SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Blaðsíða 8
8 26. febrúar 2012
Leikkonan Melissa McCarthy sló eftirminnilega í gegn
í hlutverki hinnar hreinskilnu og miður kvenlegu Meg-
an í kvikmyndinni Bridesmaids á síðasta ári. Sú mynd
hefur slegið í gegn víða um heim bæði meðal áhorf-
enda og gagnrýnenda. Melissa er tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna fyrir leik í aukahlutverki í þeirri mynd. Þá
er Bridesmaids einnig tilnefnd fyrir besta handrit.
Melissa er bóndadóttir frá Illinois og hóf feril sinn
sem uppistandari í New York og kom víða fram og
skemmti. Hún tók að sér fjölda hlutverka í sjónvarps-
þáttum áður en hún fékk stóra tækifærið árið 2000
með leik í kvikmyndinni Gilmore girls. Næstu tíu ár
hélt hún áfram sem skemmtikraftur þar til hún fékk
aðalhlutverk í sjónvarpsþáttunum Mike & Molly árið
2010. Hún hlaut fyrir skömmu Emmy-verðlaunin fyrir
hlutverk sitt í þeim þáttum. Melissa er gift framleið-
andanum og leikaranum Ben Falcone og þau eiga
saman tvær dætur.
Tilnefnd fyrir hlutverk
sitt í Bridesmaids
Melissa McCarthy sló eftirminnilega í gegn í hlutverki
Megan í kvikmyndinni Bridesmaids.
Reuters
Óskarsverðlaunahátíðin verður haldin í 84.sinn í Kaliforníu á sunnudagskvöld. Væntamá að mikið verði um dýrðir eins og und-anfarin ár í þessu stærsta teiti í Hollywood.
Tilnefningar voru kynntar fyrir réttum mánuði og vekja
þær jafnan misjöfn viðbrögð, enda miklu fjármagni varið í
kvikmyndagerð og mikið í húfi fyrir framleiðendur og
aðra sem standa að kvikmyndagerð.
The Artist þykir sigurstrangleg
Að þessu sinni eru níu kvikmyndir tilnefndar sem besta
mynd. Þeirri venju að tilnefna fimm kvikmyndir í þeim
flokki var breytt fyrir tveimur árum, en áður voru þær
tíu. Myndirnar eru The Artist, The Descendants, Extre-
mely Loud & Incredibly Close, The Help, Hugo, Midnight
in Paris, Moneyball, The Tree of Life og War Horse. Þær
myndir sem fá flestar tilnefningar þykja jafnan sig-
urstranglegar, en í ár eru það myndirnar Hugo með 11 til-
nefningar og The Artist með tíu, en flestir gagnrýnendur
telja þá síðarnefndu vænlegasta til að hreppa hnossið. Ef
marka má harmakvein gagnrýnenda ætti hinsvegar að
vera óhætt að fullyrða að kvikmyndin Extremely Loud &
Incredibly Close verði lítt ágengt. Þeir finna myndinni
flest til foráttu. En hver veit?
Gary Oldman tilnefndur í fyrsta sinn
George Clooney er meðal þeirra sem tilnefndir eru fyrir
bestan leik í aðalhlutverki, en hann fékk Óskarinn árið
2006 fyrir leik í aukahlutverki í myndinni Syriana. Nú er
hann tilnefndur fyrir myndina Descendants. Gary Old-
man fær sína fyrstu Óskarstilnefningu, en hann hefur
hlotið margar aðrar viðurkenningar á sínum ferli. Það má
kallast gott þegar horft er til þess að hann fetar í fótspor
stórleikarans Alec Guinness í Tinker Tailor Soldier Spy.
Í hópi tilnefndra er Brad Pitt en hann hefur þrisvar áður
verið tilnefndur til Óskarsverðlauna. Þá er Glenn Close
tilnefnd fyrir leik í aðalhlutverki í myndinni Albert
Nobbs. Það er sjötta tilnefning hennar en hún hefur aldrei
hreppt hnossið. Annað má segja um Meryl Streep sem til-
nefnd er fyrir hlutverk sitt í The Iron Lady. Hún hefur
tvisvar hlotið Óskarsverðlaun og alls þrettán tilnefningar.
Af þeim sem tilnefnd eru í ár er Woody Allen þó sá sem
langoftast hefur verið tilnefndur eða 23 sinnum. Þrisvar
hefur hann hlotið verðlaun; sem leikari, leikstjóri og
handritshöfundur. Búast má við spennandi keppni og
jafnvel óvæntum úrslitum.
The Artist er meðal þeirra sem keppa um Óskarinn. Hér eru aðalleikaranir, Jean Dujardin sem leikur George Valentin, og
Berenice Bejo, sem leikur Peppy Miller. Hún er einnig tilnefnd sem besta leikkona í aukahlutverki.
AP
Hverjir
hreppa
óskarinn?
Gamalkunnir
verðlaunahafar
tilnefndir en
einnig ný andlit
Vikuspegill
Olga Björt Þórðardóttir
Glenn Close er tilnefnd fyrir leik í aðalhlutverki í myndinni Albert Nobbs.
AP
Reuters
Kynnir í níunda sinn
Gamanleikarinn Billy Crystal er kynnir
hátíðarinnar í ár. Þetta er í níunda sinn
sem hann gegnir því mikilvæga en
krefjandi hlutverki. Síðast var hann
kynnir á 76. verðlaunahátíðinni árið
2004. Metið á leikarinn Bob Hope, en
hann kynnti á hátíðinni alls nítján sinn-
um á 38 árum. Leikkonan Whoopi
Goldberg hefur oftast kvenna verið
kynnir, eða fjórum sinnum.