SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Síða 12

SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Síða 12
12 26. febrúar 2012 Mánudagur Steinþór Helgi Arnsteinsson Ok. Fólk sem er ekki með emailið sitt og/ eða símanúmerið sitt í info á Flettismettinu STEP UP YOUR NETWORKING! #égdjammatilaðnetworka Miðvikudagur Björt Ólafsdóttir hvernig kemur maður barni í öskudagsbún- ing! Andrés Jónsson LUV Dagurinn er að virka. Ég fékk áðan tengslabeiðni frá ein- um á Internetinu sem ég var óvart einu sinni dálítið vondur við :) Föstudagur Elísabet Kristín Jökulsdóttir Tvíburarnir mínir voru stundum að gera dyraat hjá hjónum í næstnæsta húsi þegar þeir voru litlir, þá voru þeir leystir út með gjöfum af þessum hjónum,...- Fésbók vikunnar flett Windows hefur áður gert atlögu að farsímastýrikerfi, en með takmörk- uðum árangri. Menn hafa þó greini- lega lært af reynslunni eins og sann- ast á því að Windows 7.5 fyrir farsíma, sem kallast Mango, hefur fengið framúrskarandi dóma hjá flest- um sem um hafa fjallað. Þar nýtur fyr- irtækið ekki síst góðs af því að flestir símanotendur þekkja hugbúnað frá Microsoft, eins og til að mynda Off- ice-pakkann, en farsímaútgáfa Office fylgir og eins aðgangur að SkyDrive, sem er ókeypis þjónusta frá Microsoft með 25 GB plássi fyrir gögn, myndir, skjöl, músík og þar fram eftir göt- unum. Ekki er bara að Microsoft-menn hafa nýtt ýmislegt úr borðtölvuheim- inum, heldur sækja þeir líka inn- blástur í símaheiminn í næstu útgáfu af Windows sem væntanleg er á árinu, Windows 8, en viðmót á því verður víst mjög áþekkt því sem er á Windows-farsímum og spjaldtölvum. Það er og eitt það fyrsta sem menn falla fyrir á Windows-snjallsímum og að vonum – upphafsskjár Windows- síma er sérdeilis aðgengi- og skemmtilegur. Síminn er nettur og fer vel í hendi með rúnn- aða kanta og því gott að nota með einni hendi; 11,5 x 5,8 x 1 cm. Hann er líka til- tölulega léttur, 115 g, en virkar þó traust- ur, ekki síst fyrir það að rafhlöðulokið á bakinu er úr málmi. Minni sími þýðir nátt- úrlega minni skjár, en hann er þó nógu stór fannst mér. Skjárinn er 3,7" Super AMOLED, bjart- ur og góður, litir mjög góðir reyndar. Upplausnin er 480x800 dílar. Skjárinn dugði vel til útibrúks þó ekki hafi tek- ist að skoða hann í björtu sólskini, kíki kannski á það í sumar. Neðst á framhliðinni eru bakk-hnappur, leit- arhnappur og svo heimahnappur í miðjunni, eins og á öllum Wind- ows-símum reyndar. Myndavélin er 5 Mdíla með flassi og tekur 720 díla hreyfimyndir. Á fram- hliðinni er myndavél fyrir myndsímasamtöl. Mér finnst það kostur að á sím- anum er sérstakur hnappur fyrir myndatökur, enda ólíkt þægilegra en að smella á skjáinn. Vafrinn í símanum er Int- ernet Explorer, nema hvað, en útgáfan er IE9 á sterum; snöggur og þægilegur og sá hraðasti sem ég hef prófað til þessa á farsíma. Hann er líka sá þægilegasti í notkun almennt; hvenær kemur Android-útgáfan? Windows í símann Undanfarna mánuði hefur allt snúist um Android og iPhone, en nú loks slást fyrstu Windows-símarnir í leikinn. Samsung varð næststærsti snjallsímafram- leiðandi heims með Android-símum og sækir nú fram með Windows. Græjur Árni Matthíasson arnim@mbl.is Mango er málið Snjallt stýrikerfi fyrir snjallsíma

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.