Morgunblaðið - 12.03.2012, Page 32
32 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012
Sudoku
Frumstig
7 6 1 3 4
3 1 7 8
4 8
6 3
1 3
2
9 1 4
4 2 8 1
2 9
5
3 7 2
8 6
3 1
1 8 6 5
4 7 3 8
8 7 4 2 5
6 7 3
4 8 1
9 4
1 8 5 6
7
5 4 8 9 7
4 2
9 5
2 9
1 7 3
9 6 2 3
3 2 5 7 4 1 9 6 8
4 9 1 6 8 5 2 7 3
6 7 8 2 3 9 4 5 1
8 1 4 9 5 7 3 2 6
2 6 7 4 1 3 8 9 5
9 5 3 8 2 6 7 1 4
5 4 2 1 9 8 6 3 7
7 3 9 5 6 4 1 8 2
1 8 6 3 7 2 5 4 9
6 8 5 2 7 3 1 9 4
3 1 7 4 9 8 2 6 5
9 2 4 5 6 1 7 3 8
7 5 3 6 1 9 4 8 2
8 4 1 3 2 5 6 7 9
2 6 9 8 4 7 5 1 3
5 3 6 1 8 4 9 2 7
1 9 8 7 5 2 3 4 6
4 7 2 9 3 6 8 5 1
3 7 2 1 9 6 8 5 4
6 1 8 4 5 3 7 9 2
5 9 4 7 2 8 6 1 3
1 4 3 6 8 9 2 7 5
7 8 9 5 4 2 1 3 6
2 6 5 3 7 1 9 4 8
8 3 7 9 6 5 4 2 1
9 5 6 2 1 4 3 8 7
4 2 1 8 3 7 5 6 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 12. mars,
72. dagur ársins 2012
Orð dagsins: Sá sem vill elska lífið og
sjá góða daga, haldi tungu sinni frá
vondu og vörum sínum frá að mæla
svik. (1Pt. 3, 10.)
Víkverji eyddi helginni í hressi-legu veðri á Snæfellsnesi. Þar
voru hátt í tuttugu nýliðar að þreyta
inntökupróf í björgunarsveit, eftir
átján mánaða þjálfun. Prófið, sem
tók yfir sólarhring, fór að mestu
leyti fram utandyra. Íslenskt björg-
unarsveitarfólk kvartar sjaldnast
yfir kulda, vindi eða vætu. Það er
þess starfsumhverfi.
x x x
Á meðan á prófinu stóð gengu ný-liðarnir yfir 20 kílómetra með
allan sinn búnað á bakinu. Á leiðinni
leystu þeir margskonar verkefni
sem sneru meðal annars að notkun
korts og áttavita, fyrstu hjálp, leit að
fólki, notkun slöngubáta, fjalla-
björgun, rústabjörgun og þar fram
eftir götunum.
Í svona prófi er enginn tími fyrir
góðan nætursvefn, í mesta lagi
klukkutíma lúr í tjaldi undir ein-
hverri hlíðinni. Íslenskt björgunar-
sveitarfólk kvartar sjaldnast yfir
svefnleysi. Næturnar eru oft þess
starfstími.
x x x
Nú kynnu margir að halda að íþessu prófi hafi aðeins verið
risastórir og þreknir karlmenn um
fertugt, sem taka reglulega þátt í
aflraunakeppnum. Það er myndin
sem Víkverji hafði lengi vel af björg-
unarsveitarmönnum. En sannleikur-
inn er sá að flestir nýliðarnir voru
nálægt tvítugu. Strákar og stelpur,
hverra jafnaldrar eyddu margir
helginni á skemmtistöðum. Það
gleymist stundum að tala um unga
fólkið sem er að gera góða hluti. Ís-
lenskt björgunarsveitarfólk er ungt
og efnilegt.
x x x
Þeir nýliðar sem þreyttu próf umhelgina eru hluti af mikið stærri
hóp sem byrjaði í þjálfun fyrir einu
og hálfu ári. Björgunarsveitir gera
kröfur til meðlima sinna sem margir
treysta sér ekki til að verða við. Ís-
lenskt björgunarsveitarfólk er vel
þjálfað og undirbúið. Það eru engir
aukvisar sem klára svona próf.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 mjúkar á mann-
inn, 8 svara, 9 mannsnafn,
10 hrúga, 11 borða upp, 13
kvendýrið, 15 regndembu,
18 kvendýr, 21 skjól, 22 skil
eftir, 23 hljóðfæri, 24 ring-
ulreið.
Lóðrétt | 2 á kú, 3 steina-
kkeri, 4 brigsla, 5 gömul, 6
frábær, 7 sigra, 12 mergð,14
lítur, 15 gleðskap, 16 geð-
vond, 17 spök, 18 kurr, 19
dragið, 20 sefar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 króks, 4 vogar, 7 rjúfi, 8 munum, 9 góm, 11 skap, 13
óróa, 14 áfátt,15 fúll, 17 treg, 20 stó, 22 njóli, 23 gapti, 24 aftri,
25 tengi.
Lóðrétt: 1 kurfs, 2 ólúna, 3 seig, 4 vömm, 5 gónar, 6 rúmba, 10
ósátt, 12 pál,13 ótt, 15 fenna, 16 ljóst, 18 ræpan, 19 geigi, 20 sili,
21 ógát.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Á fölskum forsendum. V-NS.
Norður
♠KD65
♥K10853
♦Á63
♣G
Vestur Austur
♠Á83 ♠107
♥97 ♥ÁG6
♦KD5 ♦10972
♣107543 ♣D982
Suður
♠G842
♥D42
♦G84
♣ÁK6
Suður spilar 4♠.
Enski spilarinn Justin Hackett lagð-
ist í rannsóknir og setti fram tilgátu.
Hún var röng.
Við erum stödd á Balí árið 1995, á
HM ungmenna. Vestur passar í upphafi
leiks og kemur svo út með ♦K gegn 4♠.
Justin dúkkar, austur vísar frá, en vest-
ur spilar samt ♦D í öðrum slag. Justin
drepur, spilar trompi á gosann og ás
vesturs. Enn kemur tígull, Justin á slag-
inn heima, tekur trompin með ♠KD og
spilar óvænt ♣G úr blindum. Smátt frá
austri, drepið hátt og lauf trompað.
Loks: ♥10 úr borði – lítið, lítið og lítið.
Tíu kostulegir slagir.
Tilgáta Justins var sú að ♣D væri í
vestur úr því að austur sýndi gosanum
engan áhuga. Og með ♣D til hliðar við
♠Á og ♦KD væri vestur kominn upp í
11 punkta og ætti þá opnun með ♥G
líka.
12. mars 1948
Sagan hans Hjalta litla, barna-
saga eftir Stefán Jónsson, kom
út. Áður hafði hann lesið sög-
una í Útvarpið og naut hún
mikilla vinsælda. „Dag eftir
dag og viku eftir viku biðu
menn fullir óþreyju eftir lestri
sögunnar,“ sagði í blaða-
auglýsingu.
12. mars 1965
Fyrsta íslenska bítlaplatan
kom út. Á henni voru tvö lög
með Hljómum, Bláu augun þín
og Fyrsti kossinn, bæði eftir
Gunnar Þórðarson en Ólafur
Gaukur gerði textana. Hljóm-
ar störfuðu frá 1963 til 1969.
12. mars 1965
Breska hljómsveitin The Se-
archers kom fram á hljóm-
leikum í Austurbæjarbíói
ásamt Tónum og Sóló. „Ein
allra besta enska hljóm-
sveitin,“ sagði Svavar Gests í
Lesbók Morgunblaðsins.
12. mars 1974
Rithöfundarnir Gunnar Gunn-
arsson og Þórbergur Þórðar-
son voru gerðir að heiðurs-
doktorum við Háskóla Íslands.
Gunnar sagði í samtali við
Morgunblaðið að sér hefði
ekki verið sýndur meiri sómi á
lífsleiðinni.
12. mars 2001
Hverastrýtur á botni Eyja-
fjarðar voru friðlýstar, fyrstar
náttúruminja í hafi hér við
land. Strýturnar eru á 65
metra dýpi og er önnur 50
metra há en hin 30 metrar.
Þær fundust 1997 og 1998 og
þykja einstakar í heiminum.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Ármann J. Lárusson, sigursælasti glímumaður Ís-
landssögunnar, er 80 ára í dag. Ármann hélt upp á
stórafmælið í fríkirkjunni Kefas á Vatnsenda um
helgina, en um 100 manns komu þangað í tilefni
dagsins. Björg R. Árnadóttir, eiginkona Ármanns,
er ein af stofnendum Kefas og þau hjónin lögðu
mikla vinnu í það að byggja kirkjuna sem reis árið
2001 og stendur á fallegum stað í Vatnsendahverf-
inu. Ármann vann hið fræga Grettisbelti fyrst árið
1952. Hann var síðan glímukóngur 14 ár í röð frá
árunum 1954-1967. Ármann vann einnig Ár-
mannsskjöldinn árið 1950. Hann vann skjöldinn
síðan aftur á árunum 1953-1956 og 1958-1960 eða samtals 8 sinnum.
Ármann J. Lárusson er þekktur sem sigursælasti glímukappi Íslands-
sögunnar en engum íslenskum glímumanni hefur tekist að leika þetta
eftir. Ármann hefur ekki unnið mikið í kringum glímuna eftir að hann
hætti að keppa. „Ég var aldrei tengdur inn í stjórnina þarna. Þetta
var bara klíka sem maður komst aldrei inn í. Maður var víst ekki í
réttum klúbb þarna,“ sagði Ármann léttur, en hann æfði fyrst hjá
Ungmennafélagi Reykjavíkur og síðan hjá Ungmennafélagi Breiða-
bliks.
Ármann J. Lárusson glímukappi er 80 ára
Enginn hefur toppað hann
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
12. mars Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.52 0,1 8.58 4,0 15.08 0,2 21.24 4,0 7.55 19.21
Ísafjörður 5.01 -0,1 10.55 2,1 17.18 -0,0 23.23 2,0 8.02 19.24
Siglufjörður 1.12 1,3 7.09 -0,0 13.37 1,2 19.33 0,1 7.45 19.07
Djúpivogur 0.04 0,0 6.05 2,0 12.14 0,1 18.26 2,2 7.25 18.50
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Persónutöfrarnir hafa aukist svo að
fólk getur ekki að því gert að segja já við jafn-
vel þínum brjáluðustu hugmyndum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú munt hugsanlega gera einhvers
konar uppreisn gegn yfirmönnum þínum í
dag. Hlustaðu vel og lestu í það sem er sagt –
og líka það sem ekki er sagt.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þótt fjárhagurinn sé þröngur þarf
samt að kaupa nauðsynlega hluti. Láttu
skyldur þínar ganga fyrir öllu öðru.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú hefur fengið starf sem krefst mik-
illar ábyrgðar af þinni hálfu. Sýndu samt lip-
urð og léttleika þegar þú víkur þér undan.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú hefur ekki verið þekktur fyrir að ör-
vænta ef þér finnst ekki hlutirnir ganga sem
skyldi. Leitaðu frekar eftir samstarfi við aðra
en samkeppni því það mun gefa þér góðan
árangur.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Kláraðu allt sem fyrir liggur áður en
þú byrjar á nýjum verkefnum. Dagurinn byrjar
hugsanlega ekki sem skyldi en draumlyndi og
gleði tekur völdin þegar á líður.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Hver er sinnar gæfu smiður og það
sannast á þér sem öðrum. Mundu að lítið
bros getur dimmu í dagsljós breytt. Þú ert í
skapi til að kynnast nýju fólki og haltu áfram
að láta þig dreyma stórt.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú pælir mikið í peningum og ert
kominn með á hreint hvernig má bæta
ástandið á þeim bænum. Ekki hafa áhyggjur.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það kann ekki góðri lukku að
stýra ef þú hefur ekki samráð við þína nán-
ustu um hluti, sem snerta ykkur öll. Stundum
þarf bara að segja hvers maður óskar.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Í stað þess að ýta þér áfram til að
eignast það sem þú álítur þig þurfa, farðu í
öfuga átt. Skoðaðu málið vandlega svo þú
hafir það á hreinu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Atburðarásin mun taka öll völd úr
höndum þér ef þú ekki stingur við fótum og
nærð stjórn á hlutunum. Stattu fast á þínu.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þér finnst einsog ráðist sé að þér úr
öllum áttum og kannski er það satt. Leyfðu
öðrum að njóta sín.
Stjörnuspá
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5 Rfd7 5.
f4 c5 6. Rce2 Rc6 7. Rf3 Db6 8. c3 Be7
9. a3 c4 10. g4 h5 11. gxh5 Hxh5 12. f5
Rf8 13. fxe6 Bxe6 14. Rf4 Hh8 15. Rxe6
Rxe6 16. Dc2 0-0-0 17. Be3 Hh5 18. Bf2
f5 19. exf6 gxf6 20. 0-0-0 Rf4 21. Bg3
Bd6 22. Bxf4 Bxf4+ 23. Kb1 Kb8 24. h4
a6 25. Bh3 Ra7 26. Hde1 Rb5 27. Ka2
Hh6 28. He6 Da5 29. Kb1 Bd6 30. Kc1
Hg8 31. Hf1 Hhg6 32. a4 Bf4+ 33. Kb1
Rc7 34. He2 Hg3 35. Bf5 b5 36. Be6
Staðan kom upp í C-flokki Corus-
skákhátíðarinnar í Wijk aan Zee í Hol-
landi. Sænski stórmeistarinn Hans
Tikkanen (2.549) hafði svart gegn
hinni þýsku Elisabeth Paehtz (2.454).
36. … Hxf3! 37. Hxf3 Hg1+ 38. Ka2
Hc1 39. Hxf4 Hxc2 40. Hxc2 Rxe6 og
svartur vann skömmu síðar. Áttunda
umferð Alþjóðlega Reykjavík-
urskákmótsins fer fram í dag í Hörpu,
sbr. nánar á www.skak.is.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.