Morgunblaðið - 12.03.2012, Side 28

Morgunblaðið - 12.03.2012, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012 ✝ Magnús IngvarÁgústsson fæddist í Reykjavík þann 13. júní 1953. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut sunnu- daginn 4. mars sl. Foreldrar hans voru Ágúst Jóhann Guðlaugur Pét- ursson, f. 17. ágúst 1918, d. 19. sept- ember 1956 og Ólafía Kristín Magnúsdóttir, f. 29. febrúar 1928, d. 6. september 1999. Systkini Magnúsar eru Bára, f. 22. maí 1951 og Stefanía Mar- grét, f. 27. október 1955. Hálf- systkin Magnúsar sammæðra eru Ingigerður Magnhild, f. 1948 og Anna, f. 1960. Hálfsystkin sam- feðra eru Lárus, f. 1943 og Eð- varð Rafn, f. 1947. Kona Magn- María Sigurbjargardóttir, f. 9. september 1973. Börn Ágústs og Áslaugar eru: Andrea Nótt, f. 1991, Apríl Mist, f. 1999, Sylvía Sara, f. 2001, Elvar Snær, f. 2005, Aníta Líf, f. 2006 og Elísa Sif, f. 2008. Magnús Ingvar ólst upp í Reykjavík, eftir lát föður síns dvaldi hann, ásamt móður sinni og systrum, mikið hjá móðursystur sinni Stefaníu og eiginmanni hennar Þorgeiri en þau voru bú- sett í Fagrahvammi í Elliðaárdal. Þar voru hans æskustöðvar, sumrunum eyddi hann í Gríms- nesi, á bænum Seli, fram á ung- lingsár og átti ætíð þangað sterk- ar taugar. Magnús Ingvar byrjaði ungur að vinna hjá frænda sínum Einari Þorgeirssyni skrúðgarð- yrkjumeistara og starfaði hjá hon- um í 15 ár, hann starfaði nokkur ár hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur en var lengst af sjálfstætt starf- andi við smíðar og garð- yrkjustörf. Hann var vinsæll verk- maður, vandvirkur og vel liðinn. Útför Magnúsar Ingvars fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 12. mars 2012, og hefst athöfnin kl. 15. úsar Ingvars er Hjördís Hafsteins- dóttir, f. 15. nóv- ember 1952 . For- eldrar hennar eru Hafsteinn Hjart- arson, f. 1908, d. 1993 og Jórunn Sveinbjörnsdóttir, f. 1925. Börn Magn- úsar Ingvars og Hjördísar eru 1) Berglind, f. 1. októ- ber 1972, maki Heimir Jónasson f. 13. apríl 1966. Börn þeirra eru Markús f. 1997, Áshildur Þóra f. 2003 og Silja Björk f. 2005. 2) Auður f. 26. apríl 1976, maki Þor- bergur Auðunn Viðarsson, f. 19. mars 1970, d. 4. október 2011. Þeirra börn eru Óttar Ingi, f. 1994, Laufey Eva, f. 1996 og El- ísabet Huld, f. 1997. 3) Ágúst, f. 11. janúar 1978, maki Áslaug Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. (Hugrún) Elsku besti pabbi minn, það er óbærilegt að þú sért farinn. Það er sem náttúruhamfarir hafi dunið yfir okkar litlu fjölskyldu undan- farna mánuði, fyrst deyr Tobbi tengdasonur þinn og núna ert þú farinn á eftir honum, 5 mánuðum seinna uppá dag. Minningarnar eru það sem eftir stendur og af þeim er nóg sem betur fer. Þú varst besti pabbi sem hægt er að hugsa sér, fynd- inn, skemmtilegur, fróður og dug- legur. Man hvað þú varst stoltur af mér þegar ég fékk fyrsta laun- aða sumarstarfið mitt 13 ára og þegar ég fékk bílprófið mitt var minn kall stoltur af sinni dóttur. Allar ferðirnar á Melavöllinn á skauta með okkur systkinin, lítil kók í gleri og grænn Tópas, heim- sóknir til ömmu á Skúló, minning- arnar eru óteljandi og núna það eina sem stendur eftir. Það er óréttlátt að fá ekki að safna fleiri minningum með þér, barnabörnin þín hafa misst svo mikið með brotthvarfi þínu en nú er það okk- ar hlutverk að halda minningu þinni á lofti svo þau geti í gegnum okkur kynnst því hversu mikill öð- lingsmaður afi þeirra var. Ekki hafa áhyggjur af mömmu, við munum hugsa vel um hana eins og við lofuðum þér, elsku pabbi. Hvíldu í friði, pabbi minn, öll mín afrek fyrr og síðar eru þér til heiðurs. Þín dóttir Berglind. „Já nei, þarna er hann!“ – „Þarna er hver?“ „Nú fyrsti fram- sóknarmaðurinn.“ Þú glottir og augun leiftra þar sem við sitjum í makindum í stof- unni heima og erum að horfa á heimildarþátt BBC um vel varð- veitta steingervinga sem rétt í þessu var að ljúka. Við vorum að upplifa einhverja merkilega stór- skrítna veru á skjánum sem David Attenborough útskýrði með sín- um magnaða seiðandi rómi. Það var alltaf stutt í húmorinn, Bóbó minn. Þetta með framsóknar- mennina var auðvitað alltaf bara fyrirsláttur. Vandaðir heimildarþættir frá BBC, kaffi og moli í eldhúsinu eða vindill úti á svölum var tækifæri til að ná þér í rólegheitum. Maður varð að hafa gætur á að vindillinn væri ekki orðinn of stuttur, því þá var maður alveg að missa þig af stað í eitthvert verk. Þá varstu farinn að vinna. „Jæja, svona er þetta bara, best að fara að gera eitthvað af viti og hætta þessu hangsi.“ Já verkin þín. Það var aldrei neitt bilað á mínu heimili. Þú lag- aðir það áður en maður náði að snúa sér við, rafmagnstæki, smíðavinna, bílar, þú gast allt. Svona menn eins og þú eru að deyja út. Menn sem tengjast hlut- um á óvenjulegan hátt og eru „kreatívir“ handverksmenn. Það var aldrei neitt ónýtt í þínum huga – þú gast alltaf lagað allt. Að eitt- hvað væri ónýtt var ekki til í þinni orðabók. Þú gast bara ekki lagað hvítblæðið. Þú tókst því eins og hetja og barðist eins og ljón til að geta verið með okkur eins lengi og hægt var. Þvílíkur vilji og lífs- kraftur. Gleymi ekki sögunni þegar þú varst að róta með hljómsveitum í gamla daga. Hvernig þið laumuð- uð einu sinni bjórdósum á bak við mælaborð á sendibíl þegar þið voruð búnir að spila uppi á velli og komuð að öryggishliðinu í grenj- andi rigningu. Fyrir vikið virkuðu rúðuþurrkurnar ekki þar sem ein- hver bjórdós stóð föst í þurrkumó- tornum. Það voru svitaperlur á enninu á prökkurunum í sendi- bílnum eftir að hafa sloppið í gegnum hliðið án þess að her- mennirnir tækju eftir neinu. Svo sprunguð þið úr hlátri og þú skrúfaðir mælaborðið frá og sóttir bjórinn á bak við næstu hæð. Bóbó minn. Mér er sérstaklega minnisstætt hvað þú varst alltaf barngóður og skemmtilegur afi. Takk fyrir að taka alltaf svona vel á móti börnunum okkar. Takk fyr- ir athyglina sem þau fengu sífellt hjá þér. Magnað hvernig þér tókst alltaf að gera ævintýri úr hverri setningu. Lambalærið ykkar Hjördísar ömmu var alltaf best og takk fyrir stundirnar sem við átt- um með ykkur ömmu Hjördísi og börnunum okkar í bústaðnum ykkar í Úthlíð. Verkin þín í görðum borgarinn- ar eiga líka alltaf eftir að minna okkur á hvað þú varst mikill lista- maður. Þau eru þínir steingerv- ingar. Takk elsku tengdapabbi fyrir alla hjálpina – alltaf. Haltu áfram að smíða, gleymdu ekki að láta framsóknarmennina á himn- um heyra það annað slagið. Börn- in okkar sakna afa Bóbó. Við Berglind söknum þín. Elsku Hjör- dís amma, hugurinn er hjá þér. Bóbó er ekki farinn. Hann verður hjá okkur áfram. Svona er þetta bara. Sjáumst seinna, elsku vinur. Heimir. Elskulegi tengdapabbi minn og afi Bóbó. Mér þykir það afar óraunverulegt að sitja hér og skrifa minningargrein um þig elsku Bóbó minn. Það er svo margt sem fer um hugann er ég hugsa um þann tíma sem ég fékk til að kynnast slíkum heiðurs- manni sem þér. Þó að tíminn okkar hafi ekki verið langur þá mynduðust mjög fljótt sterk vinabönd á milli okkar. Þú hafðir gaman af því að segja mér sögur og fræða mig um allt milli himins og jarðar, við gátum hlegið eins og enginn væri morg- undagurinn. Þó að þú hafir nú ekki mikið verið fyrir að flíka til- finningum þínum eins og maður segir, þá fann ég ávallt fyrir því hversu vænt þér þótti um okkur og hversu mikils virði við vorum þér. Ég og börnin fengum þann mikla heiður að fá að hafa þig mik- ið hjá okkur vegna þess hversu þú og sonur þinn voruð nánir og ávallt að sýsla í einhverjum verk- efnum saman. Afi Bóbó var uppáhaldið á heimilinu okkar og litli stubbur elskaði að fá að stússast með afa og pabba út um allar trissur. Elsku Bóbó minn, þú gafst okk- ur svo mikið og gladdir okkur of- boðslega með nærveru þinni. Þú fórst í gegnum veikindin þín með þvílíkum dugnaði og krafti eins og þér einum var lagið. Elsku besti tengdapabbi minn og afi okkar, þú átt svo stóran stað í hjarta okkar og verður erfitt að fylla upp í. Nú ertu frjáls ferða þinna og kominn til hans Tobba okkar sem var þér svo dýrmætur. Nú ertu farinn elsku Bóbó minn sárt er að kveðja í hinsta sinn ég aldrei þér gleymi og minningarnar geymi nú bíða þín ótalmörg þau verkefnin. Hvíl þú í friði öðlings drengur þú þarft ekki að bíða lengur þar sem þú ert, veit ég að þú sért að öllu leyti mikilfengur. Guð geymi þig. Þín tengdadóttir og barnabörn, Áslaug og börn. Eins og máltækið segir, þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Við viljum kveðja með söknuði vin og frænda, Bóbó eins og hann var oftast kallaður. Við minnumst margra stunda sem við áttum saman í gegnum árin. Hann var svo sérstakur að hægt væri að skrifa um hann skemmtilega bók. Nú kemur Bóbó ekki lengur með gusti upp á pallinn í sumarbú- staðnum og segir hlæjandi: „Eru ekki allir í stuði?“ Veður um gólf, þiggur kaffi og mola, segir brand- ara og sögur en allt í einu er hann að flýta sér. Segir: „Komdu kerl- ing, kötturinn bíður í bílnum,“ og þá eru hjónin þotin. Í hittifyrra fórum við á jóla- hlaðborð á Geysi í Haukadal með Bóbó og Hjördísi konu hans. Það var snjór yfir öllu og stjörnubjart- ur himinn, það var eins og að ganga inn í himnaríki. Þegar við gengum inn á veitingastaðinn Geysi var allt skreytt með jólaljós- um, kúlum, englum og jólasöngur hljómaði um allt. Maturinn var góður, Bóbó sagði sögur og reytti af sér brandarana og höfðu allir mjög gaman af þrátt fyrir að heilsu hans væri farið að hraka. En þessi stund mun ávallt lifa í minningunni. Bóbó var mikill vinnuþjarkur og var alltaf að, og tilbúinn að að- stoða aðra. Það kom sérstaklega í ljós þegar við stækkuðum sum- arbústaðinn hjá okkur. Þá var hann mættur eldsnemma í smíða- gallanum til að hjálpa, þó heilsan væri ekki góð, stjórnaði verkinu, reytti af sér brandara og sagði sögur. Þar sem stutt var á milli bústaða hjá okkur höfðum við Hjördís matarboð til skiptis og frændurnir höfðu alltaf gaman af að hitta hvor annan, enda voru þeir sem bræður. Ógleymanlegt var þegar Hjördís bauð í vöfflur, hún bakaði af kappi og Bóbó sagði sögur og fræddi okkur um fuglana sem voru hans áhugamál og út- sýnið úr bústaðnum. Maggi og Bóbó fóru saman í laxveiði með Gústa syni hans í Vestur-Búðardalsá. Þar veiddu þeir sinn laxinn hvor, nutu veður- blíðunnar og komu ánægðir með fenginn til baka og sögðu margar sögur frá ferðinni. Elsku Hjördís, þú hefur staðið þig eins og klettur við hlið Bóbó í veikindum hans, elskað og hjúkr- að svo hann gæti verið heima sem mest, allt fram á síðasta dag, uns hann þurfti að leggjast inn á spít- ala og lést nokkrum dögum síðar. Við vottum fjölskyldu, aðstand- endum og vinum alla okkar samúð og megi guð leiða ykkur veginn. Við kveðjum með þessum orð- um: Einn er maðurinn veikur en með öðrum sterkur. Einmana huga þrúgar þarflaus kvíði. Ef vinur í hjarta þitt horfir og heilræði gefur verður hugurinn heiður sem himinn bjartur og sorgar ský sópast burt. (J.G.Herder.) Kveðja, Magnús Ingvar Þorgeirsson, Sigríður Gunnarsdóttir og fjölskylda. Í dag er borinn til hinstu hvíld- ar kær vinur okkar, Magnús Ingv- ar Ágústsson. Við kynntumst Magnús Ingvar Ágústsson ✝ Laufey PálínaÞorsteinsdóttir fæddist á Akureyri þann 18. júní 1933. Hún lést á Dval- arheimilinu Hlíð 5. mars 2012. Foreldrar henn- ar voru Rannveig Jónsdóttir frá Engimýri í Öxna- dal, f. 10. nóv- ember 1902, d. 15. febrúar 1994 og Þorsteinn Gunnlaugur Halldórsson frá Rauðalæk í Glæsibæjarhreppi, f. 24. febrúar 1886, d. 19. febr- úar 1972. Systkini Laufeyjar voru Alda Rannveig, f. 22. októ- ber 1923, d. 14. september 2004, Anna Sigríður f. 4. júlí 1927, d. 29. desember 2006, Hreinn Guðmundur, f. 12. nóv- ember 1930, d. 29. desember 1979, Halldór Valur f. 25. sept- 1961. Dætur Þorsteins og Evu eru Laufey Ásta, f. 25. nóv- ember 1990 og Rannveig, f. 20. maí 1993. Sonur Þorsteins og Kristbjargar Kjartansdóttur er Bernharð Grétar, f. 14. apríl 1976, sambýliskona, Lilja Bergsdóttir, f. 25. október 1977, þeirra börn eru Berglind Sara, f. 19. janúar 1997 og Þor- steinn Örn, f. 19. ágúst 1999. Sonur Evu, Reynir Svan Svein- björnsson, f. 7.febrúar 1984, maki Signa Hrönn Stef- ánsdóttir, f. 4. september 1987, dóttir þeirra er Rakel Sara, f. 3. júní 2011. 2) Skúli Rúnar, f. 11. september 1955, maki Arna Jakobína Björnsdóttir, f. 7. október 1957. Synir þeirra eru Jóhann Björn, f. 8. janúar 1979, maki Soffía Guðný Santacroce, f. 26. desember 1979, þeirra börn eru Elí Smári, f. 17. jan- úar 2007 og Elena Sóley, f. 17. júlí 2011. Árni, f. 4. febrúar 1982, sambýliskona Kristjana Hákonardóttir, f. 2. sept. 1984. Útför Laufeyjar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, mánu- daginn 12. mars 2012, og hefst athöfnin klukkan 10:30. ember 1937, Ævar, f. 15. desember 1939, Sævar, f. 2. ágúst 1942 og Jón- heiður Pálmey, f. 21. október 1944. Hálfsystkini Lauf- eyjar, samfeðra, voru Baldur, f. 2. september 1922, d. 16. júní 2006 og Bára, f. 11. október 1924. Laufey giftist Árna Herberg K. Skúlasyni 16. maí 1953. Árni var fæddur 18. september 1932 á Ísafirði. Hann lést þann 15. júlí 2000. Foreldrar Árna voru Skúli Þórðarson, f. 2. okt. 1902, d. 8. febrúar 1996 og Sigrún Finn- björnsdóttir, f. 6. apríl 1904, d. 8. mars 1989. Synir Laufeyjar og Árna eru 1) Þorsteinn Veig- ar, f. 24. janúar 1953, maki Eva Ásmundsdóttir, f. 15. desember Víst er þetta löng og erfið leið, og lífið stutt og margt, sem útaf ber. En tigið gegnum tál og hverskyns neyð skín takmarkið og bíður eftir þér. Hve oft þú hrasar, oft þig brestur mátt, hve undarlega er gott að sitja kyrr. Samt kemstu á fætur, réttir höfuð hátt, og hraðar þér af stað sem áður fyrr. Svo styttist þessi ganga smátt og smátt, og seinast stendurðu einn við luktar dyr. (Steinn Steinarr) Laufey ólst upp í foreldra- húsum á Eyrinni á Akureyri ásamt stórum systkinahópi. Hún fór ung að heiman til vertíðar í Vestmannaeyjum þar sem hún kynntist Árna manni sínum. Þau hófu síðan búskap á Akureyri og áttu fallegt heimili sem ein- kenndist af myndarskap og handavinnu Laufeyjar, heklaðar gardínur, dúkar og útsaumur. Laufey og Árni áttu marga góða vini sem komu oft í heim- sókn og þau skemmtu sér vel saman. Farnar voru utanlands- ferðir með vinum sem mikið var talað um og ljóst að þau bæði nutu þeirra ferða að fullu. Lauf- ey hafði þó oft nokkurn ferða- kvíða og var farin að skipu- leggja allt með góðum fyrirvara þannig að ekkert yrði eftir heima. Grínast var með þetta og hafði hún bara gaman af því. Laufey starfaði lengst af hjá Útgerðarfélagi Akureyringa við saltfiskverkun og síðar við fisk- mat. Vinnan var henni mikilvæg og hún var samviskusöm, dugleg og ósérhlífin. Hún hafði létta lund og var umburðarlynd eins og kemur fram þegar rætt er við samstarfsfólk hennar sem hefur borið henni vel söguna og fannst gaman að vinna með henni. Árið 1987, aðeins 54 ára að aldri, fékk Laufey heilablóðfall, sem leiddi til þess að hún varð bundin hjólastól og missti málið. Þrátt fyrir þá gífurlegu fötlun tókst henni með dugnaði sínum að njóta góðra stunda með fólki sínu með hlátri og glaðværð því þrátt fyrir málleysið gat hún sungið með en tónlist var henn- ar skemmtun. Þannig náði hún til fólksins sem annaðist hana og kynntist henni. Hún gat málað á Laufey Þorsteinsdóttir Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda-móðir, amma og langamma, RÓSA KEMP ÞÓRLINDSDÓTTIR, Barrholti 7, 270 Mosfellsbæ, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 8. mars sl. Jarðarför auglýst síðar. Jón Þorberg Eggertsson, Ólafur Ólafsson, Alda Konráðsdóttir, Svala Haukdal Jónsdóttir, Kjartan O. Þorbergsson, Þórdís Elva Jónsdóttir, Hafsteinn Ágústsson, Guðríður Erna Jónsdóttir, Ólafur Ágúst Gíslason, Jórunn Linda Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MARÍA SIGRÍÐUR HERMANNSDÓTTIR, Smáratúni 20, Keflavík, andaðist að kvöldi dags 10. mars á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlévangi í Keflavík. Eydís B. Eyjólfsdóttir, Hafsteinn Guðnason, Elínrós B. Eyjólfsdóttir, Gunnlaugur Gunnlaugsson, Guðrún B. Eyjólfsdóttir, Þórarinn B. Eyjólfsson, Ólöf Ásgeirsdóttir, Anna María Eyjólfsdóttir, Ólafur Ingi Reynisson, Elsa Lilja Eyjólfsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.