SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Síða 37

SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Síða 37
26. febrúar 2012 37 500 g sykur 2 dl vatn 500 g súkkulaði 8 msk. hveiti 500 g smjör 8 rauður 8 eggjahvítur Sykursírópið soðið og súkkulaðinu bætt út í, brætt og hrært vel saman, eins er farið að með smjörið þar næst, hveitið er sigtað út í og eggja- rauðurnar hrærðar saman við, að lokum eru eggjahvíturnar stífþeyttar og þeim blandað varlega saman við. Bakað í um 40 mín við 150 C, fylgj- ast vel með. Kremið á hana 70 g smjör 150 g konsum 1-2 msk. síróp allt sett saman í pott og látið kólna smávegis áður en það er sett á kökuna Hér er svo uppskrift að annarri, heitri súkkulaðiköku 8 egg 200 g sykur 100 g flórsykur 150 ml mjólk 100 ml rjómi 200 g smjör 480 g súkkulaði Egg og sykur þeytt saman á meðan mjólkin, rjóminn, smjörið og súkku- laðið er brætt saman. Svo er öllu blandað saman og allir eru glaðir! Frönsk „Jaqueline“-súkkulaðikaka Grilluð t-bone steik Kaupa þarf steikina með góðum fyrirvara og leyfa henni að bíða í ísskáp í um það bil 10 daga áður en hún er grilluð. Áður en steikin er grilluð er gott að smyrja hana vel með hvítlauksolíu og fersku chili. Svo er hún grilluð að hætti grill- meistara heimilisins og krydduð með salti og nýmöluðum pipar. Tillaga að meðlæti: Heimalagað kryddsmjör; íslenskt smjör látið bíða á bekk yfir nótt og hrært upp með ferskum hvítlauk, steinselju, pipar, fersku chili og bbq sósu. Svo er saltað eftir smekk. Hrært þar til smjörið fer að hvítna, þá sprautað í toppa eða kælt í rúllu Grillað grænmeti með steikinni: hægt er að grilla flest grænmeti, t.d. sveppi, tóm- ata, kúrbít, eggaldin og lauk. Allt er þetta mjög gott með nautinu. Um miðjan níunda áratuginnvoru fá pör heitari í Holly-wood en hasarmyndagoðiðSylvester Stallone og hin danska eiginkona hans, Brigitte Nielsen. Þetta háfætta og huggulega fyrrverandi módel lék meðal annars á móti bónda sínum í tveimur myndum, Rocky IV. og Cobra. Gagnrýnendur héldu svo sem al- veg vatni yfir frammistöðu Nielsen á hvíta tjaldinu en slúðurpressan gældi við parið. Síðan slettist upp á vinskapinn, Nielsen og Stallone skildu árið 1987, og hún hvarf úr hringiðunni. Stúlkan hefur samt haft sitthvað fyrir stafni síðan. Brigitte Nielsen fæddist í Rødovre 15. júlí 1963 og er því orðin 48 ára gömul. Móðir hennar var bókasafnsfræðingur en faðirinn verkfræðingur. Stúlkan sló ung í gegn í fyrirsætubransanum og skilaði sá árangur henni í faðm fótógenískra vöðvatrölla vestur í Bandaríkjunum. Nielsen hefur nú upplýst að hún átti vin- gott við Arnold Schwarzenegger áður en hún gekk að eiga Stallone. Gamli rík- isstjórinn virðist hafa margslunginn smekk á konum. Þá mun hún, samkvæmt nýjustu heimildum, hafa átt einnar nætur gaman með Sean Penn. Sem frægt er hefur Nielsen gert lítið úr bólfimi Stallones. „Hann er eins og kanína í rúminu.“ Þá segir hún hann hafa meðhöndlað sig eins og bílinn sinn meðan á hjónaband- inu stóð. „Það var hræðilegt.“ Af öðrum Hollywood-myndum Niel- sen má nefna Beverly Hills Cop II og Ga- laxys. Hvorug gerði atlögu að Óskari frænda. Hæfileikar snótarinnar liggja greinilega á fleiri sviðum en hún sendi frá sér tvær sólóplötur meðan hún bjó vestra, Every Body Tells a Story (1987) og I’m the One ... Nobody Else (1991). Mæltust þær þokkalega fyrir á meginlandi Evrópu. Það fór líka svo að Nielsen færði sig þangað og hefur komið ótrúlega víða við í kvikmyndum, sjónvarpi og tónlist síðan. Mest á Ítalíu (enda talar hún reiprenn- andi ítölsku) og í þýskumælandi löndum. Eftir að veruleikasjónvarp fór að ríða húsum hefur Nielsen farið mikinn á þeim vettvangi, leyfði meira að segja þýsku þjóðinni að fylgjast með þegar hún „end- urnýjaði“ á sér skrokkinn árið 2008 með atbeina lýtalækna. Hún verður seint sök- uð um tepruskap, blessunin. Í einum af þessum veruleikaþáttum kynntist Nielsen rapparanum Flavour Flav og sló sér í kjölfarið upp með honum um tíma. Hún á fimm hjónabönd að baki, meðal annars með leikstjóranum og ljós- myndaranum Sebastian Copeland og kappaksturshetjunni Raoul Meyer. Nú- verandi bóndi hennar er Ítalinn Mattia Dessi en vitaskuld var gerður raunveru- leikaþáttur fyrir sjónvarp um tilhugalíf þeirra og brúðkaup. Dessi er víst all- mörgum árum yngri en Nielsen. Nielsen á fjóra syni með þremur af þessum mönnum, engan þeirra þó með Stallone. Þeir eru á aldrinum 17 til 28 ára. Frægðinni getur fylgt mikið álag og að því kom að Nielsen gekk of geyst um gleðinnar dyr. Hún ritaði sig inn í áfengismeðferð árið 2007 og sneri þaðan sem ný manneskja, að eigin sögn. „Ég valdi að snúa við blaðinu. Það var ekki auð- velt en sannarlega tíma- bært,“ var haft eftir henni í tímaritinu People. Í kjöl- farið skellti Nielsen sér beint í veruleikaþátt í sjónvarpi um áfeng- issjúklinga í bata. Nokkuð traustar heim- ildir herma að hún hafi líka reykt sína síðustu sígarettu. Gott hjá kerlu. orri@mbl.is Brigitte Nielsen hóf feril sinn sem fyrirsæta í Danmörku. Brigitte Nielsen? Hvað varð um … Nielsen er líklega frægust fyrir að hafa verið gift Sylvester Stallone. Brigitte Nielsen í Vínarborg á dögunum. Reuters

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.