Morgunblaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 31
Morgunblaðið/Árni Sæberg Einbeiting Tommy Emmanuel þykir ótrúlega lipur gítarleikari og koma hans hingað hvalreki. Tommy Emmanuel, einn færasti gítarleikari heims, hélt tónleika í Háskólabíói á mánu- dagskvöldið og var uppselt á herlegheitin. Björn Thoroddsen gítarleikari hitaði upp fyr- ir kappann. Var mál manna að Emmanuel hefði staðið rækilega undir nafni og voru til- þrif hans víst slík að líkja mátti við hreina töfra. Fullt Háskólabíó var fullt og Tommy brattur. Fjölkynngi Alls kyns brellur voru viðhafðar. Galdramaður á gítarinn MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2012 Nelson Mandela er viðfang smá- þáttaraðarinnar Madiba (vinnutit- ill) en tökur hefjast í haust. Bresk, kanadísk og suðurafrísk fram- leiðslufyrirtæki koma að málum. Mandela og fjölskylda eru inn- vikluð í málin og sagði Kweku Man- dela, barnabarn hans, að það fyrsta sem afi hans hefði spurt sig að væri hvað hann fengi mikið greitt. Tvær af bókum Mandela eru til grundvallar, Conversations With Myself og Nelson Mandela By Him- self. Enn er allt á huldu með leikara og leikstjóra. Reuters Í mynd Nelson Mandela. Smáþáttaröð um Nelson Mandela Tony Iommi, gítarleikari þunga- rokksgoðsagnanna í Black Sab- bath, hefur greinst með eitla- krabbamein. Iommi, sem er 63 ára, greindi frá þessu sjálfur. Hljóm- sveitin, sem vinnur nú að nýrri breiðskífu ásamt Rick Rubin, setti upp póst á fésbókarsetur sitt þar sem hún hvatti fólk til að senda Iommi heilandi strauma. Það er upprunalega útgáfan af Black Sab- bath sem vinnur að plötunni, með Ozzy Osbourne á bakvið hljóðnem- ann, og er mikil spenna fyrir plöt- unni og væntanlegu tónleika- ferðalagi í þungarokksheimum. Reuters Goð Tony Iommi á góðri stund. Tony Iommi með krabbameinÚTÓN framkvæmdi könnun á Ice- land Airwaves-hátíðinni sem fram fór 2011 í samstarfi við Íslands- stofu. Helstu niðurstöður eru þær að velta erlendra gesta hefur aukist um 55% en veltan var 482,5 m.kr. og þá er ferðakostnaður ótalinn. Gestirnir vörðu 313 m.kr. á hátíð- inni árið 2010. Ef ferðakostnaður gestanna er meðtalinn er velta er- lendra gesta árið 2011 um 664 millj- ónir króna. Veltuaukninguna má helst rekja til þess að erlendum gestum hefur fjölgað um 26% og auk þess gista þeir einni nótt leng- ur að meðaltali. Erlendir gestir voru samtals 2.794 talsins á hátíð- inni og eyddu þeir að meðaltali 26.168 kr. á dag í Reykjavík. Inn- lendir gestir voru 4.068. Heildar- fjöldi hátíðargesta var því 6.862 og þar af voru listamenn 846 talsins. Bandaríkjamenn eru um fjórð- ungur erlendra gesta. Um 83% svarenda voru að heimsækja hátíð- ina í fyrsta sinn og um 13% þeirra í annað sinn. Langflestir gestir greiða fyrir gistingu sína meðan á dvöl þeirra stendur en 17% gista annaðhvort hjá vinum eða ætt- ingjum. Alls var könnunin lögð fyr- ir 350 gesti. Kynjahlutfall svarenda var 58% karlar og 42% konur. Með- alaldur hópsins var 28,9 ár. Skýrsluna má nálgast í heild sinni á uton.is. Útlendingar eyða vel á Airwaves Morgunblaðið/Eggert Stemning Það er jafnan mikið um æringjahátt á henni Airwaves. SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR 5% SÉÐ OG HEYRT/ KVIKMYNDIR.IS MY WEEK WITH MARILYN KL. 5.40 - 8 - 10.20 L GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 6.45 - 9 - 10 16 ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 6 L JACK AND JILL KL. 10.20 L ÆVINTÝRI TINNA KL. 5.40 - 8 7 TINKER TAILOR SOLDIER SPY KL. 8 - 10.15 16 GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 6 - 9 16 THE SITTER KL. 6 L TINKER TAILOR SOLDIER SPY KL. 5.20 - 8 - 10.40 16 TINKER TAILOR SOLDIER SPY LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.40 16 THE SITTER KL. 6 - 8 - 10 14 GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 5.50 - 8 - 9 16 ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 3.40 - 5.50 L STÍGVÉLAÐIKÖTTURINN 3D KL. 3.40 L ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D KL. 3.40 L TILNEFND TIL 3 GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA M.A BESTA MYNDIN OG BESTA LEIKKONAN LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar TINKER,TAYLOR,SOLDIER,SPY Sýnd kl. 7 - 10:10 MISSION IMPOSSIBLE 4 Sýnd kl. 7 - 10 GIRLWITHTHEDRAGONTATTOO Sýnd kl. 10 ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 Sýnd kl. 6 TOM CRUISE, SIMON PEGG, PAULA PATTON OG JEREMY RENNER Í BESTU HASARMYND ÁRSINS! 88/100 -CHICAGO SUN TIMESH.S.S. - MBL HHH ÍSLENSKT TAL V.J.V - SVARTHÖFÐI.IS HHHH H.V.A - FBL HHH T.V. - KVIKMYNDIR.IS HHHH K.B - MBL HHH - MAGNÚS MICHELSEN, BÍÓFILMAN.IS HHHH -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.