SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Blaðsíða 2
2 26. febrúar 2012
Við mælum með
1. til 3. mars
Áhugamenn um nýja og spenn-
andi tónlist ættu að taka frá dag-
ana 1. til 3. mars en þá hleypir
Sinfóníuhljómsveit Íslands nýrri
tónlistarhátíð af stokkunum í
Hörpu, Tectonics. Tvö tónskáld
verða í sérstökum brennidepli,
Bandaríkjamaðurinn John Cage
og Magnús Blöndal Jóhannsson.
Morgunblaðið/Sverrir
Tectonics í Hörpu
4-8 Vikuspeglar
Er Evrópa móðir allra lasta? Chelsea og Manchester City eyða lang-
mestu í leikmenn. Og spáð í spilin fyrir Óskarsverðlaunin.
24 Konan með langa trefilinn
Listakonan Fríða Björk á Siglufirði þekur vinnustofuna með Mogg-
anum, klósettið með Andrési og stóð fyrir gerð trefils sem náði frá
Siglufirði til Ólafsfjarðar.
34 Þriðja kynið viðurkennt í Pak-
istan
Hijdrurnar í Austurlöndum hafa fylgt menningarsögunni í árþúsund en
mannréttindabarátta þeirra er rétt að hefjast.
26 Smíða kafbáta og eld-
flaugar
Daníel Guðmundsson stýrir verkstæðinu Vélvík og
er í essinu sínu á Harley Davidson.
31 Þessu lýkur aldrei!
Karl Sigurbjörnsson er nýkominn frá Malaví og
Kenía, þar sem Íslendingar leggja sitt af mörkum til
hjálparstarfs.
36 Lindubuffið komið heim
Hjón opnuðu steikhús í gamla Lindu-húsinu á Akureyri.
39 Nauðsyn þess að geta talað um
kynlíf
Kynfræðingurinn Yvonne Kristín Fulbright fjallar um viðbrögð sam-
félags við kynferðislegu ofbeldi.
Lesbók
47 Söngur og ástríða
Gunnar Guðbjörnsson heldur úti menningarumfjöllun á netinu og er
hættur við að hætta óperusöngnum.
6
38
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af Sunnu Sigurðardóttur.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson,Börkur Gunnarsson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir,
Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Silja Björk Huldudóttir, Skapti Hallgrímsson.
Augnablikið
Hvað er merkilegt við aðalfund Blóð-gjafafélag Íslands? Hvernig getur slík-ur fundur gefið tilefni til pistlaskrifa?Kosið í stjórn, ársreikningur sam-
þykktur, framtíðarmálefni rædd. Er þetta ekki
eins og hver annar aðalfundur? Svarið er einfald-
lega: Nei. Á aðalfundi Blóðgjafafélag Íslands eru
samankomnir þeir einstaklingar sem eiga stærstu
innistæðurnar í einum mikilvægasta og merkileg-
asta banka okkar Íslendinga, Blóðbankanum.
Þessir innistæðueigendur gera engar kröfur á
bankann aðrar en þær að hann hugi vel að því sem
lagt er inn, sem bankinn og gerir. Enginn af inn-
stæðueigendunum vill þurfa taka út úr þessum
banka en gerir sér grein fyrir að þeir og þeirra
nánustu gætu þurft á því að halda og því er betra
að hann sé ríkur af rauðfljótandi gulli.
Formaður Blóðgjafafélagsins, Ólafur Helgi
Kjartansson, leggur til að félagsmenn greiði fé-
lagsgjöld með blóði sínu fremur en peningum, sú
tillaga er einróma samþykkt. Áhyggjur formanns
yfir minnkandi innlögnum á síðastliðnu ári eru
þónokkrar. Félagsmenn eru því hvattir til að
breiða út boðskapinn.
Þegar aðalfundi hefur verið slitið safnast stjórn-
armenn saman í pontu og kalla heiðursblóðgjafa
upp hvern á fætur öðrum. Margir hafa ekki séð sér
fært að mæta en stór hluti er kominn til að taka á
móti viðurkenningum sínum. Yngsta stúlkan til að
taka á móti heiðursviðurkenningu gerir það þetta
kvöld. Hún er fædd árið 1983 og hefur gefið blóð
35 sinnum. Hún tekur stolt á móti viðurkenningu
sinni, enda er framlag hennar til samfélagsins
ómetanlegt. Frá stofnun Blóðbankans hafa þrír
blóðgjafar verið heiðraðir fyrir að gefa blóð 150
sinnum. Þetta kvöld bætast fjórir í þann hóp.
Lófaklappið er mikið þegar þeir taka á móti við-
urkenningum sínum. Meðal þeirra er formaðurinn
sjálfur, Ólafur Helgi. Samtals hafa þessir fjórir
menn gefið 270 lítra af blóði.
Heiðursverðlaunahafar og stjórn sameinast í
spjalli yfir veitingum að afendingunni lokinni.
„Systir mín var að vinna í Blóðbankanum og ég fór
reglulega til hennar. Svo þegar komið var með
nýja vél svo hægt væri að gefa blóðflögur var ég
fenginn sem tilraunadýr. Þá var blóðinu dælt úr
annarri hendi, flögurnar unnar og blóðinu svo aft-
ur dælt inn í hina höndina. Þannig sat maður í 90
mínútur á meðan vélin vann. Ég fann fljótt hvað
þörfin var mikil og það var stundum beðið eftir
pokanum á meðan verið var að vinna flögurnar.
Ég hef því gefið reglulega bæði blóð og blóðflögur
og notið stuðnings frá vinnuveitanda sem gefur
mér alltaf launað leyfi til að komast í blóð-
flögugjöf. Fleiri fyrirtæki mættu vissulega taka það
upp,“ segir einn blóðgjafi yfir kaffibollanum.
Hvort sem Íslendingar þurfa að leggja inn fyrir
ógreiddri blóðskuld, yfirvofandi úttekt eða til þess
eins að gera góðverk eru þeir sem geta hvattir til
að heimsækja Blóðbankann og láta af hendi 450
millilítra af hinum dýrmæta rauða vökva. Hið
dásamlega starfsfólk bankans mun svo launa gjöf-
um ríkulega með bæði góðmennsku og góðgæti.
Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is
Ólafur Helgi, Gísli, Páll Jóhann og Brynjar voru heiðraðir fyrir að hafa gefið blóð 150 sinnum, eða 67,5 lítra hver.
(C) MOTIV, Jón Svavarsson
Gáfu 270 lítra af blóði
Söngskólanum
í Reykjavík
Í dag, laug-
ardag, er
„Dagur tón-
listarskólanna“. Í Söngskól-
anum í Reykjavík er honum
fagnað með opnu húsi og dag-
skrá í Snorrabúð, tónleikasal
skólans Snorrabraut 54 frá kl.
14-17.30. Ókeypis aðgangur og
allir velkomnir á meðan húsrúm
leyfir!
Rúrí
Í Listasafni Ís-
lands verður
opnuð um
næstu helgi yf-
irlitssýning á verkum Rúríar. Á
sýningunni gefur að líta helstu
verk Rúríar auk mynda af
mörgum þekktustu gjörningum
hennar, um 100 verk, bæði stór
og smá.
– fyrst og fre
mst
ódýr!
1498kr.kg
Lambalæri með trönuberja og epla marineringu
DÚNDUR-
VERÐ