Morgunblaðið - 12.03.2012, Síða 23
UMRÆÐAN 23
Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012
Iðnaðarryksugur
NT 25/1 Eco
Ryksugar blautt
og þurrt
Fylgihlutir
Barki 35mm 2,5m,
málmrör, 30mm
gólfhaus og mjór
sogstútur.
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is
NT 55/1 Eco
Ryksugar blautt og þurrt
Fylgihlutir
Barki 35mm 2,5m, málmrör, 30mm
gólfhaus og mjór sogstútur.
Þegar gerðar eru hámarkskröfur
Sjálfvirk
hreinsun á síu
Vörubílastöðin Þróttur býður fjölbreytta þjónustu og ræður
yfir stórum flota atvinnutækja til margvíslegra verka.
SÆVARHÖFÐA 12 · SÍMI 577 5400 · THROTTUR.IS
ÞRÓTTUR TIL ALLRA VERKA
ÖFLUGIR Í SAMSTARFI
VIÐ LÓÐAFRAMKVÆMDIR
· Fellum tré og fjarlægum garðarúrgang
· Grjóthleðsla með sérhæfðum kranabílum
· Seljum hellusand og útvegum mold
Sumir stjórnmálamenn nútímans víla
ekkert fyrir sér í þeirri viðleitni að slá
pólitískar keilur. Nýjasta dæmið um
þetta er skollaleikur Þórs Saari og
Margrétar
Tryggvadóttur.
Að ætla að nýta
sér mannlegan
harmleik, þegar
maður veittist til-
efnislaust að lög-
manni og stakk
hann. Þau Mar-
grét og Þór Saari
reyndu að nota
þetta voðaverk til
að undirstrika
málflutning sinn á Alþingi. Sem betur
fer hafa fjölmiðlar tekið þessa fram-
komu þingmannanna upp og fordæmt
hana.
Í eftiráskýringum Þórs Saari kem-
ur fram hvað þessi þingmaður er
ómerkilegur. Í Kastljósi, þar sem
Helgi Seljan fór yfir málið með hon-
um, kennir hann stefnu stjórnvalda
síðustu þrjú árin um. Að hans sögn
hafa þau stjórnað þannig að fólk sé
orðið reitt, og búast megi við að það
grípi til örþrifaráða í auknum mæli
vegna aðgerðaleysis ríkisstjórn-
arinnar. Það skrýtna er að þessi þing-
maður sem svo mælir hefur leynt og
ljóst stutt þessa ríkisstjórn, sem hann
segir leika þegnana svona grátt.
Annað dæmi er þegar Steingrímur
J. Sigfússon talar ástandið svo upp að
maður spyr sig: Í hvaða syndrómi lifir
þessi maður, sem telur að hér sé allt í
himnalagi? Hér á að vera allt á upp-
leið, ástandið það besta sem þekkist í
Evrópu og þótt víðar væri leitað.
Sannleikurinn er sá að með þeim sem
flúið hafa land til að sækja sér vinnu
eru yfir tuttugu þúsund manns sem
ekki hafa atvinnu á Íslandi. Bens-
ínverð, verð á matvöru, sköttum, raf-
magni, kyndingu og svona má lengi
telja, hefur jú sannarlega verið á upp-
leið, meiri uppleið en nokkurs staðar í
Evrópu. Á sama tíma hafa laun, ellilíf-
eyrir og örorkubætur dregist saman í
rauntölum um 40%. Það þarf að fara
aftur í kreppuárin um 1930 til að finna
samjöfnuð. Steingrími J. Sigfússyni og
Vinstri grænum finnst þetta fram-
úrskarandi árangur og þjóðin van-
þakklát fyrir að kvarta yfir ástandinu.
Landsdómsmálið er eitt dæmið, þar
sem haldin eru pólitísk réttarhöld eins
og í Úkraínu og Norður-Kóreu. Stein-
grímur J. Sigfússon var aðal-
hvatamaðurinn að landsdómsmálinu.
Það hlýtur að vera ágeng spurning
hvort Steingrímur J. Sigfússon er ekki
næstur á sakamannabekk fyrir
Landsdómi fyrir þann glæsilega
samning, að hans sögn, sem Icesave 1
var. Maður spyr sig einnig hvað er að
hjá forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurð-
ardóttur, sem heldur því fram að það
hafi ekki fleiri flutt úr landi undanfarin
ár en í meðalári! Og sami ráðherra
hefur staðið í stríði við atvinnuveit-
endur á landinu, en maður hefði nú
haldið að framtíð landsins byggðist á
að góð samvinna væri á milli þessara
aðila.
Við þurfum að losna við svona lodd-
araskap af Alþingi. Við þurfum á að
halda þingmönnum og ráðherrum sem
horfa raunsætt á ástandið, þingmönn-
um sem eru í tengslum við þjóðina, en
berja ekki sjálfum sér á brjóst í póli-
tískum tilgangi.
ÓMAR SIGURÐSSON
skipstjóri.
Langt seilst
Frá Ómari Sigurðssyni
Ómar
Sigurðsson
Ég trúi ekki á tilvilj-
anir. Hinn 11. júlí 1998
birtist fyrsta grein mína
um gagnagrunnsmálið:
„Virðing alþingis.“ Ég
hélt áfram að nýta mér
velvild Morgunblaðsins
og skrifa greinar sem
gætu gagnazt síðar.
Enginn virtist lesa þær.
Hinn 11. júlí 2010 fékk
ég alvarlegt hjartaáfall.
Þann 25. október 2011 lá ég tauga-
deild LSH. Hinn 25. október 2005
heiðraði Læknafélag Íslands siða-
reglur sínar, Codex ethicus, í fyrsta
sinn og kærði mig til siðanefndar. Sjá
dagsetningarnar!
Leiksýning á taugadeild
Hinn 18. júlí 2005 las Bogi Ágústs-
son stórfréttina að forstjóri Íslenskr-
ar erfðagreiningar stæði vaktina á
taugadeild LSH í viku. Viðtal var við
Kára Stefánsson. Jónas Kristjánsson,
ritstjóri DV, lét fylgja hverju fótmáli
forstjórans. Á forsíðu DV þann 19. júlí
var forsíðumynd af Kára og stór fyr-
irsögn: „Kári snýr aftur. Ruglaðist á
sjúkrahúsum.“ Í DV 20. júlí er haft
eftir Elíasi Ólafssyni yfirlækni:
„Hann er í fríi frá vinnu. Ég veit ekk-
ert um málið.“ Sigurður G. Guð-
jónsson hrl., ábyrgðarmaður Blaðsins
lá ekki á liði sínu. Blaðið birti forsíðu-
frétt og mynd af inngangi LSH í
Fossvogi: „Mannekla á taugadeild
vegna álags.“ „Kári létti undir. Elías
Ólafsson yfirlæknir segir að það hafi
verið nauðsynlegt til að létta undir þó
að það hafi ekki verið nema til fjög-
urra daga.“
Landlæknir og stjórn Læknafélags
Íslands fylgdust andaktug með þess-
ari nýstárlegu læknisfræði. Kári van-
virti aldraðan sjúkling minn. Skráði
ekkert. Ég tók fram pennann.
Valdníðsla RÚV
Engin viðbrögð urðu við „Nýja
slopp keisarans“. Svikalogn. Hinn 20.
september 2005 lagði
ríkissjónvarpið allt und-
ir til að ganga frá mann-
orði mínu. Langt viðtal
var við yfirlækninn á
taugadeild. Í baksviði
viðtalsins var ys og erill
eins og í bráðavaktinni
ER. Þessi sviðsetning
rann upp fyrir mér í leg-
unni á taugadeildinni í
okt. sl. Sex árum síðar!
Ég aflaði mér gagna til
að sannreyna illan grun.
Hvers vegna vék yf-
irlæknirinn ekki einu orði að Kára og
framlagi hans? Þess í stað hóf Matt-
hías aðstoðarlandlæknir hæfni og vin-
sældir Kára til skýjanna!
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir:
„Meira um taugalækningadeildina,
því afleysing Kára Stefánssonar for-
stjóra ÍE er harðlega gagnrýnd í
grein í Læknablaðinu. Þar er hún
sögð „hneyksli og bera vott um dóm-
greindarleysi“. Þá efast greinarhöf-
undur um að Kári hafi lögleg lækn-
ingaleyfi. Aðstoðarlandlæknir vísar
þessu á bug. Greinina skrifar Jóhann
Tómasson læknir, en fyrirsögnin er
„Nýi sloppur keisarans.“ Þar gagn-
rýnir hann harðlega, að Kári Stef-
ánsson hafi verið fenginn til starfa á
taugadeild Landspítalans í sumar. Jó-
hann segir að Kári hafi ekkert starfað
sem læknir í nær áratug og að um
dómgreindarleysi og reginhneyksli sé
að ræða. Þá segir hann að efast verði
alvarlega um hæfi stjórnenda hins
ríkisrekna heilbrigðiskerfis.“
Matthías Halldórsson:
„Hann starfaði að mér er sagt í
nokkra daga og ég veit ekki betur en
að og hef heyrt það bæði frá sjúkling-
um og starfsfólki að það hafi verið
mjög mikil ánægja með hans störf
þar.“
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir:
„Þá fullyrðir Jóhann að Kári hafi
skilyrt takmarkað lækningaleyfi út-
gefið til bráðabirgða árið 1977. Önnur
lækningaleyfi sem íslensk stjórnvöld
hafi veitt honum séu því sennilega
ólögleg.“
Matthías Halldórsson:
„Hann er með sérfræðileyfi og
maður fær ekki sérfræðileyfi nema að
hafa lækningaleyfi. Og auk þess höf-
um við mjög litlar áhyggjur af því að
Kári kunni ekki sitt fag vegna þess að
hann er með doktorspróf í grein sinni
og hann hefur verið yfirlæknir og pró-
fessor í Bandaríkjunum.“
Þessi vitnisburður Matthíasar Hall-
dórssonar og Sigurðar Guðmunds-
sonar er hreinn glæpur. Landlæknir
er sekur um gróft stjórnsýslubrot.
Einnig brot á Codex ethicus sem seg-
ir: „Læknir, sem vísvitandi semur eða
undirritar rangt eða villandi vottorð
eða greinargerð, telst sekur um mis-
ferli.“ Ég lét eftirfarandi viðbrögð
nægja:
„21. september 2005
Sæl og blessuð Jóhanna.
Mér var sýndur sá óvænti heiður að
koma til umfjöllunar hjá ykkur í sjón-
varpinu í gærkvöldi. Það var vonum
seinna. Í sjö ár hefur aldrei verið
minnzt einu orði á mig eða þær upp-
lýsandi greinar sem ég hef skrifað um
gagnagrunnsmálið í Morgunblaðið.
Þvert á móti hefur ítrekað verið reynt
að stöðva skrif mín og komið í veg fyr-
ir viðtöl við mig í útvarpi og sjónvarpi.
Stórfrétt ykkar um ástandið á
taugadeildinni er hins vegar gömul
„frétt“. Hún var forsíðuuppsláttur í
Blaðinu mánudaginn 25. júlí sl. Við-
brögð Kára Stefánssonar við grein
eftir mig í Morgunblaðinu laugardag-
inn 23. júlí sl. sem heitir „Sex millj-
arða sukkið“. Lífið hefur fyrir löngu
kennt mér að fæst gerist fyrir til-
viljun. Eina slíka minningu eigum við
sameiginlega og má vera þér í fersku
minni. Fagmennska eða manipula-
tionir? Valið ætti að vera vandalaust.
Hafið þið ekki siðareglur eins og
læknar?
Grein mín í Læknablaðinu stendur.
Mörgum til skammar.
Með beztu kveðju, Jóhann Tóm-
asson.“
Menn eða mýs?
Eftir Jóhann
Tómasson » „Ofbeldi er aðeins
hægt að leyna með
lygi og lyginni er aðeins
hægt að viðhalda með
ofbeldi“ (Solzhenitsyn)
Jóhann Tómasson
Höfundur er læknir.