Morgunblaðið - 12.03.2012, Síða 14

Morgunblaðið - 12.03.2012, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012 Fylgstu með í MBL sjónvarpi alla mánudaga Marta María ræðir við einstaklinga sem glímt hafa við offitu og haft betur í baráttunni. H a u ku r 0 9 b .1 1 Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Haukur Halldórsson hdl. haukur@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, lögg. verðbr.- og fasteignasali, brynhildur@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hrl. sigurdur@kontakt.is Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta. Skráning á www.kontakt.is • Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar. Upplýsingar og skráning á www.kontakt.is. • Sigurplast - umbúðir. Rótgróið plastframleiðslufyrirtæki. Sjá nánar á forsíðu www.kontakt.is. • Heildverslun með vinsælar snyrtivörur fyrir fagfólk. Ársvelta 60 mkr. Góð afkoma. • Rótgróið gólfefnafyrirtæki í mjög góðum rekstri. Ársvelta 200 mkr. EBITDA 20 mkr. • Glæsilegur veitingastaður á besta stað í Reykjavík. Góð velta og afkoma. • Innflutningsfyrirtæki með vörur fyrir gróðurhús. Ársvelta 100 mkr. og mjög vaxandi. Góð afkoma. • Rótgróið framleiðslufyrirtæki á einkennisfatnaði óskar eftir fjármála- eða framkvæmdastjóra og meðeiganda. Starfssvið m.a. fjármál og innkaup. 20-30% hlutur í boði fyrir 12-17 mkr og frekari kaupréttur mögulegur. • Heildverslun með vinsælar sérvörur. Ársvelta 70 mkr. EBITDA 15 mkr. • Stórt þjónustufyrirtæki í ræstingum. Traustir viðskiptavinir og góð afkoma. • Mjög spennandi innflutningsfyrirtæki með vörur fyrir kæliiðnaðinn. • Heildsala með þekkt merki í tískufatnaði. Selur vörur í 20 verslunum um land allt, auk eigin verslunnar í Kringunni og outlets á besta stað. Ársvelta um 250 mkr. Guðrún Sóley Gestsdóttir gudrunsoley@mbl.is Það er fítonskraftur í briminu sem herjað hefur á Víkurfjöru síðustu daga. Öflug suðvestanátt hefur geis- að á þessum slóðum að undanförnu með þeim afleiðingum að sjórinn sækir langt inn á land með tilheyr- andi sandfoki. Brimið hefur reynst íbúum Víkur þungt í skauti og í október á síðasta ári var reistur nokkur hundruð metra sandfangari í sjónum beint suður af Víkurskála til að hamla sandburði og foki. „Hann er strax farinn að sanna sig“ segir Jónas Er- lendsson í Fagradal, fréttaritari Morgunblaðsins. ,,Vestan við fang- arann er komin töluverð fjara en austan við hann er fjaran aftur á móti eins og hún var.“ Jónas segir áhuga vera á að reisa annan sand- fangara austar til að hindra brimið, en ekki sé ljóst hvort af því verði. Hámark á fullu tungli Hugmyndin að uppsetningu sand- fangarans segir Jónas vera komna frá Landeyjarhöfn en aðferðin felst í því að byggja varnargarð þvert á ríkjandi straum þannig að straum- urinn stöðvist og myndi hringiðu og þar með sekkur sandurinn á því svæði til botns og byggir upp nýtt land. ,,Þetta hefur auðvitað skapað vandamál hjá þeim sem við nýtum okkur hér,“ segir Jónas. „Vita- og hafnamálastofnun ætlaði í fyrstu að setja garð meðfram ströndinni við Landeyjarhöfn til að verja hana, en reynslan af höfninni varð til þess að þeir settu garð út í sjó, áþekkan þeim sem við höfum sett upp hjá okkur.“ Hann segir suðvestanáttina hafa geisað nánast stöðugt það sem af sé árinu, og óvenjulegt sé að það vari svo lengi. Brimið hefur valdið landbroti austan við nýjan sandfangara en vestan við hann er farinn að safnast sandur í fjöruna. Að sögn Jónasar í fer brimið síst minnkandi. ,,Það er komið fullt tungl og þá nær brimið hámarki“. Hann segir sjóinn ganga á land í mesta briminu. ,,Ölduskaflarn- ir ganga með suðvestanáttinni inn á land og sandurinn í því. Þá gengur beinlínis sandstormur yfir þorpið og í fyrradag voru sandskaflar beggja vegna við þjóðveginn.“ Vegurinn er um það bil 1-2 kílómetra frá sjónum og berst sjórinn í sumum tilvikum upp á veginn. ,,Það þarf þá í það minnsta ekki að hálkuverja veginn á meðan,“ segir Jónas kíminn. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Bjargvættur Sandfangari suður af Víkurþorpi sem var tilbúinn í byrjun vetrar er strax farinn að safna að sér veru- legum sandi vestan við garðinn. Myndin er af garðinum og fjörunni vestan við hann. Sandfangarinn reynst vel í hörðu briminu Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Víkurfjara Gríðarlegt brim hefur valdið landbroti austan við nýjan sand- fangara. Með briminu berst mikið magn af sandi sem gengur yfir Vík.  Mikið landbrot við Vík í Mýrdal  Sandur sækir í bæinn Ljósmynd/Bryndís Fanney Harðardóttir Sandstormur Sandurinn fýkur upp í þorpið, íbúum til ama og tjóns. Bryndís Harðadóttir, íbúi við Mánabraut í Vík í Mýrdal, hefur fengið að finna fyrir sandfoki í kjölfar brimsins. ,,Ég keyri með fulla kerru af sandi af lóðinni hjá mér, úr portinu, innkeyrslunni og garðinum.“ Hún hefur þurft að glíma við sandfokið um árabil en það hefur valdið eignatjóni hjá henni. ,,Ég hef í gegnum árin misst nokkrar rúður og það er sama baráttan á hverju ári í febrúar og mars.“ Bryndís hefur reynt að sporna gegn skemmdum á gleri með ýmsum aðferðum, meðal annars bar hún eitt sinn koppafeiti á rúðurnar, sem hún segir ekki hafa virkað. Hún hefur þess í stað sett sandblásið gler í alla glugga og segir eigendur allra húsa við Mána- og Ránarbraut gera hið sama. Að mati Bryndísar er lausnin á sandfokinu fólgin í ræktun á melgresi í fjörunni. ,,Melurinn er á undan- haldi og hefur ekki verið haldið við sem skyldi.“ Að sögn Bryndísar virkar sandfangarinn nýi ágætlega, en melgresið sé lykillinn að því að losna við fokið með öllu. Hún segir melgresi hafa verið sáð í mörg ár með góðum árangri en svo hafi því verið hætt, sennilega vegna peningaleysis. ,,Hér er brýn þörf fyrir að rækta upp melinn, að sá melgresi og bera á – það er lausnin á vandanum.“ Fyllir kerru af sandi á hverju ári „MELGRESI HINDRAR SKEMMDIR AF VÖLDUM SANDFOKS,“ SEGIR ÍBÚI VIÐ MÁNABRAUT Sandskaflar Innkeyrslur fyllast árlega af sandi. Ljósmynd/Bryndís Fanney Harðardóttir - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.