Morgunblaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2012 Það er upprunalega útgáfan af Black Sab- bath sem vinnur að plötunni, með Ozzy Osbourne... 31 » Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur á hverju ári í samvinnu við Listaháskóla Íslands ein- leikarakeppni sem er opin tónlistanemum á háskólastigi. Sigurvegarar keppninnar koma síðan fram með hljómsveitinni á tónleikum undir yfirskriftinni „Ungir einleikarar“. Tón- leikarnir verða haldnir í Hörpu á morgun, fimmtudag, og hefjast klukkan 19.30. Fjórtán tóku þátt í einleikarakeppninni að þessu sinni og stóðu fjórir uppi sem sigurveg- arar: Chrissie Thelma Guðmundsdóttir fiðlu- leikari, Elín Arnardóttir píanóleikari, Hrafn- hildur Árnadóttir einsöngvari og Ísak Ríkharðsson fiðluleikari. Á efnisskrá tónleikanna eru Fiðlukonsert nr. 5 í A-dúr eftir W.A. Mozart, Píanókonsert nr. 2 eftir Camille Saint-Saëns, „Exsultate, jubilate“ eftir W.A. Mozart og Fiðlukonsert nr. 2 eftir Sergei Prokofiev. Hljómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinson. Í námi heima og erlendis Hrafnhildur Árnadóttir lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 2009. Hún stundan nú söngnám við Conservatorium van Amsterdam í Hollandi. Þá hefur Hrafnhildur sótt námskeið og einkatíma hjá ýmsum kenn- urum í Evrópu og New York. Þau Chrissie Thelma, Elín og Ísak stunda öll nám við Listaháskóla Íslands. Crissie Thelma lýkur diplómanámi í vor. Hún hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, meðal annars sem konsertmeistari, og með Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá stofnun. Elín stundar B.Mus-nám við LÍ en hún hóf nám á diplómabraut skólans haustið 2009. Peter Máté hefur verið aðalkennari hennar frá 2004. Í fyrravor lék hún Píanókon- sert nr. 18 eftir Mozart með Sinfóníuhljóm- sveit áhugamanna. Ísak hóf nám hjá Guðnýju Guðmundsdóttur í LÍ haustið 2008 og hefur að auki sótt ýmis námskeið og einkatíma. Margir minnast þess er Ísak kom víða fram sem drengjasópran á árunum 2003-2005. Sigurvegarar leika  Ungir einleikarar koma fram með SÍ á morgun Ljósmynd/Grímur Bjarnason Einleikararnir Chrissie Thelma, Hrafnhildur, Ísak og Elín koma fram á tónleikum SÍ. Salon Islandus heldur sína árlegu nýárstónleika í Salnum, Kópavogi, föstudagskvöldið 13. janúar klukk- an 20.00. Að þessu sinni kemur Þóra Ein- arsdóttir sópransöngkona fram með hljómsveitinni og því er jafn- framt heitið að Sigrún Eðvalds- dóttir taki glæsinúmer á fiðluna, í anda Fritz Kreislers. Tónleikarnir hefjast á Tjarnar- marsi Páls Pampichlers Pálssonar og þá taka við valsar og polkar ásamt einsöngsatriðum. Eftir tónleikana heldur hljóm- sveitin norður í Skagafjörð og kem- ur fram ásamt karlakórnum Heimi og einsöngvurum í Miðgarði á laug- ardagskvöldið. Hljómsveitina skipar úrval lands- kunnra hljóðfæraleikara: Sigurður Ingvi Snorrason, Anna Guðný Guð- mundsdóttir, Sigrún Eðvaldsdóttir, Pálína Árnadóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir, Hávarður Tryggvason, Matial Nardeau og Pétur Grét- arsson. Árlegir nýárs- tónleikar  Salon Islandus leikur í Salnum Hljómsveitin Salon Islandus leikur í Salnum ásamt Þóru Einarsdóttur. Solomon R. Gug- genheim- stofnunin sem rekur Guggen- heim-safnið fræga í New York og fjögur útibú þess í öðr- um löndum, hef- ur lagt til við yf- irvöld í Helsinki, að þau ráðist saman í undirbúning byggingar Guggenheim-safns þar í borg. Varð Helsinki fyrir valinu vegna mikils áhuga Finna á myndlist og hönnun, auk þess sem fyrirhugað er að ráðast í breytingar á bygg- ingasvæði við höfnina. Ef af verður mun safnið rísa við hlið byggingar sem Alvar Aalto hannaði fyrir Stora Enso-viðarfyrirtækið. Útibú í Helsinki? Guggenheim- safnið í New York Már Jónsson flytur í dag, mið- vikudag, erindi í röðinni „Góss- ið hans Árna“ en erindin fjalla um handrit úr safni Árna Magnússonar. Már hefur mál sitt kl. 12.15 á bókasal Þjóð- menningarhússins og segir frá í um hálfa klukkustund. Erindi Más er um Jóns- bókarhandrit frá 14. öld sem Árni eignaðist ungur: AM 344 fol. Handritið verður til sýnis á staðnum. Þegar Árni Magnússon var rétt rúmlega tvítug- ur eignaðist hann þrjár veglegar lögbækur frá 14. öld hjá vinum og vandmönnum í Dalasýslu. Þær urðu kveikjan að handritasöfnun hans. Bókmenntir Már segir frá Jóns- bókarhandriti Árna Már Jónsson prófessor Feðgarnir frá Kirkjubóli er heiti tvöfaldrar sagnaskemmt- unar sem boðið var upp á um síðustu helgi í Landnámssetr- inu í Borgarnesi, með þeim Silju Aðalsteinsdóttur og Böðvari Guðmundssyni. Að- eins var gert ráð fyrir þremur sýningum en það seldist upp á þær allar og var þá ákveðið að bæta við sýningu á laugardag- inn kemur, 14. janúar. Silja hefur leikinn klukkan 14 og segir frá Guð- mundi Böðvarssyni og konunum í lífi hans. Böðvar hefur sínar frásagnir síðan klukkan 16.30. Stutt hlé er á báðum sýningum og 45 mínútna hlé milli sýninganna. Bókmenntir Aukasýning Silju og Böðvars Böðvar Guðmundsson Reykholtskórinn heldur tón- leika í Reykholtskirkju á föstu- daginn kemur, 13. janúar, og hefjast þeir klukkan 20.30. Tónleikarnir eru haldnir til að hylla Bjarna Guðráðsson og þakka honum fyrir ötult starf hans sem stofnanda kórsins og stjórnanda síðastliðna áratugi. Jafnframt vill kórinn þakka Sigrúnu Einarsdóttur, eigin- konu Bjarna, alúð hennar, gestrisni og elskulegheit í garð kórfélaga. Stjórnandi kórsins er Viðar Guðmundsson og meðleikari Jónína Erna Arnardóttir. Eftir tónleikana býður sóknarnefnd Reykholts- sóknar upp á veitingar í safnaðarsal kirkjunnar. Tónlist Reykholtskórinn þakkar Bjarna Bjarni Guðráðsson Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Við notum allar aðferðir leikhússins sem okkur finnst henta til þess að segja þessa sögu, þ.m.t. söngleikja- formið. Ef fólk vill kaupa sér árskort í leikhúsið getur það þess vegna bara keypt sér miða á þessa einu sýningu, því þetta er í raun eins og margar sýningar í einni,“ segir Björn Hlynur Haraldsson, höfundur og leikstjóri, um Axlar-Björn sem leikhópurinn Vesturport frumsýnir á litla sviði Borgarleikhússins í kvöld kl. 20.00. Þetta er í annað sinn sem Björn Hlynur leikstýrir eigin leikriti, en ár- ið 2008 setti hann upp Dubbeldusch hjá Leikfélagi Akureyrar. Aðspurður segir Björn Hlynur í raun ekki koma annað til greina en að leikstýra eigin leikritum, enda hafi hann ávallt mjög skýra sýn á það hvernig hann vill sviðsetja verk sín. Að sögn Björns Hlyns hefur saga Axlar-Björns blundað með honum lengi. „Mér hef- ur alltaf fundist þjóðsögur skemmti- legt söguform og þessi þá sér- staklega. Þetta er mjög leikhúsvæn saga enda hægt að útfæra hana mjög myndrænt. Í nálgun minni reyni ég að tengja söguna við bæði sjálfan mig og minn samtíma.“ Spurður hvort ekki sé erfitt að finna tengingu við morðóðan mann sem uppi var á 16. öld svarar Björn Hlynur því neitandi og bendir á að flestar stórar persónur leikbókmenntanna hafi verið bölvuð illmenni, t.d. Ríkharður þriðji hjá Shakespeare, en spennandi sé að skoða hvatann að illvirkjum þeirra. „Ég leita því að þeim kringum- stæðum sem móta Axlar-Björn og gera hann að því sem hann er.“ Björn Hlynur er með valda menn á öllum póstum. Þannig hannar Axel Hrafnkell Jóhannesson leikmynd, Mundi búninga og Kjartan Þórisson lýsingu. Höfundur tónlistar og hljóð- myndar er Kjartan Sveinsson úr Sig- urrós. „Mig hefur alltaf langað til að fá hann til að vinna í leikhúsinu. Kjartan kemur með ferskan andblæ í tónlist sinni.“ „Margar sýningar í einni“  Nýtt leikverk úr smiðju Vesturports frumsýnt í Borgarleikhúsinu kl. 20 í kvöld  Björn Hlynur Haraldsson leikstýrir eigin leikriti um morðingjann Axlar-Björn Leikhúsveisla Atli Rafn Sigurðarson og Helgi Björnsson leika öll hlutverkin í sýningunni, en að sögn Björn Hlyns Haraldssonar leikstjóra er öllum meðulum leikhússins beitt til að koma sögunni um Axlar-Björn til skila. Axlar-Björn er þekktasti fjöldamorðingi Íslandssög- unnar, kenndur við bæinn Öxl í Breiðuvík á Snæfellsnesi. Sagan segir að móðir hans hafi verið sólgin í mannablóð þegar hún gekk með hann og faðir hans hafi reglulega blóðgað sig til að svala þorsta eiginkonu sinnar. Í Íslenskum þjóðsögum sem Jón Árnason tók saman er því lýst hvernig Axlar-Björn drap ferðamenn sem áttu leið um hlað- ið hjá honum og rændi þá föt- um, peningum og hestum, en stundum drap hann einnig fátæka ferðalanga. Talið er að Axlar-Björn hafi myrt átján manns áður en upp um hann komst. Fyrsta morðið framdi hann aðeins 14 ára gamall og dysjaði fórnarlamb sitt í flórnum á Knerri en öllum hinum var sökkt í Íglutjörn fyrir neðan túnið á Öxl. Axlar-Björn var dæmdur til dauða og tekinn af lífi árið 1596 að Laugarbrekku. Fyrst var hann beinbrotinn á útlimum með sleggjum, síðan afhöfðaður og þar á eftir brytjaður niður og einstakir hlutar úr líkama hans festir upp á stengur. Bæði Sveinn skotti sonur Axlar- Björns og sonarsonur hans, Gísli hrókur, voru morð- ingjar og hengdir fyrir ódæði sín. Framdi fyrsta morðið aðeins 14 ára SAGA EINS KALDRIFJAÐASTA MORÐINGJA ÍSLANDSSÖGUNNAR Leikstjórinn Björn Hlynur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.