SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Side 24
Fríða Björk starfar í elstu banka-stofnun landsins, Sparisjóði Siglu-fjarðar, fyrri hluta dags en sinnirlistsköpun eftir það. Eiginmað-
urinn, Unnar Már Pétursson, passar pen-
inga sjávarútvegsfyrirtækisins Ramma; er
fjármálastjóri þar, og saman sinna þau
einkasyninum Mikael Má, 10 hrossum og
einum ketti.
Listakonan ólst upp í höfuðborginni, bjó
í götunni þar sem Myndlistarskólinn í
Reykjavík var til húsa og sótti fjölda nám-
skeiða á yngri árum en lauk ekki formlegu
námi. Segist því líklega ekki geta kallað sig
Listamann með stóra L-inu en það valdi
henni ekki áhyggjum. Aðalmálið sé að hún
hafi afskaplega gaman af því sem hún fæst
við og geti aðrir notið þess sé það
skemmtilegur bónus.
Og þótt prófgráða sé ekki fyrir hendi
skortir ekkert á hugmyndaflugið; hug-
myndirnar bókstaflega hrannast upp hjá
listakonunni. „Ég hef alltaf verið svona og
get ekkert að því gert,“ segir hún eins og í
afsökunartóni þegar trefilinn fræga og
fjölda annarra hugmynda ber á góma. „Ég
er alltaf með skissubók á mér, skrifa strax
niður hugmyndir svo ég gleymi þeim ekki
og á þess vegna nóg til.“
Fríða Björk og Unnar Már hafa búið á
Siglufirði síðan 1993. Hún er fædd og upp-
alin í Reykjavík, hann er frá Hofsósi en þau
kynntust í borginni. „Við bjuggum í rúm
þrjú ár á Sauðárkróki og ætluðum svo að
vera eitt ár hér, en erum hér enn,“ segir
Fríða Björk, sem játar því að líklega sé hún
orðin Siglfirðingur eftir tæpa tvo áratugi á
staðnum. „Hér er mjög gott að vera. Sigl-
firðingar eru gott fólk, staðurinn er fal-
legur og ég er því hæstánægð hér.“
Vinnustofan mikil blessun
Hjónin búa við Túngötu á Siglufirði og árið
2005 keyptu þau gamalt hús steinsnar frá,
sannkallað fjölnotahús því þar hefur Fríða
Björk vinnuaðstöðu en einnig er gesta-
Fríða við þann fyrsta af þremur stórum hnyklum sem hún ætlar að gera úr treflinum. Einn verður á vinnustofu hennar en hinir verða opinverlega varðveittir á Ólafsfirði og Siglufirði.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Konan með
langa trefilinn
Fríða Björk Gylfadóttir fékk óvenjulega hugmynd
fyrir nokkru misserum og sú varð að veruleika;
lopatrefill sem náði frá Siglufirði til Ólafsfjarðar
og innsiglaði sameiningu sveitarfélaganna.
Texti og myndir: Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Mikael Már á baðherbergi vinnustofunnar. Veggirnir eru skreyttir myndum úr Andrésblöðum.
24 26. febrúar 2012