Morgunblaðið - 23.02.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.02.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2012 Morgunblaðið/Kristinn Vel útbúinn Hér er Hlynur í fullum herklæðum og viðbúinn öllum veðrum, með brettagleraugu og í hlífðargalla. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég hjóla á hverjum degibæinn á enda til að kom-ast í vinnuna og svo afturheim, en ég bý í Sel- áshverfi og vinnan mín er á Granda- vegi, vestur í bæ. Þessi leið er fjórtán kílómetrar svo ég hjóla 28 kílómetra hvern dag,“ segir Hlynur Stefánsson sem hefur ekki sleppt því að hjóla í vinnuna einn einasta vinnudag síðan hann byrjaði á þessu fyrir rúmu ári. „Ég tók upp á þessu til að verða mér úti um daglega hreyfingu en það er heilmikil líkamsrækt fólgin í því að hjóla 28 kílómetra á dag. Mér fannst líka ástæðulaust að reka bíl sem stóð allan daginn fyrir utan vinnuna mína. Ég seldi því aukabíl- inn á heimilinu, til að spara pening, en við eigum ennþá fjölskyldubíl sem frúin er á. Ég reiknaði út að það kostaði mig hátt í hundrað þúsund á Maður verður vík- ingur af því að hjóla Hann hjólar á hverjum degi til og frá vinnu, samtals tæplega þrjátíu kílómetra, og sparar með því peninga. Hann er orðinn háður þessum lífsstíl sem færir hon- um heilsubætandi hreyfingu og nú stefnir hann á að hjóla Laugaveginn í sumar. Morgunblaðið/Kristinn Tvö hjól Hlynur með bæði hjólin sín, fjallahjólið hvíta og rafhjólið bláa. Ekki veitir af að skerpa á heila- starfseminni við og við og er vefsíðan sporcle.com tilvalin til þess. En þar er að finna ýmiss konar sniðugar þrautir og krefjandi verkefni sem sjá til þess að heilinn fái engan frið. Orðaleikir og orðarugl er vinsælt en ein þrautin byggist á því að fylla inn í heiti þekktra ævintýra. Skemmtilegt og krefjandi um leið. Fyrir þá sem eru vel að sér í ártölum er líka sniðugt að takast á við alls konar spurningar frá ákveðnum ára- tug. Það er örugglega hægt að æfa sig vel fyrir ýmiss konar spil og leiki með þessu. Einna vinsælasti leik- urinn á Sporcle er þó sá sem maður á að fylla inn eins mörg heiti á löndum í Evrópu og maður getur á sjö mín- útum. Þetta er nokkuð krefjandi og alls ekki jafn auðvelt og það hljómar enda tifar klukkan. Prófaðu bara og sjáðu hvernig þér gengur. Vefsíðan www.sporcle.com Landakort Hversu mörg lönd getur þú nefnt undir tímapressu? Skemmtilegt heilabrak Styrktarfélagið Göngum saman, sem stofnað var árið 2007, stendur fram að páskum fyrir reglulegum fræðslu- fundum. Fundirnir eru ætlaðir almenningi og þar kynnt gildi rannsókna sem beinast að því að skilja eðli og uppruna brjósta- krabbameins. Fæðslufundirnir kallast „Vísindi á laugardegi – Göngum saman í leit að lækningu á brjóstakrabbameini.“ Laugardaginn 25. febrúar kl. 13 hefst næsti fundur. Þar mun rannsóknahópur Þórarins Guðjónssonar og Magnúsar Karls Magnússonar taka á móti gestum í Læknagarði og segja frá stofn- frumurannsóknum og brjóstakrabba- meini. Endilega … … sækið fræðslufund Morgunblaðið/Golli Félag Lagt af stað í Öskjuhlíð. Landssamtök hjólreiðamanna standa fyrir málþingi nú á föstudaginn, 24. febrúar. Á málþinginu verður fjallað um tækifærin sem fólgin eru í hjóla- ferðamennsku, hver staðan er á Ís- landi núna og hvað við þurfum að gera til að geta nýtt þessi tækifæri. Málþingið er liður í verkefninu Hjólaleiðir á Íslandi sem er sam- starfsverkefni fjölmargra aðila, um að skilgreina landsnet hjólaleiða á Ís- landi og fleira því tengt. Fjöldi fyrir- lesara mun halda erindi og eru um- ræðuefnin meðal annars erlendir hjólaferðamenn á Íslandi og ýmsar lausnir er varða hjólastíga. Bein útsending á netinu Allar nánari upplýsingar má nálg- ast á vefsíðu Landssamtaka hjól- reiðamanna lhm.is. Þar er hægt að skrá sig til hádegis í dag en mál- þingið fer fram í Eflu verkfræðistofu, Höfðabakka 9, og hefst klukkan 10:30 í fyrramálið. Þeir sem eiga lengra að sækja geta fylgst með mál- þinginu í beinni útsendingu á netinu í gegnum vefsíðu samtakanna. Málþing Landssamtaka hjólreiðamanna Margvísleg tækifæri í hjóla- ferðamennsku á Íslandi Hjólað Margir nýta sér hjólið sem samgöngutæki allan ársins hring. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Eftir nokkurra ára hlé hefur Leik- félagið sunnan Skarðsheiðar tekið saman á ný. Leikfélagið sam- anstendur af áhugaleikurum frá Hval- fjarðarsveit og eru þau um þessar mundir að setja upp leikrit undir leik- stjórn Margrétar Eirar sem ber heitið „Ef ég væri gullfiskur“ eftir Árna Ib- sen. En leikritið er farsi sem snýst um fjölskyldudrama, peninga, framhjáhald og drykkju. Leikritið verður sýnt að Hlöðum í Hvalfjarðarsveit helgina 24.-25. febr- úar 2012 og hefst sýningin kl. 20:00. Miðaverð er kr. 2000 fyrir full- orðna og kr. 1000 fyrir börn yngri en 12 ára. Hægt er að hringja og panta miða hjá Guðjóni Sigmundssyni, þ.e. Gaua litla, framkvæmdastjóra Hlaða í síma 660-8585 eða á gaui@gauilitli- .is. Fylgjast má með leikfélaginu og sýningum þess á Facebook-síðu fé- lagsins undir nafni þess. Leikfélagið sunnan Skarðsheiðar Hlaðir Félag áhugaleikara úr Hvalfjarðarsveit setur upp leikrit Árna Ibsen. Farsi settur á svið á Hlöðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.