Morgunblaðið - 12.03.2012, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012
fást hjá okkur
L A U G A V E G I 3 2 · S J A D U . I S
Komdu og sjáðu
Á Vísindavefnum
segir: „Afleiður eru
mjög víður flokkur
verðbréfa sem öll
hafa það sameig-
inlegt að greiðslu-
skylda útgefanda og
þar með verðmæti af-
leiðanna fer eftir
verðþróun annarrar
eignar (hugsanlega
margra). Nafnið vísar
því til þess að verð-
mæti afleiðanna leiðir af verðþró-
un annarra eigna.“ Ennfremur
segir: „Því eru lítil takmörk sett á
hverju afleiður geta byggt. Und-
irliggjandi eignir þurfa til dæmis
ekki að vera fjármálaeignir…“
Samkvæmt Wikipedia, frjálsa
alfræðiritinu segir: „Afleiða í við-
skiptum er samningur eða fjár-
málagerningur þar sem und-
irliggjandi verðmæti þeirra fer
eftir verðþróun annarrar eignar
eða eigna. Nafnið vísar því til
þess að verðmæti verðbréfsins er
leitt af verðþróun annarra eigna.
Því eru lítil takmörk sett á hverju
afleiður geta byggt. Sem dæmi
má nefna hlutabréf, húsnæðislán,
almenn lán, verðbréf, gjaldmiðla,
hagvísitölur eða vexti banka.“
Jafnframt segir Wikipedia: „Þar
sem afleiður eru í eðli sínu samn-
ingar á milli tveggja aðila þá eru
því nánast engin takmörk sett
hvað getur verið sem viðmið, eða
undirliggjandi eign, þegar verð-
mæti afleiðusamningsins er reikn-
að. Þannig eru til afleiður sem
reiknast út frá veðri, t.d. fjöldi
góðviðris- eða rigningardaga á
ákveðnu landsvæði, eða ævilengd
einhvers ákveðins hóps fólks, t.d.
meðlima í lífeyrissjóði. Þetta út-
skýrist af því hvernig afleiður eru
notaðar til að verjast áhættu.
Appelsínuræktendur í Flórída eru
háðir veðri og rekstraraðilar líf-
eyrissjóða háðir því að raunveru-
leg ævilengd sé ekki lengri en
þær ævilíkur sem voru notaðar til
að reikna út réttindi til lífeyr-
isgreiðslna. Það er því eðlilegt að
þessir aðilar reyni að verjast
þessari áhættu en til þess má
nota afleiður. Skilyrðið er að
finna aðila sem er tilbúinn til þess
að taka áhættuna, gegn greiðslu,
á því að veðrið verði vont eða
meðalævi lengist ekki úr hófi.“
Sá aðili sem tekur á sig áhætt-
una að taka verð-
tryggð húsnæðislán
er hinn almenni ís-
lenski neytandi. Ís-
lensk fjármálafyr-
irtæki og
fjármagnseigendur
tryggja sig gegn
verðbólguskotum,
slæmri hagstjórn,
hækkun eldsneyt-
isverðs, launaskriði,
hrávöruverðshækk-
unum, skattahækk-
unum, fallandi gengi
krónunnar o.s.frv. með útgáfu
flókinna verðtryggðra húnæðis-
lánaafleiðna (verðtryggð húsnæð-
islán) sem almenningur situr uppi
með og hefur enga leið til að vita
hver endanleg upphæð til greiðslu
er. Almenningur fær lægri vexti,
en sem nemur á óverðtryggðu
bréfi í staðinn fyrir þessa verð-
tryggingu fjármálafyrirtækisins
og er það enn ein vísbending um
að um afleiðu er að ræða.
Samkvæmt Fjármálaeftirlitinu
eru afleiður skilgreindar sem
flóknar fjármálaafurðir og sam-
kvæmt lögum nr. 108/2007, um
verðbréfaviðskipti sem tóku gildi
1. nóv. 2007, má eingöngu selja
afleiður til viðurkennda gagnaðila
og fagfjárfesta. Almennir fjár-
festar njóta sérstakrar verndar
sem m.a. felst í því að þeim er
óheimilt að taka þátt í flóknum
fjármálagjörningum á borð við af-
leiðuviðskipti. Þess vegna er það
mjög líklegt að verðtryggð lán
sem seld voru til almennings yfir
borðið eftir 1. nóv. 2007 séu ólög-
leg.
1. nóv. 2007 var vísitala neyslu-
verðs til verðtryggingar 278,1
stig, en er nú 391 stig. Vísitalan
hefur því hækkað um 40,5% frá
upptöku laga nr. 108/2007 um
verðbréfaviðskipti. Hugsanlega
verður að leiðrétta öll verðtryggð
neytenda- og húnæðislán sem
seld voru eftir 1. nóv. sem því
nemur, ef dómstólar komast að
því hvort lög nr. 108/2007 um
verðbréfaviðskipti hafa verið
brotin. Almennir fjárfestar hafa
engar forsendur til að meta þá
áhættu, sem fylgir verðtryggðum
neytenda- og húsnæðislánum og
verður að leiðrétta þetta ójafn-
vægi í húsnæðislánakerfinu sem
fyrst.
Stjórnmálahreyfingin Hægri
grænir, flokkur fólksins, ályktar
svo að fjármálastofnanir hafi
blekkt þúsundir íslenskra heimila
til þess að taka verðtryggðar
neytenda- og húsnæðislánaafleið-
ur frá 1. nóv. 2007, og ætlar
flokkurinn að berjast fyrir fullri
leiðréttingu á þessum afleiðu-
lánum landsmanna. Skýrsla Hag-
fræðistofnunar staðfestir enn-
fremur að gríðarleg mistök hafa
átt sér stað við stofnun nýju
bankanna við yfirfærslu verð-
tryggðra lána yfir í þá ef þau
verða dæmd ólögleg. Flokkurinn
birtir hugmyndir sínar að lausn-
um á skuldavanda heimilanna
þann 21. apríl næstkomandi.
Eru verðtryggð
húsnæðislán
afleiður?
Eftir Guðmund F.
Jónsson
Guðmundur F.
Jónsson
» Almennir fjárfestar
njóta sérstakrar
verndar sem m.a. felst í
því að þeim er óheimilt
að taka þátt í flóknum
fjármálagjörningum á
borð við afleiðuvið-
skipti.
Höfundur er viðskiptafræðingur og
formaður Hægri grænna, flokks
fólksins
Um síðustu áramót
gaf Völuspá útgáfa út
bókina „Í straum-
hvörfum“, hundrað ára
sögu Fiskifélags Ís-
lands (FÍ) sem stofnað
var 11. febrúar 1911.
Bókin er rituð af
þeim Hirti Gíslasyni
blaðamanni og Jóni
Hjaltasyni sagnfræð-
ingi. Í útgáfuteiti sem
félagið efndi til fylgdu
höfundarnir verkinu úr hlaði. Í máli
Jóns Hjaltasonar, sem skráði fyrri 50
árin, fullyrti hann að ekkert íslenskt
félag eða samtök hefði haft jafn mikil
áhrif á umhverfi sitt og FÍ. Hann
nefndi upphaf slysavarna, landhelg-
isgæsluna, rannsóknastofnun fiskiðn-
aðarins o.s.frv. og að í raun hefði FÍ
verið stór hluti af sjávarútvegsráðu-
neytinu. Hann fullyrti að nánast öll
verkefni sem vörðuðu sjávarútveginn
á þessum árum hefðu annað hvort
hafist hjá FÍ eða verið komið til fram-
kvæmda fyrir atbeina félagsins.
Hvað gerðist?
Í dag er félagið aftur á móti verk-
efnalaust. Menn spyrja eðlilega hvað
gerðist; af hverju er þannig komið
fyrir félagi sem hafði næg verkefni á
sinni könnu stærstan hluta síðustu
aldar? Við lestur bókarinnar finnst
mér koma nokkuð glöggt í ljós að
undanhaldið hófst strax á sjöunda
áratug liðinnar aldar. Um ástæð-
urnar eru skiptar skoðanir eins og
gengur.
Því er meðal annars haldið fram að
á sama tíma hafi samtök þeirra sem
starfa í greininni verið að eflast og því
ekki þurft á sameiginlegum vettvangi
að halda til þess, bæði að samræma
stefnumálin og koma þeim í fram-
kvæmd. Vafalítið er hér að finna
hluta skýringarinnar en fráleitt alla.
Fyrir liggur að hlutverk
einstakra félaga innan
sjávarútvegsins hefur
breyst verulega á þess-
um árum. Benda má á
að samtök innan fisk-
vinnslunnar hafa nú
sameinast undir einn
hatt, „Samtök fisk-
vinnslustöðva“ (SF),
sem flest eru tengd út-
gerð með einhverjum
hætti; sum alfarið í eigu
útgerðar en önnur að
hluta til.
Því eru þeir tímar liðnir að útgerð-
in semji við fiskkaupendur um fisk-
verð líkt og tíðkaðist fyrir daga Verð-
lagsráðs sjávarútvegsins sem var
lögbundið 16. des. 1961 þar sem illa
hafði gengið að semja við fiskkaup-
endur um fiskverð eða svo að t.d. á
árinu 1960 tókust ekki samningar
fyrr en að lokinni vorvertíð, og það
ásamt öðru rak á eftir setningu lag-
anna.
Breytt hlutverk SF kemur t.d.
glöggt í ljós þegar sjómenn eru að
semja um fiskverð. Þá gera þeir það
ekki við SF sem væri eðlilegast held-
ur við LÍÚ. Ef allt væri eðlilegt ætti
LÍÚ að eiga samleið með sjómönnum
um að ná fram sem hæstu fiskverði;
það gerir LÍÚ ekki þar sem vinnslan
er að stærstum hluta í eigu útgerð-
arinnar. Hagsmunir LÍÚ felast því í
að hafa verðið sem lægst enda má
segja að fiskverð í beinu sölunni hafi
ekki annan tilgang en að ákvarða
laun sjómanna.
Í mínum huga er SF ekkert annað
en hluti af LÍÚ og verður bráðlega
aflagt sem sjálfstætt félag, en gert að
deild innan LÍÚ þar sem fram-
kvæmdastjóri LÍÚ verður einnig
framkvæmdastjóri SF og skrifstof-
urnar trúlega sameinaðar í framhald-
inu.
Þessi þróun hefur leitt til þess að
LÍÚ er alltaf að fá meiri og meiri völd
innan sjávarútvegsins sem leiðir til
þess að þeim sem þar stjórna finnst
ekki koma til greina að aðrir, eins og
t.d. Fiskifélagið, hafi forsvar í ein-
hverjum málum, eiginlega sama
hversu fábrotin þau eru. Þar verður
vilji LÍÚ að ráða í einu og öllu. Þar
sem sumir stjórnarmanna FÍ voru
ekki tilbúnir að lúta því ægivaldi
efndi framkvæmdastjóri LÍÚ til
vikulegra funda með fulltrúum aðild-
arfélaga FÍ á árunum 2008 og 2009 til
þess að sannfæra viðkomandi um
nauðsyn þess að leggja FÍ niður, tími
samtaka af þessu tagi væri löngu lið-
inn.
Þessi boðskapur gekk í einhverja
fulltrúa aðildarsamtakanna enda inn-
an þeirra líkt og annars staðar slang-
ur af Sumarhúsa-Björtum sem telja
hag sínum og sinna best borgið í
hokri af einhverju tagi, samstarf og
samvinna með öðrum er eitur í þeirra
beinum. Með því yrði þeirra sjálf-
stæði ógnað á einhvern hátt. Bjart-
arnir í íslensku samfélagi hafa ætið
verið þeirrar skoðunar að betra sé að
hverfa úr þessum heimi örsnauður og
beinaber, en að nafninu til sinn eigin
herra, í stað þess að liggja undir því
ámæli, jafnvel í öðrum heimi, að hafa
einhverntímann á lífsgöngunni tekið
tillit til skoðana annarra.
Að mínu mati eru heildarsamtök í
sjávarútvegi ekki síður nauðsynleg í
dag en þau voru við stofnun FÍ, þó
ekki væri til annars en að samræma
stefnur og áherslur þeirra sem þar
starfa þannig að greinin komi fram
oftast sem ein heild út á við.
Afdrifarík mistök
Auðvitað urðu stjórnendum FÍ á
skyssur á meðan það hét og var. Að
mínu mati var stærsta og afdrifarík-
asta skyssan þegar LÍÚ kom þeim
skilaboðum til stjórnar FÍ, líklega
1996 eða 9́8, að samtökin myndu ekki
senda fulltrúa á næsta fiskiþing
vegna óánægju með starfsemi FÍ. Í
stað þess nú að fagna þessari ákvörð-
un ákvað stjórn FÍ að reyna að fá
LÍÚ til þess að draga ákvörðunina til
baka, sem því miður urðu lyktir máls-
ins.
Mitt mat er að ef FÍ hefði þá losnað
undan ægivaldi LÍÚ væru samtökin á
góðri siglingu í dag með Lands-
samband smábátaeigenda innan
sinna vébanda sem talsmann og verð-
ugan fulltrúa útgerðarinnar í landinu.
Stóra skyssan
Eftir Helga Laxdal »Heildarsamtök í
sjávarútvegi eru
ekki síður nauðsynleg
nú en þau voru fyrir 100
árum.
Helgi Laxdal
Höfundur er vélfræðingur og fyrrver-
andi formaður stjórnar FÍ.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu not-
anda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.