SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Page 40

SunnudagsMogginn - 26.02.2012, Page 40
40 26. febrúar 2012 Lífsstíll Leikarahrósið Það er skemmtilegt þegar leikarar koma manni á óvart. Hingað til hef ég litið á leikarann Will Ferrell sem sprelligosa. Leikara sem léki bara grínhlutverk og hlypi um berrassaður í bíómyndum. Í vikunni horfði ég hins vegar á myndina „Everything must go“ og fékk nýja sýn á leikarann. Hann getur greinilega alveg leik- ið „venjuleg“ og fremur al- varleg hlutverk líka. Þó er eitt- hvað glettið við hann sem heldur vissum húmor í karakt- ernum og söguþræðinum. Leikarahrós vikunnar frá mér fær Will Ferrell. Sjókæfa Til er félag er heitir Íslenska vitafélagið. Sótti ég skemmtilegan og fróðlegan fyrirlestur þar á miðviku- dagskvöld. Til umræðu var þorramatur og lýsi. Varð ég margs fróðari. Sumt hefði ég þó helst kosið að vita ekki. Trúi því samt varla að búin hafi verið til svokölluð „sjókæfa“ úr sjódauð- um rollum. En ýmislegt gerði nú fólk svosem til að bjarga sér. Mæli með fyrirlestrum félagsins fyrir þá sem þyrstir í þjóðlegan fróðleik. Ég veit svo sem ekkert hvort ég trúi á aðlífið sé fyrirfram planað. Að örlögin grípi ítaumana og eitt leiði jafnvel af öðru. Jú,líklegast hefur í það minnsta sumt sem gerist áhrif á annað. Í vikunni var hins vegar aug- ljóst að nú skyldi leiða mig áfram. Þegar ég vaknaði fannst mér líkaminn segja: „Jæja María, nú förum við í ræktina. Ég er orðinn svo stirður og aumur. Gerðu það nú fyrir mig að strita smá.“ Eins og í leiðslu með þessa rödd í höfðinu fór ég ósjálfrátt og reif íþróttafötin úr skápnum. Tróð þeim í töskuna og lofaði að hlýða röddinni sem leiddi mig áfram. Reyndar hefur skynsemin rekið mig í sund. Af því hef ég reyndar haft mikla ánægju og er sund mjög góð hreyfing. En ég fann að nú var kominn tími á að rífa aðeins í lóðin. Gera eins og tíu magaæfingar og kannski jafnmargar armbeygjur. Ég held að ég sé orðin algjör skorpumanneskja. Mér finnst gaman að stunda einhverja hreyfingu í tvo mánuði svo fæ ég ógeð. Þá verð ég að breyta til. Það á svo sem við um margt annað í lífinu eins og t.d. mat. Að sumu leyti er rútínan ósköp notaleg en stundum er ágætt að brjóta dálítið upp á hana. Ég ætla að reyna að vera dugleg í ræktinni fram á vor. Þá ætla ég að fara út að hjóla, ganga og synda enn meira. Leyfa lund og lík- ama að fylgja tíðarfarinu og hækkandi sól. Ég held að það skipti mjög miklu máli að hlusta á það sem líkaminn vill hverju sinn. Hann lætur okkur örugg- lega vita ef eitthvað mætti betur fara. Þá er að taka af skarið og fylgja honum eftir. Rifið í lóðin fram á vor Ég gekk eins og í leiðslu að fataskápnum. Tíndi íþrótta- fötin ofan í töskuna. Nú gengi þetta ekki lengur. Lífið og tilveran María Ólafsdóttir maria@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Kistan Það er ágætt að ganga í barndóm öðru hvoru og mik- ilvægt að gleyma ekki að leika sér. Er ekki ágætt að nota helgina til að slappa af og sleppa sér svolítið? Hér kemur ágætt ráð sem þú gætir nýtt þér. Endur- nærandi og skemmtileg samvera með fjölskyldunni gefur orkuskot fyrir komandi viku. Ekki veitir nú af í erli hversdagsins. „Drífðu þig nú út með krökkunum og búðu til drullukökur! Allt sem þarf er mold í fötu, vatn og prik til að hræra með. Leyfðu sköpunargleðinni svo að njóta sín þegar blandan er orðin þykk og meðfærileg og formaðu tertur og randalínur og skreyttu með smásteinum, skeljum, hundasúrum og blómum.“ 1001 leið til að slaka á, Susannah Marriot, Salka. Drullubakstur Ég heillaðist af þætti sem endurtekinn var í Rík- isútvarpinu nú í vikunni. Þætti um þau Elínu Thor- arensen og Jóhann Jónsson. Jóhann er skáldið sem samdi ljóðið velkunna Söknuð en Elín var þekkt sem matselja mikil og tók að sér marga kostgangara. Saga þeirra Elínar, sem Jóhann kallaði Brynhildi og hún hann Angantý, er allt í senn rómantísk og falleg, döpur og dramatísk. Elín var 15 árum eldri og hafði verið gift inn í heldri manna fjölskyldu. Þau áttu fal- legan tíma saman og voru augljóslega ástfangin. Það má sjá og heyra í bókinni Angantýr. En í bókinni segir Elín af ástarsambandi þeirra skötuhjúa. Ljóðin sem lesin voru í þættinum hrifu mig með sér. Eldheit- ar ástarjátningar í fagurlega ortum ljóðum. Frá tíma þegar orðin voru einhvern veginn svo miklu stærri og meiri. Mér finnst vanta meira af svona ástarljóðum í rómantíkina í dag. Kannski ég fari bara að semja. Eldheit ástarljóð Hampur er vistvænt trefjaefni sem hentar vel í barnaföt. Hampuppskera er mjög vaxandi í heiminum (uppskeran getur verið tilbúin eftir aðeins 100 daga), hún gefur af sér tvöfalt magn trefjaefnis á hverri ekru miðað við bómull og lítil þörf er á skordýraeitri, illgresiseyði eða vatni. Enn- fremur er hægt að nota næstum því alla plöntuna. Aftur er sáð strax eft- ir að skorið hefur verið upp og leiðir þetta af sér stöðuga endurnýjun kolefnis í jarðvegi og losar jarðveginn við illgresi og ofgnótt niturs og kemur þannig í veg fyrir mengun í vatnsbólum. Hamptrefjar eru lengri en bómullartrefjar, því er efnið ótrúlega endingarogtt og föt halda oftast forminu þrátt fyrir notkun og þvott. Veljið hamp sem ræktaður er í Evr- ópu. Fengið úr bókinni Uppeldi fyrir umhverfið, Vistvænar bleyjur, „græn“ leikföng, útivist, mildar hreinlætisvörur, lífrænt fæði, Susannah Mar- riott, Salka. Vistvænt efni í barnaföt

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.