Morgunblaðið - 23.02.2012, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 23.02.2012, Blaðsíða 31
Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2012 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Flatir 25, 218-3356, þingl. eig. Rammar, hurða- og gluggasm. ehf., gerðarbeiðendur Gjaldheimtan ehf. og Vestmannaeyjabær, miðvikudaginn 29. febrúar 2012 kl. 15:00. Hátún 8, 218-3702, þingl. eig. Gunnar Magnússon, gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., miðvikudaginn 29. febrúar 2012 kl. 15:30. Vesturvegur 28, 218-5098, þingl. eig. Gunnar Magnússon, gerðar- beiðendur Íbúðalánasjóður, Vátryggingafélag Íslands hf. og Vest- mannaeyjabær, miðvikudaginn 29. febrúar 2012 kl. 14:00. Vesturvegur 30, 218-5101, þingl. eig. Gunnar Magnússon, gerðar- beiðendur Vátryggingafélag Íslands hf. og Vestmannaeyjabær, miðvikudaginn 29. febrúar 2012 kl. 14:30. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum, 21. febrúar 2012. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Bugðulækur 3, 201-6652, Reykjavík, þingl. eig. Irma Sjöfn Óskars- dóttir, gerðarbeiðendur Arion banki hf., Íbúðalánasjóður og Stafir lífeyrissjóður, mánudaginn 27. febrúar 2012 kl. 11:00. Dugguvogur 23, 224-7151, Reykjavík, þingl. eig. Stórlax ehf., gerðar- beiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn 27. febrúar 2012 kl. 11:30. Eyjabakki 3, 204-7565, Reykjavík, þingl. eig. Hugrún Ólafsdóttir, gerðarbeiðandi Drómi hf. v/SPRON, mánudaginn 27. febrúar 2012 kl. 14:30. Sólheimar 23, 202-1519, Reykjavík, þingl. eig. Emely Kalla Kvaran, gerðarbeiðendur Arion banki hf., Íbúðalánasjóður og Reykjavíkur- borg, mánudaginn 27. febrúar 2012 kl. 10:30. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 22. febrúar 2012. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Austurholt 8, fnr. 211-0949, Borgarnesi, þingl. eig. Arnþór Gylfi Árnason, gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Vátryggingafélag Íslands hf., miðvikudaginn 29. febrúar 2012 kl. 09:15. Hallveigartröð 4, fnr. 231-7959, Borgarbyggð, þingl. eig. Eik ehf., trésmiðja, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 29. febrúar 2012 kl. 10:00. Hallveigartröð 4, fnr. 231-7960, Borgarbyggð, þingl. eig. Eik ehf., trésmiðja, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 29. febrúar 2012 kl. 10:05. Hrísbrekka 16, fnr. 224-7829, Hvalfjarðarsveit, þingl. eig. Ása Geirdal Elvarsdóttir og Rafnar Jensson, gerðarbeiðandi Arion banki hf., miðvikudaginn 29. febrúar 2012 kl. 11:00. Neðstiás 11, fnr. 228-4496, Hvalfjarðarsveit, þingl. eig. Hákon Elfar Guðmundsson, gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf., miðvikudaginn 29. febrúar 2012 kl. 11:20. Tjarnarás 11, fnr. 231-5315, Hvalfjarðarsveit, þingl. eig. Elísabet Kolbeinsdóttir, gerðarbeiðandi Drómi hf., miðvikudaginn 29. febrúar 2012 kl. 11:15. Sýslumaðurinn í Borgarnesi, 22. febrúar 2012. Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Heiðarvegi 15, Vestmannaeyjum fimmtudaginn 1. mars 2012 kl. 09:30 á eftirfarandi eignum: Birta VE-008, skr.nr. 1430, þingl. eig.TT Luna ehf. og Svörfull ehf., gerðarbeiðandi Sandgerðishöfn. Heiðarvegur 3, 218-3720, þingl. eig. Þrídrangar ehf., gerðarbeiðandi Tryggingamiðstöðin hf. Heiðarvegur 3, 224-7951, þingl. eig. Þrídrangar ehf., gerðarbeiðandi Tryggingamiðstöðin hf. Heiðarvegur 5, 218-3721, þingl. eig. Hvassafell ehf., gerðarbeiðendur Tryggingamiðstöðin hf. og Vestmannaeyjabær. Heimagata 35, 218-3844, þingl. eig. Hlynur Már Jónsson, gerðar- beiðendurTryggingamiðstöðin hf. og Vestmannaeyjabær. Helgafellsbraut 31, 218-3874, þingl. eig. Hvassafell ehf., gerðar beiðendur Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,Tryggingamiðstöðin hf. og Vestmannaeyjabær. Helgafellsbraut 31, 218-3875, þingl. eig. Hvassafell ehf., gerðar- beiðandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum. Kirkjuvegur 21, 218-4385, þingl. eig. Þrídrangar ehf., gerðarbeiðandi Vestmannaeyjabær. Kirkjuvegur 84, 218-4442, þingl. eig. Kolbrún Harpa Kolbeinsdóttir, gerðarbeiðendurTryggingamiðstöðin hf. Vestmannabraut 37, 218-4990, þingl. eig. Hvassafell ehf., gerðar- beiðendur Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,Tryggingamiðstöðin hf. og Vestmannaeyjabær. Vestmannabraut 47, 218-5004, þingl. eig. Hörður Guðmundsson, gerðarbeiðandi Vestmannaeyjabær. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum, 21. febrúar 2012. Leynimótinu lokið Reykjavíkurmótinu í sveitakeppni er lokið með sigri Karls Sigurhjartarsonar. Í sveitinni spiluðu Karl Sigurhjartarson, Sævar Þorbjörnsson, Sigurbjörn Haraldsson og Anton Har- aldsson Lokastaðan: Karl Sigurhjartarson 212 stig Málning hf. 201 stig Lögfræðistofa Íslands 195 stig Gullsmárinn Spilað var á 14 borðum í Gullsmára mánudaginn 20. febrúar, bolludag. Boðið var upp á bollukaffi. Úrslit urðu í N/S Sigtryggur Ellertss. – Þorsteinn Laufdal 328 Steindór Árnason – Einar Markússon 308 Sigurður Gunnlss. – Gunnar Sigurbjss. 294 Pétur Antonss – Örn Einarsson 289 A/V Pétur Jónsson – Páll Ólason 316 Ágúst Vilhelmsson – Kári Jónsson 315 Haukur Guðbjartss. – Jón Jóhannss. 295 Guðbjörg Gíslad. – Sigurður Sigurðss. 288 Súgfirðingaskálin Feðgar röðuðu sér í tvö efstu sætin í fimmtu lotu í keppni um Súgfirðingaskál- ina og bræður höfnuðu í því þriðja. Ás- geir Sölvason og Sölvi Ásgeirsson skut- ust yfir Jón Óskar Carlsson og Karl Ómar Jónsson í lokin og höfðu góðan sig- ur. Urðu þeir fimmta parið sem sigraði í jafnmörgum keppnum í mótinu en fjór- tán pör mættu til leiks á bolludag. Efstu pör í fimmtu lotu, meðalskor 130 stig. Ásgeir Sölvason – Sölvi Ásgeirsson 165 Jón Óskar Carlsson – Karl Ó. Jónss. 160 Kristján Pálss. – Ólafur Karvel Pálss. 151 Guðm. Þorsteinss. – Flemming Jessen 139 Hlynur Antonss. – Auðunn Guðmss. 137 Gróa Guðnad – Guðrún K. Jóhannesd. 131 Eftir 5 lotur er staða efstu para: Hlynur Antonsson – Auðunn Guðmss. 753 Jón Ó. Carlsson – Karl Ómar Jónss. 703 Kristján Pálss. – Ólafur Karvel Pálss. 699 Gróa Guðnad. – Guðrún K. Jóhannesd. 683 Ásgeir Sölvason – Sölvi Ásgeirsson 662 Þorsteinn Þorsteinss. – Rafn Haraldss. 653 Meðalskor 650 stig. Bridsdeild FEB í Rvk Tvímenningskeppni spiluð í Stangar- hyl, mánud. 20. febrúar. Spilað var á 15 borðum. Meðalskor 312 stig. Árangur N-S Valdimar Ásmundss. – Björn Péturss. 363 Elías Einarsson – Óskar Ólafsson 362 Ragnar Björnsson – Örn Ingólfsson 356 Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 342 Árangur A-V Bragi Björnsson – Albert Þorsteinsson 370 Svanhildur Gunnarsd. – Magnús Láruss. 363 Ægir Ferdinandsson – Helgi Hallgrímss. 357 Friðrik Jónsson – Tómas Sigurjónss. 350 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Hvernig sem á það er litið sama út frá hvaða hlið. Lífið hefði verið litlaust ef þín hefði ekki notið við. (Stefán Hilmarsson) Það er þyngra en tárum taki að sitja hér og skrifa minningar- Berglind Ósk Guðmundsdóttir ✝ Berglind ÓskGuðmunds- dóttir fæddist í Reykjavík 1. sept- ember 1980. Hún lést 20. desember 2012. Útför Berglindar var gerð frá Foss- vogskapellu 3. jan- úar 2012. grein um elskulega frænku okkar, Berg- lindi Ósk, sem nú hefur kvatt þennan heim alltof fljótt, að- eins 31 árs að aldri. Við viljum í fáeinum orðum minnast hennar. Berglind ólst upp í vesturbæ Kópavogs við gott atlæti ásamt foreldrum sínum og tveimur eldri bræðrum. Við höfum þekkt hana frá því að hún var lítil stúlka þar sem samband okkar við fjölskyldu hennar hefur alltaf verið náið. Ef við ættum að lýsa henni í nokkrum orðum þá kemur efst í hugann góðmennska, mikill húm- oristi með smitandi hlátur og fal- legt bros. Hún vildi allt fyrir alla gera. Berglind elskaði börn og dýr enda voru börn mjög hænd að henni. Hún átti bæði hunda og ketti sem hún sinnti af mikilli al- úð. Einnig hafði hún áhuga á hestamennsku og fór oft með pabba sínum á bak og áttu þau þá góðar stundir saman. Minningarnar streyma fram og við hugsum til Tenerife-ferðar- innar sem við fórum í ásamt fjöl- skyldu Berglindar árið 2007. Þá fór stór hópur saman til Tenerife og áttum við saman góðar stundir. Berglind naut sín mjög vel í ferð- inni með börnunum sínum þrem- ur sem voru augasteinar hennar og gleðigjafar. Við erum þakklát fyrir allar góðu minningarnar sem við eigum um hana Berglindi frænku okkar. Við biðjum góðan Guð að styrkja og hugga börnin hennar og fjöl- skyldu á þessum erfiðu tímum. Við hugsum um hana sem engil á himnum og vitum að hún er nú komin í faðm ömmu og afa og ann- arra ástvina. Elsku Inga frænka, Óskar, Pét- ur, Viðar og fjölskyldur. Hugur okkar er hjá ykkur þessa dimmu daga. Megi Guð vera með ykkur og börnunum hennar. Elsku Berglind, megi englar Guðs vernda þig. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Minning um góða stúlku mun lifa. Bára Eiríksdóttir, María Björk, Kristrún Lilja, Atli Már og fjölskyldur. Elsku pabbi. Takk fyrir mig, hetjuleg barátta þín fram á það síðasta kenndi mér að gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Núna ertu laus við óvininn og ég trúi því að þér líði vel hjá þeim sem tóku á móti þér við endamarkið. Sjálfsagt ertu að dunda þér í skúrnum, búa til lyklakippustæði eða mála fal- legt málverk. Þú ert svo mikill dundari og dundar þér við verk- efni sem hafa ákveðinn tilgang. Einstaka sinnum kemur upp grall- arinn líka, líkt og þegar þú tókst á móti mér þegar ég flutti heim frá Noregi. Ég með körfuna í fríhöfn- inni, bograndi við neðstu hillu að velja mér góðgæti þegar maður í svörtu kom upp að mér og sagði: „Þú mátt ekki kaupa svona mikið“. Mér krossbrá og hélt að ég væri að gera eitthvað af mér, lít upp en þá var það brosandi andlitið þitt en ekki einhver laganna vörður sem tók á móti mér. Mér þótti svo vænt um að sjá þig og fá svona yndisleg- ar móttökur. Mér þykir vænt um þig elsku pabbi minn. Eftirfarandi viðlag, við eitt af mínum uppá- haldslögum, lýsir nákvæmlega því sem mér finnst ég finna þótt þú sért farinn mér frá. Ég mun því halda áfram að tala við þig þótt það verði ekki í síma eins og áður. Minning þín lifir innra með mér. Sveinn Finnur Sveinsson ✝ Sveinn FinnurSveinsson fæddist í Reykjavík 29. júlí 1957. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Suð- urnesja 6. febrúar 2012. Útför Sveins Finns fór fram frá Ytri-Njarðvík- urkirkju 14. febr- úar 2012. Ég vernda þig og leiði þig, í draumi vaki yfir þér. Ég vernda þig og ég stend þér við hlið. Ég er svar við bæn. Ég mun vaka yfir þér. Já, svar við þinni bæn. Ég vernda þig og stend þér við hlið. Ég er röddin, sem hvíslar að þér. (Magnús Þ. Sig- mundss.) Ég veit þú kíkir á mig við tæki- færi og athugar hvernig miðar áfram í búskapnum. Kjartan Ottó og nafni þinn biðja kærlega að heilsa þér. Sjáumst í draumum mínum. Takk fyrir að vera pabbi minn Þín Anna Lóa. Kveðja frá starfsmönnum Tollstjóra á Keflavíkurflugvelli Sveinn Finnur Sveinsson toll- fulltrúi hafði starfað hjá Tollgæsl- unni frá árinu 1977 og var því að nálgast 35 ára starfsafmæli. Hann hóf störf í Reykjavík en starfaði lengst af í Keflavík og frá árinu 2007 á Keflavíkurflugvelli. Sveinn var nákvæmur og sam- viskusamur og voru fáir sem höfðu jafnmikla þekkingu hér á Suður- nesjum í tollamálum. Snyrti- mennska í klæðnaði og virðing fyr- ir einkennisfatnaðinum var alltaf til staðar og ekki margir sem hugs- uðu betur um tollvarðarbúninginn. Sveinn Finnur hafði glímt við erfiðan sjúkdóm og varð að játa sig sigraðan aðeins 54 ára gamall. Við fyrrverandi samtarfsmenn hans þökkum honum samfylgdina og sendum aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Kári Gunnlaugsson yfirtollvörður. Kveðja frá Tollvarðafélagi Íslands Fyrir hönd Tollvarðafélags Ís- lands vil ég minnast félaga okkar til margra ára, Sveins Finns Sveinssonar. Starfsferill Sveins í tollgæslunni var langur og farsæll. Áhugi hans fyrir starfinu var mikill og eftirtektarvert var að fylgjast með af hve miklum áhuga hann tók þátt í umræðum um fagleg málefni tollvarða. Hann hafði hæfileika til að leysa flókin mál og kom það sér einkar vel fyrir okkur samstarfs- félagana að hafa reyndan mann með hans yfirgripsmiklu þekkingu á tollamálum. Með trega og sorg þurfum við að kveðja góðan dreng allt of snemma. Eftir lifir minning um góðan vin og samstarfsfélaga sem við munum ekki gleyma. Fjöl- skyldu Sveins sendum við tollverð- ir okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Ársæll Ársælsson, formaður TFÍ. Frændi og vinur, Sveinn Finnur Sveinsson, hefur fellt seglið og vonanna fley hafa öll verið dregin í naust. Skáldið Hjálmar Jónsson frá Bólu sagði: Mínir vinir fara fjöld, feigðin þessa heimtar köld. og á þennan bitra sannleika er minnt æ oftar eftir því sem árum fjölgar. Og þeim mun erfiðara er að takast á við þennan sannleika þegar þeir kveðja sem eru á besta aldri og sannanlega hafa alla tíð verið fullir starfs- og vinnugleði, aldrei setið auðum höndum, en ætíð séð verðug verkefni framund- an sem áskorun um að leysa vel af hendi. Ég man fyrst eftir Sveini Finni nokkurra ára strák, síkvik- um, snoðklipptum, spurulum og kátum, oftar en ekki með gúmmí- skóna í krummafót þegar hann kom í sveitina til ömmu og afa á Laugalandi. Hann var óþreytandi hvort sem var að skottast á eftir kúnum, hlaupa í ýmiskonar sendi- ferðir eða þá að leika sér með krökkunum sem oftast voru margir á heimilinu. Alls staðar þar sem hann var var hlátur, gleði og hreyf- ing. Þannig var allt hans lífshlaup, en þó voru, svo sem í lífi hvers manns, brekkur misháar sem klífa þurfti, en þær voru fljótt að baki og ný áskorun framundan. Sveinn Finnur var harðduglegur og fram- úrskarandi lagvirkur og þau eru nokkur húsin og íbúðirnar, sem hann meðfram fullum vinnudegi hefur endurgert, bæði fyrir sig sjálfan og fjölskyldu sína og einnig til að aðstoða frændur eða vini. Um þetta ber ljósan vott heimili þeirra Jónínu, en ekki síður sumarbústað- urinn í Borgarfirðinum, þar sem þau hjónin voru einstaklega sam- hent um að búa sér hlýjan og nota- legan griðastað frá erli hversdags- ins, en eins og hann sjálfur sagði, að þó væri heilmargt sem hann ætti eftir að gera til þess að það yrði eins og hann vildi. Síðustu mánuð- irnir hafa verið fjölskyldu hans erf- iðir, en Jónína og allir aðstandend- ur hafa staðið þétt saman og verið einhuga um að gera honum erfiða baráttu léttari. En nú hefur Sveinn Finnur lagt frá sér öll áhöld og verkfæri og gengið á móti hækk- andi sól og bjartari dögum, þar sem allar þrautir og sársauki eru að baki. Megi algóður Guð styrkja Jónínu, börnin þeirra Sveins Finns, Lóu móður hans og systur mína, og alla aðstandendurna á þessum erf- iðu dögum. Farðu vel, vinur, og far- arheill frá okkur Birnu. Björn Björnsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.