi, Kollu, Steinu og Herdísi mökum þeirra börnum og barnabörnum innilegar samúðarkveðjur og biðjum góðan Guð að styrkja ykkur á þessari erfiðu stund. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Kæri Addi, hafðu þökk fyrir allt. Minning þín lifir með okkur um ókomin ár. Þínir vinir, Ólafur og Auður. Í dag kveðjum við kæran vin. Undanfarna daga hefur eitt og annað verið rifjað upp. Stundirn- ar sem við áttum saman eru margar og alltaf var gleði og gaman hjá okkur, þess vegna höfum við stundum skellt uppúr en um leið höfum við syrgt góðan vin. Oft var setið, spáð og spek- úlerað í sambandi við hjólhýsin okkar og yfirleitt varst þú búinn að finna bestu lausnina áður en við vissum af. Ef einhver þurfti hjálp eða eitthvað vantaði þá var leitað til þín, þú varst alltaf tilbú- inn að hjálpa og leysa málin. Þau eru ófá fortjöldin sem þú hefur sett upp í Vaglaskógi. Elsku Addi, hafðu þökk fyrir allar góðar stundir og alla hjálp. Minningarnar um þær geymum við með okkur. Við trúum því að nú sért þú kominn í sumarlandið þitt og þar líði þér vel. Það er stór hópur sem stendur þétt við hlið Diddu þinnar, styður hana og styrkir. Sofðu rótt, sofðu rótt, nú er svartasta nótt. Sjáðu sóleyjarvönd geymdu’ hann sofandi í hönd. Þú munt vakna með sól Guð mun vitja um þitt ból. (Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi) Elsku Didda, Helga, Hafdís, Kolla, Steina, Herdís og fjöl- skyldur. Ykkur sendum við inni- legar samúðarkveðjur. Þínir vinir, Árni Jón, Rakel og Iðunn. Dökkur skuggi á daginn fellur, dimmir yfir landsbyggðina. Köldum hljómi klukkan gellur, kveðjustund er milli vina. Fallinn dómur æðri anda, aðstandendur setur hljóða. Kunningjarnir klökkir standa, komið skarð í hópinn góða. Gangan með þér æviárin okkur líður seint úr minni. Við sem fellum tregatárin trúum varla brottför þinni. Þína leið til ljóssins bjarta lýsi drottins verndarkraftur. Með kærleiksorð í klökku hjarta kveðjumst núna, sjáumst aftur. (Hákon Aðalsteinsson) Elsku Didda, okkar innileg- ustu samúðarkveðjur til ykkar allra. Anna, Brynjar, Regína og Steinar. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2012 Rannveigu Mar- íu kynntist ég fyrir tæpum 30 árum þegar með okkur Siggu Millu dóttur hennar tókst góður vinskapur, sem varað hefur alla tíð síðan. Þá bjó hún á Móaflöt- inni í Garðabæ, hélt þar mynd- arheimili ásamt manni sínum Bjarna. Rannveig var einstak- lega skemmtileg kona og maður fann sig alltaf velkominn á hennar heimili. Það var stutt í smitandi hláturinn sem varð bara enn meiri þegar ein og ein hrota fylgdi með að hætti Rann- veigar. Í matargerð var hún frábær og bar þess merki að hafa búið vestanhafs um árabil. Það var allt svolítið útlenskt og flott sem hún Rannveig gerði. Í mínum augum var hún glæsileg heims- kona sem hafði ákveðnar skoð- anir á hlutunum. Gaman þótti mér þegar í ljós kom að hún hafði þekkt afa minn heitinn, Rannveig María Garðars ✝ RannveigMaría Garðars fæddist í Reykjavík 1. september 1927. Hún lést á Dval- arheimilinu Hlíð 24. desember 2011. Rannveig var jarðsungin frá Dómkirkjunni 2. janúar 2012. Jóhannes Jónsson, vel. Hann hafði, ásamt fyrri konu sinni Önnu, dvalið á æskuheimili Rann- veigar að Vestur- götu þar sem Anna var vinnukona. Einnig störfuðu þau bæði á Hótel Loftleiðum. Það var gaman að spjalla við Rann- veigu um uppátækin í Jóa afa. Eftir að Bjarni féll frá var Rannveig sem fyrr góð heim að sækja á Kaplaskjólsveginum og hin síðari ár valdi hún að búa nálægt Siggu sinni, Braga og börnunum þeirra á Akureyri. Þar hefur Sigga af einstakri al- úð annast móður sína í erfiðum veikindum. Missir þinn er mik- ill, elsku Sigga mín, en ég veit að Rannveig kvaddi södd líf- daga, sátt við sinn ævidag. Ég mun geyma í hjarta mínu minn- ingu um góða konu og vera til staðar fyrir þig og þína, kæra vinkona. Við fjölskyldan sendum börn- um Rannveigar: Maríönnu, Garðari, Sigríði Emilíu, tengda- börnum, barnabörnum og ást- vinum öllum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ellý Erlingsdóttir og fjölskylda. Kæra vinkona. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum Gréta Steinþórsdóttir ✝ Gréta ÞorbjörgSteinþórsdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 24. september 1924. Hún lést á Land- spítalanum Foss- vogi 21.desember síðastliðinn. Gréta var jarð- sungin frá Foss- vogskirkju 5. jan- úar 2012. þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Raggi, Steini, Kristín, Steinþór og fjölskyldur, innilegar samúðarkveðjur til ykkar. Sigurveig Sigurjónsdóttir (Veiga). ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, stuðning og hlýhug vegna fráfalls ástkærs eiginmanns, föður, afa og langafa, SR. BJÖRNS JÓNSSONAR, Ásabraut 2, Akranesi, sem lést þriðjudaginn 20. desember. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sjúkrahúss Akraness fyrir einstaka umönnun og hlýju. Jafnframt er starfsfólki Akranes- kirkju færðar sérstakar þakkir fyrir vinsemd og stuðning. Guð blessi ykkur öll. Sjöfn Pálfríður Jónsdóttir, Sossa Björnsdóttir, Ólafur Jón Arnbjörnsson, Ingibjörg Björnsdóttir, Hörður Kári Jóhannesson, Jón Páll Björnsson, Ásdís K. Smith Óskarsdóttir, Gunnhildur Björnsdóttir, Pétur Sigurðsson, afabörn og langafabörn. ✝ Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar systur minnar, mágkonu og frænku okkar, ÖNNU STEINUNNAR SIGURÐARDÓTTUR, Drápuhlíð 39. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Reykjavík fyrir hlýhug og góða umönnun. Flosi Hrafn Sigurðsson, Hulda Sigfúsdóttir, Ágústa Lyons Flosadóttir, Sigurður Flosason. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHILDUR RAGNARSDÓTTIR kaupmaður, Vatnsnesvegi 29, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn 3. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 13. janúar kl. 14.00. Ragnar Jón Skúlason, Bryndís Þorsteinsdóttir, Selma Skúladóttir, Matthías Sigurðsson, Jórunn D. Skúladóttir, Árni Már Árnason, Elsa Ína Skúladóttir, Guðni Birgisson, Kristinn Skúlason, Drífa Daníelsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Við þökkum af heilum hug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför BERGÞÓRU SIGFÚSDÓTTUR. Sigfús Grétarsson, Margrét S. Sigbjörnsdóttir, Friðrik Atli Sigfússon, María Huld Markan Sigfúsdóttir, Kjartan Sveinsson, Snorri Grétar Sigfússon, Edda Katrín Ragnarsdóttir, Hildur Þóra Sigfúsdóttir og langömmubörn, Friðrik Valdimar Sigfússon, Alexía Margrét Gunnarsdóttir, Steingrímur Sigfússon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.