Morgunblaðið - 12.03.2012, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.03.2012, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012 Hvíld Börn eru gædd þeim góða hæfileika að geta lagt sig nánast hvar sem er og þurfa enga mjúka dýnu til þess. Stúlkur þessar hvíldu sig þar sem þær voru í Hörpu í gær og horfðu til hafs. Árni Sæberg Íslenskur iðnaður hefur styrkst gríð- arlega á síðustu tveim- ur áratugum með upp- byggingu áliðnaðarins hér á landi og segja má að Ísland hafi með þessu tekið stórt skref í átt til iðnvæðingar langt á eftir þeim lönd- um sem við berum okk- ur helst saman við. Samhliða þessu hafa ís- lensk verkfræðifyrirtæki styrkst verulega með því að íslenskir tækni- menn hafa tekið virkan þátt í þessari þróun og leitt hana í mörgum til- fellum. Með þessu hefur skapast mikill fjöldi nýrra og fjölbreyttra starfa fyrir íslenska tæknimenn, bæði innan stóriðjufyrirtækjanna og utan þeirra. Störfin snúa ekki bara að uppbyggingu iðnfyrirtækjanna heldur ekki síður að rekstri þeirra, viðhaldi og þróunarverkefnum. Um er að ræða störf á nýjum sviðum og í mörgum tilfellum öðruvísi störf en ís- lenskir tæknimenn unnu áður, s.s. á sviði véla- og rafmagns, iðnaðarferla, reksturs, viðhalds o.fl. Í dag er allt að helmingur af veltu stærstu verkfræðifyrirtækja lands- ins tengdur iðnaði, þar af langmest stóriðjunni í landinu. Sama má segja um önnur fyrirtæki sem þjónusta þennan iðnað, s.s. vélsmiðjur og ýmis önnur fyrirtæki. Fyrirtækin hafa styrkst og þekking og hæfni orðið til í landinu. Þessi þróun fylgir í kjölfarið á samskonar þróun við uppbyggingu íslensks orkuiðnaðar, þar sem ís- lenskir tæknimenn hafa leikið lyk- ilhlutverk allt frá því á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar ef horft er til stórra orkuvera og mun lengur þegar horft er til hitaveitna og minni virkjana. En uppbygging þekkingar og hæfni innan verkfræðifyrirtækja og annarra þjónustufyrirtækja við stór- iðjufyrirtækin í landinu hefur miklu víðtækari áhrif en einungis á þennan tiltekna iðnað. Með þessu byggist upp grunnur þekkingar og hæfni í samfélaginu sem nýtist við aðra upp- byggingu atvinnulífs- ins. Tækifæri skapast fyrir fyrirtæki og ein- staklinga að hasla sér völl á nýjum sviðum sem byggjast á þessum grunni. Þar fyrir utan eru svo tækifæri sem skapast til út- flutnings þekkingar til annarra landa. Mikil og stöðug umræða er um nýtingu orkuauðlinda landsins og er það vel. Hins vegar er mikilvægt að umræðan sé opin og vönduð og horfi til allra þátta samfélagsins, allt frá sjálfbærni og sátt við umhverfi til efnahagslegra áhrifa, áhrifa á atvinnu í landinu og uppbygginu þekkingar og hæfni íslensks samfélags. Við eig- um að halda áfram skynsamlegri nýt- ingu orkuauðlinda okkar með það að leiðarljósi að hámarka heildar- afrakstur þeirra fyrir íslenskt sam- félag. Sem best sátt þarf að vera um nýtinguna í samfélaginu og tryggja þarf sem mesta þátttöku íslenskra aðila með það að markmiði að byggja upp öflugt og hæft samfélag og at- vinnulíf og treysta þannig fram- úrskarandi lífskjör hér á landi til langrar framtíðar. Eftir Gunnar Guðna Tómasson » Í dag er allt að helm- ingur af veltu stærstu verkfræðifyr- irtækja landsins tengd- ur iðnaði, þar af lang- mest stóriðjunni í landinu. Gunnar Guðni Tómasson Höfundur er forstjóri HRV Engineering. Uppbygging stóriðju og áliðnaðar á Íslandi skapar fjölbreytt atvinnutækifæriNú liggur fyrir Al-þingi að afgreiða samgönguáætlun til fjögurra og tíu ára. Um er að ræða mikið stefnumótunarplagg um uppbyggingu alls samgöngukerfisins ásamt verkefnaáætl- un. Þar er sérstök áhersla lögð á já- kvæða byggðaþróun á grundvelli skilgrein- ingar á grunnneti samgöngu- kerfisins sem nái til alls landsins og miði að greiðum, öruggum, hagkvæmum og umhverfislega sjálfbærum samgöngum. Ég skil þetta svo að það hljóti að vera grundvallaratriði að koma á sam- göngum áður en farið er að end- urbæta annars ágætar samgöngur sem fyrir eru víðast hvar. Í samgönguáætlun er þannig lagt til að forgangsröðun fram- kvæmda taki mið af þörfum ein- stakra svæða fyrir bættar sam- göngur. Stefnt er að því að efla sveitarfélög og styrkja hvert svæði sem og landið allt, því „stytting ferðatíma, uppbygging vega með bundnu slitlagi og gerð jarðganga til að leysa af hólmi erf- iða fjallvegi skapa betri skilyrði fyrir jákvæða byggðaþróun og efl- ingu einstakra atvinnu- og þjón- ustusvæða“ eins og þar segir. Staðan á Vestfjörðum Víkur nú sögu minni til Vest- fjarða. Þar er staðan þannig að vegasamband á milli Barða- strandar- og Ísafjarðarsýslu er óviðunandi „hvort sem er út frá vegtæknilegu sjónarmiði, af ör- yggisástæðum eða fyrir þær sakir að vegurinn er ófær stóran hluta vetrar og þar er snjóflóðahætta oft mikil“ eins og segir á heima- síðu Vegagerðarinnar. Vegurinn liggur um Hrafnseyrarheiði sem er einn hæsti, hættulegasti og erf- iðasti fjallvegur landsins. „Skerð- ing af því tagi sem við íbúar fjórð- ungsins þurfum að þola í samgöngumálum leiðir ekki ein- göngu til ótryggara atvinnu- ástands, heldur hefur einnig bein áhrif á íbúaþróun með nei- kvæðum hætti“ segir enn fremur í nýlegri ályktun VerkVest um ástand samgöngumála vestra. Dýrafjarðargöng eru forsenda allra áætlana um uppbygg- ingu atvinnulífs, þjón- ustu og opinberrar stjórnsýslu á Vest- fjörðum, hvort heldur litið er til sóknaráætl- unar 20/20, byggðaáætlunar, sam- vinnu eða sameiningar sveitarfé- laga eða annarrar opinberrar þjónustu. Dýrafjarðargöng og uppbygging vegar um Dynjandisheiði sameina byggðir Ísafjarðarsýslu og Barða- strandarsýslu í eitt atvinnu- og stjórnsýslusvæði og eru „alger forsenda þess að opinberar áætl- anir um uppbyggingu á Vest- fjörðum nái fram að ganga“ segir enn fremur í ályktun Fjórðungs- sambands Vestfirðinga um málið. Þar er einnig bent á að „frestun Dýrafjarðarganga, þó ekki sé nema um nokkur ár, mun reynast samfélaginu dýr.“ Þau áköll sem borist hafa frá Vestfjörðum um þessar vegabætur eru ekki kjördæmafrekja, heldur stafa af brýnni og langvarandi þörf þessa landshluta fyrir boðleg- ar samgöngur svo atvinnulíf og búseta geti við haldist. Það er með öllu óásættanlegt að þessi fram- kvæmd frestist til ársins 2022, eins og drög að verkefnaáætlun samgönguáætlunar gera ráð fyrir. Dýrafjarðargöng hafa verið mun lengur inni á samgönguáætlun en önnur jarðgöng sem nú eru til um- ræðu. Samkvæmt eldri áætlunum áttu framkvæmdir að hefjast 2011 og þeim að ljúka 2014. Í bjart- sýnisvímu fyrirhrunsáranna var því meira að segja lofað að þeim yrði lokið 2012. Undirbúnings- vinnu er að mestu lokið og verk- efnið tilbúið til útboðs. Í samhengi við aðrar jarðganga- framkvæmdir sem til umræðu eru um þessar mundir verður ekki betur séð en að mikið fáist fyrir hverja krónu sem varið verður til verkefnisins. Vegagerðin áætlar að Dýrafjarðargöng muni kosta 7,5 milljarða og stytta vegalengd um 27 km (raunar 400 km að vetri til þegar heiðin er ófær). Til sam- anburðar má nefna að Norðfjarð- argöng munu kosta 9,5 milljarða og stytta leið um 4 km. Sam- kvæmt þessu mun hver styttur km kosta 277 milljónir í tilfelli Dýra- fjarðarganga en 2,3 milljarða í til- felli Norðfjarðarganga. Er þá ónefnd sú mikla og lífsnauðsyn- lega byggðatenging og þar með byggðastyrking sem hljótast mun af Dýrafjarðargöngum þar sem ekkert vegsamband er milli Ísa- fjarðar og Patreksfjarðar að vetri til. Í ljósi þeirrar stefnu sem sam- gönguyfirvöld hafa sett sér í sam- gönguáætlun um jákvæða byggða- þróun, sameiningu sveitarfélaga, eflingu byggðakjarna, sameiningu atvinnu- og þjónustusvæða  í ljósi þess að þegar kreppir að í efnahagsmálum þarf að fara vel með fé og fá sem mest fyrir hverja krónu  í ljósi þeirra viðvarana sem sér- fræðingar hafa ítrekað sett fram um þróun byggðar á Vestfjörðum og mikilvægi þess að koma þar á samgöngum sem eru byggðunum þar lífsnauðsyn  í ljósi þess mikla óöryggis sem hlýst af því að aka um Hrafnseyr- arheiði að sumri og þess sam- gönguleysis sem fylgir lokun hennar að vetri … hlýtur að blasa við hver verði næsta jarð- gangaframkvæmd á landinu. Eftir Ólínu Þorvarðardóttur »Dýrafjarðargöng eru forsenda allra áætl- ana um eflingu sveitar- félaga, uppbyggingu at- vinnulífs, þjónustu og opinberrar stjórnsýslu á Vestfjörðum. Ólína Þorvarðardóttir Höfundur er alþingismaður og vara- formaður umhverfis- og samgöngu- nefndar Alþingis. Dýrafjarðargöng brýnasta framkvæmdin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.