SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Blaðsíða 17

SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Blaðsíða 17
„Teikning er mjög mikil þjálfun. Það er hægt að ryðga alveg virkilega mikið ef maður teiknar ekki í einhvern tíma.“ En hvernig var vinnan við þessa bók? „Þetta er auðvitað ekki níu til fimm vinna og svo slekkur maður á heilanum. Maður er alltaf með þetta í höfðinu þó sjálf teiknivinnan taki ekki alltaf mestan tím- ann. En það þarf að skissa fyrst tillögur og svo hreinteikna, setja upp blaðsíðuna og skoða hvaða rammar virka og hverjir ekki. Mér fannst gott að setja mér fasta tíma í þetta, vakna snemma og byrja dag- inn á góðu kaffi,“ segir hún en það þarf auðvitað að hafa öguð vinnubrögð í svona vinnu. „Ég vinn mikið ein og þá verður maður að vera ennþá harðari við sig. En það er jafn nauðsynlegt að kunna að taka hlé og að taka skorpur,“ útskýrir Sunna. Bókin var hennar eldskírn „Þessi bók var eldskírn fyrir mig. Þó ég hafi unnið að mínum myndasögum fyrir sjálfa mig hef ég mest unnið verkefni af öðru tagi. Ég hef verið að gera lógó, plak- öt, bæklinga og ýmislegt tilfallandi. Þetta var draumaverkefnið mitt, að fá að vinna með svona góðum rithöfundi í fullorð- insmyndasögu. Ég kynntist þeim svo vel í Montréal en hún er ein af þessum borgum sem eiga ríkulega myndasöguhefð. Þar er myndasögum sýnd virðing sem list- formi.“ En hérlendis? „Mér finnst við ekki komin neitt rosa- lega langt. Það er ekki hefð fyrir mynda- sögum hérlendis. Fólk verður að vera op- ið, þetta er oft misskilið hér. Myndskreytingar og teikningar eru settar í eitt hólf, eins og þær séu bara eitthvert skraut. Þær fá ekki alveg sinn réttmæta sess sem listgrein.“ Hádramatískar og heimspekilegar Hún segir líka að myndasögur séu alls ekki bara fyndnar. „Þær geta verið há- dramatískar og heimspekilegar. Ég elska Tove Jansson og gömlu Múmínbækurnar hennar,“ segir Sunna sem er mjög hrifin af því sem hún kallar „einlæga dagbók- arformið“. Aðrir höfundar sem hún held- ur uppá eru Julie Doucet, sem er einmitt frá Montréal og Craig Thompson. „Hann er góður í einlægri frásögn,“ segir hún en bækur hans eru sjálfsævisögulegar. Hver eru næstu skref hjá þér? „Ég myndi segja að næstu skref hjá mér væru að vinna að minni eigin bók. Það er nokkuð sem ég er búin að vera að hugsa upp og setja saman í mjög langan tíma. Mér finnst núna vera rétti tíminn til að gera alvöru úr því.“ Hvernig verður fyrsta myndasögubók Sunnu Sigurðardóttur? Má búast við því að hún verði í þessum sjálfsævisögulega stíl? „Ég held að það sé rosalega erfitt að sleppa undan því að draga sjálfan sig alltaf óvart inn í teikninguna. Ég held það sé óumflýjanlegt ef maður fer út í einlægar pælingar og vangaveltur. Mér finnst fólk sem þorir að vera einlægt spennandi. Ég trúi því að lesandinn tengi almennt meira við þannig efni. Mér finnst svo skemmti- leg þessi samvitund manneskja. Ég held að við séum öll líkari en við þorum að við- urkenna. Lífskrísur eru nokkuð sem flest- ir kannast við en fæstir vilja auglýsa. Mér finnst manneskjulega hliðin á okkur öll- um skemmtilegt viðfangsefni og finnst auðveldast að taka sjálfa mig sem dæmi í gegnum mínar sögur af því að það er hreinlega auðveldast, ég þekki sjálfa mig best af öllum býst ég við,“ segir Sunna sem hefur gaman af „drungalegum sjálfs- hæðnishúmor“. „Mér finnst líka freistandi að gera dálít- ið grín að þessu alvarlegu pælingum. Það getur verið gott að fatta hvað maður er hlægilegur í eigin dramatík. Þetta þarf ekki að vera sorglegt þó viðfangsefnið sé þungt heldur getur einmitt orðið fyndið.“ Síða úr bók sem hún gerði í námi í Kanada og tengist flöskutöppum en hér eru þeir notaðir til að tefla. Skólinn hafði umhverfisvæna stefnu. Mynd máluð með bleki og vatnslitum. Stóllinn sem Sunna gerði á námsárunum í Hollandi og hlaut fyrir fyrstu verðlaun í hús- gagnahönnunarsamkeppni. Í bókinni Allt með kossi vekur eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur eru þrjár myndasögur eftir Sunnu Sigurðardóttur. Þær eru teikn- aðar í þrenns konar gjörólíkum stíl og seg- ist Sunna hafa verið að „hoppa í gegnum sögu myndasagnanna“. „Ég hef svo mikinn áhuga á þessu og finnst gaman að því hvað er hægt að segja mikið í gegnum myndir og hægt að gefa öll þessi undirliggjandi skilaboð. Það þarf ekki að stafa þetta út. Hver og einn skilur sög- una á sinn hátt og það er frábært.“ Í upphafi átti verkefnið að vera smærra í sniðum en það vatt uppá sig því samstarfið var svo gott. „Við fórum að sjá að það borg- aði sig ekki að klippa þetta niður. Guð- rún Eva gaf mér heilmikið frelsi. Ég fékk textabútinn í hendurnar og hafði svo frjálsar hendur. Eins og með persónurnar, ég þurfti að finna út úr þeim sjálf og líka öllu umhverfi. Ég var pínu hrædd við þetta fyrst því þetta er Bibl- íutengt og það eru allir með sínar fyrirfram ákveðnu hugmyndir um Adam og Evu,“ segir hún um fyrstu og veigamestu söguna. „Ég hitti Guðrúnu Evu alltaf og sýndi henni hvað ég var að vinna með, mest fyrst en þegar fór að líða á hittumst við sjaldnar og fórum þá yfir meira efni. Það var draum- ur fyrir mig sem teiknara að fá að túlka þetta svona mikið sjálf,“ segir hún en meðfylgjandi myndir eru allar úr bók- inni, ein úr hverri sögu. Hoppað í gegnum sögu mynda- sagnanna 26. febrúar 2012 17

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.