Morgunblaðið - 23.02.2012, Page 36

Morgunblaðið - 23.02.2012, Page 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2012 Brit Awards-tónlistarhátíðin AP Tónleikar Florence Welch og the Machine komu fram á Brit Awards í O2 höllinni í London á þriðjudaginn við mikinn fögnuð gesta. Á teppinu Elizabeth Grant, betur þekkt sem Lana Del Rey var glæsi- leg á rauða dreglinum. Verðlaun Adele fagnaði tvennum verðlaunum á hátíðinni og flutti lag- ið Rolling in the Deep. » Adele hélt sigur-göngu sinni áfram á bresku tónlistarverð- launahátíðinni Brit Awards í London. Hún vann til tvennra verð- launa og flutti lagið Rolling in the Deep. Tindersticks stimplaði sig inn sem ein helsta sveit Bretlandseyja um miðbik tíunda ára- tugarins með tveimur fyrstu hljóðversskífum sínum. Sérstaklega hefur önnur platan, jafnan kölluð „Bláa platan“ (1995) reynst mikið meistaraverk. Hún lagði svo upp laupana eftir plötuna Waiting for the Moon (2003) en sneri aftur með The Hungry Saw (2008). Falling down a Mountain fylgdi svo tveimur árum síðar. Sveitin, leidd af hinum sjarm- erandi Stuart Staples, er mikil gæðasveit og henni hefur ekki enn tekist að gefa út eitthvað sem hægt væri að kalla lélegt. Hins vegar hef- ur sniðið sem sveitin nýtir sér verið svo gott sem óhagganlegt að und- anförnu og því er nákvæmlega ekk- ert sem kemur á óvart lengur. Sem felur bæði í sér kosti og galla eins og við þekkjum. Platan byrjar bratt, með níu mín- útna tónaljóði sem kallast „Choco- late“. Eftir það siglum við inn í þennan angurværa, sumpart epíska heim sem við þekkjum svo vel og veltumst þar um til loka. Eina lagið sem brýtur upp kunnugleikann er hið naumhyggjulega „Frozen“, draugaleg og eiginlega „kvikmynda- leg“ smíð ef svo má segja. Það hefur verið svolítið eins og að heimsækja ömmu sína að hlusta á þessar síðustu Tindersticks-plötur. Þetta er notalegt, maður þekkir um- hverfið og slakar ósjálfrátt á. En þessum heimsóknum, sérstaklega að undanförnu, hefur fylgt einkennileg tómleikatilfinning sem ég kem samt ekki alveg fingrinum á. Kannski var amma eitthvað illa upplögð, eins og gengur. Eða þá ég. Hvort heldur sem er. Í öllu falli mæti ég galvaskur í heimsókn á nýjan leik þegar það stendur til boða. Minningin um nota- legheitin mun keyra yfir tóm- leikabraginn eins og alltaf. Og hver veit, kannski verðum við betur upp- lagðari næst … Í heimsókn hjá ömmu gömlu Tindersticks – The Something Rain bbbnn Arnar Eggert Thoroddsen Gæðasveit „Sveitin …er mikil gæðasveit og henni hefur ekki enn tekist að gefa út eitthvað sem hægt væri að kalla lélegt,“ segir rýnir m.a. Erlendar plötur bbbbn Lambchop er merkileg sveit sem kemur frá tónlistarborginni miklu Nashville. Á rúmum tuttugu árum hefur hún gefið út ellefu plötur sem hafa komið úr ýmsum áttum tónlist- arlega. Í grunninn er þetta rólynd- isleg sveitatónlist þar sem mikið er lagt upp úr stórum strengjaútsetningum. Sérvitring- urinn Kurt Wagner leiðir flokkinn sem er fjölmennur og hefur breyst í gegnum tíðina, en sérvitringslegur söngur hans er hitt einkenni Lambchop. Mr. M sver sig í ætt við tónlistina sem sveitin hefur sent frá sér á síð- ustu árum. Hér er ekki verið að taka sénsa en gæðin eru þó vissulega fyrir hendi. Þrátt fyrir að vera hefð- bundin í grunninn er þó eitthvað örlítið súrrealískt við tónlist Lamchop sem heldur athygli manns. Þetta er fín plata til að hafa í eyrunum og ef maður flýtur með henni í dagdrauma reikar hugurinn hugsanlega í undarlegt atriði úr Húsinu á sléttunni. Ekki slæmt það. Draumkennd sveitasæla Lambchop – Mr. M Hallur Már bbbbn Það getur verið erfitt fyrir hljóm- sveitir að uppfylla kröfur aðdáenda sinna eftir að hafa átt fljúgandi start. Þetta á vel við um franska tvíeykið í Air; allt sem þeir hafa gefið út síðan Moon Safari kom þeim á kortið árið 1998 hefur verið borið saman við þá ágætu plötu. Oft hefur gagnrýnin átt rétt á sér, þó ekki alltaf. En eftir síðustu plötu átti ég von á að þetta væri bara búið spil hjá þeim Dunckel og Godin, svo slæm og hróplega andlaus var Love 2. Á Le Voyage Dans La Lune, sem er gerð sem hljóðrás við samnefnda kvik- mynd Méliés, er þó að finna vísi að því sem býr í sveit- inni. Seven stars, sem Victoria Legrand syngur, er t.a.m. algerlega frábært og gefur vissulega vonir um að eitthvert loft sé eftir í samstarfi fóstbræðranna. Hér eru einmitt dregnir fram helstu styrkleikar samstarfs þeirra þótt eðlilega sé platan ekki jafnmarkviss og hefð- bundin plata. Air – Le Voyage Dans La Lune Á sporbaug að nýju Hallur Már LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar M Ö G N U Ð S P E N N U M Y N D ! ÞEGAR FLUGVÉLIN HRAPAÐI VAR FERÐALAGIÐ RÉTT AÐ BYRJA V.J.V. -SVARTHÖFÐI HHHHH ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND! THIS MEANS WAR Sýnd kl. 8 - 10 SAFE HOUSE Sýnd kl. 5:40 - 8 - 10:20 SKRÍMSLI Í PARÍS Sýnd kl. 6 THE GREY Sýnd kl. 8 - 10:20 IRON LADY Sýnd kl. 5:50 VJV - SVARTHÖFÐI HHH -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is FRÁBÆR GRÍNHASARMYND SEM ENGINN MÁ MISSA AF! TOTAL FILM HHH BOXOFFICE MAGAZINE HHH ÍSLENSKUR TEXTI t.v. kvikmyndir.is  FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA! 4 T I LN E FN INGAR T I LÓSKARSVERÐLAUNAM.A. BESTA MYNDIN ÁLFABAKKA 10 10 10 10 10 12 12 12 VIP EGILSHÖLL 12 12 12 16 14 L L 16 LFRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl tali kl. 6 3D EXTREMELY LOUD & INCREDIBLY CLOSE kl. 5:20 - 10:10 2D A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:40 2D HUGO kl. 5:20 - 8 2D ONE FOR THE MONEY kl. 5:50 - 8 - 10:20 2D UNDERWORLD: AWAKENING kl. 10:10 2D MAN ON A LEDGE kl. 8 2D A FEW BEST MEN kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D A FEW BEST MEN Luxus VIP kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D EXTREMELY LOUD INCREDIBLY CLOSE kl. 5:40 - 8 - 10:40 2D BEAUTY & THE BEAST - 3D (FRÍÐA OG DÝRIÐ) M/ ísl. Tali kl. 6 3D HUGO Með texta kl. 5:20 - 8 2D HUGO Ótextuð kl. 10:40 3D ONE FOR THE MONEY kl. 8:20 2D CONTRABAND kl. 8 - 10:20 2D PRÚÐULEIKARARNIR kl. 5:40 2D SHERLOCK HOLMES 2 kl. 10:40 2D 16 L L 10 10 12 12 12 KRINGLUNNI EXTREMELY LOUD AND INCREDIBLY CLOSE kl. 8 - 10:40 2D A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:10 2D SHAME kl. 8 - 10:10 2D BEAUTY & THE BEAST - 3D (FRÍÐA OG DÝRIÐ) M/ ísl. Tali kl. 6 3D WAR HORSE kl. 5 2D THE HELP kl. 5 2D10 12 L L AKUREYRI A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:30 2D FRÍÐA OG DÝRIÐ ÍSL TAL Í 3D kl. 6 3D EXTREMELY LOUD AND INCREDIBLY CLOSE kl. 8 - 10:30 2D PRÚÐULEIKARARNIR enskt tal ísl texti kl. 6 2D KEFLAVÍK EXTREMELY LOUD AND INCREDIBLY CLOSE kl. 8 2D A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:10 2D THIS MEANS WAR kl. 10:30 2D MÖGNUÐ SPENNUMYND! boxoffice magazine  hollywood reporter  TILNEFND TIL 2 ÓSKARSVERÐLAUNA TOM HANKS OG SANDRA BULLOCK ERU STÓRFENGLEG Í ÞESSARI ÁHRIFARÍKU MYND BYGGÐ Á METSÖLUBÓK. BESTA MYND BESTI LEIKARI Í AUKAHLUTVERKI – MAX VON SYDOW blurb.com  er sýnd á undan stuttmyndin Frá höfundi Death at a Funeral.Frábær gamanmynd með sótsvörtum húmor

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.