Morgunblaðið - 12.03.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Alicante
*Flugsæti aðra leið með sköttum.
Netverð á mann.
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri • Sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
29.900 kr.*flugfr
á
Fyrstu sætin
á þessu frábæra verði
Bókaðu strax
á www.heimsferdir.is
Þökkum frábærar viðtökur!
Höfum bætt við páskaferð
28. mars - 10. apríl
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vinna við flokkun virkjanakosta fór
úr faglegum farvegi í pólitískan í júní
á síðasta ári þegar ráðherrar skipuðu
fulltrúa sína í starfshóp til að vinna úr
tillögum verkefnisstjórnar. Veru-
legar breytingar urðu á röðun virkj-
anakosta í drögum að þingsályktun-
artillögu um vernd og nýtingu
náttúrusvæða sem kynnt voru í ágúst
og enn er togast á um málið í stjórn-
arflokkunum eins og sést á því að út-
lit er fyrir að virkjanir í neðri hluta
Þjórsár verði lagðar til hliðar í þings-
ályktunartillögu til Alþingis.
Unnið hefur verið að rammaáætl-
un um virkjanir í rúman áratug.
Verkefnisstjórn sem skipuð var sér-
fræðingum skilaði tillögum í júní.
Hún raðaði 66 hugmyndum og tók við
það mið af nýtingar- og verndargildi.
Starfshópur iðnaðar- og umhverf-
isráðherra tók þá við og samdi drög
að þingsályktunartillögu um flokkun
virkjanakosta í verndar-, bið- og nýt-
ingarflokk.
Þær virkjanahugmyndir sem verk-
efnisstjórnin mat vænlegastar ná
flestar inn í nýtingarflokk. Sömu
sögu er að segja af þeim svæðum sem
hún taldi mikilvægast að vernda, þau
rata í verndarflokk.
Röðun verkefnisstjórnarinnar var
þó alls ekki fylgt varðandi stóran hóp
virkjana sem lenti þarna á milli.
Þannig voru miðlunar- og virkjana-
hugmyndir sem raðað var fyrir ofan
miðju í rammaáætlun með tilliti til
nýtingar og fyrir neðan miðju við mat
á verndargildi settar í biðflokk í drög-
um að þingsályktunartillögu sem
kynnt var tveim mánuðum síðar eða
jafnvel verndarflokk. Nefna má
Bitruvirkjun á Hellisheiði og Norð-
lingaölduveitu á Þjórsársvæðinu.
Áfram er haldið á þessari braut ef
marka má fréttir úr herbúðum
stjórnarflokkanna um að þrjár virkj-
anir í neðri hluta Þjórsár verði settar
í bið ásamt Skrokkölduvirkjun og
Hágönguvirkjun. Allar þessar virkj-
anir voru í nýtingarflokki í þings-
ályktunartillögunni og ofan við
miðju með tilliti til nýtingar í til-
lögum verkefnisstjórnarinnar
og neðan við miðju með tilliti
til verndunar. Þannig eru
tvær efri virkjanirnar í
Þjórsá í 15. og 16.
sæti í nýt-
ingu og að-
eins 51. og 52.
sæti í verndun.
Það yrði því kú-
vending ef þessar virkjanir verða
ekki í nýtingarflokki við afgreiðslu
Alþingis á málinu. Urriðafossvirkjun
er umdeildari. Nái þessar hugmyndir
fram að ganga verða ekki margar
fýsilegar vatnsaflsvirkjanir eftir og
Íslendingar þurfa að treysta á jarð-
varmavirkjanir til atvinnuuppbygg-
ingar.
Beðið niðurstöðu áætlunar
Miklir fjármunir hafa verið settir í
rannsóknir á þessum virkjanakostum
og undirbúningur langt kominn við
Þjórsárverkefnið. Orkan hefur þó
ekki verið seld þar sem útgáfa virkj-
analeyfa hefur beðið niðurstöðu um
rammaáætlun sem enn er ekki séð
fyrir endann á. Landsvirkjun hefur
beint áhugasömum kaupendum á
Þingeyjarsýslur, þar sem fyrirtækið
vinnur að undirbúningi virkjana til að
afhenda á iðnaðarsvæðinu við Húsa-
vík. Þess má geta að ef íbúar í Hafn-
arfirði hefðu samþykkt breytingar á
skipulagi sem óskað var eftir vegna
áforma um stækkun álvers Rio Tinto
Alcan í Straumsvík væri væntanlega
búið að virkja neðri hluta Þjórsár og
virkjanirnar komnar í gang. Aðrar
leiðir voru farnar í Straumsvík þegar
skipulagið var fellt og nú er verið að
virkja við Búðarháls til að auka ál-
framleiðslu í Hafnarfirði.
Úr faglegum farvegi
Virkjanir í neðri hluta Þjórsár fengu háa nýtingareinkunn en lága verndareinkunn
Röðun virkjanakosta hefur verið í pólitískum farvegi frá því í júní á síðasta ári
Morgunblaðið/RAX
Þjórsá Þrjár rennslisvirkjanir í neðri hluta Þjórsár eru í nýtingarflokki í drögum að þingsályktun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Það getur breyst.
„Mér finnst það
mjög miður að
málið skuli sett í
svona hráskinna-
leik,“ segir Gylfi
Arnbjörnsson,
forseti ASÍ, og
vísar til þeirrar
sáttar sem niður-
staða verkefnis-
stjórnar á síðasta
ári átti að verða
grunnur að. Telur hann að verið sé
að eyðileggja faglega vinnu síðustu
tíu ára með þeim hugmyndum sem
nú eru uppi og nota til þess pólitísk
rök. Telur hann slík vinnubrögð
skaða umhverfismálin í framtíðinni
og skaða horfur í atvinnumálum.
Eyðileggur faglega
vinnu síðustu tíu ára
Gylfi
Arnbjörnsson
„Þessar hug-
myndir lýsa í
hnotskurn í
hvaða ógöngum
þessi mál eru,
þau eru í gíslingu
virkjana-
andstæðinga sem
virðast bera nið-
ur allsstaðar þar
sem á að virkja,“
segir Vilhjálmur
Egilsson, framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins. Hann telur að
stöðvun virkjana í neðrihluta Þjórs-
ár muni hafa áhrif á fjárfestingar í
atvinnulífinu í mörg ár. „Trúverð-
ugleiki þeirra stjórnarliða sem tala
um atvinnuuppbyggingu á grund-
velli orkunýtingar er að engu orð-
inn.“
Eru í gíslingu and-
stæðinga virkjana
Vilhjálmur
Egilsson
Sigurður Ingi Jó-
hannsson, þing-
maður Framsókn-
arflokksins í
Suðurkjördæmi,
segir að nýjustu
vendingar í mál-
inu sýni að grund-
völlur þeirrar fag-
legu vinnu sem
lagt var upp með
sé næstum gufað-
ur upp og eftir standi pólitískt
plagg. Teknir hafi verið út góðir og
hagkvæmir kostir eins og
Norðlingaölduveita. Nú eigi að fella
út fleiri virkjanakosti í Þjórsá til að
halda friðinn á stjórnarheimilinu.
„Við fáum enn eitt árið í biðstöðu,
líka á það sem sátt er um því engin
virkjanaleyfi eru gefin út á meðan
rammaáætlun klárast ekki,“ segir
Sigurður.
Til að halda friðinn
á stjórnarheimilinu
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Á annað hundrað umsagnir bár-
ust um drög að þingsályktunar-
tillögu um vernd og nýtingu
náttúrusvæða. Í flestum voru
athugasemdir við virkjun neðri
hluta Þjórsár, meðal annars
vegna áhrifa á laxastofna. For-
maður Verndarsjóðs villtra laxa
telur að 90% af laxastofninum
muni þurrkast út.
Veiðimálastofnun hefur rann-
sakað ána í áratugi fyrir Lands-
virkjun. Áhrifanna gætir einkum
á neðsta hluta jökulvatnsins
því efri hlutinn var ekki fisk-
gengur fyrr en Landsvirkjun
lét byggja fiskistiga í Búða-
foss. Landsvirkjun segir að
mótvægisaðgerðir muni
draga eins og mögulegt er
úr neikvæðum áhrifum
virkjana og að áhrif
þeirra á laxastofninn
verði óveruleg.
Deilt um
áhrif á lax
FJÖLDI ATHUGASEMDA
Stjórnlagaráð lauk störfum sínum í
gær eftir að hafa komið aftur sam-
an til þess að svara þeim spurn-
ingum sem stjórnskipunar- og eft-
irlitsnefnd Alþingis beindi til þess.
Ráðið afhendir nefndinni svör sín í
dag.
Eiríkur Bergmann Einarsson,
fulltrúi í Stjórnlagaráði, sagði að
starfið hefði gengið vel og að
ráðinu hefði tekist að svara öllum
þeim spurningum sem fyrir það
voru lagðar, vel og ítarlega.
„Í sumum tilvikum var um að
ræða frekari skýringar og rök-
stuðning við það sem ráðið hafi lagt
til. Í öðrum tilvikum bendum við á
ýmsa valkosti varðandi aðrar leiðir
en þær sem við lögðum til í byrj-
un,“ sagði Eiríkur.
Hann sagði að þeir valkostir sem
ráðið hefði lagt til myndu ekki
raska þeim grunni sem tillaga ráðs-
ins að stjórnarskrá væri byggð á.
„Við bendum á að hægt væri að
setja ákvæði um málskotsrétt í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Einnig
skýrðum við ýmsa þætti varðandi
forsetakaflann og gerðum kaflann
um kosningar skýrari en hann var
áður,“ sagði Eiríkur.
Valkostir stjórnlagaráðs
raska ekki fyrri tillögu
Stjórnlagaráð skilar Alþingi svörum sínum í dag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fundað Stjórnlagaráðsfulltrúarnir Erlingur Sigurðarson, Þorvaldur Gylfa-
son og Ómar Ragnarsson við störf þegar ráðið kom saman aftur.