Morgunblaðið - 23.02.2012, Page 40
La Blogotheque frumsýndi um
helgina svokallað „take away show“
með Retro Stefson, sem
var tekið upp á liðinni
Airwaves-hátíð. Um
er að ræða hálf-
órafmagnaða út-
gáfu af laginu
„Qween“. Retro
Stefson spilaði í
flugskýli á meðan
flugvirkjar sinntu
viðhaldi flugvéla.
Sjón er sögu ríkari!
Retro Stefson
spilaði í flugskýli
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 54. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Ásdís Rán og Garðar skilin
2. Naktar fyrirsætur á tískuvikunni
3. 18 ára nauðgaði og myrti konu
4. Íslendingur handtekinn í Kanada
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Biogen-minningartónleikar verða
haldnir í Nýlenduvöruverslun Hemma
& Valda í kvöld. Biogen var lista-
mannsnafn Sigurbjörns Þorgríms-
sonar, mikils raftónlistarfrumkvöð-
uls, sem lést 8. febrúar á síðasta ári.
Biogen-minningar-
tónleikar í kvöld
Tónlistarhátíðin
Reykjavik Folk
Festival verður
haldin í þriðja
sinn á Rósenberg
dagana 7.-10.
mars næstkom-
andi. Meðal flytj-
enda í ár eru KK,
Svavar Knútur,
Gunnar Þórðarson, Guðrún Gunn-
arsdóttir og Varsjárbandalagið auk
fjölda annarra en erlendir gestir
verða nokkuð áberandi í þetta sinnið.
Reykjavik Folk
Festival í þriðja sinn
Á föstudag Norðaustan 8-13 m/s og él nyrðra, en annars vestan
13-18, skúrir eða slydduél. Dregur úr vindi og úrkomu seinnipart-
inn. Hiti kringum frostmark, en frostlaust með suðurströndinni.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austanátt með slyddu en síðar rigningu
sunnantil, en snjókomu fyrir norðan. Snýst í suðvestan 13-18 m/s
við suðurströndina í kvöld. Hiti víða 1 til 6 stig.
VEÐUR
Basel og Marseille standa
vel að vígi eftir fyrri leiki
sína í 16-liða úrslitum Meist-
aradeildar Evrópu í knatt-
spyrnu. Basel fékk granna
sína í Bayern í heimsókn og
vann 1:0 með marki fimm
mínútum fyrir leikslok.
Marseille vann Inter og
voru lokatölur þær sömu
og í Basel. Sigurmarkið
kom á síðustu sekúndu
leiksins en ekki mátti
tæpara standa. » 2
Basel og Mars-
eille með sigra
Einar Rafn Eiðsson, hornamaðurinn
knái í liði Fram, verður í óvenjulegri
stöðu þegar Fram mætir Haukum í
úrslitaleik bikarkeppninnar í Laug-
ardalshöllinni á
laugardaginn.
Einar Rafn er
fæddur og upp-
alinn
Hauka-
maður
og hefur
spilað með flestum
leikmönnum Hauka í
gegnum alla yngri flokka
félagsins. Hann ákvað að
skipta yfir til Fram fyrir
þremur árum. »3
Einar Rafn mætir
gömlum samherjum
Knattspyrnumaðurinn Hannes Þ. Sig-
urðsson mun skrifa undir samning
við Atyrau frá Kasakstan á morgun
að undangenginni læknisskoðun.
Hannes hefur verið við æfingar hjá
liðinu í Tyrklandi undanfarna daga og
í kjölfarið var honum boðinn samn-
ingur. „Mér líst ansi vel á þetta,“ seg-
ir Hannes í samtali við Morgunblaðið.
»1
Hannes Þ. semur við lið
í Kasakstan
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
„Tilnefningin er mikils virði og að fá
þessa viðurkenningu staðfestir stöðu
safnsins,“ segir Níels Hafstein á
Safnasafninu á Svalbarðsströnd, en
safnið hlaut um síðustu helgi Eyrar-
rósina, sem veitt er fyrir framúrskar-
andi menningarverkefni á lands-
byggðinni.
Það voru Listahátíð í Reykjavík,
Byggðastofnun og Flugfélag Íslands
sem settu Eyrarrósina á stofn á sín-
um tíma og Dorrit Moussaieff for-
setafrú, sem er verndari verkefnisins,
afhenti verðlaunin á Bessastöðum.
Níels og kona hans, Magnhildur
Sigurðardóttir, stofnuðu Safnasafnið
fyrir hálfum öðrum áratug og hafa
safnað fjölmörgum verkum íslensks
alþýðulistafólks.
Níels segir viðurkenninguna skipta
miklu máli varðandi markaðs-
setningu safnsins, bæði hér heima og
erlendis, „en ekki síst er þessi við-
urkenning búhnykkur fyrir sveitarfé-
lagið; fyrir fólkið í þessum fámenna
hreppi sem margt hefur verið mjög
duglegt að hjálpa okkur“.
Níels er eðlilega sæll og glaður
með viðurkenninguna en segir við-
brögð fólks miklu sterkari en hann
hafi órað fyrir. „Þau hafa verið ótrú-
leg. Hér hefur allt logað í ham-
ingjuóskum, hvort sem er í tölvupósti,
á Facebook eða í síma. Ég hef eig-
inlega ekki gert annað síðustu daga
en að taka við og svara ham-
ingjuóskum!“ Svo eru ýmis
fyrirtæki og aðrir aðilar sem
hafa haft samband og vilja
nota viðurkenninguna í sinni
kynningu. Níels heldur
engu að síður ró sinni.
„Við höldum okkar
striki; erum búin að
skipuleggja tólf sýningar
í sumar og erum að hefja
þátttöku í starfi regnhlíf-
arsamtaka í Evrópu fyrir
alþýðulistafólk. Þau eru nauðsynleg
því alþýðulistafólk tranar sér ekki
fram og hefur ekki sömu markaðs-
tækifæri og aðrir listamenn.“
Í samtökunum taka þátt söfn, sýn-
ingarstaðir og félagasamtök. Níels
segir starfið hefjast með ráðstefnu og
í kjölfarið hefjist samstarf um sýn-
ingahald.
Í ár verða margar spennandi sýn-
ingar í Safnasafninu og Níels nefnir
tvær: „Pálmi Arngrímsson, fyrrver-
andi skrúðgarðameistari, sýnir
myndir úr tré, líklega einar 200, sem
tengjast hugmyndaheimi Afríku og
Suður-Ameríku; þetta er svokölluð
prímitíf myndlist, og hér verða einnig
sýnd verk Eggerts Magnússonar,
sem var mjög atkvæðamikill lista-
maður en dó fyrir tveimur árum.“
„Mikils virði fyrir safnið“
Framtíðin er
björt segir Níels á
Safnasafninu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Svalbarðseyrarrósir Níels Hafstein við höggmyndir Ragnars Bjarnasonar frá Öndverðarnesi í Safnasafninu í gær.
Safnasafnið var stofnað 1995 af
Magnhildi Sigurðardóttur og Níelsi
Hafstein og er í Þinghúsinu á
Svalbarðsströnd.
Um 4.100 listaverk eru í
vörslu safnsins, búin til af ýmsu
tilefni á 40 ára tímabili, í ólíkum
stílum og myndhugsun,
einnig tugþúsundir gripa
sem settir eru upp í sér-
deildum eða notaðir á sýn-
ingum til að skerpa á myndhugsun
eða ögra gestum safnsins, eins og
segir á heimasíðu þess.
Safnið er lokað yfir veturinn en
verður opnað að nýju í maí með
tólf sýningum.
Þetta var í þriðja skipti sem
Safnasafnið – Alþýðulistasafn Ís-
lands er tilnefnt til Eyrarrós-
arinnar. Nú voru einnig tilnefnd
Sjóræningjahúsið við Patreksfjörð
og Tónlistarhátíðin Við Djúpið á
Ísafirði.
Rúmlega 4.000 listaverk
SAFNASAFNIÐ Á SVALBARÐSSTRÖND