SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Page 25

SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Page 25
Fríða hefur unnið með stóla ́á marg- víslegan hátt. Til hægri er sessan hluti úr treflinum fræga sem náði á milli Ólafs- fjarðar og Siglufjarðar. herbergi og þar halda þau árlega skötu- veislu á Þorláksmessu.Og þar var haldin fermingarveisla sonarins í fyrra.„Það er stutt fyrir mig að fara, vinnustofan er beint hinum megin við götuna,“ segir hún og hlær. Og enn meira þegar blaðamaður spyr hvort ekki sé stutt að fara á milli hvaða staða sem er á Siglufirði … Það er einn kostanna við það að búa á svo litlum stað. Það var mikil blessun að fá þessa vinnu- stofu, segir Fríða Björk. „Þá hætti ég að mála heima og vera alltaf að breyta íbúð- inni; það voru allir mjög fegnir!“ Það þótti líka breyting til batnaðar þegar farið var að elda Þorláksmessuskötuna í vinnustof- unni … Svo veitti heldur ekkert af plássinu. Síðast mættu 50 manns í skötuveisluna. Athygli vekur að vinnustofan er klædd utan með gömlum úrklippum úr Morg- unblaðinu. „Jú, þetta vekur töluverða at- hygli. Þegar ég stend og vaska upp í eld- húsinu heima sé ég út um gluggann og yfir götuna, og fólk stoppar oft, strýkur hend- inni yfir vegginn og les blaðið!“ Fékk áskorun um að klæða húsið Hún þakti húsið Mogganum árið 2006. Það tók dálítinn tíma að finna rétta efnið til að bera á blaðið svo klæðningin eyðilegðist ekki í næsta rigningarskúr, en það var málningarmeistari hjá Slippfélaginu í Reykjavík sem kom með lausnina. „Þegar haft var samband við hann spurði hann reyndar fyrst hvort ég væri ekki búin að taka töflurnar mínar! En svo kom hann með efnið og það virkaði mjög vel.“ En hvernig kom þessi óvenjulega klæðn- ing til? „Ég fékk áskorun um að gera þetta. Ég hafði gert ýmiskonar listaverk úr blaðinu, t.d. klætt húsgögn með því og gat því ekki annað en tekið áskoruninni. Sum- ir spáðu því að þetta yrði umhverfisslys, en það stendur enn.“ Hugmyndir koma alls staðar til hennar; í göngutúrum, í spjalli við kunningja eða í hesthúsinu. „Við höfum verið talsvert lengi með hesta. Maðurinn minn ólst upp við það á Hofsósi en ég var ekki vön og var lengi rög; ég byrjaði rólega og var fyrst sett í það sem bóndinn kallar grunnþjálfun; að moka skít og kemba. Svo eftir að ég fór að fara með á bak og kynntist hestunum fannst mér þetta æðislegt.“ Sumar hugmyndir sínar segir Fríða Björk brjálaðar, eins og til dæmis þegar henni datt í hug að prjóna trefil sem næði á milli bæjarhlutanna í nýlegu sveit- ar- félagi, Fjallabyggð. „Vinkona mín í næsta húsi rak mig eig- inlega áfram, ég ræddi málið við bæjarstjórann sem þá var, Þóri Kr. Þórisson, og ég vissi ekki fyrri til en allt var klárt. Þórir þekkti mann hjá Ístex sem framleiðir lopann og fyr- irtækið ákvað að gefa okkur góðan afslátt þannig að ég fór í það að fá hjálp við prjónaskap- inn. Ég var mjög sæl eftir viku þegar komnar voru 50 konur í hópinn en áður en við hættum voru rúmlega 1.400 manns búnir að prjóna eitthvað. Verkefnið var eins og snjóbolti; vatt upp á sig á glaðlegan og jákvæðan hátt.“ Fríða Björk var strax með í huga að trefillinn myndi ná á milli Siglufjarðar og Ólafs- fjarðar. „Ég sá fyrir mér að þar sem væri búið að sam- eina sveitarfélögin á borði gæti þetta orðið loka- hnykkur í sameiningunni á hlýjan og mjúkan hátt.“ Verkinu lauk svo formlega daginn sem Héðinsfjarð- argöngin voru opn- uð með pomp og prakt. Svið var reist á bílastæðinu í Héðinsfirði og þar saumaði bæj- arstjórinn, Sigurður Valur Ásbjarnarson, saman síð- ustu partana. Fékk trefla senda frá níu löndum „Það var rosalega sérkennileg tilfinning þegar verkinu var lokið og ég held að svona lagað verði ekki endurtekið. Stemn- ingin var ótrúleg og þetta hafði mikil áhrif.“ Fríða Björk gaf upp ákveðna breidd á treflinum en fólk hafði algjörlega frjálsar hendur að öðru leyti. „Trefillinn er því í alls konar litum og munstur eru marg- vísleg. Sumir lögðu mikinn metnað í prjónaskapinn, gerðu mjög flottan trefil til minningar um einhvern eða eitthvað, og ég er ótrúlega þakklát öllum sem tóku þátt í verkefninu, körlum og konum á aldrinum 7 til 97 ára. Sumir lærðu að prjóna bara til að geta verið með, aðrir byrjuðu að prjóna aftur eftir 30 ára hlé. Einn karlinn langaði svo að vera með, en treysti sér ekki til að læra að prjóna, að hann „leigði“ sér konu til þess!“ Framtakið vakti gríðarlega athygli eins og nærri má geta. „Frásagnir af þessu birt- ust víða og margir fréttu af því; ég fékk senda prjónaða búta frá einum níu lönd- um, til dæmis Kanada og Bandaríkjunum, bæði frá Íslendingum og útlendingum.“ Ein kona prjónaði 400 metra! Göngin voru vígð í október 2010 og hug- myndin kviknaði janúar sama ár. „Trefillinn mældist 11 og hálfur kílómetri en það teygðist á lopanum þannig að tref- illinn náði ríflega frá miðbæ til miðbæjar, alls 17 kílómetra.“ Það var ekkert smáræði sem þeir dug- legustu prjónuðu. „Kona hér í bænum, sem nú er 95 ára, prjónaði 300 metra og önnur hvorki meira né minna en 400 metra.“ Til að setja þær tölur í samhengi má geta þess að hlaupabraut í kringum knattspyrnuvöll er 400 metra löng! Trefillinn var síðan bútaður niður, Fríða Björk hefur smám saman selt búta úr hon- um og rennur féð sem með því fæst til góðgerðarmála. „Ég er á þriðja kassanum af tólf. Í hverjum kassa er tæplega kíló- metri,“ segir hún. Til stendur að selja búta úr treflinum í verslun í Reykjavík en það er ekki end- anlega ljóst. „Það eru aðallega Siglfirðingar sem hafa keypt trefilbúta ennþá. Á árlegri listagöngu í desember seldi ég nokkuð marga; það var kalt í veðri þannig að trefill kom sér vel.“ Ekki verður þó allt selt því Fríða vinnur nú að gerð stórra hnykla sem settir verða í kassa úr plexígleri. Einn verður á Ólafs- firði, annar á Siglufirði, og sá þriðji verður varðveittur á vinnustofunni.“ Þá hefur Fríða notað hluta trefilsins góða í sessur á stóla sem hún býr til; einn slíkan má sjá á myndinni hér til hliðar. „Einn stóll verður nefndur eftir hverjum firði sem trefillinn lá um; Ólafsfirði, Héðinsfirði og Siglufirði.“ Fríða Gylfadóttir segir það hafa verið mikla blessun að eignast sérstakt húsnæði undir vinnu- stofu. „Þá hætti ég að mála heima og vera alltaf að breyta íbúðinni; það voru allir mjög fegnir!“ 26. febrúar 2012 25 Eitt af „kreppulistaverkum“ Fríðu. Svona sér hún fyrir sér einkaþotur auðmannanna ... Klæðningin óvenjulega utan á vinnustofunni. Hún vekur gjarnan forvitni ferðalanga.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.