Morgunblaðið - 23.02.2012, Side 15

Morgunblaðið - 23.02.2012, Side 15
BAKSVIÐ Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Áform eru um að reisa nýja 16- 18.000 fermetra verslunar- og þjón- ustumiðstöð við hringveginn rétt vestan við Selfoss. Undirbúningur er kominn langt á veg og er stefnt á að hefja framkvæmdir eins fljótt og auðið er. Það er félagið Gatnamót ehf. sem stendur fyrir byggingunni og hefur fengið vilyrði um úthlutun lóð- arinnar og mun í samstarfi við sveit- arfélagið Árborg skipuleggja svæð- ið. Gatnamót munu annast undirbúning og skipulag fram- kvæmda, fjármögnun, rekstur og út- leigu byggingarinnar. Verslunar- og þjónustumiðstöðin hefur hlotið heitið Miðja Suðurlands og mun standa á sex hektara lóð við gatnamót Biskupstungnabrautar og Suðurlandsvegar. Lóðin tekur mið af legu nýs Suðurlandsvegar en það er samt sem áður hægt að byggja á henni þótt nýr vegur sé ekki kominn, hún liggur þannig við gamla veginn. Ef af byggingunni verður er um að ræða stærstu þjónustumiðstöð í sögu Suðurlands við ein fjölförnustu gatnamót hringvegarins. Alls fara 9.000 bílar á dag um þennan kafla Suðurlandsvegar yfir sumartímann og íbúafjöldi svæðisins um 50.000 ef með er talin sumarhúsabyggð. Árni Blöndal verkfræðingur er stjórnarformaður og eigandi Gatna- móta ehf. Hann segir aðdragandann að Miðju Suðurlands vera þessar umferðartölur og fjölda íbúa og sumarbústaðaeigenda á svæðinu. Vantað hafi heildstæða þjónustu- miðstöð á þessu svæði fyrir ferða- menn, með matvöruverslun, sér- vöruverslun, veitingastað og kaffihúsi, bensínstöð, bílaverkstæði, þvottastöð og ýmiskonar afþreyingu. Upp innan þriggja ára „Miðstöðin er hönnuð til að passa við nýja Suðurlandsveginn þegar hann kemur fyrir austan Selfoss. En hún fer upp hvort sem hann kemur eða ekki,“ segir Árni. Vinna við hug- myndagerð og hönnun er langt á veg komin og fyrir liggja frumdrög að teikningum frá ARKÍS arkitektum. Gert er ráð fyrir að byggingin rísi innan þriggja ára. Árni segir að þeir séu búnir að ræða við 70% þeirra sem munu fara í húsið og verið sé að móta það samstarf. „Þetta er hugsað sem fasteignaverkefni sem gengur út á að fá framtíðarleigjendur í húsið og með því að fá loforð um framtíð- arleigusamninga er hægt að fara og fá fjármögnun fyrir byggingunni. Í framtíðinni verður þetta væntanlega í eigu fjárfesta, lífeyrissjóða eða fasteignafélags.“ Lauslega áætlaður kostnaður við framkvæmdina er þrír og hálfur milljarður að sögn Árna. Miðjan rís við hringveginn  Verslunar- og þjónustumiðstöð á að rísa við hringveginn rétt vestan við Sel- foss  Tekur mið af legu nýs Suðurlandsvegar  Hlotið heitið Miðja Suðurlands Miðja Suðurlands Núverandi þjóðvegur 1 Fyrirhugaður þjóðvegur 1 Núverandi þjóðvegur 1 Fyrirhugaður þjóðvegur 1 SELFOSS Ölf usá (Hveragerði) (Hella) Loftmyndir ehf. FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2012 Það er sveitarfélagið Árborg sem á lóðina sem nýja verslunar- og þjónustumiðstöðin, Miðja Suður- lands, á að rísa á. „Við erum búin að veita Gatnamótum ehf. vilyrði fyrir lóð. Þeir hafa þá tíma og tækifæri til að vinna málið áfram og geta fengið lóðina úthlutaða ef áætlanir ganga eftir. Skilyrði sem sveitarfélagið setur fyrir lóðinni er að allri uppbyggingu verði lokið innan fjögurra ára frá því að formleg úthlutun á sér stað,“ segir Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri sveitarfé- lagsins Árborgar. Hún segir þetta verða tals- verða uppbyggingu í verslun og þjónustu á svæðinu. „Þetta hef- ur vonandi í för með sér heil- mörg störf á uppbyggingartím- anum og væntanlega störf til framtíðar í versluninni.“ Spurð hvort sveitafélagið ráð- geri frekari uppbyggingu á svæðinu segir Ásta að Árborg eigi ekki mikið land í þessa átt og ekki sé gert ráð fyrir að íbúð- arbyggð þróist þarna þótt frekari uppbygging í verslun og þjón- ustu gæti átt sér stað. Skapar von- andi störf ÁRBORG Endurgreiðsluverð vegna áburð- arkaupa í verkefninu Bændur græða landið árið 2012 hefur verið ákveðið 64.600 krónur á hvert tonn, en var kr. 63.300 pr. tonn árið 2011. Árið 2007 var endurgreiðsluverðið kr. 22.500 pr. tonn og hefur því hækkað um 187% á aðeins 5 árum. Styrkurinn á að standa straum af um 85% áburðarverðs og miðast við meðalverð tvígilds, fjölkorna áburð- ar. Fyrrnefndar tölur um endur- greiðslu á áburði eru til marks um hversu mjög áburðarverð hefur hækkað á síðustu árum. Þátttakendur í verkefninu Bændur græða landið voru í fyrra um 650 tals- ins, en verkefnið hefur verið starf- rækt óslitið síðan árið 1990. Verkefnið er samvinnuverkefni Landgræðslunnar og bænda um upp- græðslu heimalanda. Tilgangur þess er að styrkja bændur til landgræðslu á jörðum sínum, stöðva rof, þekja land gróðri og gera það nothæft á ný til landbúnaðar eða annarra nota. Veruleg hækkun á áburði 650 taka þátt í átakinu Bændur græða landið Sjónmælingar eru okkar fag w w w . o p t i c a l s t u d i o . i s Tímapantanir í síma: Optical Studio í Smáralind, 5288500 Optical Studio í Keflavík, 4213811 Optical Studio í Leifsstöð, 4250500 Kristín Edda Sigurðardóttir sjónfræðingur við störf í Optical Studio premium lenses our partner in eyewear

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.