SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Side 16
algjörri einlægni. Þetta bara tókst svona
vel og við fundum strax að við gátum talað
rosalega vel saman. Textinn og hug-
myndin í kringum bókina eru frekar flók-
in. Þetta var svolítið stór biti, nokkuð sem
maður þarf að geta lesið úr og skilið á
ýmsa vegu. Þetta verkefni krafðist þess
strax að það væru góð samskipti og góð
tenging okkar á milli.“
Gamli sálfræðiáhuginn fléttast inn í
margt sem hún er að gera núna. „Margt í
þessu er dálítið samfélagslegt, með vísun í
manneskjulegu hliðina, vísun í sam-
félagsleg gildi og pælingar. Hvað er eðli og
hvað er lært? Er raunverulega til eitthvað
sem er gott eða illt?“
Hægt að gefa svo margt til kynna
Við lestur myndasagnanna í bókinni er
gaman að velta fyrir sér hvernig orð og
texti kallast á og hvað það er hægt að segja
mikið með mynd.
„Maður getur verið svo lúmskur með
myndirnar og ég meina það á góðan hátt!
Það er hægt að gefa svo margt til kynna.
Þú ert ekki að mata fólk á einu eða neinu.
Þeir sem vilja geta fundið ýmislegt, alls-
konar litlar pælingar. Það er gaman að
vinna myndir með texta því í raun á
myndin ekki endilega að endurspegla það
sem textinn er að segja heldur gefa þér
meiri dýpt. Þetta er dálítið viðkvæmt
samspil en mjög spennandi.“
Myndasögur fyrir fullorðna eru nokkuð
sem Sunna hefur mikinn áhuga á. „Þetta
eru engar barnasögur heldur verið að taka
fyrir þung málefni með heimspekipæl-
ingum. Þetta var mikil vinna. Það liggur
mikil vinna á bak við myndskreytingar og
myndasögur almennt. Fólk gerir sér oft
ekki grein fyrir því. Maður þarf að kynna
sér efnið vel. Maður þarf að vita nákvæm-
lega hvað maður er að fara að segja og
ákveða hvernig maður ætlar að tjá það og
hvað maður ætlar að gefa í skyn. Það þarf
að stúdera efnið mikið fyrirfram.“
Hægt að ryðga í teikningu
Það að geta teiknað er auðvitað hæfileiki
en eins og svo margir hæfileikar krefst
hann þess að vera ræktaður.
Áður óbirt blaðsíða
úr myndasögubók, sem
Sunna er að vinna að
um þessar mundir.
Þessi mynd er einn metri á hæð og
máluð með óvenjulegu litarefni, kaffi.
Annað verkefni frá námsárunum í Kanada.
Þessi hugsanakort er að finna inni í hausbókinni.
’
Ég áttaði mig á því að
ég var ekki að fara að
einbeita mér að gall-
eríum. Ég er hrifnari af
hugmyndum um fjölföldun,
að dreifa verkinu svo
margir geti notið þess.
16 26. febrúar 2012