SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Qupperneq 33

SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Qupperneq 33
26. febrúar 2012 33 tryggja betri uppskeru og jafnvel fleiri uppskerur. „Samfélagslegi þátturinn er líka mjög mikilvægur,“ heldur hann áfram. „Fólk lærir að starfa saman að því að bæta umhverfi sitt og efla samfélagið. Þetta hefur haft gríðarleg áhrif, ekki síst á konurnar. Það er hefðbundið mæðraveldi í þessum þorpum og konur hafa notið mik- illar virðingar sem ættmæður sem hlustað er á. Hér stuðl- að því að þæt öðlist þær reisn og virðingu af öðru tagi. Of- beldi gegn konum er samt landlægt þarna eins og víðar, því miður.“ Innifalið í verkefninu er almenn fræðsla um mannrétt- indi og þjálfun í að axla ábyrgð og greina vandamál, svo sem heimilisofbeldi og drykkjuskap, sem er víða landlæg plága á þessum slóðum. „Með þessari fræðslu viljum við hvetja fólkið til að finna lausnir og eflast í því að knýja á stjórnvöld um úrbætur. Láta vandann ekki dankast. Það er áríðandi að allir komi að málum og niðurstaða náist. Um 20 konur fengu kennslu í meðferð og geymslu matvæla og þjálfun í að miðla þekkingunni áfram. Það gerðu þær líka, mér skilst að um 300 konur hafi notið góðs af. Konurnar lærðu einnig um næringarefni og sam- setningu matar sem hefur skilað sér í betri næringu íbúa. Með þessu verkefni eykst líka skilningur fólks á sam- hengi fátæktar og umhverfis. Gríðarlegur ágangur er á vatn og jarðveg og eldivið, jarðvegseyðing fylgir í kjölfar- ið. Nýjar leiðir eru fundnar til að nýta hvort tveggja betur og þá um leið að auka tekjurnar einstaklingum og sam- félaginu til hagsbóta.“ Keðjuverkandi hugsun Annað verkefni sem Íslendingar hafa komið að í Malaví snýst um búfé. Verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar „Gjöf sem gefur“ þekkja margir. Fjölmargir Íslendingar hafa keypt geitur og/eða hænur sem gjöf til vina og vanda- manna á tyllidögum. Dýrin eru færð fátækum til að hjálpa þeim að koma undir sig fótunum. Ekki er bara um einfalda gjöf að ræða – henni fylgir skuldbinding. Fyrsti kiðlingurinn skal gefinn fólki sem ekkert á og þannig margfaldast áhrifin. Þannig er fólki hjálpað að koma undir sig fótunum, þessu fylgir líka auk- in þekking á skepnuhaldi, bændur þekkja nú til kynbóta og ræktunar. Keðjuverkandi hugsun. „Kennsla í búfjár- haldi skilar betri afkomu fólki til handa og betri fæðu. Þá eignast fólk kapítal með þessum hætti og getur fyrir vikið greitt fyrir skólagöngu barna sinna og fleira,“ segir bisk- up. Á síðastliðnu ári komust 80 geitur í hendur 80 nýrra eigenda og 75 kiðlingum var dreift á jafnmörg ný heimili. Þriðja verkefnið, sem Karl kynnti sér, hverfist um hreinlæti í þorpunum. Að koma upp kömrum og kenna þorpsbúum grundvallar hreinlæti en því er víða ábóta- vant. Karl segir þetta átak þegar hafa skilað árangri, með- al annars í baráttunni gegn þeim hvimleiða vágesti kól- eru. „Oft þarf ekki mikið til að stuðla að bættu heilsufari fólks.“ Dansandi og syngjandi Karl segir sér og föruneyti sínu hafa verið tekið með kost- um og kynjum í Malaví, þorpsbúar hafi komið dansandi og syngjandi á móti þeim. „Þetta fólk er ákaflega þakklátt og það er sjálfsögð virðing af okkar hálfu að heimsækja það og sýna því í verki að þetta er ekki bara ölmusa og það ekki þurfalingar. Þetta er stuðningur til sjálfshjálpar og mikil áhersla lögð á vönduð og fagleg vinnubrögð. Það er mikilvægt fyrir heimamenn í Malaví að fá þau skilaboð persónulega og milliliðalaust að við fylgjumst með upp- byggingunni.“ Biskup segir líka brýnt að tryggja það að gjafir og fram- lög okkar komist í réttar hendur. „Þegar ég var þarna fyr- ir tveimur árum settum við fram kröfur um bætt vinnu- brögð og okkur til mikillar ánægju hefur verið tekið á málinu. Við sáum greinilegan mun á því frá því síðast.“ Er eitt vandamál leysist í Afríku blasir annað við. Það er gangur lífsins. Úrhellisrigningar hafa gert fólki lífið leitt í Malaví á þessu ári eftir langvarandi þurrka, valdið miklu tjóni og jafnvel sópað heilu þorpunum í burtu. „Ástandið var víða skelfilegt, þar sem við komum,“ segir Karl sem slapp naumlega við rigningarnar. „Við blasa ný vanda- mál. Þessu lýkur aldrei!“ Loftslagsbreytingar er annað vandamál sem margir hafa miklar áhyggjur af í Afríku með auknum sveiflum og öfgum í veðurfari. Þar kemur skógareyðingin líka inn í, en gegndarlaust skógarhögg vegna kolagerðar hefur al- varlegar afleiðingar. Meiri kröfur gerðar Hjálpar- og þróunarstarf í Afríku hefur fráleitt verið yfir gagnrýni hafið og Karl segir sitthvað af því sem bent hefur verið á eiga rétt á sér. „Margt hefur mátt betur fara í þessu starfi á undanförnum áratugum og stundum hafa þarfir gefandans verið mikilvægari en viðtakandans. Því miður. Spilling og örbirgð í þessum heimshluta er áreiðanlega að einhverju leyti á ábyrgð okkar, íbúa á Vesturlöndum. Góðu tíðindin eru hins vegar þau að nú eru gerðar meiri kröfur til þessa starfs og mér sýnist til dæmis að með þessu persónulega samstarfi við fólkið sem vinnur í gras- rótinni í Malaví hafi náðst að tryggja eins og kostur er að þetta skili þeim árangri sem að er stefnt. Það er mikilvægt að þetta fólk finni að það beri ábyrgð bæði gagnvart gef- endum og þiggjendum.“ Það er alltént ágætis byrjun. S kömmu eftir að KarlSigurbjörnsson tók viðsem biskup fyrir umfjórtán árum fór hann í heimsókn til annars Afríku- ríkis, Kenía, nánar tiltekið Pó- kot-héraðs, og nú þegar líður að því að hann láti af embætti fannst honum við hæfi að snúa þangað aftur – loka hringnum. „Fyrir um þrjátíu árum hófu íslenskir kristniboðar boðunar og þróunarstarf í Pókot, Norð- vesturhluta Keníu. Þá var þar varla nokkur kristinn maður en nú er vöxtur kirkjunnar mikill og allir sammála um að starf hennar skipti sköpum varðandi uppbyggingu sam- félagsins. Sjálfur upplifði ég mikla breytingu og framfarir þegar ég kom þarna á dög- unum.“ Hann nefnir hina alkunnu framlengingu á nútímamann- inum, símann, sem dæmi. „Fyrir fjórtán árum var fullyrt að meirihluti Afríkubúa myndi aldrei lifa það að sjá síma – núna eru gsm-símar úti um allt í Kenía. Raunar Malaví líka. Menn hafa verið óhemju- snöggir að tileinka sér þessa tækni. Það er undarleg sjón að sjá fáklætt og fátækt fólk með sveðjuna í annarri hendinni en gemsann í hinni. Menn stunda sín bankaviðskipti eins og ekk- ert sé í kofum sínum – gegnum símann,“ segir Karl sem kom ekki í svo aumt þorp að ekki væri fagurmáluð auglýsing frá símafyrirtæki á húsvegg. Fleira er til bóta. Unnið er að gerð aðalþjóðvegar frá höf- uðborginni, Nairobi, til Suður- Súdan, gegnum Úganda og segir Karl þá framkvæmd koma til með að tryggja íbúum þessara landa gríðarlegar sam- félagsbætur, en líka margvísleg „Þetta eru óskaplegar hörm- ungar og enda þótt margt hafi gerst varðandi lyf og forvarnir vantar enn mikið upp á. Mal- aría er líka landlæg og litlu virðist vera áorkað í að vinna bug á henni,“ segir biskup. Í Kapengúría í Pókot-héraði hitti Karl fyrir kristniboðana og hjónin Fjölni Albertsson og Fanneyju Ingadóttur sem hann segir hafa unnið afskaplega gott starf á vegum Samtaka ís- lenskra kristniboðsfélaga. Þar voru einnig á ferð kristniboð- arnir Ragnar Gunnarsson og Sigríður Hrönn Sigurðardóttir. „Þarna hefur náðst mikill ár- angur á undanförnum árum, bætt heilsufar og líðan og auk- in menntun. Fyrir vikið eru samfélagið og einstaklingarnir sterkari en áður. Það er mikið þakkarefni að við Íslendingar skulum hafa fengið tækifæri til að leggja okkar af mörkum til að létta þessu fólki lífið og leggja grunn að betra sam- félagi. Vitaskuld er auðvelt að einblína á vandamálin og ef til vill björgum við ekki heim- inum en takist okkur að hjálpa einni fjölskyldu, jafnvel bara einni manneskju, er það sigur út af fyrir sig.“ samfélagsleg og menningarleg vandkvæði. Víða er vá fyrir dyrum. Al- næmi fer enn sem logi um akur í Afríku og Karl segir alltaf jafnerfitt að hitta munaðarlaus börn sem misst hafa foreldra sína úr hinum skæða sjúkdómi. Sveðjan í annarri, gemsinn í hinni Karl í kirkju í Pókot. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því íslenskir kristniboðar komu þar fyrst fyrir 30 árum.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.