Morgunblaðið - 12.03.2012, Page 9

Morgunblaðið - 12.03.2012, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012 Laugavegi 168 • 101 Rvk. • Sími 510 8888 Opið alla virka daga 8:00-18:00 • neyd.is Smíðum og forritum flestar gerðir bíllykla Vantar lykla? LÁSASMIÐIR - OPNUM ALLT! • Húslyklar • Lyklakerfi • Sílendrar • Peningaskápar • Hurðapumpur • Láshús og fylgihlutir Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C Opið alla virka daga 11-18 og laugardaga frá 11-16 NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VÍKU Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Enn eitt húsið bætist við á athafna- svæði Bláa lónsins á vormánuðum. Byggt verður þjónustuhús við bíla- stæðin við baðhúsið. Reynslan hefur sýnt að mikil þörf er á betri aðstöðu við bílastæði Bláa lónsins. „Við fáum marga gesti með hópferðabílum sem eru í reglu- legum ferðum á milli Leifsstöðvar, Bláa lónsins og Reykjavíkur. Þarna er biðstöð fyrir gestina,“ segir Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins. Í húsinu sem verður 120 fer- metrar að flatarmáli verður tösku- geymsla og snyrtingar, jafnvel hægt að fá kaffi. Frá bílastæðunum er gengið um 200 metra göngugjá að bað- staðnum. Við stæðin hefur undan- farin sumar verið bráðbirgðahús þar sem fólk hefur getað geymt töskur sínar á meðan það heimsæk- ir baðstaðinn. „Við verðum einnig með þjón- ustumiðstöð þar sem við ætlum að upplýsa gesti okkar um það sem svæðið hefur upp á að bjóða, hvetja þá til að staldra lengur við og upp- lifa Reykjanesið. Þetta er aukin þjónusta við gestina,“ segir Grímur. Hann segir að Bláa lónið sé í samvinnu við aðra ferðaþjónustuað- ila á svæðinu, meðal annars í Grindavík, og Saltfisksetrið í Grindavík og Víkingaheima í Reykjanesbæ. „Við viljum reyna að nýta best þann segul sem Bláa lónið er fyrir svæðið,“ segir Grímur. Vonast er til að framkvæmdir við bygginguna geti hafist á næstu tveimur vikum og að það verði tilbúið um miðjan júní. Kostnaður er áætlaður 48 milljónir kr. Húsið er teiknað af arkitekt Bláa lónsins, Sigríði Sigþórsdóttur hjá Basalt arkitektum, og er í sama stíl og baðstaðurinn. Gefa út bók um lónið Í ár verða liðin 20 ár frá stofn- un Bláa lónsins hf. Gestum hefur fjölgað flest árin á þessum tíma og fór gestafjöldinn yfir 400 þúsund á árinu 2007. Gefin verður út bók af því tilefni og fleira gert til að minn- ast tímamótanna. Íslensk ferðaþjónusta er í mik- illi sókn og stefnir í aukningu í ár, enn eitt árið. Nýtt þjónustuhús við Bláa lónið  Gestir geta geymt töskur í húsi við bílastæðin og fengið sér kaffi  Upplýsinga- og bókunar- miðstöð fyrir Reykjanes  Viljum nýta segulinn Bláa lónið sem best, segir forstjórinn Þjónustuhús Aðstaða þeirra fjölmörgu gesta sem koma með rútum í Bláa lónið batnar mjög þegar nýtt hús rís við bílastæðin. „Við erum aðallega að þessu til að stríða þessum stóru fyrir sunnan,“ segir Hallgrímur Sveinsson, stofn- andi Vestfirska forlagsins sem vinn- ur að því að hefja Basil fursta, kon- ung leynilögreglumanna, til vegs og virðingar á ný. Fyrsta heftið, Eitr- aðir demantar, er komið út. Ævintýrin um Basil fursta komu fyrst út á Ísland 1939 til 1941, þá í þremur þykkum bókum. Síðan komu þau út í fjölmörgum heftum, hvert með sjálfstæðri sögu. Þau voru svo endurútgefin á sjöunda áratugnum en hafa verið fágæti safnara í mörg ár. „Það lásu þetta allir strákar og jafnvel heimasæturnar í sveitinni líka,“ segir Hallgrímur. „Í þeirri glæpahrinu sem gengið hefur yfir þjóðina á undanförnum árum og ekki sér fyrir endann á hef- ur Vestfirska forlagið ákveðið að gamni sínu að kalla á furstann til að smúla dekkið,“ segir í tilkynningu Hallgríms og hann bætir við í sam- tali við Morgunblaðið að til viðbótar þessum bókmenntun komi glæpa- myndir sem haldið sé að börnum og fullorðnum. Ævintýri Basils fursta og þeirra illvirkja og glæpakvenda sem hann var sífellt að koma í hend- ur réttvísinnar séu ekki nærri eins heilsuspillandi. „Auðvitað er þetta líka glæpahyski, við drögum ekki fjöður yfir það, en ekkert mann- skemmandi. Lýs- ingarnar eru ekki eins ógeðslegar og í glæpahrinunni sem nú ríður yfir,“ segir Hallgrímur og bætir því við að yfirleitt hafi hinn dularfulli fursti náð að bjarga stúlk- um úr ótrúlegustu hremmingum. Því megi segja að ævintýri hans séu sigur hins góða yfir hinu illa. Höfundar ævintýranna er ekki get- ið og hafa verið ýmsar hugmyndir uppi. Morgunblaðið þóttist hafa upp- lýst málið fyrir tæpum tuttugu árum með því að nefna nafn danska rithöf- undarins Niels Meyn sem höfundar- ins og studdist blaðið þar við athug- anir Ásgeirs Eggertssonar fjölmiðlafræðings. Jafnframt kom fram að Páll Sveinsson, barnaskóla- kennari í Hafnarfirði, hafi íslenskað Basil fursta að mestu. Hallgrímur segir þó enn unnið að rannsókn á höfundi Basils og lofaði að láta vita þegar hann væri fundinn. helgi@mbl.is Allir strákar lásu Basil fursta  Útgáfa til höfuðs glæpahrinunni Mannbjörg varð í gærkvöldi í Hafn- arfjarðarhöfn. Tilkynnt var um níu- leytið um mann á flæðiskeri á brim- garði við Norðurgarð og voru lögregla, slökkvilið og björgunar- sveitir kallaðar út og tókst þeim að bjarga manninum um borð í bát. Maðurinn slasaðist ekkert. Jónas Guðmundsson hjá Slysavarnafélag- inu Landsbjörg segir að maðurinn hafi verið við veiðar þegar hann lenti í sjálfheldu og að betur hafi farið en á horfðist í fyrstu. Bjargað af flæði- skeri við höfnina Karlmaður á sextugsaldri liggur enn á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hafa orðið fyrir fólskulegri líkamsárás á lögmannsstofu í Reykjavík. Þær upplýsingar feng- ust frá lækni á gjörgæsludeild Landspítalans að ástand mannsins væri svipað og áður. Honum er enn haldið sofandi í öndunarvél en hann er með mikla stunguáverka. Ástand mannsins svipað og áður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.