Morgunblaðið - 23.02.2012, Page 32

Morgunblaðið - 23.02.2012, Page 32
32 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2012 Sudoku Frumstig 2 5 1 1 6 5 3 4 5 9 1 6 4 5 6 8 1 4 3 9 5 8 1 3 9 2 4 7 4 1 2 2 5 3 7 4 8 1 6 1 3 4 4 5 7 1 2 6 8 8 7 1 3 4 1 8 1 2 9 4 7 6 8 5 9 6 5 3 5 2 4 2 4 3 9 7 6 8 7 2 1 9 3 8 4 5 6 9 3 8 5 4 6 2 1 7 5 6 4 1 2 7 9 3 8 2 7 6 3 1 9 5 8 4 3 1 9 8 5 4 6 7 2 4 8 5 6 7 2 1 9 3 8 4 3 2 9 1 7 6 5 6 9 7 4 8 5 3 2 1 1 5 2 7 6 3 8 4 9 8 7 2 6 9 3 5 1 4 9 5 1 8 2 4 6 3 7 6 3 4 7 5 1 2 8 9 2 4 7 3 8 5 1 9 6 3 9 5 1 7 6 8 4 2 1 6 8 9 4 2 3 7 5 7 1 6 5 3 9 4 2 8 4 8 3 2 6 7 9 5 1 5 2 9 4 1 8 7 6 3 5 8 9 7 6 1 3 2 4 7 1 6 3 2 4 9 5 8 2 3 4 9 8 5 1 6 7 9 6 7 2 4 3 5 8 1 1 5 2 8 9 6 7 4 3 3 4 8 1 5 7 6 9 2 6 9 3 4 7 8 2 1 5 8 2 1 5 3 9 4 7 6 4 7 5 6 1 2 8 3 9 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 23. febrúar, 54. dagur ársins 2012 Orð dagsins: Og orð hans býr ekki í yð- ur, því að þér trúið ekki þeim, sem hann sendi. (Jóh. 5, 38.) Víkverji tilheyrir þeim hlutamannkyns, sem einhverra hluta vegna hefur fengið úthlutað bók- stafnum bé út af svefnvenjum. Vík- verji glaðvaknar sem sé yfirleitt um það leyti, sem fólkið með bókstafinn a lognast út af. Þetta hefur valdið Víkverja nokkrum áhyggjum vegna þess að þá nær hann ekki þeim átta tíma svefni, sem sungið er lof og prís og sagður er nauðsynlegur stefni menn á langlífi. Víkverji hefur reyndar reynt að klóra í bakkann með því að benda á að það sé til lítils að lifa lengur ef tíminn, sem bætist við, fer allur í svefn, en sá málflutn- ingur fær engan hljómgrunn. x x x Víkverji kættist því nokkuð þegarhann sá fyrirsögnina „Goðsögn- in um átta klukkustunda svefninn“ á vefnum hjá breska ríkisútvarpinu, BBC. Í meðfylgjandi frétt segir að átta klukkustunda samfelldur svefn kunni að vera ónáttúrulegur og fólk eigi ekki að fyllast áhyggjum vakni það um miðja nótt vegna þess að það gæti einfaldlega verið meinhollt. Fyrir um 20 árum birti sálfræðing- urinn Thomas Wehr niðurstöður rannsóknar þar sem hópur fólks var 14 klukkustundir í myrkri á hverjum degi í einn mánuð. Þegar þátttak- endurnir vöndust þessu varð til mynstur. Fyrst sváfu þeir í fjóra tíma, vöktu í tvo tíma og sváfu svo í aðra fjóra tíma. Fyrir 11 árum birti sagnfræðingurinn Roger Ekirch síð- an grein þess efnis að tvískiptur svefn hefði verið regla en ekki und- antekning hjá manninum frá örófi alda. Hann fann margar vísanir í þetta, meðal annars í Hómer og um- fjöllun mannfræðinga um þjóðflokka í Nígeríu. Ekrich segir að það hafi ekki síst vakið athygli sína að í þess- um vísunum var talað um tvískiptan svefn sem sjálfsagðan hlut. Þessi háttur hafi hins vegar byrjað að hverfa seint á sautjándu öld, fyrst á meðal efri stétta í Norður-Evrópu, og síðan hafi samfelldur svefn orðið að venju í öllum vestrænum sam- félögum. Víkverji bíður þess nú að hálf þjóðin fari á kreik um miðjar nætur þegar kemur að hálfleik í svefninum. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 væna um, 4 él, 7 svipað, 8 trylltur, 9 skolla, 11 áflog, 13 konur, 14 ofsa- kæti, 15 urgur, 17 yfirlæti, 20 hryggur, 22 smástrákur, 23 sætta sig við,24 skrika til, 25 stækja. Lóðrétt | 1 ófullkomið, 2 frumeindar, 3 temur, 4 hrör- legt hús, 5 á jakka, 6 dræsur, 10 unna, 12 hugfólginn, 13 lipur, 15 málmur, 16 dauð- yflið, 18 eldstæum, 19 fugl, 20 uppmjó fata, 21 hestur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 keldusvín, 8 folar, 9 larfa, 10 gól, 11 tíðka, 13 akkur, 15 hress,18 strák, 21 vit, 22 reisa, 22 andar, 24 flatmagar. Lóðrétt: 2 eplið, 3 durga, 4 sylla, 5 ísrek, 6 eflt, 7 barr, 12 kös, 14 kút, 15 horf,16 erill, 17 svart, 18 staka, 19 rudda, 20 kúra. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Undantekning. V-Allir. Norður ♠ÁD42 ♥D1073 ♦Á54 ♣82 Vestur Austur ♠K1097 ♠865 ♥6 ♥852 ♦KD107 ♦963 ♣Á973 ♣KG65 Suður ♠G3 ♥ÁKG94 ♦G82 ♣D104 Suður spilar 4♥. Vestur opnar á 1♦, norður doblar og suður stekkur beint í 4♥. Útspilið er ekki vandamál – tígulkóngur – en vest- ur lendir í þungri stöðu í næsta slag þegar sagnhafi dúkkar og austur vísar frá. Ekki er frýnilegt að spila spaða frá kóng eða laufi undan ás og vestur velur hættuminnsta kostinn: að trompa út. Sagnhafi tekur slaginn í borði og spilar laufi. Lúmskur. Sú viðmiðun í vörn „að fylgja smátt í annarri hendi“ hefur þann augljósa veikleika að vera meginregla en ekki al- gild sannindi. Undantekningar eru margar og þetta er ein af þeim. Austur verður að fljúga upp með ♣K og spila tígli áður en sagnhafi nær að fría slag á lauf. Erfitt? Ekki svo. Eitthvað hlýtur vestur að eiga fyrir opnun sinni og vandræði hans í tíglinum leyna sér ekki. 23. febrúar 1987 Konur voru aðalfulltrúar á Búnaðarþingi, í fyrsta sinn í sögu Búnaðarfélags Íslands frá stofnun þess árið 1899. Þetta voru Ágústa Þorkelsdóttir og Anna Bella Harðardóttir. 23. febrúar 2005 Tilkynnt var að Sigurjón Birg- ir Sigurðsson, Sjón, hlyti bók- menntaverðlaun Norður- landaráðs fyrir bókina Skugga-Baldur. Fimm Íslend- ingar höfðu áður hlotið þessi verðlaun. 23. febrúar 2007 Lánshæfisfyrirtækið Moody’s gaf íslensku bönkunum þremur hæstu mögulegu einkunn. „Glæsilegur árangur,“ sagði í fyrirsögn forystugreinar Morgunblaðsins. Hálfu öðru ári síðar fóru bankarnir í þrot. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Ernst Kettler kvikmyndatökumaður er sjötugur í dag, 23. febrúar. Hann er fæddur í Austurríki árið 1942. Hátíðarhöld í tilefni afmælisins hófust á sprengidaginn þegar kona hans, Ágústa Ósk- arsdóttir, bauð fjölskyldunni í saltkjöt og bauna- súpu. „Á afmælisdaginn sjálfan verður svo fjöl- skyldusamkoma hjá dóttur minni. Þangað koma börn okkar og barnabörn. Ein dóttir okkar kemst þó ekki því hún er búsett í Vínarborg, en hana langar mikið til að koma,“ segir Ernst spurður út í hátíðarhöldin í tilefni stórafmælisins. Hann segist ekki vera mikið fyrir að halda upp á afmæli sín. „Konu minni finnst meira gaman að halda upp á afmæli mín en mér,“ segir Ernst og hlær. Hann bætir svo við að barnabörnunum finnist nú líka gaman að fagna þessum stóra degi í lífi afa síns enda finnst þeim afi sinn mjög skemmtilegur og alltaf að gera eitthvað spennandi. Ernst er kominn á eftirlaun en segist hafa í nægu að snúast. „Ég var svo heppinn að fá að hirða allt myndasafnið hjá Myndbæ sem var lagður niður. Ég fór með það á Kvikmyndasafnið í Hafnarfirði og er að fara í gegnum það með þeim þar á bæ.“ ingveldur@mbl.is Ernst Kettler er 70 ára Lítil fjölskyldusamkoma Nýirborgarar Reykjavík Anný María Lár- usdóttir og Hörður Þór Guð- jónsson eignuðust dreng 26. janúar kl. 8.46. Hann vó 3.195 g og var 49 cm langur. Flóðogfjara 23. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 1.10 0,2 7.20 4,1 13.33 0,2 19.35 3,9 8.58 18.26 Ísafjörður 3.17 0,1 9.16 2,1 15.42 0,1 21.33 2,0 9.10 18.23 Siglufjörður 5.27 0,1 11.48 1,3 17.56 0,0 8.54 18.06 Djúpivogur 4.35 2,0 10.42 0,2 16.44 2,0 22.56 0,1 8.29 17.53 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Fjölskylduleyndarmál munu hugs- anlega setja svip á daginn. Hvað viltu? Með því að hugsa vel um grundavallarþarfir þínar áttu að geta haldið þér í jafnvægi. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þér finnst að ef þú leitar út fyrir hópinn eftir stuðningi sértu á einhvern hátt að bregðast kjarnanum, sem er hið mesta bull. Málið er að þú færð skýrari sýn á hlutina. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú þarft að ræða fjármál eða eignir við maka þinn. Taktu engu sem sjálfsögðum hlut heldur gaumgæfðu málin vandlega frá öllum hliðum. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þér gengur allt í haginn og aðrir undr- ast velgengni þína, en hún á sér sínar skýr- ingar – samviskusemi og dugnað. Láttu það eftir þér að fara í ferðalag eða gera eitthvað fyrir þig. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Mundu að allt sem þú gerir hefur sínar afleiðingar bæði fyrir þig og aðra líka. Best er að skipuleggja frí með öðrum. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Samskipti við fjölskylduna eru mjög gefandi. Sæktu þér hjálp ef þú þarft á henni að halda, þú veist hvar hana er að finna. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Af hverju ættir þú að flýta þér þegar þú veist ekki hvert þú ert að fara? Hægðu á þér, slappaðu af eða stoppaðu. Haltu áfram að sýna gagnrýninni manneskju umburðarlyndi. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú gætir átt svolítið erfitt með að sýna öðrum örlæti í dag. Hafðu í huga að margar hendur vinna létt verk. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það vantar ekki mikið upp á að þér takist að klára það verkefni sem þér hef- ur verið falið. Láttu fólk taka ábyrgð á sínum málum. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Ekki hafa samviskubit. Skrifaðu hugsanir þínar niður áður en þú deilir þeim með öðrum. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú stendur þig að því að horfa út um gluggann og dreyma. Þú ættir að horfa oftar og meira fram á veginn. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það er heillaráð að leggja á ráðin um framtíðina. Hugsaðu áður en þú talar og reyndu að taka tillit til tilfinninga annarra. Kvöldinu væri best varið í ró og næði. Stjörnuspá Þórarinn Háv- arðsson frá Nes- kaupstað, nú bú- settur í Reykja- vík, er fimm- tugur í dag, 23 febrúar. Eigin- kona hans er Lára Thoraren- sen, þau eiga tvo syni og fjögur barnabörn. Þórarni til heiðurs var haldin óvænt veisla 18. febrúar. 50 ára Sigurlaug A. Stefánsdóttir verður níræð 26. febrúar næst- komandi. Í tilefni þess verður opið hús milli kl. 15 og 18 í félagsmið- stöðinni Boð- anum, Boðaþingi 9 í Kópavogi. Sig- urlaugu þætti gaman að sjá sem flesta vini og vandamenn. Blóm og gjafir afþakkaðar, en frjáls framlög munu renna í styrktarsjóð góðs málefnis. 90 ára 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d6 4. e4 c6 5. f4 Bg7 6. Rf3 O-O 7. Be2 Dc7 8. O-O Rg4 9. h3 Rf6 10. De1 Rbd7 11. e5 Re8 12. Dh4 f6 13. c5 d5 14. e6 Rb8 15. f5 gxf5 16. Bf4 Dd8 17. Bd3 Bxe6 18. g4 Kh8 19. Hae1 Bg8 20. Bxf5 Rc7 Staðan kom upp á Skákþingi Reykjavíkur, Kornax-mótinu, sem lauk fyrir skömmu í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur. Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson (2406) hafði hvítt gegn Kristjáni Erni Elías- syni (1858). 21. Dh5! rýmir h4-reitinn fyrir riddarann. 21…e6 hvítur hefði svarað 21…De8 með 22. Bxc7. 22. Rh4 Bh6 23. Dxh6 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.