Morgunblaðið - 23.02.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.02.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2012 Sigrún Rósa Björnsdóttir Hjörtur Guðmundsson Meirihluti viðstaddra þingmanna á Alþingi samþykkti í gær með 30 atkvæðum gegn 15 þingsályktunartillögu um að stjórnlagaráð verði kallað saman á ný til fundar í mars til þess að ræða það hvort gera þurfi frekari breytingar á frumvarpi þess að nýrri stjórnarskrá sem ver- ið hefur til meðferðar í þinginu. Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Fram- sóknarflokksins, sagðist fyrir atkvæðagreiðsl- una efins um að um væri að ræða skref fram á við og sæti því hjá. Sautján þingmenn voru fjar- verandi við atkvæðagreiðsluna. Hart hefur verið deilt um málið í þinginu. Hafa bæði þingmenn Sjálfstæðisflokks og flest- ir þingmenn Framsóknarflokks gagnrýnt vinnubrögð meirihlutans í málinu harðlega. Verkefnið væri óskýrt, lítið sem ekkert unnið og þarfnaðist mun meiri tíma til fullvinnslu áð- ur en hægt væri að leggja það fyrir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu í júní næstkomandi. Í nefndaráliti 1. minnihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, frá fulltrúum Sjálfstæð- isflokks, er deilt á að óljóst sé hvaða verk stjórnlagaráð eigi að vinna á þeim fjórum dög- um sem lagðir eru til verksins. Svo stuttur starfstími hljóti að teljast vanvirðing við það verkefni að setja þjóðinni nýja stjórnarskrá. Átti að vera tilbúið í febrúar Tillaga um meðferð frumvarpsins sem var lögð fram á Alþingi 4. október í fyrra er fjór- þætt en í henni er lagt til í hvaða ferli skuli setja frumvarp til stjórnskipunarlaga sem stjórn- lagaráð afhenti Alþingi 29. júlí fyrr það ár. Var gert ráð fyrir að frumvarpið yrði tekið á dag- skrá Alþingis fyrir 1. nóvember það ár, og þá rætt sem skýrsla. Tillögunni var vísað til stjórn- skipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis eftir fyrstu umræðu. Samkvæmt tillögunni skyldi fela sjö manna sérfræðinefnd (stjórnlaganefnd) að leggja heildstætt mat á efni frumvarpsins. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd legði síðan fram tilögur að breytingum fyrir stjórnlagaráð í síðasta lagi 1. desember. Frumvarpið væri tilbúið til kynningar almenningi í síðasta lagi 1. febrúar í ár. Tveir síðari liðir tillögunnar byggðust á því að þessari vinnu væri lokið en kemur fram að stjórnlaganefnd eigi að standa að kynningu á frumvarpinu og taka tillit til breytinga, komi fram afgerandi óskir í þá átt. Í tillögunni er jafnframt lagt til að stjórnlagaráð leggi til að frumvarpið fari í ráðgefandi þjóð- arakvæðagreiðslu ekki síðar en 20. júní nk. samhliða forsetakosningum. Tímaramminn var sprunginn Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd afgreiddi þingsályktunartillöguna út úr nefnd hinn 16. febrúar og samþykkti við hana breytingar- tillögu. Í nefndaráliti meirihlutans segir að fljótlega hafi komið fram að það vinnulag sem lagt var upp með í byrjun gengi ekki, að teknu tilliti til aðstæðna. Þar sem fyrri tímarammi er sprunginn er í breytingartillögunni gert ráð fyrir að stjórn- lagaráð verði kallað saman til fjögurra daga fundar í mars. Ráðið taki breytingartillögur og spurningar nefndarinnar til umfjöllunar og skili af sér í síðasta lagi 12. mars. Í framhaldinu leggi meirihluti nefndarinnar fram tillögur til Alþingis um að „tillögurnar í heild, með breyt- ingartillögum stjórnlagaráðs ef við á, ásamt spurningum um helstu álitaefni verði bornar upp í ráðgefandi atkvæðagreiðslu“. Loka- afgreiðsla verði ekki síðar en 29. mars. Er sú dagsetning skýrð þannig í nefndaráliti meiri- hlutans að lög um þjóðaratkvæðagreiðslu áskilji að þjóðaratkvæðagreiðsla geti farið fram í fyrsta lagi þremur mánuðum eftir samþykkt þingsályktunar. Dagsetningin 29. mars sé því nauðsynleg til að kosningin geti farið fram sam- hliða forsetakjörinu 30. júní nk. Morgunblaðið/Golli Klappað og sungið Glatt var á hjalla þegar stjórnlagaráð kom saman í fyrsta sinn. Börn sungu og leikið var á hljómborð. Deilt á vinnubrögð í stjórnarskrármálinu  Mikið verk óunnið áður en hægt er að leggja frumvarpið undir þjóðina Í nefndaráliti 1. minnihluta, fulltrúa Sjálf- stæðisflokks, er m.a. gagnrýnt að stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd hafi ekki enn tekið saman yfirlit yfir þær athugasemdir og gagnrýni sem komið hefur fram við til- lögur stjórnlagaráðs frá því fyrrasumar. Í 2. minnihlutaáliti frá Framsóknarflokki er vísað til þess að þeir sérfræðingar sem komu fyrir nefndina hafi allir varað við að setja skýrslu stjórnlagaráðs í þjóðar- atkvæðagreiðslu. Með áliti 2. minnihluta fylgir skýrsla frá Ágústi Þór Árnasyni, deild- arformanni lagadeildar Háskólans á Ak- ureyri, og Skúla Magnússyni, dósent við lagadeild Háskóla Íslands. Báðir áttu þeir sæti í stjórnlaganefnd. Í skýrslunni telja Ágúst og Skúli að það skorti á að „farið hafi fram fullnægjandi umræða og greining á markmiðum“. Þau séu um margt óljós og umdeild. Stjórnar- skráin sé nánast endursamin frá grunni, óháð því hvort reglur hafi sætt gagnrýni. Slíkar breytingar beri að gera með varúð. Þeir fara í gegnum ríflega 100 greinar frum- varpins. Ef gripið er niður í umfjöllun þeirra um 14. gr. er snýr að skoðana- og tjáning- arfrelsi, þá segir þar að erfitt sé að sjá þörf fyrir breytingu á orðalagi, án þess að reynt sé að breyta núverandi ákvæði. Í 5. gr. frumvarpsins um skyldur borg- aranna segir: „Stjórnvöldum ber að tryggja að allir fái notið þeirra réttinda og þess frelsis sem í þessari stjórnarskrá felast. Allir skulu virða stjórnarskrá þessa í hví- vetna, sem og þau lög, skyldur og réttindi sem af henni leiða.“ Ágúst og Skúli segja greinina ekki hafa sjálfstætt efnislegt inntak. Slíkt ákvæði sé almennt til óþurftar og til þess fallið að skapa vafa frekar en vissu og öryggi. Breytingar með varúð Morgunblaðið/ÞÖK „Það er alveg nægur tími ef vilji þingsins stendur til þess,“ segir Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar Alþingis, um undir- búning þjóðaratkvæða- greiðslu um tillögur stjórnlagaráðs. Gert sé ráð fyrir að stjórnlagaráðs- fulltrúar fundi saman dagana 8.-11. mars. Svo virðist sem Pawel Bartoszek ætli ekki að mæta en hann gagnrýnir m.a. að yfirlit tillagna vanti frá nefndinni. Valgerður segir slíkt skjal koma um helgina. Komi í ljós að einhverjir vilji ekki vera með sé a.m.k. ljóst hverjir ætli að vera með. Segir nægan tíma til undirbúnings STJÓRNARSKRÁIN Valgerður Bjarnadóttir Birgir Ármannson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd, gagnrýnir meðferð meiri- hluta nefndarinnar á stjórnarskrármálinu. „Eðli- legra hefði verið að taka þær tillögur sem eru komnar frá stjórnlagaráði og aðrar tillögur sem hafa komið fram um breytingar á stjórnarskrá og fara gaumgæfilega yfir þær í nefndinni,“ segir Birgir og reyna þannig að ná sáttum. Hann lýsir áhyggjum af því að ferlið sem farið sé í gang verði ómarkvisst og rugl- ingslegt. Erfitt verði að vinna þetta vel í tíma fyrir áætlaða þjóðaratkvæðagreiðslu. Erfitt að vinna vel í tíma STJÓRNARSKRÁ Birgir Ármannsson „Mínar væntingar voru þær að þegar við skiluðum sem ráðgefandi stjórnlaga- ráð inn okkar tillögum að nýrri stjórnarskrá í 115 greinum myndi þingið fylgja því eftir með mjög ýtarlegri skoðun á þeim til- lögum og síðan móta sér efnislega afstöðu til tillagn- anna sjálfra … Það væri þá eitthvað sem mætti taka afstöðu til en það hef- ur þingið ekki gert,“ segir Pawel Bartoszek, fv. formaður nefndar C innan stjórnlagaráðs, nefndar sem m.a. hafði stjórnarskrárbreyt- ingar á verksviði sínu, um vonbrigði sín með þingið. „Mér finnst þetta ekki vera góður farveg- ur … Það hefði verið mjög gott ef þingið, sem hefur langa reynslu sem löggjafar- og stjórn- arskrárgjafi, hefði beitt sér af öllu afli til að sigla þessu máli eins vel áfram og kostur var. Þetta hálfa ár sem liðið er hefur ekki verið nýtt vel í það verk.“ Framvindan óljós Pawel segir ekki skýrt hvernig unnið verði úr niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar. „Það er óljóst hver uppsetningin verður á ferlinu í framtíðinni. Nú veit ég ekki hvort kosið verður um tillöguna í heild eða einstaka kafla hennar og hvernig svo verður farið með þær niðurstöður. Ef 51% þjóðarinnar kýs með tillögunni líta menn þá svo á að hún hafi verið samþykkt orðrétt og að henni verði ekki haggað? Eða ætla menn þá að gefa sér að þetta sé meginlínan og að þeir geti pússað af helstu vankantana? Hvað ef 51% þjóðarinnar kýs á móti? Ætla menn þá að taka því sem skilaboðum um að kjósendur vilji alls ekki tillögurnar eða að það séu skilaboð um að sníða þurfi af helstu van- kantana? Hvernig sem kosið er er hætt við að ekki verði mikið að marka þjóðaratkvæða- greiðsluna. Þessu er mjög ábótavant, að fram- haldið sé skýrt að þessu leyti.“ baldura@mbl.is Lítið að marka þjóðaratkvæðið að óbreyttu Pawel Bartoszek

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.