Morgunblaðið - 23.02.2012, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 23.02.2012, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2012 Turninum 12. hæð - 201 Kópavogur - www.domusnova.is Fjárfestingatækifæri Verslunarhúsnæði Axel Axelsson Löggiltur fasteignasali Heimir Bergmann Sími 822 3600 heimir@domusnova.is heimir.domusnova.is Til sölu verslunarhúsnæði. Húsnæðinu fylgir góður langtíma leigu- samningur með öruggum leigutekjum. Gott áhvílandi lán ca 42 millj. Verð 62,5 millj. Nánari uppl. veitir Heimir Bergmann eða Axel Axelsson. H Á S K Ó L A Ú T G Á F A N w w w . h a s k o l a u t g a f a n . h i . i s Tilvalin útskriftargjöf Brautskráning kandídata frá HÍ 25. feb. 2012 Aldarsaga Háskóla Íslands 1911–2011 er mjög umfangsmikið og vandað rit, tæp- lega 900 blaðsíður að lengd og skreytt rúmlega 300 myndum af margvíslegu tagi. Þarft stórvirki hverjum þeim sem lætur sig sögu og hag Háskóla Íslands varða. Höfundar:  Guðmundur Hálfdanarson  Sigríður Matthíasdóttir  Magnús Guðmundsson Ritstjóri: Gunnar Karlsson Aldarsaga Háskóla Íslands 1911–2011 Ylfa Kristín K. Árnadóttir ylfa@mbl.is „Okkur finnst þetta vera mikið órétt- læti,“ segir Sonja Lind Eyglóardóttir um að hætt sé að niðurgreiða fyrstu meðferð við tæknifrjóvgun hjá barn- lausum pörum og einhleypum barn- lausum konum. Guðmundur Arason hjá ART Medica segir biðlista hafa styst mikið síðan breytingin tók gildi um áramótin. Sonja Lind segir breytinguna sér- staklega ósanngjarna gagnvart fólki með lág laun. Því sé gert nær ómögu- legt að komast í þessa fyrstu meðferð sem nú kosti tæpar 400 þúsund krón- ur með lyfjakostnaði. Hún hefur hrundið af stað undirskriftasöfnun þar sem Guðbjartur Hannesson vel- ferðarráðherra er hvattur til að draga breytingarnar til baka. Áður fyrr niðurgreiddu Sjúkra- tryggingar Íslands (SÍ) þriðjunginn af kostnaðinum. Í kjölfar reglugerð- ar velferðarráðuneytisins sem tók gildi 1. janúar hefur kostnaðurinn við glasafrjóvgun farið úr 250.311 kr. í 376.055 kr. hjá ART Medica, einu læknamiðstöðinni hér á landi sem sérhæfir sig í frjósemisvandamálum. Þurfi barnlaus pör og einhleypar konur á fleiri meðferðum að halda greiða SÍ 65% af kostnaði við aðra, þriðju og fjóru meðferð. Þá kostar glasafrjóvgunin 171.721 kr. Sonja stefnir á að fara í sína fyrstu glasafrjóvgun á þessu ári. Maðurinn hennar er námsmaður og hafa þau því ekki mikla peninga á milli hand- anna. „Þegar ferðakostnaður er tek- inn með í reikninginn ásamt gistingu o.fl. er kostnaðurinn orðinn hátt í 600 þúsund kr.,“ segir hún en að með- altali eru rúmlega 30% líkur á að fyrsta meðferð heppnist. „Þetta er í hrópandi ósamræmi við það sem er að gerast annars staðar á Norð- urlöndunum,“ bætir hún við og bend- ir á að í Noregi greiði fólk aðeins lyfjakostnaðinn af tæknifrjóvg- unarmeðferðum og í Danmörku, Sví- þjóð og Finnlandi geti fólk farið í allt að þrjár tæknifrjóvganir fyrir aðeins brot af því sem það kostar hér á landi. Hefur haft mikil áhrif Guðmundur Arason, kven- sjúkdómalæknir hjá ART Medica, segir þessa breytingu velferðarráðu- neytisins hafa haft áhrif á þann fjölda fólks sem leitar til læknamiðstöðv- arinnar. „Eftir að reglugerðin tók gildi hefur biðlistinn styst mikið. Nú er tveggja mánaða biðlisti en hann var áður fjórir til fimm mánuðir. Þetta hefur haft mikið að segja.“ Hann segir að sér þyki leitt hvað fari lítið fyrir þessu máli hjá stjórnarandstöðunni og að enginn þingmaður hafi tekið þetta mál fyrir. Fyrir nokkrum árum hafi hliðstæðar breytingar verið gerðar í Danmörku og var stjórnarandstaðan þar mjög gagnrýnin á þær. Þegar stjórn- arskipti urðu voru breytingarnar nær umsvifalaust dregnar til baka og tryggt að tæknifrjóvganir yrðu nið- urgreiddar sem áður. „Það er erfitt fyrir marga að þurfa að borga fullt verð fyrir fyrstu með- ferð. Það vantar gagnrýni stjórn- arandstöðunnar í þessu og það er eins og þetta mál hafi dottið upp fyrir vegna allrar umræðunnar um skuldamál o.fl.,“ segir Guðmundur að lokum. Færri í tæknifrjóvganir  Kostnaður hefur aukist með nýrri reglugerð  Biðlistar hafa styst mjög það sem af er þessu ári  Sérstaklega ósanngjarnt gagnvart fólki með lág laun Fiskistofu bárust alls 402 laxasýni á síðustu tveimur árum frá flotvörpu- skipum. Þetta samsvaraði 5,5 löxum á hverjar 1.000 lestir af makríl og síld sem skipin veiddu, að því er fram kemur í greinargerð um rannsókn á vegum stofnunarinnar. Fiskistofa hóf skipulagða skoðun á meðafla í flotvörpuveiðum með áherslu á laxa á árinu 2010 í samvinnu við sjómenn og útgerðir. Megin- tilgangurinn var að kanna hvort lax veiddist í einhverjum mæli við veiðar á uppsjávarfiski. Lax, sem veiðst hefur sem meðafli í flotvörpuveiðum á Íslandsmiðum, er einkum upprunninn frá öðrum Evr- ópulöndum. Þetta er ein af niðurstöð- um rannsóknar Fiskistofu í samstarfi við Veiðimálastofnun og MATÍS. Leitað var eftir samstarfi við Veiði- málastofnun og MATÍS um líffræði- lega skoðun og erfðafræðilega grein- ingu á laxinum með það fyrir augum að komast að uppruna hans. Í grein- argerðinni kemur fram að í ljós kom að 95% af þeim laxi, sem veiddist á árinu 2010, eru upprunnin í öðrum Evrópulöndum, svo sem Noregi og Bretlandseyjum. Enn er verið að rannsaka laxasýni frá síðasta ári og gert er ráð fyrir því að niðurstöðurn- ar liggi fyrir í sumar. „Fiskistofa mun halda áfram sýnatöku úr flotvörpu- veiði á árinu 2012, enda hefur komið í ljós að umrædd sýni geta varpað mikilvægu ljósi á dreifingu og upp- runa þeirra laxa sem dvelja á mið- unum umhverfis landið í lengri eða skemmri tíma,“ segir í greinargerð um rannsóknina. bogi@mbl.is 5,5 laxar í hverj- um þúsund tonn- um af makríl  95% eru upprunnin í öðrum löndum Morgunblaðið/Líney Sigurðard Meðafli Um 5-6 laxar veiddust á hverjar 1.000 lestir af makríl. Einn selanna í Húsdýragarðinum í Reykjavík er hér í baksundi. Þrír selanna í garðinum, tvær urtur og brimill, eru einu dýrin sem hafa verið þar frá því að Húsdýragarðurinn var opnaður 19. maí 1990. Morgunblaðið/Ómar Langlífir selir í Húsdýragarðinum Spenna er meðal veiðimanna, en á laugardag kl. 14 verður dregið um það í húsakynnum Þekkingarnets Austurlands hverjir hreppa leyfi til hreindýraveiða í ár. Hægt verður að fylgjast með útdrættinum í beinni útsendingu á vef Umhverf- isstofnunar. Alls bárust 4.328 umsóknir um þau 1.009 dýr sem heimilt er að fella árið 2012. Dregið um leyfi til hreindýraveiða í beinni útsendingu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.