Morgunblaðið - 12.03.2012, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012
Hr. Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands.
Sigríður Þrúður Stefánsdóttir,
sérfræðingur á mannauðs-
sviði Marel.
Jón G. Hauksson,
ritstjóri Frjálsrar verslunar
og formaður Stjórnvísi.
Páll Harðarson, forstjóri
NASDAQ OMX Iceland.
Orri Hauksson, framkvæmda-
stjóri Samtaka iðnaðarins.
Dr. Ásta Bjarnadóttir, ráðgjafi
hjá Capacent.
STJÓRNUNARVERÐLAUN
STJÓRNVÍSI 2012
Í tilefni afhendingar Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2012 á morgun, hinn 13. mars, býður
Stjórnvísi til hátíðarmóttöku í Turninum í Kópavogi kl. 16.00 til 18.00.
Þetta er í senn verðlaunahátíð og ráðstefna þar sem þrír kunnir framkvæmdastjórar
úr atvinnulífinu flytja erindi um mikilvægi fjárfestinga við endurreisn atvinnulífsins.
Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhendir verðlaunin
og flytur stutt ávarp.
Þrír stjórnendur verða verðlaunaðir en yfir fjörutíu stjórnendur hlutu tilnefningu til
verðlaunanna og má sjá nöfn þeirra á vefnum www.stjornvisi.is.
Setning hátíðar: Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar og formaður Stjórnvísi.
Ráðstefnustjóri: Sigríður Þrúður Stefánsdóttir, sérfræðingur á mannauðssviði Marel.
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri eignastýringar Landsbankans:
Hvaða umhverfi viljum við skapa fjarfestum?
Páll Harðarson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland: Við mótum framtíðina.
Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins: Ekki eftir neinu að bíða.
Dr. Ásta Bjarnadóttir, ráðgjafi hjá Capacent, gerir grein fyrir vali dómnefndar
á stjórnendum ársins 2012.
Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir verðlaunin og flytur stutt ávarp.
Félagsmenn Stjórnvísi eru sérstaklega boðnir velkomnir ásamt öllu fag-
og áhugafólki um stjórnun.
Ókeypis aðgangur.
DAGSKRÁ
MIKILVÆGI FJÁRFESTINGA VIÐ ENDURREISN
ATVINNULÍFSINS
Hversu langt er fjárhagsleg endurskipulagning
fyrirtækja komin?
YFIRSKRIFT ERINDA
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir,
framkvæmdastjóri eigna-
stýringar Landsbankans.
13. mars nk. 16.00 til 18.00.
Á föstudaginn mun MND félagið, fé-
lag fólks með hreyfitaugahrörnun,
senda 40 feta gám með hjálpar-
tækjum og sjúkrarúmum til Lett-
lands þar sem hann mun gagnast
MND-sjúklingum þar í landi. Mark-
miðið er að koma upp hjálpartækja-
banka í Lettlandi að fyrirmynd ástr-
ölsku MND-samtakanna.
Að sögn Guðjóns Sigurðssonar,
formanns MND félagsins Íslandi,
hefur þessi hópur sjúklinga orðið illa
úti vegna mikils niðurskurðar í vel-
ferðarmálum í Lettlandi. „Það er al-
gjör skortur á aðstoð fyrir MND-
sjúklinga í Lettlandi. Þegar ég var á
ráðstefnu þarna þá sá ég búnaðinn
sem fólk var með og hann var alveg
hræðilegur. Biðtími eftir tækjum er
líka ótrúlega langur þarna, en fólk
þarf jafnvel að bíða í þrjú ár eftir
venjulegum hjólastól. Sem þýðir að
fólk með MND-sjúkdóminn deyr
margt áður en það fær einhver
hjálpartæki,“ segir Guðjón.
Auk gámsins mun iðjuþjálfi frá
Landspítalanum fara til Lettlands til
að kenna starfsmönnum hjálpar-
tækjabankans hvernig á að nota
tækin. Einnig er stefnt af því að
bjóða fagfólki í Lettlandi til Íslands
til frekari þjálfunar.
Nauðsynleg hjálp-
artæki til Lettlands
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Til hjálpar Hjálpartækjum komið í gáminn við St. Jósefsspítala í Hafnarfirði um helgina.
Helgi Ólafsson,
stórmeistari í
skák, mun segja
frá einvígi ald-
arinnar í hádegis-
fyrirlestri í Þjóð-
minjasafni
Íslands á morgun
klukkan 12:05.
Fyrirlesturinn
er hluti af fyrir-
lestraröðinni Fræðslufyrirlestrar
Þjóðminjasafns Íslands. Skákeinvíg-
ið var háð í Reykjavík sumarið 1972.
Þar tókust á fulltrúar risaveldanna
á tímum kalda stríðsins, Bandaríkja-
maðurinn Bobby Fischer og sovéski
heimsmeistarinn Boris Spassky.
Í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá
einvíginu stendur nú yfir sýning í
Þjóðminjasafni Íslands um einvígi
aldarinnar. Á sýningunni eru munir
og myndir frá skákeinvíginu 1972.
Fyrirlestur í tilefni
40 ára afmælis
einvígis aldarinnar
Helgi Ólafsson
Mottumars, ár-
vekni- og fjáröfl-
unarátak
Krabbameins-
félagsins vegna
baráttunnar gegn
krabbameinum
hjá körlum, hefur
nú staðið í 10
daga. Þegar hafa
safnast rúmlega
8,2 milljónir
króna. Ekki verður einungis hægt
að styrkja félagið með góðri mottu
heldur munu aðildarfélög Krabba-
meinsfélagsins um land allt selja
lyklakippur til ágóða fyrir átakið
dagana 9. til 23. mars. Fyrirmynd
lykklakippunnar er yfirvaraskegg
Árna Þórs Jóhannessonar sem var
útnefnt „fegursta mottan 2011“ af
sérstakri dómnefnd.
Mottumars fer
mjög vel af stað í ár
Motta Seldar verða lyklakippur til
styrktar baráttu gegn krabbameini.
Árni Þór
Jóhannesson
Tilkynningum til barnaverndar-
nefnda fækkaði um 6,5% á árinu
2011 samanborið við árið 2010.
Fjöldi tilkynninga á árinu 2011 var
8.661, en 9.264 árið á undan, að því
er segir á vef Barnaverndarstofu.
Tilkynningum á höfuðborgar-
svæðinu fækkaði um tæplega 2% og
um 17% á landsbyggðinni þegar allt
árið er skoðað. Flestar tilkynningar
voru vegna áhættuhegðunar barna
eða 44,4% árið 2011, en 47,2% árið
2010. Alls voru 31,6% tilkynninga
árið 2011 vegna vanrækslu, en
30,6% árið 2010. Hlutfall tilkynn-
inga um ofbeldi árið 2011 var
23,1%, en 21,6% árið 2010.
Tilkynningum
fækkaði milli ára