SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Side 28

SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Side 28
28 26. febrúar 2012 hagkvæmari ef skattstofur og ríkisskattstjóri yrðu sameinuð í eina stofnun. Eftir frekar skamman undirbúningstíma var lögum breytt og 10 stofn- anir urðu að einni. Með sameiningunni var verk- lagi og starfsháttum breytt. Ýmsir starfsmenn fengu ný verkefni og aukin sérhæfing á landsvísu var tekin upp. Þjónustuverinu er nú stýrt frá Siglufirði, á Ísafirði er farið yfir sjómannaframtöl, landbúnaðarframtölin eru afgreidd á Hellu, gagnaskilum stjórnað frá Akureyri, svo dæmi séu tekin. Þannig eru starfsstöðvar að hluta til sér- hæfðar. Alls staðar er þess gætt að nærþjónustu sé haldið uppi við fólkið á hverju svæði. Engum starfsmanni var sagt upp vegna sameiningarinnar og starfsstöðvum utan höfuðborgarsvæðisins haldið opnum en skattstofan í Reykjavík var lögð niður. Auðvitað var sameiningin umdeild ákvörðun, enda róttæk og kallaði á umræður. Við Angantýr hittum starfsmenn í aðdraganda sameining- arinnar til að skýra breytingarnar og heimsóttum þannig flestar skattstofurnar. Í höfuðatriðum hef- ur þessi sameining gengið vel og mín skoðun er sú að þetta hafi styrkt skattframkvæmdina mjög og gert hana skilvirkari og samræmdari. Við höfum einnig lifað af lægri fjárveitingar. Þetta var því þörf breyting og góð.“ Það er ekki langt síðan mikil ólga varð á höf- uðborgarsvæðinu þegar sameina átti skóla en urðu engin læti út af þessari sameiningu? „Við sameiningu skattstofanna og RSK voru sett skýr markmið og strax lagt af stað í hug- myndavinnu. Allir starfsmennirnir hafa því unnið að þessari sameiningu, ekki bara örfáir menn. Og þegar allir eru virkjaðir þá ganga mál betur. Mikil og góð upplýsingamiðlun skiptir einnig verulegu máli, þannig eru allar fundargerðir framkvæmda- stjórnar RSK öllum starfsmönnum aðgengilegar. Reyndar er þar ekki fjallað um málefni einstakra viðskiptamanna eða starfsmanna. Ég þekki ekki hvað er að gerast í skólum í Reykjavík en af frétta- flutningi virðist sem einhverjir telji að á hafi skort að samráð væri nægjanlegt. Það má skýra þetta með myndrænum hætti. Þegar þú horfir á ísjaka þá sérðu einungis þann hluta hans sem er fyrir ofan yfirborð sjávar en þú veist að stærsti hluti hans og flotkrafturinn er undir sjónum. Ef við setjum ísjakann í samband við vinnustaðamenningu þá eru í efstu lögunum sýnilegu þættirnir, eins og fyrirmæli og lög. Undir yfirborðinu er svo hið óáþreifanlega, vinnumór- S tarfsmenn hjá Ríkisskattstjóra eruánægðir í vinnunni. Um það hefur árlegkönnun SFR borið vitni um síðustu árin.Árið 2008 lenti stofnunin í fyrsta sæti í þessari könnun. Hún varð í 5. sæti árið 2010, sem er góður árangur þegar haft er í huga að það sama ár voru níu skattstofur og gamla Ríkisskattstjóra- embættið sameinuð, en sú ákvörðun reyndist mörgum starfsmönnum erfið og tók nokkuð á. Stofnunin varð svo í öðru sæti í fyrra. En af hverju er starfsfólk hjá Ríkisskattstjóra- embættinu ánægt í vinnunni? Skúli Eggert Þórð- arson ríkisskattstjóri á svör við því: „Í einlægni sagt kom þessi niðurstaða mér ánægjulega á óvart. Sameining stofnananna var gríðarlega mikið verkefni þar sem mikið gekk á. Kannski er skýr- ingin einfaldari en í fyrstu sýnist. Þú ert blaða- maður á Morgunblaðinu og þú veist að ef þér líður vel á vinnustaðnum framleiðir þú meira og skrifar betur. Það eru nákvæmlega sömu sjónarmið sem ríkja hjá þessari stofnun. Ef starfsmönnum líður illa vinna þeir ekki nógu vel. Þar af leiðandi er lögð áhersla á að starfsmenn séu ánægðir í vinnunni því um leið eru þeir betri og afkasta- meiri starfsmenn. Það eru margar leiðir til að auka starfsánægju, til dæmis að virkja samstarfsmenn til ákvarðana og gefa þeim frelsi til að vinna sjálf- stætt að tilteknum verkefnum, að ekki sé talað um að þeim sé sýnd virðing. Svo er nú ágætt að hafa í huga þau sígildu sannindi að koma skuli fram við fólk eins og menn vilja að komið sé fram við þá sjálfa. Við höldum reglulega starfsmannafundi þar sem tiltekin mál eru til umræðu og úrlausnar, svo sem hvernig sé unnt að bæta þjónustu. Stundum er fólkinu skipt í vinnuhópa og þjóðfundarfyr- irkomulagið notað. Á einum fundi var verkefnið að hver starfsmaður spyrði sjálfan sig: Hverjir eru styrkleikar stofnunarinnar? Hverjir eru veikleikar hennar? Hvar eru ógnanir? Hvar eru tækifærin? Af starfsmannafundunum kemur heilmikið framlag sem er unnið úr, markmið sett og leiðir ákveðnar til ná að markmiðunum.“ Vinnumhverfi þar sem starfsmenn skipta máli Hefur þessi sameining verið til góðs og skilar hún almenningi einhverju? „Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri og Ang- antýr Einarsson, skrifstofustjóri í fjármálaráðu- neytinu, voru frumkvöðlar sameiningarinnar og þeir töldu að skattframkvæmdin yrði vandaðri og Viðtal Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Flotkraftur ísjakans Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri ræðir í viðtali um mikilvægi góðrar starfsmannastefnu, en kannanir sýna að starfsmönnum Ríkisskattskattsjóra líður mjög vel í vinnunni. Hann talar einnig um umdeilda sameiningu á skattstofum og nýja starfshætti. Skúli Eggert: Fyrst eftir sameininguna þurfti að slökkva ýmsa elda og fara yfir mörg mál. Ég reyni að taka á móti öllum en því miður er ég oft talsvert upptekinn.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.