Morgunblaðið - 23.02.2012, Page 19

Morgunblaðið - 23.02.2012, Page 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2012 beri að beita hervaldi til að hindra Írana í að koma sér upp kjarna- vopnum. Tónninn í orðaskylmingum deiluaðila verður æ skarpari og svo gæti farið að óvænt atburðarás tæki völdin af mönnum. Rifjað er upp hve litlu munaði að til átaka kæmi í Kúbudeilunni 1982. Ísraelar leyna því ekki að þeir undirbúa árás, að líkindum munu þeir nota um 100 þotur og fljúga yf- ir sádi-arabískt landsvæði. Þótt bandarískir ráðamenn hvetji til var- kárni er alls ekki útilokað að Ísrael- ar muni fá beina aðstoð bandaríska flughersins, t.d. eldsneytisbirgða- véla. Óttast vopnakapphlaup í Miðausturlöndum Eitt af því sem menn óttast er að ef Íranar koma sér upp kjarnavopn- um muni það valda trylltu vopna- kapphlaupi í Miðausturlöndum, þar verði staðbundið „kalt stríð“. Sádi- Arabar, Tyrkir og Egyptar fari að hugsa sér til hreyfings, koma sér upp sams konar gereyðing- arvopnum. Og þannig stríð gæti snögglega orðið heitt, jafnvel óvið- ráðanlegt þegar haft er í huga hvað stjórnmálaástandið er ótryggt í þessum löndum. Viðskiptalegar refsiaðgerðir Vesturveldanna eru farnar að bíta svo um munar og grafa undan efna- hag Írans. En Íranar hvika hvergi. Þeir fullyrða að tilraunirnar beinist eingöngu að friðsamlegri hagnýt- ingu kjarnorku og helsti valdamað- ur í Íran, ajatollah Ali Khamenei, sagði í gær að þeim yrði haldið áfram, ekkert gæti komið í veg fyrir það. „Með Guðs hjálp og án þess að hirða um áróður er rétt að halda áfram kjarnorkutilraunum í Íran af einurð og festu,“ sagði Khamenei. Enginn bilbugur er á mönnum í Teheran. Fimm manna eftirlits- nefnd frá Alþjóðakjarnorku- málastofnuninni, IAEA, í Vín yf- irgaf landið í gær eftir að hafa í tvo daga árangurslaust reynt að fá að skoða Parchin-tilraunastöðina sem mestar grunsemdir vekur. Friðurinn hangir á bláþræði  Líkurnar á stríði vegna kjarnorkutilrauna Írana aukast hratt en þeir virðast hvergi hvika Óvissa og getgátur » Ekki eru allir sammála um að Íranar séu að smíða kjarn- orkusprengju, segja að þeir vilji aðeins eiga búnað til þess og efni í sprengjur. » Sams konar efasemdir voru uppi um áform Saddams Huss- eins í Írak. Nú er yfirleitt álitið að hann hafi viljað láta óvini sína, innanlands sem utan, trúa því staðfastlega að hann réði yfir kjarnavopnum. » Þess má geta að þótt Ísrael- ar eigi sennilega efnivið í 100- 200 kjarnorkusprengjur eru þær líklega ekki samsettar. AP Leiðtogi Khamenei veifar til fólks á leið til föstudagsbæna fyrir skömmu, að baki honum er mynd af ajatollah Khomeini, stofnanda lýðveldisins. FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kjon@mbl.is Skilaboðin sem berast frá ráða- mönnum í Íran um deiluna vegna kjarnorkutilraunanna eru oft mis- vísandi, stundum vegna þess að nokkrir hópar togast á um völdin í Teheran. En stjórnmálaskýrendur grunar einnig að markvisst sé verið að reyna að rugla Vesturveldin í ríminu. Dæmigert er að í fyrradag sagði hershöfðingi að Íranar gætu gripið til „fyrirbyggjandi árása“ vegna hótana Ísraela og Banda- ríkjamanna um loftárásir á til- raunastöðvarnar. Í gær tjáði hins vegar sendiherra Írans í Moskvu þarlendum ráða- mönnum að Íranar hefðu ekkert slíkt í hyggju. En einu er hægt að slá föstu: hættan á að til átaka komi vegna tilraunastöðvanna, þar sem flestir álíta að Íranar séu að reyna að smíða kjarnorkusprengju, er meiri en nokkru sinni fyrr. Í nýrri skoðanakönnun kemur fram að 58% Bandaríkjamanna eru á því að reynist það óhjákvæmilegt Alþjóðlegt teymi vísindamanna hefur fundið ótrúlega vel varðveittan, steingerðan skóg undir ösku- lagi í norð- anverðu Kína, nánar tiltekið í grennd við Wuda í Innri Mongólíu, að sögn Jyllandsposten. Leifarnar eru frá Perm- tímabilinu fyrir um 300 milljónum ára. Um það leyti voru öll meg- inlöndin enn sameinuð í hinu risa- stóra Pangea. Þegar hafa um þúsund ferkíló- metrar verið kortlagðir. Sum trjánna virðast vera um 25 metr- ar að hæð og greinar og blöð hafa varðveist undir þykku ösku- laginu. Meðal jurtanna eru ýmsar útdauðar tegundir eins og innsigl- istré, cordiates og noeggerathia- les. Um sama leyti og Perm lauk urðu miklar náttúruhamfarir á jörðinni og er talið að um 90% allra dýra- og jurtategunda hafi dáið út. kjon@mbl.is 300 milljón ára gamall skógur Steingervingur frá Perm. KÍNA Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins hefur ákveðið að fresta greiðslu styrks upp á 495 milljónir evra, um 81 milljarð króna, sem átti að renna til Ungverja í byrjun næsta árs. Þetta er í fyrsta skipti sem grip- ið er til slíkra aðgerða en fram- kvæmdastjórnin hefur margsinnis varað Ungverja við og farið fram á að þeir komi fjármálum ríkisins í lag. Ungverjum var sagt að koma fjár- lagahalla sínum niður fyrir 3% af landsframleiðslu í fyrra. Ekki tókst að ná því markmiði. „Það er núna undir ungversku rík- isstjórninni komið að grípa til að- gerða áður en frestunin tekur gildi,“ sagði Finninn Olli Rehn, yfirmaður efnahags- og gjaldeyrismála í fram- kvæmdastjórninni. Fjárhæðin, sem ákveðið var að frysta, er um 29% af því fé sem til stóð að úthluta Ungverjum á næsta ári. Féð er tekið úr sameiginlegum sjóði ESB sem á að nota til að draga úr kjaramun milli aðildarríkjanna. kjon@mbl.is ESB sendir Ung- verjum viðvörun Óreiða? Götulíf í höfuðborg Ung- verjalands, Búdapest. Minnst átta Afganar féllu og tugir manna særðust í átökum milli lög- reglumanna og fólks sem mótmælti því í gær, annan daginn í röð, að bandarískir hermenn í Bagram- stöðinni skyldu vanvirða íslam með því að brenna Kóraninn og fleiri helgirit múslíma. Mótmælendur hrópuðu bölbænir um Bandaríkin og Barack Obama forseta, fleygt var grjóti og kveikt í verslunum og bílum. Einnig kom til óeirða í Jalalabad, þar var kveikt í brúðumynd af Obama. John Allen, hershöfðingi og yf- irmaður 130 þúsund manna herliðs Atlantshafsbandalagsins í landinu, hefur beðið afgönsku þjóðina afsök- unar á bókabrennunni. Um mistök hafi verið ræða. Hamid Karzai, for- seti Afganistans, hvatti í gær Banda- ríkjamenn til að flýta áætlunum um að láta Afgana taka við stjórn fang- elsisins. kjon@mbl.is Kóran- brennu mótmælt  Minnst átta féllu í Afganistan í gær Reuters Reiði Mótmælendur í Kabúl fleygja grjóti að háþrýstivatnsbyssu við bandaríska herstöð í gær. Ekki gleyma að drekka Birkisafann frá eftir saltkjötið og baunirnar Safinn virkar vel á eðlilega úthreinsun líkamans Lífrænt ræktaður, án aukaefna Losar bjúg Léttir á liðamótum Losar óæskileg efni úr líkamanum Góður fyrir húð, hár og neglur Blanda má safann með vatni Má einnig drekka óblandað Heilsuhúsið, Fræið Fjarðarkaupum, Lifandi markaður, Blómaval, Lyfja og Apótekið, Lyf og heilsa og Apótekarinn, Sólarsport Ólafsvík, Lyfjaver, Femin.is, Lyfjaval, Heilsuver, Apótek vesturlands, Reykjavíkur apótek, Yggdrasill, Árbæjarapótek, Lyfjaborg, Apótek Hafnarfjarðar, Apótek Garðabæjar, Á grænni grein, Akureyrarapótek og sjálfstætt starfandi apótek um allt land Velkomin að skoða www.weleda.is Útsölustaðir:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.